Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur 8 . apríl 2026 Mál nr. E - 3257/2025 : A (Flóki Ásgeirsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Þórður Guðmundsson lögmaður) Dómur Málsmeðferð og dómkröfur aðila 1. Mál þetta, sem dómtekið var 1 2 . mars 2026 , var höfðað 26. maí 202 5 af A , í Reykjavík , gegn Reykjavíkurborg , Ráðhúsi Reykjavík ur við Tjarna r götu 11 í Reykjavík. 2. Stefnandi krefst þess að stefnd i greiði stefnanda 1.300.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 26. júní 2025 til greiðsludags. Þá krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefnd a . 3. Stefnd i krefst sýknu af öllum kröfum stefnanda og að stefnanda verði gert að greiða stefnd a málskostna ð . Helstu málsatvik A 4. Stefnandi, sem er fæddur árið , er greindur með , og . Stefnandi býr hjá foreldrum sínum ásamt eldri bróður og þarf aðst oð við athafnir daglegs lífs. 5. Hinn 14. febrúar 2018 lagði móðir stefnanda inn umsókn hjá stefnd a um sértækt hús - næðisúrræði fyrir hönd stefnanda . Í upplýsingum með umsókninni, svokallaðri mats - og þarfagreiningu, dagsettri sama dag , kemur m.a. fram að stefnandi þ u rfi á næturvakt að halda og að stuðningsþjónust a hans sé meti n til 35 stiga. Um aðra stoðþjónustu sagði að stefnandi væri með sjö sóla r hringa á mánuði í skammtímavistun og með 25 klukku - stundir á mánuði í liðveislu. Varðandi fjölskylduaðstæður stefnanda er þar greint frá veikindum bróður stefnanda og stöðu foreldra hans, sem eru sögð orðin öldruð , eigi bæði við stoðkerfisvanda að stríða sem fari versnandi vegna umönnunarþyngdar stefnanda og geti ekki lengur haft hann hjá sér á heimilinu . U msókn stefnanda var móttekin 16. sama mánaðar og samþykkt á biðlista 5. mars 2018 . 6. Umsókn s tefnanda um sértækt húsnæði fyrir fatlað fólk var endurmetin 17. febrúar 2020 á grundvelli nýrra reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði og hann metin n 2 til 10 stiga samkvæmt matsviðmiðum . Í bréfi þar um kom m.a. fram að umsókn hans um héldi gildi sínu og v æri áfram samþykkt á biðlista. 7. Bókað er eftir móður stefnanda í viðtali um stoðþjónustu fyrir stefnanda , sem hú n mun hafa komið í til starfsmanns stefnd a í október 2022 , m.a. að foreldrar séu orðin ansi langþreytt á biðinni eftir búsetu fyrir stefnanda. Af gögnum málsins má ráða að einnig hafi á þeim tíma legið inni hjá stefnd a umsókn um aukningu á skammtímavistun fyrir stefnanda í . 8. Hinn 18. ágúst 2023 var stefnandi, með bréfi frá velferðarsviði stefnd a , upplýstur um stöðu umsóknar hans um húsnæði fyrir fatlað fólk hvar vísað var til umsóknar hans , dags. 14. febrúar 2018. Í bréfinu sagði m.a. að 1. júní s.á. hefðu alls 133 einstaklingar átt gilda umsókn um húsnæði fyrir fatlað fólk, þar af 2 7 sem metnir væru í sama þjónustuflokki og stefnandi. Við forgangsröðun umsókna væru lögð til grundvallar þau viðmið sem til - greind væru í matsviðmiðum í reglum stefnd a um félagslegt leiguhúsnæði. Við forgangs - röðun væri m.a. horft til þarfa viðkomandi og lengdar biðtíma eftir húsnæði. Einnig væri horft til annarrar þjónustu sem stæði til boða á biðtíma, sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fól k. Þá væri litið til núverandi húsnæðis - aðstöðu umsækjanda og hversu brýna þörf viðkomandi hefði fyrir viðeigandi húsnæði. Sagði þar og að endurskoðuð uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk hefði verið samþykkt á fundi borgarráðs 11. ágúst 2022 og v ísað til fjárhagsáætlunargerðar. Þessi áætlun gerði ráð fyrir umtalsverðri uppbyggingu húsnæðis á næstu árum. Í áætluninni væri gert ráð fyrir 10 íbúðakjörnum fyrir fatlaða einstaklinga í þjónustuflokki I II sem kæmu til úthlutunar á árunum 2023 2030. Þar a ð auki myndi koma til úthlutunar hús - næðis í einum íbúðakjarna á grundvelli fyrri uppbyggingaráætlunar sem samþykkt hafi verið árið 2017. Miðað við framangreint væri gert ráð fyrir að stefnandi fengi úthlutað húsnæði á árinu 202 5. Í bréfinu sagði að einsta klingsbundin áætlun væri með fyrirvörum um ýmsar óviðráðan legar aðstæður sem gætu haft áhrif á uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk, svo sem fjármögnun, breytingar sem orsakist m.a. af aðstæðum á bygg - ingamarkaði og hugsanlegar breytingar á skipu lagi innan borgarinnar, m.a. hvað varðar lóðaframboð. Þá geti breyttar stuðningsþarfir stefnanda og/eða annarra haft áhrif á for - gangsröðun á bið lista, auk þess sem fjölgun eða fækkun umsækjenda í mismunandi þjónustu flokkum geti haft áhrif á röðun biðlis ta. Að lokum er tilgreint að uppbyggingar - áætlun um húsnæði fyrir fatlað fólk sé endurmetin árlega. Að loknu endurmati hennar verði haft samband við stefnanda og honum veittar upplýsingar um áætlaða leng d bið - tíma, stöðu áætlunarinnar og þann stuðning sem honum standi til boða á biðtíma, sbr. 10. gr. reglugerðar nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk. 9. Hinn 25. október 2024 var stefnandi , með bréfi frá velferðarsviði stefnd a , upplýstur um uppfærða st öðu umsóknar hans um húsnæði fyrir fatlað fólk. Bréfið var sambærilegt því sem honum var sent árið áður og greint er frá hér að framan að öðru leyti en um fjölda 3 umsókna íbúðakjarna o.þ.u.l. Miðað við m.a. endurmat á uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk árið 2024 væri gert ráð fyrir að stefnandi fengi úthlutað húsnæði á árinu 2026. 10. Bókað er eftir starfsmanni stefnd a að hringt hafi verið í móður stefnanda 10. apríl 2025 vegna endurnýjunar á stoðþjónustu. Í því samtali haf i hún ítrekað umsókn stefnanda um búsetu og sagst vilja fá búsetukjarnann sem væri í uppbyggingu í Árbæ. 11. Með tölvuskeyti 26. ágúst 2025 til starfsmanns stefnd a og ráðgjafa í málaflokki fatlaðs fólks óskaði móðir stefnanda eftir að ýtt yrði á eftir umsókn stefn anda eftir sértæku hús - næðisúrræði . Í tölvuskeytinu segir : Við erum sextug og farið að bitna á andlegri heilsu okkar, hann er ára. Hann þarf stöðuga umönnun og eftirlit og aðstoð við allar athafnir d aglegs lífs. Þegar hann er veikur verðum við að taka frí úr vinnu og ef hann vakir á nóttunni þá verðum við að taka slaginn og mæta svo í vinnu daginn eftir. Þetta er líka mikil binding. Það hefur líka verið kvartað í blokkinni hjá okkur yfir hljóðum og hl aupum frá honum. Nú í sumar var hann án skammtímavistunar frá miðjum júní til miðjan ágúst. Var í fríi 2x2 vikur í , þá vorum við með hann allan tímann. Hann hefði líka gott af því að komast að heiman. Hann ÞARF að komast að á næsta ári. Ég veit að það er í byggingu sambýli að í Árbæ . Spurning nns stefnd a , sem þakkaði fyrir póstinn, sagði m.a. : lýsingar um leið og þær liggja fyrir . 12. Hinn 12. nóvember 2025 v ar stefnandi , með bréfi frá velferðarsviði stefnd a , upplýstur um uppfærða stöðu umsóknar um húsnæði fyrir fatlað fólk. Bréfið er sambærilegt þeim sem honum höfðu verið send árin áður að öðru leyti en um fjölda umsókna, íbúðakjarna og þ.u.l . Miðað við m.a. endurmat á uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk árið 202 5 væri gert ráð fyrir að stefnandi fengi úthlutað húsnæði á árinu 2026. 13. Af gögnum málsins má ráða að stefnandi hafi undanfarin ár verið með stoð - og stuðnings - þjónustu (liðveislu) í 25 klukkustundir á mánuði á vegum stefnd a . Þá hafi stefnandi verið með akstursþjónustu og í skammtímadvöl í . Þá liggur fyrir að stefnandi hefur verið í vinnu - og virknimiðaðri stoðþjónustu í , sem rekið er af Ási styrktarfélagi . Mat á stuðningsþörf stefnanda hefur reglulega farið fram á vettvangi stefnd a . B 14. Fyrir liggur að Land s samtökin Þroskahjálp voru í samskiptum við stefnd a árin 2023 og 2024, m.a. vegna málefna stefnanda. Lögmaður land s samtakanna óskað með bréfi 16. janúar 2024 m.a. eftir afstöðu stefnd a til bótaskyldu hans gagnvart stefnanda vegna biðtíma og upplýsingagjafar við úthlutun sértæks húsnæðisúrræðis. Með svarbréfi stefnd a 29. febrúar 2024 hafnaði hann bótaskyldu vegna stefnanda. Helstu málsástæður stefnanda 4 15. Stefnandi byggir á því að hann nj óti réttar til sértæks húsnæðisúrræðis á grundvelli 9. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, sbr. umsókn stefnanda þar að lútandi frá 14. febrúar 2018 sem samþykkt hafi verið af hálfu stefnd a 5 . mars 201 8 . Þessi réttur stefnanda til sértæks húsnæðisúrræðis sæki sér ekki aðeins stoð í lög nr. 38/2018, heldur eigi hann rætur sínar að rekja til þeirrar félagslegu lágmarksaðstoðar sem stefnandi eigi rétt til samkvæmt 76. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. lög nr. 33/1944. E nn fremur sé réttur stefnanda til sértæks húsnæðisúrræðis, í samræmi við þarfir hans og óskir, grundvallarforsenda þess að hann njóti fullra mannréttinda til jafns við aðra og að honum séu sköpuð skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 38/2018, 65. og 71. gr. stjórnarskrárinnar, 8. og 14. gr. mannréttinda - sáttmála Evrópu og 5. og 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. 16. Stefnandi kveður ágreining málsins ekki snúa að tilvist réttinda stefnanda til sértæks húsnæðisúrræðis heldur að þeim drætti sem hafi orðið á því að stefnandi fengi notið réttar síns og hvort aðgerðaleysi stefnda við að tryggja þau réttindi feli í sér miskabótaskylda meingerð gegn stefnanda, sbr. b - lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga n r. 50/1993. 17. Byggir stefnandi á því að hann hafi orðið fyrir ólögmætri meingerð sem felist í brotum gegn réttindum hans samkvæmt 34. gr. laga nr. 38/2018, sbr. 9. gr. þeirra, 8. 10. gr. reglugerðar nr. 370/2016, 9. og 11. gr. stjórnsýs lulaga, 65., 71. og 76 . gr. stjórnarskrár - innar, 8. og 14. gr. mannréttindasáttmála Evrópu , sbr. 41. gr. hans, og 5. og 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Stefnd i hafi brotið gegn framangreindum lagaákvæðum með óhóflegum biðtíma eftir veitingu réttin danna og með því að vanrækja að raða stefnanda á biðlista, vinna einstaklingsbundna áætlun um veitingu húsnæðis og upplýsa stefnanda um áætlaðan biðtíma. Enn fremur hafi stefnd i brotið gegn réttindum stefnanda með því að rétta ekki hlut hans með sama hætti og hlutur aðila máls í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E - 2712/2020 og síðar aðila máls í dómi dómstólsins í máli nr. E - 1623/2024 hafi verið réttur. 18. Stefnandi byggir nánar á því að brot stefnd a gegn réttindum hans hafi verið þríþætt. Í fyrsta lagi f elist brot stefnd a í þeim óhóflega langa tíma sem stefnand a hafi verið gert að bíða eftir húsnæðisúrræði. Frá því að stefnandi hafi fyrst sótt um úthlutun sértæks húsnæðisúrræðis og umsóknin verið samþykkt á biðlista hafi við höfðun málsins þannig verið li ðin sjö ár og tveir mánuðir. Við gildistöku laga nr. 38/2018 hafi stefnandi verið búinn að vera á biðlista í tæpa átta mánuði og frá gildistöku þeirra hafi stefnandi , við málshöfðun, beðið í sex ár og átta mánuði til viðbótar. Stefnd i hafi í samræmi við sj álfstjórnarrétt sinn samkvæmt 78. gr. stjórnarskrárinnar ákveðið svigrúm til þess að forgangsraða lögbundnum verkefnum sínum innan ramma laganna og svigrúm til þess að meta hvert tilvik fyrir sig. Það svigrúm takmarkist hins vegar af réttindum stefnanda. S tefnd i geti þannig t.a.m. ekki látið hjá líða að vinna að því með skipulegum og málefnalegum hætti að útfæra og veita lö gbundna þjónustu. Þrátt fyrir það svigrúm sem 5 beri að ljá stefndu verði eins og nú sé komið að telja þann drátt sem hafi verið á því að stefnandi fái notið réttinda sinna, sem viðurkennd hafa verið af stefnd a , svo úr hófi að hann brjóti gegn þeim viðmiðum um málshraða sem leiði af 9. gr. stjórnsýslulaga og 34. gr. laga nr. 38/2018. 19. Í öðru lagi byggir stefnandi á að stefnd i hafi brotið gegn réttindum hans með því að láta undir höfuð leggjast að framfylgja málsmeðferðarreglum 34. gr. laga nr. 38/2018 og reglugerðar nr. 370/2016, fram til ágústmánaðar 2023. Stefnd i hafi aðeins skipað stefnanda í þjónustuflokk III en ekki raðað honum innbyrðis á biðlista innan þess flokks. Hafi stefnd i þannig ekki haldið úti neinum raunverulegum biðlista þrátt fyrir lagaboð þess efnis í 8. og 9. gr. reglugerðar nr. 370/2016. Framangreind vanræksla stefnda hafi haft í för með sér að engin n fyrirs jáanleiki eða gagnsæi hafi verið í úthlutunum sértækra húsnæðisúrræða. Að sama skapi hafi stefnd i ekki unnið einstaklingsbundna áætlun um útvegun sértæks húsnæðisúrræðis í samræmi við skyldur sínar samkvæmt 8. gr. reglugerðar nr. 370/2016 og ekki veitt ste fnanda upplýsingar um stöðu umsóknar hans eða áætlaðan biðtíma eða átt frumkvæði að því að eiga samráð við stefnanda að öðru leyti í samræmi við skyldur sínar samkvæmt 8. og 10. gr. reglugerðar nr. 370/2016. Þegar stefnanda hafi loks verið send áætlun um ú tvegun húsnæðis haustið 2023 hafi verið liðin fimm ár og sex mánuðir frá umsókn stefnanda og fjögur ár og níu mánuðir frá gildistöku laga nr. 38/2018 og breytingu reglugerðar nr. 370/2016. 20. Í þriðja lagi byggir stefnandi á því að stefnd i hafi brotið gegn r éttindum stefnanda þegar stefndi rétti ekki hlut stefnanda í kjölfar dóms Héraðsdóms Reykjavíkur 16. júní 2021 í máli nr. E - 2712/2020. Umrædd skylda hafi jafnframt raknað við í kjölfar dóms 31. mars 2025 í máli nr. E - 1623/2024. Aðilar síðastnefndra dómsmál a hafi verið í öldungis sambæri legri stöðu og stefnandi . Í samræmi við jafnræðisreglu , sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga , og lögmætisreglu hafi stefnd a borið að leysa eins úr máli stefnanda og annarra í sam bærilegri stöðu og aðila héraðsdómsmáls nr. E - 2712/20 20. Í ljósi þess að stefnd i hafi búið yfir vitneskju um brot sín gegn lögum og að þau brot fælu í sér ólögmæta meingerð hafi stefnd a sem stjórnvaldi ekki verið stætt á að viðhalda því ólögmæta ástandi, heldur hafi honum borið að bregðast við og rétta hlut stefnanda. 21. Stefnandi kveðst telja að hvert og eitt brot stefnd a gegn réttindum stefnanda eigi að leiða til miskabótaskyldu stefnd a . Sé viðhaft heildstætt mat á háttsemi stefnd a verði hins vegar enn ljósara að meðferð hans á umsókn stefnanda hafi vikið tal svert frá því sem lög kveði á um og stefnandi hafi mátt búast við. Brotin tengist þó jafnframt innbyrðis en ómarkviss meðferð stefnd a á umsókn stefnanda, í andstöðu við 34. gr. laga nr. 38/2018 og reglugerð nr. 370/2016, hafi m.a. valdið því að málsmeðferðartími stefnd a hafi dregist eins mikið úr hófi og raun ber i vitni. 22. Stefnandi vísar til þess að öllum skilyrðum bótaábyrgðar stefnd a sé fullnægt. Telja verði að háttsemi stefnd a hafi vikið svo verulega frá þeim lagaskyldum sem hvíla á honum og 6 þeirri háttsemi sem af honum mátti búast að saknæmisskilyrðum sé jafnframt fullnægt. Afleiðing brota stefnd a sé sú að stefnanda hafi ekki verið mögulegt að hefja sjálfstætt líf á eigin heimili og eigin forsendum. Þvert á móti hafi líf stefnanda verið í eins konar biðstöðu í rúm sjö ár á meðan hann hafi beðið eftir lögbundinni þjónustu. Um sé að ræða hagsmuni sem standi persónu stefnanda afar nærri og hafi brot stefnd a haft tilfinnanleg áhrif á líf stefnanda. Vegna brota stefnd a hafi stefnandi ekki getað gert ráðstafanir og skipulagt líf sitt til framtíðar heldur lifað við mikla óvissu. Framangreind brot stefnd a gegn réttindum stefnanda feli þannig í eðli sínu í sér bótaskylda meingerð gegn persónu hans og öðrum hagsmunum sem njóti verndar b - liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Þá sé miski stefnanda í beinum orsakatengslum við og sennileg afleiðing af háttsemi stefnd a . Helstu m álsástæður stefnd a 23. Stefnd i hafnar málatilbúnaði stefnanda alfarið og byggir á því að málsmeðferð í máli stefnanda hafi verið lögum samkvæmt. Öll húsnæðis - og þjónustuúrræði stefnd a hafi verið í samræmi við ákvæði stjórnarskrár, laga, reglugerða og eigin reglna stefnd a og upplýsingagjöf til stefnanda og aðstandenda hans verið sinnt og stefnanda boðin úrræði á biðtíma. 24. Um stöðu sveitarfélaga varðandi málefni fatlaðs fólks vísar stefnd i til 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar , sbr. lög nr. 33/1944. Í dómaframkvæmd hafi ákvæðið verið túlkað á þann veg að það tryggi þessum einstaklingum ákveðin lágmarksréttindi eftir fyrir fram gefnu skipulagi sem ákveðið skuli á málefnalegan hátt. Í ákvæðinu fel ist að löggjafanum sé skylt að tryggja ákveðinn lagaramma um þjónustu og slíkan lagaramma sé m.a. að finna í lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþa rfir og í lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. 25. Vísar stefnd i til þess að ú tfærsla réttar samk v æmt 76. gr. stjórnarskrár taki mið af ákvæði 78. gr. stjórnarskrárinnar, sem tryggi sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt sveitar félaga, sbr. og ákvæ ði 1. mgr. 1. gr. og 1. mgr. 3. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Með hliðsjón af þeirri sjálfstjórn sem sveitarfélögum sé veitt setj i þau sér sínar eigin reglur um rétt íbúa á grundvelli laganna, þ. á m. um umfang og útfærslu þjónustu við fatlað fólk. Sveitarfélög hafi ákveðið svigrúm til að forgangsraða framkvæmd lögbund inna verkefna innan ramma laganna samkvæmt 78. gr. stjórnarskrárinnar. Því geti einstaklingar ekki gert kröfu um ákveðna, skilyrðis - og tafarlausa þjónustu heldur helgist framboð henn ar af því í hvaða mæli sveitarfélagi sé unnt að veita þjónustuna. Í samræmi við framangreint hafi stefnd i sett reglur um félagslegt leiguhúsnæði og feli þær reglur í sér lögmæta og málefnalega útfærslu sveitarfélagsins á þeim skyldum sem lagðar séu því á h erðar með 76. gr. stjórnarskrárinnar, lögum nr. 38/2018 og lögum nr. 40/1991 . Stefnd i hafi samþykkt uppbyggingaráætlun húsnæðis til að mæta húsnæðisþörf og endurskoðað 7 uppbyggingaráætlunina reglulega, að teknu tilliti til breyttra aðstæðna. Eðli málsins sa mkvæmt fylgi slíkum áætlunum og framkvæmdum á grundvelli þeirra mikil vinna, tími og kostnaður. Húsnæði þurfi enda að taka mið af þjónustuþörf einstaklinga sem samþykktir hafi verið á biðlista, forgangsröðun og því fjármagni sem veitt hafi verið til málafl okksins af hálfu sveitarfélagsins. Þá geti einstaklingar sótt um húsnæði hjá öðru sveitarfélagi en lögheimilissveitarfélagi, sem geri það að verkum að erfitt sé að gera sér grein fyrir raunverulegri þörf fyrir húsnæðisúrræði á landsvísu. 26. Stefnd i byggir á því að ágreiningslaust sé í málinu að umsókn stefnanda um húsnæði hafi verið sa mþykkt af hálfu stefnd a og að stefnandi sé á biðlista eftir húsnæði sem henti metnum þjónustuþörfum hans . Í samþykkt umsóknar felist ekki að á stefnd a hafi hvílt afdráttarlaus s kylda til að veita stefnanda húsnæðið tafarlaust. S tefnandi hafi ekki þurft að bíða í svo óhóflega langan tíma eftir úthlutun á húsnæði að það fari gegn málshraða - reglu stjórnsýsluréttarins, sbr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. 27. Þá vísar stefnd i til þe ss að s tefnandi hafi verið upplýstur um ástæður tafa og fyrirhugaðar úthlutanir hjá stefnd a . Lögð hafi verið áhersla á bein samskipti við stefnanda og aðstandendur hans af hálfu stefnd a og upplýsingagjöf um stöðu húsnæðis fyrir fatlað fólk með reglulegum viðtölum og svörum við fyrirspurnum. Staða stefnanda hafi verið endurmetin reglulega og reynt að koma til móts við þjónustuþarfir hans á biðtíma eftir húsnæði. Þá hafi stefnandi ekki sýnt fram á að ekki hafi verið staðið málefnal ega að úthlutun húsnæðis af hálfu stefnd a . 28. Þá kveður stefnd i bótaskyldu vegna skorts á upplýsingagjöf ekki hafa stofnast og mót - mælir því að hafa brotið gegn ákvæðum laga nr. 38/2018 , ákvæðum reglugerðar nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, sb r. breytingareglugerð nr. 1039/2018 , eða gegn ákvæðum reglna stefnd a um félagslegt húsnæði frá júní 2019 . Þá mótmælir stefnd i því að upplýsingagjöf til stefnanda hafi verið svo stórlega vanrækt af hálfu stefnd a að leitt hafi til miskatjóns. 29. Vísar stefnd i til 1. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018, ákvæðis sem sé nánar útfært í reglugerð nr. 1039/2018 . Sams konar ákvæði sé einnig að finna í 9. gr. reglna stefnd a um félagslegt leiguhúsnæði. Í 8. gr. reglugerðar nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, með síðari breytingum samkvæmt breytingareglugerð nr. 1039/2018 , sé vikið að biðlistum. Stefnd i hafi metið það sem svo að uppbyggingaráætlanir Reykjavíkurborgar varðandi sértæk húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, sem tak i mið af þeim einstakling um sem samþykktir hafa verið á biðlista eftir slíku húsnæði, væru í samræmi við áskilnað laga, reglugerðar og reglur stefndu um félagslegt húsnæði og því teldi stefnd i sér ekki skylt að gera aðra áætlun til viðbótar fyrir sérhvern einstakling á biðlista. S tefnd i hafi því verið ósammála þeirri niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E - 2712/2020 að stefnd i hefði vísvitandi látið undir höfuð leggjast að gera slíkar persónubundnar áætlanir. H vorki í lögunum né breytingareglugerð nr. 1039/2018 sé að finna b einan áskilnað þess efnis að 8 sveitarfélag skuli vinna slíkar persónubundnar áætlanir en s á skilningur verð i hvorki ráðinn af orðalagi 8. gr. reglugerðarinnar né ákvæðum laga nr. 38/2018, eða lögskýringargögnum með þeim. 30. Þá byggir stefnd i á því að breyting areglugerð nr. 1039/2018 hafi ekki verið komið á með viðhlítandi hætti og skorti lagastoð. Hún hafi verið sett með stoð í 2. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018 sem mæli skýrt fyrir um að setning reglugerðar sé háð samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks. Óumdeilt sé að slíku samráði hafi ekki verið til að dreifa við setningu reglugerðarinnar. Verð i því að mati stefnd a að leggja til grundvallar að b reytingareglugerð nr. 1039/2018 hafi að þessu leyti ekki fullnægjandi stoð í 2. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018. Breyti engu þó svo að um lagastoð sé einnig vísað til 40. gr. laganna enda sé það ákvæði eingöngu yfirlitsákvæði yfir reglugerðarheimildir í lögu num. 31. Kveður stefnd i að í kjölfar fyrrgreinds dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E - 2712/2020 hafi stefndi ger t úrbætur á verklagi sínu og hafið að senda út ítarlegri persónubundnar áætlanir á einstaklinga , þ. á m. stefnanda, þar sem m.a. hafi verið geti ð um hvenær fyrirhugað sé að viðkomandi fái úthlutað húsnæðisúrræði. Ekki hafi verið í slíkum áætlunum unnt að segja með nákvæmum hætti fyrir um hvenær viðkomandi muni fá úthlutað húsnæði. Það sé með öllu ógerlegt að lofa viðkomandi úthlutun á einhverjum n ánar tilgreindum tíma og væri til þess fallið að vekja hjá viðkomandi falskar væntingar. 32. Stefnd i telji ljóst af fyrirliggjandi gögnum að upplýsingagjöf til stefnanda og aðstand enda hans hafi verið viðhlítandi og síður en svo með þeim hætti að bótaskylda h afi stofnast. 33. Þá mótmælir s tefnd i þeim málatilbúnaði stefnanda að unnt sé að draga víðtækar ályktanir af niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E - 2712/2020 og E - 1623/2024, svo sem að allir einstaklingar á biðlista eftir sértæku húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk öðlist á grundvelli þeirra sjálfkrafa rétt til miskabóta . D óma r héraðsdóms fel i í sér niðurstöðu um rétt þeirra málsaðila sem þar áttu í hlut. Við mat á því hvort bóta skylda hafi stofnast verð i ávallt að byggja á atviksbundnu mati hverju sinni enda hvoru tveggja persónulegar aðstæður einstaklinganna og upplýsingagjöfin af hálfu stefnd a mismunandi. Þá verð i að mati stefnd a einnig að horfa til þess að í kjölfar aðfinnslna við þáverandi verklag stefnd a í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í m áli nr. E - 2712/2020 hafi stefnd i gert úrbætur á verklagi sínu og hafið að senda árlega út persónubundnar áætlanir til allra á biðlista eftir húsnæði fyrir fatlaða. Stefnd i hafi bætt upplýsingagjöf , þ. á m. til stefnanda og horfa verð i til þess þegar fram f ari heildstætt mat á því hvort háttsemi stefnd a uppfylli ströng saknæmisskilyrði 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Í fyrr greindum dómi héraðsdóms hafi því verið slegið föstu að stefnd i haf i vísvitandi látið undir höfuð leggjast að gera einstaklingsbundnar áætlanir fyrir umsækje ndur en því sé harðlega mótmælt af hálfu stefnd a . Engan skýran áskilnað um skriflega persónubundna áætlun sé að finna í skráðum reglum, hvorki 34. gr. laga nr. 38/2018 né 8. 10. gr. reglugerðar nr. 370/2016. 9 34. Hvað v arðar ákvæð i 65. og 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. og 14. gr. mannréttinda - sáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sem fjall i um vernd friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu , f eli það ekki í sér brot á ætluðum jákvæðum athafnaskyldum af hálfu stefnd a að hafa ekki veitt stefnanda það húsnæði sem sótt var um og stefnd i hefur samþykkt að stefnandi eigi rétt til. F yrrgreind ákvæði legg i engar slíkar jákvæðar athafnaskyldur á stefnd a heldur sé stefnd a lögum samkvæmt heimilt að útfæra þá þjónustu sem í boði sé að teknu tilliti til fjármagns og forgangsröðunar. 35. Stefnd i mótmælir því að hafa á nokkurn hátt brotið gegn frelsi, friði, æru eða persónu stefnanda , sbr. b - lið 1. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1993, þó tt stefnd i dragi ekki úr að þung - bært sé fyrir stefnanda að bí ð a eftir húsnæði. Þá mótmælir stefnda því sérstaklega að uppfyllt sé saknæmisskilyrði 26. gr. laga nr. 50/1993 . Frá árinu 2011 hafi verið unnið hörðum höndum að uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk. Eftirspurn eftir slíku hús - næði ha fi á þeim tíma aukist verulega og þrátt fyrir meira en tvöföldun búsetuúrræða á tímabilinu hafi fjölgað umtalsvert á biðlistum. Af heildarsamhenginu sé ljóst að málshraði sé ekki óhóflegur og tafir séu réttmætar og málefnalegar. 36. Komi til þess að stefnanda verði dæmdar bætur krefst stefnd i lækkun ar bótafjárhæðar og þá er dráttarvaxtakröfu stefnanda sérstaklega mótmælt. Stefnd i byggir á því, með hlið - sjón af óvenjulegum aðstæðum og atvikum málsins að öðru leyti, að sanngjarnt s é að bótaábyrgð verði felld nið ur eða bótafjárhæð lækkuð verulega með vísan til 1. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1993 . Niðurstaða 37. Ágreiningur málsins lýtur í aðalatriðum að því hvort stefnandi eigi rétt til miskabóta úr hendi stefnd a vegna þess að óréttmætar tafir hafi orðið á afgreiðslu stefnd a við út hlutun húsnæðis til handa stefnanda vegna fötlunar hans svo og hvort skort hafi lög bundna upplýsingagjöf á meðan á töfunum stóð. 38. Í 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. lög nr. 33/ 1944, er mælt fyrir um að öllum sem þess þurfi skuli í lögum tryggður réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku og sambæri - legra atvika. Í dómaframkvæmd hefur ákvæðið verið túlkað á þann veg að það tryggi þessum einstaklingum ákveðin lágmarksréttindi eft ir fyrir fram gefnu skipulagi sem ákveðið skuli á málefnalegan hátt. Hefur almenni löggjafinn vald um það hvernig því skipulagi er háttað en það verður eigi að síður að fullnægja þeim lágmarksréttindum sem í 1. mgr. 76. gr. felast, sbr. m.a. dóma Hæstarétt ar 19. desember 2000 í máli nr. 125/2000 og 8. október 2020 í máli nr. 13/2020 og dóm Landsréttar 12. mars 2021 í máli nr. 72/2020. Með lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðnings - þarfir hefur löggjafinn sett reglur í samræmi vi ð þær skyldur sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar. 10 39. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2018 er það í höndum sveitarfélaga að útfæra og veita þjónustu við fatlað fólk, þ. á m. um húsnæðisúrræði. Þegar þjónustuveiting er falin sveitarf élögum eru þau jafn framt bundin af 76. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. fyrrnefndan dóm Hæstaréttar í máli nr. 13/2020. Sveitarfélög hafa hins vegar svigrúm til að forgangs - raða framkvæmd lög bund inna verkefna innan ramma laga samkvæmt 78. gr. stjórnar - skrár innar, sbr. dóm Hæsta réttar 25. október 2018 í máli nr. 106/2017. Hafa þau þannig svigrúm til að ákveða forgangs röðun lögbundinna verkefna innan ákveðins ramma sem og svigrúm til að meta hvert tilvik fyrir sig. Sveitarfélög geta þó ekki látið hjá líða að vinna að því með skipulegum og málefnalegum hætti að útfæra og veita þjónustu, sbr. fyrrnefndan dóm Landsréttar í máli nr. 72/2020, efnisgrein 29. 40. Fyrir liggur í gögnum málsins að af hálfu stefnd a hefur verið unnið í að mæta þjónustu - þörf sem er eftir sér tækum húsnæðisúrræðum eftir að sveitarfélög tóku við þjónustu við fatlað fólk frá íslenska ríkinu árið 2011. Frá þeim tíma hafa verið í gildi áætl anir um sértæk húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk. Árið 2017 var m.a. samþykkt á vett vangi stefnd a u ppbyggingar áætlun sértækra húsnæðisúrræða 2018 2030 fyrir fatlaða einstaklinga , en í henni fólst áfangaskipt áætlun um uppbyggingu húsnæðis í þremur áföngum á tímabilinu. Endurskoðuð uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk er frá ágúst 2022 . Í henni kemur m.a. fram að í heild sé lögð til uppbygging á 168 íbúðum auk starfsmannaaðstöðu, í heildina sé um að ræða 20 íbúðakjarna með 120 íbúðum og tveimur færanleg um teym um sem veiti fólki stuðning í 48 íbúðum og er tímabil áætlunarinnar afmarkað frá 2022 til 202 8. Þar kemur og fram að þegar stefnd i tók við málaflokki fatlaðs fólks frá íslenska ríkinu 2011 hafi 219 einstaklingar búið í sértæku húsnæði. Í lok árs 2016 hafi 310 íbúar búið í hús næði fyrir fatlað fólk og í lok árs 2021 hafi 489 íbúar verið í húsnæði fyrir fatlað fólk. Af gögnum málsins má m.a. ráða að umsækjendur á biðlista eftir húsnæði fyrir fatlað fólk , þ.e. nýjar umsóknir , hafi verið alls 175 í lok árs 2018, þar af 44 í sama þjónustuflokk i og stefnandi var í, og í lok árs 2024 hafi þær verið alls 176, þar af 40 í sama þjónustuflokk i og stefnandi var í . 41. Verður í ljósi þess sem að framan greinir ekki fallist á með stefnanda að hann hafi, sam - kvæmt 9. gr. laga nr. 38/ 2018, sem tekur mið af 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, 5. og 9. gr. sama samnings, 65. og 76. gr. stjórnar skrárinnar, 14. gr. mannréttindasáttmála Evrópu , 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eða 34. gr. laga nr. 38/2018 , átt skýran rétt til húsnæðis á vegum stefnd a fyrr en áætlað er , þar sem gögn málsins bera með sér að stefnd i hefur unnið að uppbyggingu slíkra úrræða með skipulegum og málefnalegum hætti. Fyrir liggur og að á biðtíma eftir húsnæði hefur stefnd i veitt stefnanda ýmiss konar þjónustu, m.a. stoð - og stuðningsþjónustu. Þá verður ekki fallist á með stefnanda að jákvæðar skyldur hafi hvílt á stefnd a til að veita honum aðgang að sértæku húsnæðis úrræði á grundvelli 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, enda fela þau ákvæði ekki í sér 11 rétt til hús næðis, sbr. til hliðsjónar fyrrnefndan dóm Landsréttar 12. mars 2021 í máli nr. 72/2020, efnisgrein 36. 42. Í máli þessu liggur fyrir að stefnandi sótti um sértækt húsnæðisúrræði hjá stefnd a 14. febrúar 2018 og u msókn stefnanda var samþykkt á biðlista 5. mars s .á . Þannig eru í dag liði n rúmlega átta ár frá því að stefnandi sótti um húsnæðisúrræði hjá stefnd a en sam - kvæmt upplýsingum stefnd a um uppfærða stöðu umsóknar stefnanda um húsnæði fyrir fatlað fólk hinn 12. nóvember 2025 er gert ráð fyrir að stefnandi fá i úthlutað húsnæði á þessu ári. Ekkert í gögnum málsins gefur til kynna að stefnandi hafi sótt um húsnæðisúrræði hjá öðrum sveitarfélögum. 43. Í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 38/2018 segir að fatlað fólk eigi rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir og féla gslegri þjónustu sem geri því kleift að búa á eigin heimili og stuðli að fullri aðlögun þess og þátttöku í samfélaginu. Í 3. mgr. 9. gr. segir að ráðherra setji reglugerð um sérstök húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, m.a. um fjölda samliggjandi íbúða, einka rými, viðbótarrými vegna fötlunar og sameiginleg rými. Þá segir jafnframt í 3. tölul. 1. mgr. 40. gr. laganna að ráðherra setji reglugerð um sérstök húsnæðisúrræði, sbr. 9. gr. laganna. 44. Í 1. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018 segir að ákvörðun um að veita þjónustu skuli taka svo fljótt sem kostur sé. Sé ekki unnt að hefja þjónustu strax og umsókn sé samþykkt skuli tilkynna umsækjanda um ástæður þess og hvenær þjónustan verði veitt. Ef fyrirséð sé að þjónusta sem sótt var um geti ekki hafist innan þriggja má naða frá samþykkt umsóknar skuli leiðbeina umsækjanda um þau úrræði sem hann hafi á biðtíma og aðra þjónustu sem sé í boði. Þá skuli veita honum aðra viðeigandi þjónustu á meðan beðið sé eftir að þjón - ustan sem samþykkt hafi verið hefjist. Í 2. mgr. ákvæði sins segir að ráðherra setji reglu - gerð um biðlista, forgangsröðun og úrræði á biðtíma í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks. Þá segir jafnframt í 7 . tölul. 1. mgr. 40. gr. laganna að ráðherra setji reglugerð um biðl ista, forgangsröðun og úrræði á biðtíma, sbr. 34. gr. laganna. 45. Félags - og húsnæðismálaráðherra setti reglugerð nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, sem tók gildi 9. maí 2016, með stoð í 10. gr. þágildandi laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs f ólks. Umræddri reglugerð var breytt með reglugerð félags - og jafnréttis - málaráðherra nr. 1039/2018 hinn 7. nóvember 2018, með vísan til 34. og 40. gr. laga nr. 38/2018, en með breytingareglugerðinni komu þrjú ný ákvæði inn í reglugerð nr. 370/2016, þ.e. 8. , 9. og 10. gr. 46. Í 1. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 370/2016 segir um biðlista að hafi umsókn um húsnæðis - úrræði samkvæmt reglugerðinni verið samþykkt en ljóst sé að ekki muni unnt að útvega það innan þriggja mánaða skuli tilkynna umsækjanda um ástæður tafan na og hvenær fyrirhugað sé að húsnæðisúrræði geti verið tilbúið. Þá skuli setja umsókn á biðlista. Þegar umsækjanda sé tilkynnt um að hann sé kominn á biðlista skuli unnin áætlun um útvegun 12 viðeigandi húsnæðisúrræðis og hvort og þá hvers konar annað úrræði standi umsækjanda til boða á biðtíma. Efnislega samhljóða ákvæði er í 9. gr. reglna stefnd a nr. 465/2019 um félagslegt leiguhúsnæði. 47. Í 9. gr. reglugerðarinnar segir að raða skuli á biðlista eftir sömu sjónarmiðum og komi fram í matsviðmiðum sveitarfélaga. Sveitarfélög skuli kveða skýrt á um það í reglum sínum á hvaða matsviðmiðum skuli byggt, hvernig samþykktum umsóknum skuli for - gangsraðað eftir þörf viðkomandi, lengd biðtíma eftir húsnæðisúrræði og öðrum þeim úrræðum sem standi til boða á biðtíma. Við ma t á þörf og forgangi skuli sveitarfélag líta til sömu viðmiða og varðandi úthlutun á félagslegu leiguhúsnæði, þ.m.t. núverandi húsnæðisaðstöðu umsækjanda og hversu brýna þörf viðkomandi hefur fyrir viðeigandi húsnæðisúrræði. 48. Þá segir í 10. gr. reglugerðari nnar að sveitarfélag skuli tryggja reglubundið samráð við umsækjanda á biðtíma. Umsækjandi skuli þá upplýstur um stöðu á biðlista, áætlaða lengd biðtíma og þau úrræði sem standa honum til boða á biðtímanum. 49. Líkt og rakið hefur verið hér að framan er ekki á það fallist að stefnandi eigi lögvarinn rétt til húsnæðis sér til handa fyrr en áætlun stefnd a ráðgerir . Á hinn bóginn liggur fyrir að í kjölfar setningar laga nr. 38/2018 var, sem fyrr greinir, sett breytinga reglugerð nr. 1039/2018, sem tók gildi 7. nóv ember 2018, þar sem mælt er fyrir um að umsókn umsækjanda um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk skuli raða á biðlista og að um sækjandi skuli upplýstur um hvenær fyrirhugað sé að húsnæðisúrræði hans geti orðið tilbúið, sbr. 1. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 370 /2016. Þá skuli sveitarfélag tryggja reglu bundið samráð við umsækjand a á biðtíma og upplýsa um stöðu á biðlista, áætlaða lengd biðtíma og þau úrræði sem standi honum til boða á biðtíma, sbr. 10. gr. reglugerðarinnar. 50. Hvað varðar málatilbúnað stefnd a um un dirbúning og setningu breytingareglugerðar nr. 1039/2018 má ráða af framlögðum gögnum að samráð hafi ekki verið haft við Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks í aðdraganda setning ar hennar, svo sem ráðgert er í 2. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018. Umrædd reglugerð var samþykkt 7. nóvember 2018 og birt í B - deild Stjórnartíðinda 26. s.m., en ekki verður ráðið að stefnd i eða aðrir hagsmunaaðilar hafi vefengt gildi hennar gagnvart ráðherra er fékk framselt lagasetningarvald á grundvelli umrædds lagaákvæðis, svo sem stefnandi vísaði og til við munnlegan flutning málsins. Skoðast framangreint m.a. í ljósi sjónarmiða um birtingu laga, réttaröryggi og réttmætar væntingar þeirra er öðlast réttind i á grundvelli birtra stjórnvaldsfyrirmæla. Þess utan liggur fyrir að í kjölfar setningar umræddrar reglugerðar setti stefnd i sér sjálf ur reglur, sbr. 9. gr. reglna stefnd a nr. 465/2019 um félagslegt leiguhúsnæð i, sem eru efnislega samhljóða 1. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 370/2016 eins og henni var breytt með reglugerð nr. 1039/2018. Verður í þessu ljósi ekki fallist á með stefnd a að lagastoð hafi skort fyrir umræddri breytingareglugerð eða að stefnda hafi ekki 13 borið að fylgja þeim málsmeðferðarreglum er þa r greinir og birtast jafnframt um margt í eigin reglum stefnda . 51. Af gögnum máls þessa, sem nánar eru reifuð í málsatvikalýsingu, er ljóst að frá því að stefnandi sótti um sértækt húsnæðisúrræði hjá stefnd a 14. f ebrúar 2018 sem var samþykkt á biðlista 5. ma rs sama ár og allt til þess að stefnd i sendi honum fyrst bréf um stöðu umsóknar hans 18. ágúst 2023 hafði hann aldrei fengið upplýsingar um stöðu á biðlista og hvenær vænta mætti þess að hann fengi úthlutað húsnæði. Þannig er m.a. ljóst að frá því að ákvæð i reglugerðar nr. 1039/2018 tóku gildi veitti stefnd i stefnanda ekki upplýsingar um stöðu á biðlista og áætlaða lengd biðtíma eftir húsnæði í tæplega fimm ár, í andstöðu við 8. og 10. gr. reglugerðarinnar svo og 9. gr. reglna stefnda nr. 465/2019. Í tvígan g eftir það, hinn 25. október 2024 og 12. nóvember 2025 , var stefnandi, með bréf um frá velferðarsviði stefnd a , upplýstur um uppfærða stöðu umsóknar sinnar um húsnæði fyrir fatlað fólk. Aðrar upplýsingar sem stefnandi fékk á þorra biðtíma , sem voru af skorn um skammti, komu að mestu fram í samskiptum starfsfólks stefnd a við foreldra og þá aðallega móður stefnanda en þar var ekki að finna sértækar upplýsingar um stöðu stefnanda á biðlista og áætlaða lengd biðtíma. Tilvísanir stefnd a til upp - byggingaráætlana si nnar varðandi húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk uppfylla í fyrir - liggjandi samhengi ekki kröfur fyrrgreindra ákvæða enda þar ekki að finna sértækar upplýsingar svo stefnandi hefði getað áttað sig á stöðu sinni hvað húsnæði áhrærði. Skoð - ast framangreint og í ljósi þeirrar almennari upplýsingaskyldu sem hvíldi á stefnd a samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018, sbr. og 3. mgr. 9. gr. laga nr. 37/1993, en af atvikum máls þessa er ljóst að upplýsingagjöf stefnd a á stærstum hluta biðtímans eða allt til ársins 2 023, hvað stöðu umsóknar hans vegna húsnæðisúrræðis varðaði, var afar stopul og ógagnsæ . 52. Telja verður af framangreindum ástæðu m að háttsemi stefnd a vegna meðferðar um sókn - ar stefnanda um sértækt húsnæðisúrræði hafi vikið svo frá þeirri háttsemi sem krefja st mátti af stefnda að uppfylltar séu saknæmiskröfur b - liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Stefnd i veitti stefnanda afar takmarkaðar upplýsingar um meðferð og framgang máls um húsnæði honum til handa um langt skeið sem varðar grundvallarhagsmu ni hans . Aðstöðumunur er á milli aðila og um að ræða hagsmuni sem stand a persónu stefnanda nærri. Verður fallist á með stefnanda að skortur á upplýs - ingagjöf til hans hafi verið íþyngjandi og haft tilfinnanleg áhrif á líf hans , m.a. þar sem örðugt hefur verið fyrir stefnanda að skipuleggja líf sitt til framtíðar vegna óvissu og skorts á fyrirsjáanleika um úthlutu n hentugs húsnæðis . 53. Er samkvæmt öllu framansögðu fallist á með stefnanda að í meðferð stefnd a á umsókn stefnanda hafi falist meingerð gegn persó nu hans sem sé á ábyrgð stefnd a og eigi stefnandi því rétt til bóta vegna ófjárhagslegs tjóns samkvæmt b - lið 1. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1993. Í ljósi atvika og aðstæðna stefnanda er ekki tilefni til að lækka bætur honum 14 til handa á grundvelli 1. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1993. Verður fallist á kröfu stefnanda um greiðslu miskabóta úr hendi stefnd a sem þykja hæfilega ákveðnar , svo sem stefnandi krefst, 1.300.000 krónur . Þarf þá ekki að taka afstöðu til annarra málsástæðna stefnanda sem hann hefur teflt fram til stuðnings kröfu sinni, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar 4. maí 2022 í máli nr. 50/2021, efnisgrein 40. 54. Stefnd i færir ekki fram nein efnisleg rök gegn drátta r vaxtakröfu stefnanda , en upp - hafstími kröfunnar er í samræmi við 1. málsl. 9. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verð - tryggingu, og verður því fallist á hana svo sem í dómsorði greinir. 55. Eftir úrslitum málsins og með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála verður stefnd a gert að greiða málskostnað eins og nánar greinir í d ómsorði og skal hann renna í ríkissjóð í samræmi við 4. mgr. 128. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála . 56. Stefnandi nýtur gjafsóknar samkvæmt gjafsóknarleyfi, dags. 12. mars 2026. Gjaf sóknar - kostnaður stefnanda greiðist úr ríkissjóði, þ.m.t. þóknun lög manns hans , sem þykir með hliðsjón af efni og umfangi málsins hæfilega ákveðin svo sem greinir í dómsorði, en sú þóknun er í samræmi við dómvenju ákveðin án virðisaukaskatts, sbr. til hliðsjónar úrskurð Landsréttar frá 10. apríl 2018 í máli nr. 288/2018. 57. F lóki Ásgeirsson lögmaður flutti málið fyrir stefnanda og Þórður Guðmundsson lög - maður fyrir stefnd a . 58. Sindri M. Stephensen héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dóms orð: Stefnd i , R eykjavíkurborg, greiði stefnanda, A , 1.300.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 26. jú n í 2025 til greiðsludags. Stefnd i greiði 1. 6 00.000 krónur í málskostnað sem renni í ríkissjóð . Allur gjafsóknarkostnaður stefnanda greiðist úr ríkissjóði, þ.m.t. málflutnings þóknun lögmanns hans, 1. 6 00.000 krónur.