Héraðsdómur Norðurlands eystra Dómur 4. nóvember 2025 Mál nr. S - 425/2025 : Ákæruvaldið ( Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari ) g egn Alexander Svan i Guðmundss yni ( Páll Kristjánsson lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem var dómtekið 8. október sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 18. ágúst 202 5 , á hendur Alexander Svani Guðmundssyni, kt. , , , fyrir brot á lögum um ávana - og fíkniefni, vopnalögum og peningaþvætti: I. Fíkniefnalagabrot Með því að hafa þriðjudagskvöldið 30. nóvember 2021, verið með í söluskyni í vörslum sínum þegar hann var handtekinn fyrir utan þáverandi dvalarstað sinn að á Akureyri og íbúð sem hann hafði til umráð a á nefndum dvalarstað sínum í gistiheimilinu , 112,67 grömm af amfetamíni, 664,51 grömm af maríhúana, 91 stykki af LSD, 98,58 grömm af ofskynjunarsveppum, 24 stykki af ávana - og fíknilyfinu Rivotril og 6 stykki af ávana - og fíknilyfinu Concerta. Telst þetta varða við 2. gr. og 3. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum. II. Vopnalaga brot. Með því að hafa ofangreint kvöld verið með á nefndum dvalarstað sínum árásarhníf/stunguhníf en hnífurinn fannst í eldhúsi íbúðarinnar. Telst þetta varða við b lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998, með síðari breytingum. III . Peningaþvætti. Með því að hafa á tímabilinu 7. júní 2021 til 7. desember 2021, aflað sér ávinnings með sölu á ávana og fíkniefnum eða öðrum refsiverðum brotum, að fjárhæð 1.632.85 krónur, en samkvæmt greiningu á innlögnum á reikning ákærða var fjárinnst reymi inn á bankareikninga ákærða eftirfarandi á ofangreindu tímabili: 2 Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til gre iðslu alls sakarkostnaðar og jafnframt til að sæta upptöku á efnum þeim, sem lögreglan lagði hald á og tilgreind eru í efnaskrám nr. 47.196, 47.191, 47.195, 47.198 og 47.193, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2 001. Jafnframt er gerð krafa um að ákærði sæti upptöku til ríkissjóðs á ávinningi af framangreindri brotastarfsemi sinni að fjárhæð krónur 254.500, samkvæmt 1. mgr., sbr. 2. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Auk þess er með vísan til 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998 er þess krafist að haldlagður árásarhnífur verði gerður upptækur. Af hálfu ákærða er krafist aðallega að ákærða verði ek ki gerð refsing en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsing verði að öllu leyti skilorðsbundin. Þá er krafist að gæsluvarðhald komi til frádráttar refsingu . Krafist þóknunar til handa skipuðum verjanda. Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök samkvæmt ákæru. Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, og gögnum málsins, er nægilega sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæru er lýst og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, sbr. heimildarákvæði 164. gr. laga nr. 88/2008. Ákærði gekkst undir viðurlagaákvörðun þann 11. mars 2022 fyrir umferðarlagabrot. Ákærða var gert að greiða 300.000 krónur í sekt og hann sviptur ökurétti í 18 mánuði. Þann 3. nóvember 2022 hlaut ákærði dóm fyrir líkamsárás, umferðarlagabrot og vörslur fíkniefna. Var um hegningarauka að ræða. Refsing var ákveðin fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið í tvö ár og 353.000 króna sekt. Þá var ákærði sviptur ökurétti í 9 mánuði. Að lokum hlaut ákærði dóm þann 5. september 2023 fyrir vörslur fíkniefna. Var skilorðsdómur 3. nóvember 2022 dæmdur upp og ákærða gerð refsing í einu lagi. Refsing var ákveðin fangelsi í 75 daga, skilorðsbundið í tvö ár . Ákærði er nú sakfelldur fyrir v örs lur fíkniefna í söluskyni, vopnalagabrot og peningaþvætti. Brot in voru framin fyrir viðurlagaákvörðun og uppkvaðningu fyrrgreindra dóma og verður refsing hans því ákveðin sem hegningarauki við það með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 . Brotin voru framin á árinu 2021 og verður ákærða ekki kennt um þær miklu tafir sem hafa orðið. Verður þó ekki hjá því komist að taka upp skilorðsdóm 5. september 2023 og dæma refsingu í einu lagi. Með vísan til framangreinds er r efsing ákærða ákveðin fange lsi í sex mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið, eins og nánar greinir í dómsorði. Komi til fullnustu dómsins kemur gæsluvarðhal d það sem ákærði sætti frá 2. 8. desember 2021 til frádráttar refsingu. Að kröfu ákæruvalds, og með v ísan til 5. gr. og 6. gr. laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974 skal ákærði sæta upptöku á þeim efnum er í dómsorði greinir og 254.500 3 krónum, sbr. 1. mgr., sbr. 2. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá skal ákærði jafnframt sæta upptöku á haldlögðum árásarhníf með vísan til 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998. Að kröfu ákæruvalds og með vísan til dómsniðurstöðu verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar, þ.e. þóknun skipaðs verjanda síns á rannsóknarstigi og fyrir dómi , eins og hún ákveðst í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum . Berglind Harðardóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn. Dómso r ð: Ákærði, Alexander Svanur Guðmundsson, sæti fangelsi í sex mánuði. Fresta ber fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Komi til fullnustu dómsins kemur gæsluvarðhald það sem ákærði sætti frá 2. 8. desember 2021 til frádráttar refsingu. Gerð eru u pptæk 664,5 1 grömm af marijúana , 112 , 67 grömm af amfetamín , 91 stykki af LSD, 98,58 grömm af ofskynjunarsveppum, 24 stykki af Rivotril, 6 stykki af Concerta , árásarhníf ur og 254.500 krónur . Ákærði greiði 1.188.540 krónur í sakarkostnað, þ. e . þóknun skipaðs verjanda síns, Páls Kristjánssonar lögmanns .