Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur 16. apríl 2026 Mál nr. S - 1148/2026: Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn Marko Brlek Dómur 1. Mál þetta, sem dómtekið var í dag , var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjór anum á höfuðborgarsvæðinu 24. febrúar 2026, á hendur: Marko Brlek, kt. , , Hafnarfirði, fyrir líkamsárás með því að hafa, aðfaranótt mánudagsins 5. ágúst 2024, utan dyra við skemmtistaðinn við Hverfisgötu í Reykjavík, veist með ofbeldi að A , kt. , og slegið hann í andlitið með flötum lófa, með þeim afleiðingum að hann hlaut glóðarauga á báðum augum og nefbrot. M: 007 - 2024 - Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. I 2. Ákærði sótti ekki þing þegar málið var þingfest og hafði ekki boðað forföll þrátt fyrir lögmæta birtingu fy rirkalls en ákæra og fyrirkall, sem gefið var út á hendur honum 6 . mars 2026, var birt í Lögbirtingarblaði 13. mars sama mánaðar með heimild í 3. mgr. 156. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála þar sem óvíst er um dvalarstað hans. Verður málið dæmt samk væmt heimild í a - lið 1. mgr. 161. gr. laga um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkalli að þannig gæti farið um meðferð málsins. Um málsatvik er skírskotað til ákæru. Með vísan til framangreinds lagaákvæðis þykir mega jafna útivist ákærða til játni ngar hans á broti því sem greinir í ákæru . Að þessu virtu og út frá því sem greinir í rannsóknargögnum málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfær ð til refsiákvæða í ákæru . Verður ákærði sakfelldur samkvæmt ákæru . 2 II 3. Ákærði er fæddur í . Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 23. febrúar 2026, hefur ákærði ekki áður verið sakfelldur fyrir refsiverða háttsemi. Verður litið til þess við ákvörðun refsingar en einnig til 1. og 2. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þar sem brot ákærða beindist að heilsu brotaþola og olli honum líkamstjóni. Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni málsins þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 6 0 daga, skilorðsbundin eins og í dómsorði greinir. 4. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. 5. Sigríður Elsa Kjartansdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómsorð: Ákærði, Marko Brlek , sæti fangelsi í 6 0 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Sigríður Elsa Kjartansdóttir