Héraðsdómur Vestfjarða Dómur 1. apríl 2026 Mál nr. S - 9/2026 : Héraðssaksóknari ( Karl Ingi Vilbergsson saksóknari ) g egn Róbert i Mán a Newton ( Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður ) Dómur Mál þetta , sem var dómtekið 18. mars sl., er höfðað með ákæru héraðssaksóknara 29. janúar 2025 á hendur Róberti Mána Newton, kt. , , fyrir valdstjórninni, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 3. desember 2023 fyrir utan Aðalstræt i 7, við gatnamót Aðalstrætis og Mjósunds á Ísafirði og í lögreglubifreið hótað lögreglumönnum nr. 1703, 1808, H1496 og H1766 líkamsmeiðingum og lífláti, og veist með ofbeldi að lögreglumanni nr. 1808, reynt að lemja hann í andlitið og sparka [í] fótlegg h ans og hrækt á hann, þannig að hrákinn hafnaði í andliti hans, en Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sa karkostnaðar. Ákærði mætti við þingfestingu málsins ásamt Jóhannesi Stefáni Ólafssyni lögmanni sem var skipaður verjandi ákærða að hans ósk. Málinu var þá frestað til þess að ákærði og verjandi ættu kost á því að kynna sér myndbandsupptökur sem lagðar haf a verið fram í málinu. Við fyrirtöku málsins í dóminum 18. mars sl. viðurkenndi ákærði skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játningin væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði krefst vægustu refsinga r sem lög leyfa. 2 Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað þykir að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er þar gefin að sök og þykir hún þar rétt færð til refsiákvæð a . Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt fram lögðu sakavottorði gekkst ákærði undir sekt 20. janúar 2021 vegna umferðarlagabrots en með dómi Héraðsdóms Vesturlands 23. maí 2025 var hann dæmdur til að sæta fangelsi í níu mánuði fyrir líkamsárás skv. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Brotið sem ákærði er nú sakfelldur fyrir var framið áður en áðurnefndur dómur Héraðsdóms Vesturlands var kveðinn upp. Ber því að gera ákærða hegningarauka , sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga . Verður dómurinn jafnframt tekin n upp og ákærða gerð refsing í einu lagi , sbr. 60. gr. sömu laga. Til refsimildunar horfir skýlaus játning ákærða og ungur aldur hans en jafnframt greindi hann frá eftirsjá vegna háttsemi sinnar fyrir dómi. Á hinn bóginn ve rður að horfa til þess að ákærði veittist með hótunum og ofbeldi gegn lögreglumönnum sem voru við skyldustörf auk þess sem ákærði hefur áður verið sakfelldur fyrir líkamsárás. Með hliðsjón af framangreindu og 1., 4., 5. og 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. laga n r. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin tíu mánaða fangelsi en rétt þykir að hún verði bundin skilorði eins og í dómsorði greinir. Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til að greiða sakarkostnað málsins , 364.946 krónur, en hann samanstendur af þóknun skipaðs verjanda ákærða, Jóhannesar Stefáns Ólafssonar lögmanns, 282.720 krónur, og öðrum sakarkostnaði, 82.226 krónur, sem féll til vegna blóðtöku, blóðrannsóknar og vottorðsgerðar. Við ákvörðun þóknunar var tekið mi ð af tímaskýrslu lögmannsins og tímagjaldi samkvæmt reglum dómstólasýslunnar nr. 1/2026 og hefur jafnframt verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Af hálfu ákæruvaldsins fór með málið Karl Ingi Vilbergsson, settur vara héraðs saksóknari. Oddur Þorri Viðars son héraðsdómari kveður upp dóm þennan. 3 Dómso r ð: Ákærði, Róbert Máni Newton, sæti fangelsi í tíu mánuði. Fullnustu refsingarinnar skal frestað og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940. Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Jóhannesar Stefáns Ólafssonar lögmanns, 282.720 krónur. Ákærði greiði 82.226 krónur í annan sakarkostnað. Oddur Þorri Viðarsson