Héraðsdómur Reykjaness Dómur 2 4 . mars 2026 Mál nr. E - 1900/2025 : Þb. FX 21 ehf. (áður Viðskiptavit ehf.) ( Þórir Örn Árnason lögmaður ) g egn Hús i og jörð ehf. ( Guðbrandur Jóhannesson lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem var höfðað 1 9 . júní 2025, var dómtekið 3. mars 2026. Stefnandi er þrotabú FX 21 ehf., áður Viðskiptavit ehf., kt. , , Reykjavík. Stefndi er Hús og jörð ehf., kt. , , Kópavogi. Endanlegar d ómkröfur stefnanda eru þær að stefndi verði dæmdur til að þola riftun þriggja greiðslna sem þáverandi forsvarsmaður stefnanda greiddi stefnda, hinn 21 . september 2024 3. 5 00.000 krónur, hinn 23 . september 2024 3. 5 00.000 krónur , og hinn 1 9 . október 2024 4.522 .104 krónur, samt als 11.522.104 krónur. Þá er þess krafist að stefnda verði gert að greiða stefnanda 11.522.104 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, af þeirri fjárhæð frá 10. janúar 2025 til greiðsludags. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Stefndi krafðist þess a ðallega að málinu yrði vísað frá dómi, en til vara að hann yrði sýknaður af kröfum stefnanda. Til þrautavara var þess krafist að stefnukrafa yrði lækkuð. Þá krafðist stefndi málskostnaðar úr hendi stefnanda , að teknu tilliti til virðisaukaskatts. Með úrskurði dómara 11. desember 2025 var kröfu stefnda um frávísun hafnað og ákvörðun málskostnaðar látin bíða efnisdóms. I. Málsatvik eru þau að stefnandi er þrotabú en fyrirtækið FX 21 ehf., áður Viðskiptavit eh f., var umsvifamikið byggingarfyrirtæki. Félagið var úrskurðað gjaldþrota 7. nóvember 2024 að beiðni Skattsins. Skiptastjóri var skipaður Þórir Örn Árnason lögmaður. Frestdagur við skiptin er 27. ágúst 2024. Lok kröfulýsingarfrests var 19. janúar 2025. St efnandi kveður að nokkru eftir frestdag hafi forsvarsmaður stefnanda, hins gjaldþrota félags, Baldur Ingvarsson, eini stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og 2 prókúruhafi félagsins, greitt verulegar fjárhæðir til stefnda. Baldur hafi á þeim tíma einnig verið for svarsmaður stefnda, sem eini stjórnarmaður félagsins , framkvæmdastjóri og prókúruhafi. Eiginkona Baldurs hafi þá verið skráður raunverulegur eigandi félagsins samkvæmt yfirliti fyrirtækjaskrár. Greiðslur þær sem forsvarsmaður stefnanda, hins gjaldþrota fé lags, greiddi til stefnda eftir frestdag eru eftirfarandi: Hinn 21. september 2024 3.500.000 krónur, hinn 23. september 2024 3.500.000 krónur, hinn 11. október 2024 1.500.000 krónur og hinn 19. október 2024 4.522 .104 krónur . Samtals eru þetta 13.022.104 krónur, sem er fjárhæð þeirra greiðslna sem krafist er riftunar á og endurgreiðslu frá stefnda. Með bréfi skiptastjóra 10. desember 2024 til stefnda var framangreindum greiðslum rift á grundvelli XX. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., sbr. 133. og 139. gr. laganna. Í bréfinu var vísað til þess að Baldur teldist verulega tengdur báðum félögum, sem stjórnarformaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi beggja félaganna. Þannig hefði hann undir höndum allar upplýsingar um rekstur og stöðu hins gjald þrota félags. Þá teljist félögin verulega tengd vegna þessa. Var þess krafist að greiðslurnar, alls 13.022.104 krónur, yrðu endurgreiddar þrotabúinu innan 10 daga frá dagsetningu bréfsins að telja. Jafnframt kom fram í bréfinu að yfirlýsing um riftun væri líka innheimtuviðvörun, sbr. 7. gr. innheimtulaga nr. 95/2008. Með svarbréfi lögmanns stefnda 9. janúar 2025 var riftun greiðslnanna hafnað. Í bréfinu sagði að hið gjaldþrota félag, FX 21 ehf., hefði haft á leigu bifreiðar, krana, steypumót og gáma, sem ha fi verið félaginu nauðsynlegt í starfsemi sinni og til tekjuöflunar. Þá hélt stefndi því fram að skilyrði riftunar samkvæmt 133. gr. laga nr. 21/1991 væru ekki fyrir hendi og að riftun yrði ekki byggð á 139. gr. laganna þar sem móttakandi greiðslunnar hefð i ekki verið grandsamur um ógjaldfærni þrotamanns. Hinn 17. janúar 2025 lýsti stefndi kröfu í þrotabú FX 21 ehf. samtals að fjárhæð 489.653.489 krónur, auk vaxta og kostnaðar, vegna samning s á milli stefnanda sem leigutaka og stefnda sem leigusala , um le igu á bílum og tækjum, dags. 29. desember 2023 , og frams als kröfuréttinda lánardrottna FX 21 ehf. til stefnda. Stefnandi kveður að með kröfulýsingunni hafi einnig borist hreyfinga yfirlit bókhalds á milli félaganna úr bókhaldi stefnda þar sem fram komi að engin skuld hafi verið bókuð á milli félaganna vegna leigusamnings fyrr en 31 . október 2024 . Þá hafi hluti kröfu verið færður sem skuld á stefnanda eftir úrskurð um gjaldþrota skipti , eða 1.146.219 krónur. Bókuð sé greiðsla fr á stefnda til stefnanda 10. okt óber 2024, 11.522.104 krónur, en ekki heildargr ei ðsla stefnda til stefnanda eftir frestdag og muni þar 1.500.000 krónum. A f hreyfinga yfirlitinu sem fylgdi kröfulýsingu megi ætla að þegar greiðslur fóru fram, 21 . september, 23 . september , 11. október og 1 9 . október 2024, hafi ekki verið búið að gera reikninga vegna skuldar um bíla leigu na . Eldri skuldir samkvæmt hreyfinga yfirlitinu séu óútskýrðar. Yfirlit yfir reikninga frá Arion banka, viðskiptabanka stefnanda, beri með 3 sér að forsvarsmaður beggja félaga, B aldur, hafi sjálfur millifært peningana frá stefnanda til stefnda. Skiptafundur var haldinn 23. apríl 2025 vegna mótmæla við fyrirhuguðum málshöfðunum vegna riftunar á greiðslum til þriggja félaga, sbr. bréf Guðbrands Jóhannessonar lögmanns 9. janúar 2025. Í fundargerð kemur fram að lögmaðurinn mætti á fundinn vegna krafna La Dolce Vita ehf., V níu fasteigna ehf., V tólf fasteigna ehf., Húss og jarðar ehf., V 69 ehf. og Vinnupalla ehf. Hann hafi mótmælt því að þrotabúið myndi höfða riftunarmál. Af hálfu ann arra kröfuhafa hafi afstaða til höfðunar riftunarmála verið jákvæð. Í fundargerð kemur jafnframt fram að í búinu hafi fundist eignir sem þó næðu ekki þeirri fjárhæð að fengist greitt upp í aðrar kröfur en forgangskröfur. Atkvæðisréttur væri því einungis hj á forgangskröfuhöfum, sbr. 126. gr. laga nr. 21/1991. Lögmaður stefnda hafi mótmælt þessu og talið að atkvæði á fundinum ættu að ráðast af hlutfalli fjárhæða krafna sem lýst væri, sbr. 1. mgr. 125. gr., sbr. 1. málsl. 1. mgr. 126. gr., laga nr. 21/1991. Þa r sem kröfur stefnda hafi verið almennar kröfur og ekki hefði verið tekin afstaða til þeirra hafi skiptastjóri ákveðið að málshöfðun yrði framhaldið gegn stefnda o.fl. Skiptastjóri hafi talið heimild sína hvað þetta varðar ótvíræða. Einnig hafi skiptastjór i vísað til 2. mgr. 127. gr. laga nr. 21/1991. Jafnframt segir í fundargerðinni að lögmaður stefnda hafi mótmælt ákvörðun skiptastjóra með vísan til 3. mgr. 128. gr. laga nr. 21/1991 og þess að atkvæðamagn umbjóðenda hans á skiptafundi væri 58,67%. Þá hafi lögmaðurinn óskað eftir sérstökum fundi með skiptastjóra til að jafna ágreining og skiptastjóri samþykkt það. F undur var haldinn 28. maí 2025. Með bréfi lögmanns stefnda 15. maí 2025 til skiptastjóra var áréttað að það hefði orðið atvinnurekstrarstöðvun e f innborganir hefðu ekki verið greiddar, en það hafi átt að rifta leigusamningi nema það hefði komið innborgun. Stefndi taldi g reiðslurnar ekki riftunar sé ekki l íklegur til árangurs og muni einvörðungu leiða til frekara tjóns til handa kröfuhafa. Er því krafist að fallið verði frá fyrirhugaðri málshöfðun gegn Hús og jörð Stefnandi höfðaði eins og áður segir mál þetta 18. júní 2025 til riftunar á framangre indum greiðslum. Við aðalmeðferð málsins ga f Baldur Ingvarsson skýrslu, en ekki er ástæða til að rekja framburð hans sérstaklega. II. Stefnandi byggir á því að í 3. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. sé skilgreint hverjir séu nákomnir í skilningi laganna. Þar komi fram í 4., 5. og 6. tl. 3. gr. að menn og félög og stofnanir sem tengist með þeim hætti sem hér eigi við, þ.e. st aða forsvarsmanns stefnda og það að sami maður sé forsvarsmaður stefnanda, allt til 4 úrskurðar um gjaldþrotaskipti, geri það, sbr. 5. tl., að félögin stefndi og stefnandi teljist nákomnir, samkvæmt skilgreiningu laganna. Þá byggir stefnandi á því að forsva rsmaður stefnda og þá forsvarsmaður hins gjaldþrota félags hafi að fullu gert sér grein fyrir að ráðstafanir þær sem hann gerði, með greiðslu þriggja greiðslna sem skipta milljónum, til nákomins, væru riftanlegar á grundvelli XX. kafla laga nr. 21/1991. S tefnandi byggir aðallega á því hvað varðar riftun greiðslnanna að þær séu riftanlegar þar sem þær hafi verið greiddar eftir frestdag, þær hafi verið óheimilar og séu riftanlegar á grundvelli 139. gr. laga nr. 21/1991. Ákvæðið segi að greiðslur sem greiddar séu eftir frestdag séu riftanlegar og sé það almenn og mjög víð heimild til riftunar. Í greininni séu jafnframt þrjú skilyrði fyrir því að greiðslur teljist ekki riftanlegar. Fyrsta skilyrði 139. gr. sé að skuldin hefði fengist greidd samkvæmt XVII. kafl a laga nr. 21/1991. Forgangskröfur í þrotabúið séu samkvæmt framlagðri kröfuskrá um 79.000.000 króna. Ekki hafi fundist eignir í búinu til að greiða þær að fullu og því komi , að svo stöddu, ekki greiðsla upp í almennar kröfur samkvæmt 113. gr. laganna. Meg i því ljóst vera að það skilyrði að skuld hefði fengist greidd samkvæmt XVII. kafla laganna sé ekki uppfyllt. Annað skilyrði sé að greiðslurnar séu nauðsynlegar þrotamanni til að komast hjá sérstöku tjóni í rekstri sínum. Ekki sé með nokkru móti unnt að s ýna fram á að greiðsla skuldar vegna húsaleigu, þar sem stefndi og stefnandi hafi deilt húsnæði, hafi verið til að afstýra sérstöku tjóni hjá þrotamanni. Um óljósa skuld sé að ræða, sbr. framlagt hreyfingayfirlit. Rekstur félagsins hafi enda verið illa las kaður. Þriðja skilyrðið sé hvort sá sem greiðslu naut, þ.e. forsvarsmaður hins stefnda félags, vissi eða mátti vita að komið hefði fram beiðni um gjaldþrotaskipti. Félögin séu nákomin og forsvarsmaður beggja félaganna sami maðurinn, Baldur Ingvarsson. Sá maður hafi haft alla þekkingu á fjármálum stefnanda og stefnda og viðskiptum þeirra. Því sé ómögulegt fyrir stefnda að bera fyrir sig að honum hafi ekki verið kunnugt um stöðu félagsins þremur til fimm vikum eftir frestdag. Stefnandi byggir á því að ákvæð i 2. mgr. 139. gr. laganna standi ekki í vegi fyrir riftun þar sem greiðslurnar hafi ekki verið aðrar ráðstafanir nauðsynlegar í þágu atvinnurekstrarins og alls ekki eðlilegar með tilliti til hagsmuna lánardrottna eða til að fullnægja daglegum þörfum rekst rarins. Þvert á móti blasi við að verið hafi verið að greiða einum nákomnum kröfuhafa á kostnað annarra kröfuhafa í þrotabúinu þannig að eignir búsins standi ekki til fullnustu kröfuhöfum almennt. Verði dómurinn ekki við kröfu stefnanda um riftun umrædd ra greiðslna á grundvelli 139. gr laga nr. 21/1991 geri stefnandi þá kröfu að greiðslunum verði rift á grundvelli 141. gr. laga nr. 21/1991. Greiðslur forsvarsmanns hins gjaldþrota félags hafi verið á ótilhlýðilegan hátt einum kröfuhafa til hagsbóta á kost nað annarra og verið til 5 þess fallnar að peningalegar eignir þrotamanns hafi ekki verið til reiðu til fullnustu öðrum kröfuhöfum. Þá hafi verið ljóst að þrotamaður hafi verið ógjaldfær og að forsvarsmaður hins stefnda félags þ.e. þolandi riftunarinnar, haf i vitað af ógjaldfærni þrotamanns og haft alla þekkingu á fjárhagslegri stöðu þrotamanns. Gjaldþrotaskiptabeiðni byggi á rofnu greiðslusamkomulagi við Skattinn og kröfur í þrotabúið samkvæmt kröfuskrá séu ríflega 2.000.000.000 króna. Þá byggir stefnandi á því að stefnda beri að greiða stefnanda bætur vegna riftunarinnar, sbr. 3. mgr. 142. gr. laga nr. 21/1991. Stefnda beri að greiða hina stefndu fjárhæð til stefnanda, en tjón stefnanda verði að teljast sama fjárhæð og greidd var til hins stefnda félags end a hefði sú fjárhæð komið kröfuhöfum að fullum notum nyti þessara fjármuna við í þrotabúinu og kröfuhafar fengju greitt hlutfallslega eftir stöðu krafna sinna. Stefnandi gerir kröfu um dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og v erðtryggingu, af hinni stefndu fjárhæð, einum mánuði frá því að yfirlýsing um riftun greiðslnanna og krafa um greiðslu þeirra var send stefnda, hinn 10. desember 2024, sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001. Skuld þessi hafi ekki fengist greidd þrátt fyrir riftun gr eiðsl n anna og viðvörun um innheimtuaðgerðir auk þess sem stefnda hafi verið sent innheimtubréf vegna kröfunnar 6. mars 2025. Innheimtutilraunir hafi ekki borið árangur, engin greiðsla hafi borist frá stefnda og sé því nauðsynlegt að höfða mál til greiðslu kröfunnar. Um lagarök vísar stefnandi til XX. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., aðallega til 139. og 141. gr. vegna riftunar, sbr. og 142. gr. laganna vegna tjónsbóta. Krafa um málskostnað styðst við 1. mgr. 130. gr. laga 91/1991 um meðfe rð einkamála. III. Stefndi byggir sýknukröfu sína á því að samkvæmt 1. mgr. 139. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. sé heimilt að krefjast riftunar á greiðslu skulda sem inntar séu af hendi eftir frestdag, en riftun sé þó ekki heimil ef greiðs lan var nauðsynleg til að koma í veg fyrir tjón eða sá sem greiðslu naut hafi hvorki vitað né mátt vita að komið hafi fram beiðni um heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings eða krafa um gjaldþrotaskipti. Þá sé samkvæmt 2. mgr. 139. gr. heimilt að krefjast riftunar annarra ráðstafana sem gerðar séu eftir frestdag, en riftun sé þó ekki heimil ef ráðstöfunin var nauðsynleg í þágu atvinnurekstrar þrotamannsins, ráðstöfunin var eðlileg með hliðsjón af sameiginlegum hagsmunum lánardrottna eða til að fullnægja daglegum þörfum. Stefndi telur að undantekningar 1. og 2. mgr. 139. gr. laga nr. 21/1991 eigi við í málinu og af þeirri ástæðu hafi greiðslurnar verið heimilar. 6 Stefndi vísar til þess að í stefnu sé krafist riftunar á fjórum greiðslum á tímabilinu 21 . september til 1 9 . október 2024. Í stefnu sé hins vegar með engu móti fjallað um hverja og eina greiðslu, né heimildarskjöl að baki greiðslunum, né skýrt hvort greiðslurnar séu vegna úttektar, leigu eða greiðslu , eða sé innborgun á skuld. Þa ð virðist því vera sem stefnandi geri engan greinarmun á því hvort greiðslurnar séu staðgreiðslu viðskipti, leiga eða innborgun. Að auki sé ekki vikið að því hvort kröfurnar séu greiddar á gjalddaga eða eftir á og hver skýringin sé ef krafa sé greidd eftir á. Af þeim sökum vilji stefndi skýra hverja og eina færslu sem krafist sé riftunar á í stefnu. Stefndi kveður að greiðsla hinn 21 . september 2024 að fjárhæð 3. 5 00.000 krónur og hinn 2 3. september 2024 3.500.00 krónur hafi verið innborganir á nýgjaldfalli nn leigugjalddaga samkvæmt viðauka við leigusamning. Greiðsla í október 2024 hafi verið greiðsla á reikningi vegna leigu á tækjum, dags. 31. ágúst 2024. Með vísan til framangreinds telur stefndi ljóst að allar framangreindar greiðslur séu leigugreiðslur á vinnuvélum, bifreiðum og tækjum og tólum. Leigugreiðslur feli ekki í sér greiðslu á skuld í skilningi 1. mgr. 139. gr. laga nr. 21/1991 og geti stefnandi því ekki byggt kröfu um riftun er varða leigugreiðslur á ákvæðinu. Telji dómurinn að greiðslurnar séu innborganir á skuld í stað greiðslu á leigu og 139. gr. laga nr. 21/1991 eigi þannig við um málatilbúnaðinn byggir stefndi á því að stefnanda hafi verið það heimilt til að forða tjóni í skilningi 1. mgr. 139. gr. Stefndi vísi í þessu sambandi til dóm a Hæstaréttar í málum nr. 636/2011 og 689/2011. Stefndi telur óumdeilt í málinu að félagið hafi þurft umræddar vinnuvélar, bifreiðar, tæki og búnað vegna reksturs síns, enda hafi það ekki átt nein tæki né tól þrátt fyrir að vera byggingarfyrirtæki. Félagið hafi leigt allan búnað sem því hafi verið nauðsynlegt. Félaginu hafi því verið frekari nauðsyn en ella að greiða umræddar greiðslur svo það fengi að halda áfram í sínum vörslum öllum vélunum, tækjum og tólum. Félaginu hafi verið búnaðurinn nauðsynlegur til að vera áfram starfrækt og til að geta haldið áfram tekjuöflun, en óumdeilt sé að félagið hafi frá 27. ágúst 2024 (frestdagur) fram að gjaldþrotaskiptum 7. nóvember 2024 aflað samtals 545.777.985 króna. Þær tekjur hefðu ekki komið til ef það hefði orðið r ekstrarstöðvun og ef leigusamningi hefði verið rift. Gagngjaldið af þessum greiðslum sé því margfalt fyrir aðra kröfuhafa/lánardrottna og verði að meta skilyrði 139. gr. laga nr. 21/1991 út frá þeirri staðreynd. Fyrirsvarsmenn stefnanda hafi reynt fram á síðustu klukkustund að halda rekstrinum gangandi eins og endurspeglist í þeim tekjum sem hafi verið aflað frá frestdegi. Þær greiðslur sem deilt sé um hafi tryggt að verkefnin gætu haldið áfram eftir frestdag og atvinnurekstrartekjur þan nig stofnast af sömu verkefnum og lækkað þannig skuldir, allt með það að markmiði að unnt væri að afturkalla gjaldþrotabeiðnina. Tekjurnar hafi sem fyrr greinir verið 545.777.985 krónur á tímabilinu ágúst til október 2024. Þær greiðslur sem þrætt sé um í þ essu máli séu 2,3% af þeirri upphæð. Ljóst sé að 7 ef umþrættar greiðslur hefðu ekki borist og stefndi í kjölfarið lokað fyrir viðskipti við stefnanda og tekið til baka þær vélar, bifreiðar, tæki og tól sem stefnandi hafði til leigu hefði það haft í för með sér rekstrarstöðvun sem hefði leitt til enn meira tjóns fyrir lánardrottna félagsins en raunin varð. Umþrættar greiðslur hafi því verið nauðsynlegar í þágu atvinnurekstrar þrotamannsins, sbr. 2. mgr. 139. gr. laga nr. 21/1991. Sömuleiðis hafi þær verið eðl ilegar af tilliti til sameiginlegra hagsmuna lánardrottna, en greiðslurnar hafi leitt til þess að þeir fengu meira greitt upp í kröfur sínar, enda hafi verið hægt að halda áfram verkefnum og innheimta samkvæmt gildandi verksamningum til hagsbóta fyrir alla kröfuhafa. Í árslok hafi skuld stefnanda við stefnda numið 452.353.863 krónum. Þær greiðslur sem krafist er riftunar á í stefnu séu að heildarsamtölu 13.022.104 krónur. Þrjár af greiðslunum hafi verið greiddar í samræmi við gildandi leigusamning eftir gj alddaga en fyrir eindaga. Fjórða greiðslan hafi ve rið greidd samkvæmt reikningi stuttu eftir eindaga, en greiðslufrestur hafi verið veittur og eindagi færður fram að greiðsludegi. Framangreindar greiðslur hafi einvörðungu verið 2,9% af heildarskuld stefnan da við stefnda miðað við stöðuna á þeim tíma. Stefndi hafi því síður en svo verið að fá allar skuldir sínar greiddar með innborgun un um, heldur þvert á móti fengið óverulegan hluta af kröfu sinni greidda n . Stefndi telur að kröfuhöfum hafi því síður en svo verið mismunað. Þvert á móti hafi umþrættar ráðstafanir leitt til tjónsminnkunar fyrir lánardrottna stefnanda, enda hefðu lýstar kröfur í búið verið langtum meiri og hærri ef ekki hefði verið gripið til ráðstafana og rekstur þess ekki tryggður. Ráðstöfuni n hafi því verið eðlileg með tilliti til sameiginlegra hagsmuna lánardrottna og megi samkvæmt 2. málsl. 2. mgr. 139. gr. laga nr. 21/1991 ekki rifta slíkum greiðslum ef stefndi mátti líta svo á að ráðstöfunin hafi verið þess eðlis. Stefndi heldur því fram að greiðslurnar hafi ver i ð eðlilegar með vísan til viðskiptasögu á milli félaganna, en þau hafi átt í viðskiptum frá árinu 2009. Þá sjáist af bókhaldi stefnda að það hafi verið vegna að stefnandi safnaði skuld við stefnda og greiddi síðan þegar stefnandi hafi skilað hinu leigða, haft tekjur til að greiða eða þegar stefndi hafi ætlað að loka á viðskipti og/eða rifta leigusamningum. Stefndi krefst því sýknu af öllum kröfum stefnanda, þar sem fyrirsvarsmenn stefnda hafi verið í góðri trú um að ráðstafanirnar hefðu verið þess eðlis að þær væru bæði til þess fallnar að koma í veg fyrir tjón í skilningi 1. mgr. 139. gr. og verið nauðsynlegar í þágu atvinnurekstrar stefnanda og eðlilegar með hliðsjón af sameiginlegum hagsmunum lánardrottna stefnanda, sbr. 2. mgr. 139. gr. laga nr. 21/1991, einkum 2. málsl. ákvæðisins. Enn fremur byggir stefndi á því að engin skilyrði standi til að rifta greiðslu samkvæmt 141. gr. laga nr. 21/1991, en af því leiði að stefnda verði ekki gert að greiða 8 skaðabætur samkvæmt 3. mgr. 14 2. gr. laganna. Sönnunarbyrði um að öllum skilyrðum 141. gr. laga nr. 21/1991 sé fullnægt hvíli á stefnanda. Stefndi kveður að skilyrði almennu riftunarreglunnar í 141. gr. laga nr. 21/1991 sé að ráðstöfunin hafi verið ótilhlýðileg. Það geti lotið að því að ráðstöfun hafi verið kröfuhafa til hagsbóta á kostnað annarra, leiði til þess að eignir þrotamanns verði ekki til reiðu til fullnustu kröfuhöfum eða leiði til skuldaaukningar kröfuhöfum til tjóns. Stefndi byggir á því að ráðstöfunin hafi ekki verið ótil hlýðileg í skilningi ákvæðisins, enda hafi markmið greiðslnanna verið eðlilegt og ekki ótilhlýðilegt. Það að greiða eðlilegt leigugjald fyrir sannanleg afnot af hinu leigða á gjalddaga eða nokkrum dögum eftir það sé ekki ótilhlýðilegt í skilningi 141. gr. laga nr. 21/1991. Auk þess séu greiðslurnar ekki háar að teknu tilliti til handbærs fjár og þeirra fjá rmuna sem stefnandi hafi aflað frá frestdegi fram að úrskurðardegi. Í 141. gr. laga nr. 21/1991 sé auk skilyrðis um að ráðstöfun hafi verið ótilhlýðileg áskilið að skuldari hafi verið ógjaldfær eða orðið það vegna ráðstöfunarinnar svo og að sá sem hafði h ag af henni hafi verið grandsamur um ógjaldfærni þrotamannsins og þær aðstæður sem leiddu til þess að ráðstöfunin væri ótilhlýðileg. Stefndi hafnar því sem röngu og ósönnuðu að stefnandi hafi verið ógjaldfær eða orðið það vegna ráðstöfunarinnar og að stefn di hafi verið grandsamur um ógjaldfærnina og ótilhlýðileika ráðstöfunarinnar í skilningi 141. gr. laga nr. 21/1991. Óumdeilt sé í málinu að krafa um gjaldþrotaskipti stefnanda hafi verið móttekin hjá héraðsdómi 27. ágúst 2024. Félagið hafi hins vegar afla ð yfir hálfs milljarðs í tekjur frá því tímamarki fram að úrskurðardegi 7. nóvember 2024. Með vísan til þeirra tekna og innstæðna á bankareikningi við hverja greiðslu, þá sé byggt á því að félagið hafi ekki verið ógjaldfært þegar greiðslurnar áttu sér stað . Í því samhengi bendir stefndi á að innstæða á bankareikningi stefnanda eftir umþrættar greiðslur hafi eftir umþrættar greiðslur numið tugum milljóna króna, allt frá 11,4 til 48 milljóna króna. Að minnsta kosti sé það ósannað að félagið hafi verið ógjaldf ært á þeim tíma. Stefndi hafnar því að hann hafi verið grandsamur um ógjaldfærni og ótilhlýðileika ráðstöfunar. Stefndi krefjist því sýknu af öllum kröfum stefnanda þar sem hvorki séu uppfyllt huglæg né hlutlæg skilyrði 141. gr. laga nr. 21/1991 til að ri fta umræddri greiðslu. Stefndi hafnar því einnig að hann hafi haft hag af ráðstöfuninni. Það sé markmið riftunarreglna XX. kafla laga nr. 21/1991 að tryggja jafnræði kröfuhafa þrotamanns þannig að enginn þeirra hagnist á ráðstöfunum hans í aðdraganda gjal dþrots umfram aðra kröfuhafa. Á frestdegi, 27. ágúst 2024, hafi skuld stefnanda við stefnda numið 258.291.824 krónu m , en við lok viðskipta aðila í árslok 2024 hafi hún verið 336.288.943 krónur og 452.353.836 krónur þegar tekið sé tillit til kröfukaupa stef nda. Sam k væmt því hafi viðskiptaskuld stefnanda við stefnda hækkað um 77.997.119 krónur frá frestdegi til 9 desember 2024. Þegar tillit hafi verið tekið til viðskiptaskulda og yfirtöku stefnda á tilgreindum skuldum stefnanda við Steypustöðina ehf. nemi kraf a stefnda á hendur stefnanda 194.062.012 krónum. Að þessu virtu hafi stefnandi ekki sýnt fram á að stefndi hafi haft hag af hinum umþrættu greiðslum þannig að unnt sé að rifta þeim á grundvelli 139. eða 141. gr. laga nr. 21/1991, sbr. 3. mgr. 142. gr. laga nna , sbr. dóma Hæstaréttar í málum nr. 636/2011 og nr. 689/2011 . Af þessu leiði jafnframt að stefnda verði ekki gert að greiða skaðabætur samkvæmt 3. mgr. 142. gr. laganna. Til vara gerir stefndi kröfu um að dómkrafa stefnanda verði lækkuð að mati dómsins með vísan til sömu röksemda og málsástæðna og raktar hafa verið í umfjöllun um aðal - og varakröfu. Sérstaklega er vísað til þess að stór hluti af greiðslunum sé leigugreiðslur samkvæmt gildandi leigusamningum og vegna útgefins reiknings á leigu fyrir tæki . Stefndi vísi hér til lækkunarreglu 145. gr. laga nr. 21/1991 og verði að telja skilyrði hennar uppfyllt með vísan til fyrrgreindrar umfjöllunar. Um lagarök vísar stefndi til meginreglu kröfu - og samningaréttar um efndir fjárskuldbindinga og skuldbindinga rgildi samninga. Einnig er vísað til 139. og 141. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Krafa stefnda um málskostnað er byggð á 129. gr. og 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Krafa um virðisaukaskatt af málflutningsþóknun byg gir á lögum nr. 50/1998. IV. 1. Í máli þessu reisir stefnandi kröfu sína um riftun aðallega á 1. mgr. 139. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., en einnig er riftun byggð á 141. gr. sömu laga. Stefndi byggir sýknukröfu sína á því að lagaskilyrð i téðra ákvæða séu ekki uppfyllt. Við aðalmeðferð málsins var um sýknukröfu enn fremur vísað til sömu málsástæðna og krafa um frávísun var byggð á, þ.e. að skiptastjóri hafi ekki haft heimild til að höfða mál þetta. 2. Eins og fram kemur í úrskurði dómara 11. desember 2025, þar sem frávísunarkröfu stefnda var hafnað, fer skiptastjóri með forræði þrotabús og kemur fram af hálfu þess, sbr. 1. mgr. 122. gr. laga nr. 21/1991. Þá er mælt fyrir um það í 1. mgr. 124. gr. laganna að skiptastjóri taki ákvarðanir um hagsmuni þrotabús, m.a. hvort mál verði höfðað um kröfu. Skiptastjóri er hins vegar almennt bundinn af einróma niðurstöðu skiptafundar eða áliti meirihluta fundarmanna við atkvæðagreiðslu, sbr. 127. gr. laganna. Í 127. gr. eru hins vegar ýmsir fyrirvarar sem geta leitt til þess að skiptastjóri þurfi ekki að fara eftir einróma ályktun eða ályktun meirihluta. Þannig getur skiptastjóri virt að vettugi ályktanir ef þær eru að mati hans andstæðar lögum, óheiðarlegar, óframkvæmanlegar eða fari bersýnilega í bág a við hagsmuni kröfuhafa, eða ætla má að meirihlutavaldi sé misbeitt minni hlutanum til tjóns. Skiptastjóri hefur því völd til að 10 hnekkja ákvörðun skiptafundar sem væri annars bindandi fyrir hann. Skiptastjóri tekur þá sjálfstæða ákvörðun um málefnið eða b oðar til nýs fundar um það ef hann telur það réttara. Skiptastjóri tók ákvörðun á skiptafundi 23. apríl 2025 um að höfða riftunarmál á hendur stefnda, þar sem hann taldi meirihlutann misbeita valdi sínu minnihlutanum til tjóns. Þetta kom skýrt fram í málf lutningsræðu lögmanns stefnanda við munnlegan flutning málsins vegna frávísunarkröfu stefnda og við aðalmeðferð málsins. Þá kemur fram í fundargerð skiptafundar að skiptastjóri vísaði um ákvörðunina til 2. mgr. 127. gr. Nánar tiltekið segir í fundargerð að málshöfðun til riftunar yrði framhaldið. Síðan segir ekki um að ræða at riði sem hafi verið nauðsynlegt að kæmi fram í stefnu eða nýja málsástæðu stefnanda heldur lagarök og andsvar við vörnum sem stefndi byggir á í greinargerð sinni. Í fundargerð skiptafundar kemur jafnframt fram að lögmaður stefnda hafi óskað eftir fundi með skiptastjóra til að jafna ágreining vegna málshöfðunar á hendur stefnda. Ágreiningslaust er að fundur var haldinn 28. maí 2025. Við aðalmeðferð málsins var því ha ldið fram af hálfu stefnda að ágreiningur aðila um málshöfðun hafi þá ekki komið til tals heldur hafi verið rætt um krónutölur. Hvort sem ágreiningur aðila hafi verið leiddur til lykta á fundinum eða ekki, og skiptastjóra hafi borið að vísa ágreiningi til héraðsdóms, verður ekki framhjá því litið að hann hefur þegar höfðað mál til riftunar á umræddum greiðslum. Eins og fram kemur í forsendum úrskurðar dómara vegna frávísunarkröfu stefnda er hér um orðinn hlut að ræða sem ekki verður horfið frá. Um þetta var vísað til athugasemda við 128. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 21/1991, sbr. og 71. gr. frumvarps sem varð að lögum nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl. Stefndi gæti því í máli þessu ekki hnekkt því sem skiptastjóri hefur þegar gert. Með vís an til alls framangreinds er því hafnað að sýkna beri stefnda þar sem skiptastjóri hafi ekki haft lagaheimild til málshöfðunar. 3. Samkvæmt 1. mgr. 139. gr. laga nr. 21/1991 má k refjast riftunar á greiðslu skuldar ef greitt var eftir frestdag nema reglur XVII. kafla laganna hefðu leitt til að skuldin hefði greiðst við gjaldþrotaskipti, nauðsynlegt hafi verið að greiða til að komast hjá tjóni eða sá sem greiðslu naut hafi hvorki vitað né mátt vita að komið hafi fram beiðni um heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings eða krafa um gjaldþrotaskipti. Þá segir í 2. mgr. 139. gr. að krefjast má riftunar annarra ráðstafana sem hafa verið gerðar eftir frestdag nema ráðstöfunin hafi verið nauðsynleg í þágu atvinnurekstrar þrotamannsins, eðlileg af tilliti til sameiginlegra hagsmuna lánardrottna eða til að 11 fullnægja daglegum þörfum. Ekki verði rift gagnvart þeim sem mátti líta svo á að ráðstöfunin hafi verið þess eðlis sem á undan segir eða hvorki vissi né mátti vita um beiðni um heimild til greið slustöðvunar eða til að leita nauðasamnings eða kröfu um gjaldþrotaskipti. Samkvæmt 141. gr. má krefjast riftunar ráðstafana sem á ótilhlýðilegan hátt eru kröfuhafa til hagsbóta á kostnað annarra, leiða til þess að eignir þrotamannsins verði ekki til reið u til fullnustu kröfuhöfum eða leiða til skuldaaukningar kröfuhöfum til tjóns, ef þrotamaðurinn var ógjaldfær eða varð það vegna ráðstöfunarinnar og sá sem hafði hag af henni vissi eða mátti vita um ógjaldfærni þrotamannsins og þær aðstæður sem leiddu til þess að ráðstöfunin væri ótilhlýðileg. Við mat á því hvort riftunarreglum XX. kafla laga nr. 21/1991 verður beitt þarf að horfa til þeirra afleiðinga sem ráðstöfunin hefur haft á fjárhag skuldara og þar með á hagsmuni og jafnræði kröfuhafa. Um þetta vísast til dóms Hæstaréttar í máli nr. 14/2022. 4. Baldur Ingvarsson, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri hins gjaldþrota félags, var einnig stjórnarformaður og framkvæmdastjóri stefnda. Er hér um nákomna aðila að ræða, sbr. 5. tl. 3. gr. laga nr. 21/1991. G reiðslur til stefnda fóru fram 21 . september, 23 . september og 1 9 . október 2024. Frestdagur við skiptin var 27. ágúst 2024. Þannig liggur fyrir að greiðslurnar fóru fram eftir frestdag. Dómkröfur nem a þannig samtals 11.522.104 krónum. Stefndi kveður að um hafi verið að ræða greiðslu vegna leigu á vinnuvélum, bifreiðum og tækjum og tólum. Fyrir liggur í gögnum málsins samningur um leigu á bílum og tækjum, dags. 29. desember 2023, en í 4. gr. kemur fram að uppgjör á leigu skyldi vera í lok hvers árs. Um skuld var að ræða en g reiðslurnar voru ekki í samræmi við ákvæði samningsins um greiðslur. Meint skuld telst almenn krafa sem hefði ekki fengist greidd við gjaldþrotaskiptin, en lýstar forgangskröfur í búið nema um 79.000.000 króna og eignir ekki til staðar í b úinu til að greiða þær. Ekki er fallist á með stefnda að greiðslurnar hafi verið nauðsynlegar til að komast hjá tjóni. Í þessu sambandi verður ekki hjá því litið að kröfurnar voru ekki komnar á gjalddaga, sbr. 4. gr. samningsins , og ekki liggur fyrir að greiðsluáskorun vegna leigu vanskila hafi legið fyrir eða riftun leigusamnings verið yfirvofandi. Einnig verður að horfa til þess að fram hefur komið að engin skuld hafi verið bókuð á milli félaganna vegna leigusamnings fyrr en 31. október 2024 . Er ósann að gegn mótmælum stefnanda að undantekningarákvæði í 139. gr. laga nr. 21/1991 eigi hér við. Þá er ljóst að þegar greiðslurnar fóru fram hafi stefndi vitað eða mátt vita að komin var fram krafa um gjaldþrotaskipti. Eins og áður segir var um nákomna aðila að ræða og fyrirkall vegna kröfu um gjaldþrotaskipti var birt á lögheimili Baldurs 12 Ingvarssonar 16. september 2024, þ.e. nokkrum dögum áður en fyrsta greiðslan átti sér stað. Greiðslurnar leiddu til tjóns fyrir búið og fólu í sér mismunun kröfuhafa. Með ví san til alls framangreinds og 1. mgr. 139. gr. laga nr. 21/1991 ber að rifta umræddum greiðslum. Greiðslurnar eru einnig riftanlegar á grundvelli 141. gr. laga nr. 21/1991. Að virtum atvikum máls og stöðu félagsins er ljóst að umræddar greiðslur voru ótilh lýðilegar, enda voru þær stefnda til hagsbóta á kostnað annarra kröfuhafa og leiddu til þess að eignir þrotabús voru ekki til reiðu til fullnustu kröfuhöfum. Stefndi mátti vita að greiðsl urnar vær u ótilhlýðileg ar og honum mátti vera kunnugt um ógjaldfærni hins gjaldþrota félags, en fyrir lá að félagið stóð ekki við greiðsluáætlun við Skattinn, dags. 2. apríl 2024, með yfirlýsingu samkvæmt 4. tl. 2. mgr. 65. gr. laga nr. 21/1991, þess efnis að ef ekki yrði staðið við greiðsluáætlunina væri það vegna þess að félagið væri eignalaust og gæti ekki staðið í skilum við lánardrottna sína þegar kröfur þeirra féllu í gjalddaga og ekki væri sennilegt að greiðsluörðugleikar liðu hjá innan skamms tíma . 5. Stefnandi krefst þess að stefndi greiði bætur á grundvelli 3. mgr. 142. gr. laga nr. 21/1991, en þar segir að ef riftun fer fram samkvæmt 139. eða 141. gr. skuli sá sem hafði hag af riftanlegri ráðstöfun greiða bætur eftir almennum reglum. Með vísan til framangreinds verður stefnda gert að greiða stefnanda 11.522.104 kró nur. Dráttarvextir skulu reiknast frá 10. janúar 2025, þegar liðinn var mánuður frá bréfi skiptastjóra um riftun og kröfu um að stefnandi greiddi framangreinda fjárhæð , til greiðsludags . 6. Eftir þessum úrslitum og með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála verður stefndi dæmdur til að greiða stefnanda málskostnað sem er hæfilega ákveðinn 600.000 krónur. Dóm þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari. Dómsorð: Rift er greiðslum sem FX 21 ehf. greiddi stefnda, hinn 21. september 2024 3.500.000 krónur, hinn 23. september 2024 3.500.000 krónur, og hinn 19. október 2024 4.522 .104 krónur, samtals 11.522.104 krónur. Stefndi greiði stefnanda, þrotabúi FX 21 eh f., 11.522.104 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 10. janúar 2025 til greiðsludags. Stefndi greiði stefnanda 600.000 krónur í málskostnað. Sandra Baldvinsdóttir