Héraðsdómur Vesturlands D Ó M U R 5 . mars 2026 Mál nr. S - 267 /2025 Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ólafi Hauki Atlasyni ( Skarphéðinn Pétursson lögmaður , verjandi ákærða) _______________________________________________________________ Lárentsínus Kristjánsson héraðsdómari 2 Dómur Héraðsdóms Vesturlands 5 . mars 2026 I. Málsmeðferð, ákæruskjal og dómkröfur aðila II. Málsatvik 3 III. Skýrslur fyrir dómi 4 5 IV. Niðurstaða 6 7 2 3 . Dómurinn telur því með vísan til framangreinds að fram sé ko min sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, sbr. 109. gr. laga nr. 88/2008, fyrir því að atvik hafi orðið með þeim hætti sem í ákæru greinir og er brotið að mati dómsins með réttu heimfært til lagaákvæða. V. Ákvörðun refsingar og sakarkost naður Skal hegningarauki ákærða samsvara þeirri þyngingu hegningarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin 4. febrúar 2025 . Samkvæmt 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 er u efri mörk refsiramma vegna brota ákærða tvö ár. Með framgreindum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur var vegna brota ákærða á skilorði tekin upp reynslulausn og ákærða gert að afplána þá 670 daga sem eftir stóðu við veitungu reynslulausnar. Í máli nr. S - 3113/2025 var einungis ákært fyrir tvö brot gegn umferðarl ögum þar sem ákærði ók undir áhrifum og sviptur ökuréttindum í bæði skiptin. Niðurstaðan í því máli varð allt að einu sú að við refsingu ákærða var bætt sem svarar til 24 mánuðum eða tv eimur árum í fangelsi . M eð vísan til alls framangreinds, sakarefnis , sa karferils ákærða og refsihámarks samkvæmt framangreindu ákvæði er það niðurstaða dómsins, með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga, að ekki séu efni til að gera ákærða f rekari refsing u vegna þeirra brota sem hann er nú sakfelldur fyrir , umfram það sem honum var gerð í framangreindu máli . 8 D Ó M S O R Ð Lárentsínus Kristjánsson