Héraðsdómur Reykjaness Dómur 30. mars 2026 Mál nr. S - 3938/2025 : Ákæruvaldið ( Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari ) g egn S öndru Dorotheu Becker, ( Oddur Valsson lögmaður ) Sokol Dushku og ( Baldvin Már Kristjánsson lögmaður ) Valmir Qeleposhi ( Benedikt Smári Skúlason lögmaður ) Dómur Mál þetta var þingfest 8. janúar 2026 og dómtekið 2. mars 2026. Málið höfðaði héraðssaksóknari með ákæru útgefinni 11. desember 2025 á hendur ákærðu Söndru Dorotheu Becker, fæddri , ríkisborgara , Sokol Dushku, kt. 000000 - 0000 , , og Valmir Qelepos hi, kt. 000000 - 0000 , að hafa í félagi staðið að inn flutningi á samtals 14.952,33 g af ketamíni, með 87% styrkleika, sem samsvarar 100% af ketamínklóríði, og 4.999,46 g af MDMA kristöllum, með 83% styrkleika , sem sam svarar 99% af MDMA klóríði, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni, en fíkniefnin voru falin í samtals 20 pakkningum í tveimur leynilegum hólfum undir framsætum bifreiðar með skráningarnúmerið , frá Hollandi til Íslands, en fíkniefnin fundust í bif reiðinni og í poka á gólfi iðnaðarbils nr. 106, í Hafnarfirði, við handtöku ákærðu allra föstudaginn 19. september 2025. Við handtöku voru ákærðu byrjuð að fjar lægja fíkniefnin úr bifreiðinni og undirbúa söludreifingu þeirra en við leit í húsnæð inu að , sem ákærðu Sokol og Valmir höfðu til umráða, fundust grammavog, smelluláspokar og íblöndunarefni falin í iðnaðarryksugu. Ákærðu skiptu með sér verkum m.a. sem hér greinir; 2 1. Ákærða Sandra flutti fíkniefnin frá Hollandi til Íslands falin í bifrei ð með skráningarnúmerið með ferjunni Norrænu sem kom til Seyðisfjarðar að morgni miðvikudagsins 17. september 2025 en ákærða hélt áfram för sinni á bifreiðinni til Hafnarfjarðar föstudaginn 19. september og hitti ákærða Sokol á bifreiðastæði við Fjarða rkaup, Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, og tók við 290.000 krónum í reiðufé og ók á eftir ákærða Sokol að [...] í Hafnarfirði þar sem hún ók bifreiðinni inn í iðnaðarbil nr. 106. 2. Ákærði Sokol átti í samskiptum við óþekktan mann dagana 23. júní - 30. júlí og 10. 19. september 2025 þar sem lagt var á ráðin um innflutning og fjármögnun fíkniefna og 16. september um greiðslur til ákærðu Söndru vegna innflutningsins og um hvert fara ætti með bifreiðina en þessum upplýsingum var komið áfram til ákærðu Söndru í gegnum ó þekktan mann. Ákærði Sokol hitti ákærðu Söndru föstudaginn 19. september á biðreiðastæði við Fjarðarkaup, Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, afhenti henni 290.000 krónur í reiðufé og ók á undan henni að [...] . 3. Ákærði Valmir kom að innflutningi og fjármögnun fík niefna, fyrst með því að greiða samtals 29.968 evrur í gegnum reikning sinn (IBAN ) hjá fjármálafyrirtækinu Revolut á óþekktan mann mánudaginn 23. júní 2025, en fjármunirnir voru endurgreiddir inn á sama reikn ing ákærða hjá Revolut mánudaginn 30. júní 2025 og stuttu síðar með því að greiða 40.036 evrur í gegnum reikning sinn hjá Revolut inn á eigin bankareikning (IBAN ) í albanska bankanum Union bank þriðjudaginn 29. júlí 2025. Ákærði Valmir fletti upp ferðaleið frá Egilsstöðum til Hafnarfjarðar í sm áforritinu Google Maps fimmtudaginn 18. september 2025 og upplýsingarnar bárust ákærðu Söndru í gegnum óþekk[t]an mann en ákærði kom í iðnaðarbil nr. 106, [...] í Hafnarfirði, föstudaginn 19. september þar sem ákærðu Sokol og Sandra voru við bifreiðina með fíkniefnunum og skömmu síðar náði ákærði í kassa í bifreið sína sem innihélt iðnaðarryksugu og setti hana við bifreiðina með fíkniefnunum og sat áfram í bifreið sinni fyrir utan húsið á meðan ákærðu Sokol og Sandra hófu að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiði nni og gerði ákærða Sokol viðvart þegar lögregla kom á 3 Í ákæru er greind háttsemi talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þess krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakar - kostnaðar. Þá er krafi st upptöku á framangreindum fíkniefnum, grammavog (munur nr. 676349), smelluláspokum (munur nr. 676350) og plastpoka (munur nr. 676351) með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974 og 69. gr. a almennra hegningarlaga en á grun dvelli þess ákvæðis er jafnframt krafist upptöku á bifreið með skráningarnúmerið [...] (munur nr. 676337), auk sex farsíma sem ákærðu notuðu við brotið (munir nr. 676305, 676306, 676319, 676487, 676314 og 676315). Loks er krafist upptöku á 290.000 íslensku m krónum í reiðufé sem fundust við leit á ákærðu Söndru við handtöku (munur nr. 367331) með vísan til 1. mgr. 69. gr. og 1. mgr. 69. gr. b almennra hegningarlaga, sbr. 2. gr. laga nr. 149/2009. Ákærða Sandra viðurkennir skýlaust að hafa gerst sek um þá há ttsemi sem henni er samkvæmt framansögðu gefin að sök og fellst á upptökukröfu ákæruvaldsins. Hún krefst þess að henni verði gerð vægasta refsing sem lög leyfa og að til frádráttar tildæmdri refsingu komi gæsluvarðhald sem hún hefur sætt óslitið frá 20. se ptember 2025 að fullri dagatölu. Þá krefst skipaður verjandi hennar málsvarnarlauna sér til handa úr ríkissjóði. Ákærði Sokol neitar því að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök en gerir ekki athugasemd við upptökukröfu ákæruvaldsins. Hann krefst aðallega sýknu af kröfum ákæruvaldsins og til vara að honum verði gerð vægasta refsing sem lög leyfa og að til frádráttar tildæmdri refsingu komi gæsluvarðhald sem hann hefur sætt óslitið frá 20. september 2025 að fullri dagatölu. Þá krefst ski paður verjandi hans máls - varnarlauna sér til handa úr ríkissjóði. Ákærði Valmir neitar því að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og hafnar upptökukröfu ákæruvaldsins. Hann krefst aðallega sýknu af kröfum ákæruvaldsins og til vara að honum verði gerð vægasta refsing sem lög leyfa og að til frádráttar tildæmdri refsingu komi gæsluvarðhald sem hann hefur sætt óslitið frá 20. september 2025 að fullri dagatölu. Þá krefst skipaður verjandi hans málsvarnarlauna sér til handa úr ríkissjóði. I. Málsatvik, lögreglurannsókn máls og framlögð gögn 1. 4 Samkvæmt framlagðri frumskýrslu tóku tollverðir við eftirlit með komu farþega - ferjunnar Norrænu til Seyðisfjarðar bifreiðina til skoðunar miðvikudaginn 17. september 2025. Ökumaður bifreiðarinnar var ákærða Sandra. Tollvörður nr. A ræddi við ákærðu Söndru um tilkomu og tilgang ferðar hennar hingað til lands. Mat hann frá - sögn ákærðu Söndru ótrúverðuga og var því ákveðið að gera ítarlega leit í bifreiðinni. Samkvæmt framlagðri aðkomuskýrslu tollvarðar nr. B fundust við þá leit pakkningar sem innihéldu hvítt efni undir fölskum botni bæði undir ökumanns - og farþegasæti í bif - reiðinni að framanverðu. 2. Samkvæmt framlagðri skýrslu l ögreglumanns nr. C um upphafsaðgerðir máls var lögreglan á Austurlandi þegar upplýst um framangreint og tók í samráði við lög regluna á höfuðborgarsvæðinu ákvörðun um að óska eftir heimild ríkislögreglustjóra til að heimila ákærðu Söndru för á bifreiðinni með umrædd efni innanborðs og hafa með henni eftirlit. Að fenginni þeirri heimild var ákærðu Söndru fylgt eftir þar sem hún ók bifreiðinni frá Tollhúsinu á Seyðisfirði að Eiðum og innritaði sig á Eiðar Hostel & Apartments. Samkvæmt framlagðri skýrslu l ögreglumanns nr. D um aðgerðir lög reglu dvaldi hún þar fram til morguns föstudaginn 19. september 2025 undir viðvarandi eftirliti lögreglu. Þá veitti Héraðsdómur Austurlands lögreglunni á Austurlandi heimild til ýmissa rannsóknaraðgerða. Samkvæmt tilvikas kýrslu lögreglumanns nr. E um hljóðupptökur 18. september 2025 leiddu þær m.a. í ljós að ákærða Sandra var meðvituð um að ávana - og fíkniefni væru í bifreiðinni og að henni var uppálagt að aka með efnin á höfuðborgar - svæðið þvert á það sem umræddar hljóðup ptökur bera með sér að hafi verið ráðgert í upphafi. Þá leiddu þær í ljós að ákærða Sandra hugðist aka suður föstudaginn 19. septem - ber 2025, losa sig við efnin og aka svo aftur austur sama dag. Samkvæmt framlagðri skýrslu lögreglumanns nr. F um aðgerðir lögreglu föstudaginn 19. september 2025 lagði ákærða Sandra af stað frá Eiðar Hostel & Apartments kl. 6:55 þann dag undir eftirliti lögreglu og ók norðurleiðina að höfuðborgar - svæðinu með viðkomu á Akureyri. Þegar á höfuðborgarsvæðið var komið ók hún að ve rsluninni Fjarðarkaup að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði þar sem hún lagði bifreiðinni í stæði kl. 16:02. Þar á planinu hitti hún ákærða Sokol sem kom þangað á bifreiðinni . Ákærða Sandra fór út úr sinni bifreið og að bifreið ákærða Sokol ökumannsmegin. Ákærði Sokol skrúfaði niður rúðuna og þau ræddu saman. Að svo búnu settist hún aftur 5 inn í sína bifreið og ók á eftir ákærða Sokol að [...] þar sem þau stöðvuðu bæði bifreiðar sínar fyrir utan iðnaðarbil. Ákærði Sokol steig út úr sinni bifreið og opnaði hu rð að iðnaðarbilinu, ákærða Sandra ók bifreiðinni þar inn og ákærði Sokol lokaði að svo búnu hurðinni kl. 16:14. Skömmu síðar kom ákærði Valmir akandi að [...] á bifreiðinni og stöðvaði hana þar fyrir utan. Ákærði Valmir steig út úr bifreiðinni og gekk inn í iðnaðarbilið. Stuttu síðar kom hann aftur út og sótti stóran kassa með ryksugu í bifreið sína og fór með hann inn í iðnaðarbilið. Að svo búnu fór hann aftur út í bifreið sína og settist í ökumannssæti hennar kl. 16:22 en ók ekki á brott. Í máli nu liggur frammi hljóðupptaka af því sem fram fór inni í iðnaðarbiðlinu á meðan þau ákærða Sandra og ákærði Sokol voru þar inni. Í framlagðri upplýsingaskýrslu lögreglumanns nr. F um þá hljóðupptöku kemur fram að heyra megi ákærða Sokol spyrja ákærðu Söndr u hvort bifreið hennar hafi verið skoðuð og eftirfararbúnaði hugsanlega komið fyrir í henni. Í framhaldi af því megi heyra ákærða Sokol spyrja hana hvort allar bifreiðar hafi ekki verið skoðaðar og hana svara því til að einungis bifreiðar með þýsk skráning arnúmer hafi verið skoðaðar. Þá megi heyra ákærðu Söndru segja að hún ætli ekki að snerta þetta án þess að fara í hanska. Hún sé með sína eigin hanska. Þeir hafi spurt hana af hverju hún væri með hanska og hún sagt þeim að hún notaði þá þegar hún væri að t aka eldsneyti. Þeir hafi spurt svo margra asna legra spurninga . Þá megi heyra ákærðu Söndru segja að pakkningarnar eigi að vera 20 og að svo búnu telja. Þegar hún sé búin að telja upp að sjö megi heyra farsíma ákærða Sokol hringja og hann svara: reglan, settu þetta aftur til F um handtöku ákærða Valmirs hringdi ákærði Valmir í ákærða Sokol kl. 16:23. Símtalið varði í fimm sekúndur. 3. Samkvæm t framangreindri skýrslu lögreglumanns nr. F um aðgerðir lögreglu föstudaginn 19. september 2025 voru ákærðu handtekin kl. 16:24. Fyrst var ákærði Valmir handtekinn þar sem hann sat í bifreið sinni fyrir utan . Fram kemur að hann hafi verið með farsíma í hendinni þegar lögregla hafi komið að honum. Hið sama má sjá á ljósmynd úr búkmyndavél sem finna má í framangreindri tilvikaskýrslu lögreglumanns nr. F . Á sama tíma opnuðust göngudyrnar að iðnaðarbilinu og ákærði Sokol stóð í gættinni og var handtekinn. Fram kemur að hann hafi verið í latexhönskum. Hið sama kemur fram í framlagðri aðkomuskýrslu lögreglumanns nr. E um handtöku ákærða Sokols . Þá kemur þar fram að farsími hans hafi legið á borði við hlið ökumanns hurðar 6 bifreiðarinnar . Ákærða Sandra var svo handtekin inni í iðnaðarbilinu. Í framlagðri skýrslu lögreglumanns nr. G um innför og handtöku að [...] kemur fram að þegar lögregla hafi komið inn í iðnaðarbilið hafi ákærða Sandra staðið við ökumannssæti bifreiðarinnar og verið skipað að leggjast niður. Við hliðina á henni hafi verið svartur ruslapoki sem í hafi verið pakkningar með efni. Þá hafi einnig verið pakkningar með efni í opnu leynihólfi undir ökumannssæti bifreiðarinnar. Ákærða Sandra hafi verið í latexhönskum. Við öryggisleit á henni ha fi fundist 290.000 krónur í reiðufé, kveikjuláslyklar að bifreiðinni og farsími. Þá hafi annar farsími fundist inni í bifreiðinni . 4. Í framhaldi af framangreindu var framkvæmd leit í iðnaðarbilinu að [...] í Hafnarfirði. Í framlagðri leitarskýrslu lögreglumanns nr. H vegna þeirrar leitar kemur fram að bifreiðin sem hafi verið þar inni hafi verið flutt annað til leitar. Ekkert annað saknæmt hafi fundist við leit í umræddu iðnaðarbili. Fram kemur að á gól f inu hafi verið tvær ryksugur. Báðar hafi þær borið þess merki að vera lítið sem ekkert notaðar. Bifreiðin [...] var flutt á vörubílspalli með lögreglufylgd til leitar í aðstöðu Tollgæslu Íslands að Vesturvör í Kópavogi. Samkvæmt framlagðri leitarskýrslu lög - reglumanns nr. I vegna þeirra leitar hófst leit kl. 17:58 þann 19. september 2025 og lauk kl. 18:44 sama dag. Fram kemur að talsvert magn efna hafi enn verið í leynihólfum bifreiðarinnar. Þá hafi verið búið að taka hluta þeirra úr hólfunum og setja í svartan rusla - poka. Sá ruslapoki hafi verið settur í farangursrými bifreiðarinnar áður en hún hafi verið flutt. Samtals hafi verið um 20 pakkningar með efni að ræða. Hver þeirra hafi vegið um 1 kílógramm . Búið hafi verið að setja einhverskonar duft utan um allar pakkningarnar sem lögregla telji að hafi átt að villa um fyrir fíkniefnahundum. Ekkert annað hafi fundist við leit í bifreiðinni. Þá liggur frammi ljósmyndaskýrsla lögreglumanns nr. J sem hefur að geyma ljósmyndir sem teknar voru af bifreiðinni bæði að [...] áður en hún var flutt og á meðan á leit í henni stóð sem og af þeim pakkningum sem fundust við þá leit. Enn fremur liggur frammi upplýsingaskýrsla lögreglumanns nr. I um leyni hólf bifreiðarinnar [...] . Í þeirri skýrslu kemur fram að um sérútbúin leynihólf hafi verið að ræða sem veruleg vinna hafi verið lögð í. Þá er þar gerð frekari grein fyrir því hvernig bifreiðin var útbúin og það sýnt á ljósmyndum til skýringar. Í framlagðri efnaskýrslu tæknideildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemu r fram að við rannsókn og prófun kl. 19:23 þann 19. september 2025 hafi þau efni sem fundist hafi í bifreiðinni greinst sem 14.952,33 grömm af ketamíni og 4.999,46 7 grömm af MDMA - kristöllum. Sýni voru send Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja - og eiturefn afræði til frekari greiningar og styrkleikamælingar. Samkvæmt framlagðri matsgerð hennar, dagsettri 2. október 2025, reyndist styrkur ketamíns í þeim sýnum sem send voru vera 87% eða sem samsvarar 100% af ketamínklóríði og styrkur MDMA 83% eða sem samsvara r 99% af MDMA - klóríði. Þá óskaði lögregla eftir því að rannsókna - stofan legði mat á það úr frá mældum styrkleika hversu mikið magn af MDMA - töflum í neyslustyrkleika væri unnt að framleiða úr 4.999,46 grömmum af þeim MDMA - kristöllum sem haldlagðir voru. Sam kvæmt framlagðri matsgerð hennar, dagsettri 6. október 2025, var niðurstaðan sú að unnt væri að framleiða 41.084 töflur sem innihaldi 101 millígramm af MDMA úr því magni. Í umræddri matsgerð kemur fram að rann - sóknastofunni hafi á árunum 2015 2024 borist 5 7 sýni af MDMA - töflum sem hafi innihaldið á bilinu 38 187 millígrömm af MDMA. Meðalgildið hafi verið 101 millí - gramm og við það hafi því verið miðað. Þá liggur frammi upplýsingaskýrsla lögreglu - manns nr. F um götuverðmæti umræddra efna miðað við auglýsinga r á samskipta forritinu Telegram að kvöldi föstudagsins 19. september 2025. Samkvæmt því sem þar kemur fram nam götuverðmæti 14.952,33 gramma af ketamíni á þeim tíma samtals 299.046.600 krónum og 4.999,46 gramma af MDMA - kristöllum samtals 74.991.900 krónum . Samtals nam því götuverðmæti umræddra efna 374.038.500 krónum. 5. Samkvæmt framlagðri tilvikaskýrslu lögreglumanns nr. E vegna búsetu ákærðu Sokols og Valmirs búa þeir saman að [...] í Hafnarfirði þótt þeir séu báðir skráðir til lögheimilis annars staða r. Í framhaldi af áðurgreindri leit í iðnaðarbilinu að [...] fór fram leit í íbúðarhluta húsnæðisins. Í framlagðri leitarskýrslu lög reglumanns nr. H vegna leitar í sameiginlegu rými þess hluta kemur fram að leitar hundur hafi merkt nokkra staði þar. Inni í ryksugu sem þar hafi verið hafi fundist plast poki með grammavog, smelluláspokar hringt látlaust í hann á Signal. Það efni sem var í framangreindum poka inni í ryksug unni reyndist samkvæmt framlagðri efnaskýrslu tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vera 30,40 grömm af laktósa eða íblöndunarefni. Í framlagðri leitarskýrslu lögreglumanns nr. H vegna leitar í herbergi ákærða Sokols er gerð stuttlega grein fyrir því sem haldlagt var við þá leit. Þá liggur frammi ljósmyndaskýrsla lögreglumanns nr. K sem hefur að geyma ljósmyndir af ýmsum kvittunum, greiðslukorti og SIM - kortum sem í herbergi ákærða Sokols voru. Í framlagðri leitarskýrslu 8 lögreglumanns nr. H vegna le itar í herbergi ákærða Valmirs kemur fram að á náttborði hafi legið iPhone - sími í hleðslu. Ákærði Valmir hafi gefið upp lykilorð til að opna hann. Enn fremur er þar gerð stuttlega grein fyrir öðru því sem haldlagt var við þá leit. Loks liggur frammi ljósmy ndaskýrsla lögreglumanns nr. K sem hefur að geyma ljósmyndir af ýmsum kvittunum og pappírum, greiðslukortum og SIM - korti sem í herbergi ákærða Valmirs voru. Einnig var framkvæmd leit í áður nefndum bifreiðum ákærðu Sokols og Valmirs. Samkvæmt framlögðum le itarskýrslum lögreglumanns nr. E vegna leitar í bifreiðinni og lögreglumanns nr. H vegna leitar í bifreiðinni fannst ekkert saknæmt við leit í umræddum bifreiðum. Sama kvöld var enn fremur framkvæmd leit á heimili ákærðu Söndru í Schaafheim Þýska landi með liðsinni lögreglu þar. Samkvæmt framlagðri skýrslu lög - reglumanns nr. F vegna þeirrar leitar fannst ekkert saknæmt. 6. Við framangreindar aðgerðir lögreglu voru ýmsir munir haldlagðir sem ýmist kom í ljós eftir því sem rannsókn málsins vatt fram að hefðu ekki þýðingu eða krafist er upptöku á í máli þessu. Í málinu liggur frammi tilvikaskýrsla lögreglumanns nr. E um haldlagða muni auk þess sem munaskýrslur vegna allra haldlagðra muna liggja frammi. Samkvæmt því sem fram kemur í umræddri tilvikaský rslu voru það einkum þar til - greindir farsímar ákærðu sem reyndust hafa þýðingu við rannsókn málsins. Nánar tiltekið er þar um að ræða tvo farsíma ákærðu Söndru, annars vegar einkafarsíma hennar (munur nr. 676306) og hins vegar aukafarsíma hennar (munur nr . 676305), farsíma ákærða Sokols sem lá á borði við hlið ökumannshurðar bifreiðarinnar [...] inni í iðnaðar bili húsnæðisins að [...] þegar ákærðu voru handtekin (munur nr. 676487), far síma sem fannst við leit í sameiginlegu rými íbúðarhluta húsnæðisins a ð [...] (munur nr. 676319) og tvo farsíma ákærða Valmirs, annars vegar farsíma sem hann var með á sér þegar hann var handtekinn (munur nr. 676314) og hins vegar einn þeirra farsíma sem fundust við leit í herbergi hans í íbúðarhluta húsnæðisins að [...] (munur nr. 676315). 7. Í málinu liggja frammi fjórar lögregluskýrslur vegna rannsóknar á farsímum ákærðu Söndru, ein vegna rannsóknar á einkafarsíma hennar og þrjár vegna rannsóknar á aukafarsíma hennar. 9 Í skýrslu lögreglumanns nr. E vegna rannsóknar á einkafarsíma ákærðu Söndru kemur fram að í honum hafi verið að finna gögn um aðdraganda ferðar hennar til Íslands. Þá hafi einnig verið að finna gögn sem lotið hafi að undirbúningi ferðarinnar, t.d. að kaupum á aukafarsíma hennar. Í samskiptum hennar við a ðra komi fram að L , sonur hennar, hafi verið handtekinn í Frakklandi í byrjun júlí 2025. Hún hafi m.a. átt samskipti M fyrrverandi kærustu sonar síns. Í samskiptum þeirra á milli komi m.a. fram að þær telji ástæðu hennar sem og staðsetningu bifreiðar hans. Í byrjun ágúst 2025 séu svo samskipti M oða sig við að kaupa iPhone M henni á. Í byrjun september 2025 séu svo samskipti þeirra á milli þar sem ákærða Sandra M ur. Þá kemur fram í umræddri skýrslu að í símanum hafi verið að finna ljósmynd af skila boðasamskiptum á öðrum farsíma sem að líkindum sé aukafarsími ákærðu Söndru, þ.e. umræddur iPhone 13 við skýrslutöku hjá lögreglu sagt vera L - netföng til að senda skilaboð annars vegar og móttaka skila boð hins vegar. Þá hafi hann sagt henni að vera aldrei innskráð, skrá sig alltaf út og fjarl ægja aðganginn af tækinu. Í skýrslu lögreglumanns nr. I vegna rannsóknar á aukafarsíma ákærðu Söndru kemur fram að þann síma hafi hún eingöngu notað í tengslum við innflutning umræddra fíkniefna hingað til lands. Síminn hafi verið settur upp í byrjun ágú st 2025, tengdur við gerviaðgang og tekinn í notkun. Í símanum hafi hún verið í samskiptum á dulkóðaða Hún hafi sjálf símtölum frá því að síminn hafi verið tekinn í notkun hafi verið eytt. Þá kemur m.a. fram hafi eytt öllu út af símanum þegar hún hafi verið stöðvuð af toll vörðum við komu til Seyðisfjarðar. Þá liggur frammi sérstök skýrsla lögreglumanns nr. I vegna samskipta ákærðu 8. september 2025. Í umræddri skýrslu kemur fram að ekki sé vitað hver sá aðili sé. Þá eru samskipti þeirra 10 tekin upp og þýdd. Þau hefjast þegar ákærða Sandra var búin að fá bifreiðina [...] aftur hafi leitað í bifreið hennar í fjórar og hálfa klukkustund en ekki fundið neitt. Svo lúta samskiptin að því að ákærða Sandra þurfi að fara á höfuðborgarsvæðið til að afhenda efnin sem hún virðist ósátt við og lýsir m.a. áhyggjum af því að þurfa að fara aftur í sendir henni heimilisfangið með leiðarlýsingu frá Egilsstöðum að í Hafnarfirði sem f ram kemur í umræddri Þá segir hann að næstu verkefni verði ekki jafn krefjandi. ákærðu Söndru um að athuga til öryggis hvort varningurinn sé enn í bifreiðinni. Enn fremur liggur frammi sérstök skýrsla lögreglumanns nr. I vegna sam skipta í hópnum Driver 1.0 á Signal 18. og 19. september 2025. Í þeirri skýrslu k emur fram að í umræddum hópi hafi ákærða Sandra verið ásamt áður nefndum upp og þýdd. Þau hefjast rétt fyrir hádegi 18. september á almennum samskiptum um það hvernig gangi. Snemma morguns 19. september lætur ákærða Sandra vita að hún sé að leggja af stað að austan og svo annað slagið yfir daginn hvernig ferðinni miðar. Klukkan rúmlega þrjú í Hafnarfirði og hægt að taka allt úr í rólegheitum. Ákærða Sandra segir svo að hún vilji fyrst fá pening af því 8. Í málinu liggja frammi tvær ítarlegar skýrslur lögreglumanns nr. K vegna rannsóknar á farsíma ákærða Sokols, ein almenn og ein þar sem gerð er sérstök grein almennu skýrslunni kemur fram að rannsókn á farsíma ákærða Sokols hafi leitt í ljós að mikið á í gegnum WhatsApp í aðdraganda komu ákærðu Söndru. Ákærði Sokol hafi hann 11 hafi hitt ákærðu Söndru á planinu við Fjarðarkaup. Þá hafi hann móttekið símtal frá ákærða Valmir kl. 16:23 þann dag. Þriðjudaginn 17. september 2025 hafi ákærði Sokol svo flett Egilsstöðum upp á Google Maps. Þá hafi rannsókn á rafrænu efnisinnihaldi símans leitt í ljós að ákærði Sokol stundaði sölu fíkniefna alveg fram að handtöku. Í símanum hafi fundist samskipti við ýmsa aðila þar að lútandi, t.d. um það hvort greiðsla skuli innt af hendi með reiðufé eða millifærslu á bankareikninga í eigu ákærða So kols. Í skýrslunni þar sem gerð er sérstök grein fyrir samskiptum ákærða Sokols við h afi verið í samskiptum við ákærðu Söndru eða þá að um einn og sama aðilann sé að - lýsingar um þau atriði síðan borist ákærðu Söndru. Í umræddri skýrslu eru svo skrifleg sams Þau samskipti lúta m.a. að ferðatösku og einhverju sem sé á leiðinni sem þeir vonist til að hafist sem og greiðslum ð vinurinn muni skilja eftir 50.000 evrur í Evrópu og spyr ákærða Sokol svo í öðrum skila - boðum hvort hann eigi pening á Revolut. Þá ræða þeir millifærslu frá Albaníu. Ákærði Sokol segir svo í skilaboðum að hann hafi talað við einn sem geti millifært í geg num - boðum hvort þeir geti notað bílskúrinn. Nokkru síðar biður hann ákærða Sokol að senda heimilisfangið í Reykjavík. Enn fremur liggur frammi ítarleg tilvikaskýrsla lögreglumanns nr. E vegna rannsóknar á farsíma ákærða Sokols þar sem gerð er gr ein fyrir samskiptum hans á WhatsApp við óþekktan ónafngreindan aðila með spænskt símanúmer. Fram kemur að ákærði Sokol hafi greint frá því við skýrslutöku hjá lögreglu að umræddur aðili heiti hafi leitt í ljós að ákærði Sokol hafi hætt samskiptum við umrætt símanúmer og hafið samskipti við tengiliðinn Sokols við umrætt símanúmer frá 23. júní til 30. júlí 2025 te kin upp og þýdd. Þá segir þar að þau samskipti heilt yfir beri með sér að umræðuefnið hafi verið innflutningur fíkniefna. Þannig hafi þeir t.d. rætt greiðsluleiðir og nefnt að greiðsla eigi að fara fram 12 með rafmynt, reiðufé í Albaníu og reiðufé á Íslandi. Í lok júní hafi samskipti þeirra snúist um millifærslur. Ákærði Sokol hafi sent skjáskot með staðfestingu á millifærslu á 29.968 evrum í gegnum reikning ákærða Valmirs hjá Revolut. Umrætt skjáskot hafi ákærði Valmir sent ákærða Sokol. Í framhaldi af því ha fi samskiptin svo snúist um vandamál sem komið hafi upp. Svo hafi sá sem ákærði Sokol var í samskiptum við sagt að greiðslan kæmi til baka. Örskömmu síðar hafi ákærði Valmir fengið umrædda fjárhæð endurgreidda. Þá hafi þeir rætt ýmsar flutningsleiðir. Þeir hafi rætt póstsendingar og ferðamenn. Þá virðist þeir hafa rætt ferli til að draga efni úr fatnaði. Þá hafi þeir rætt um að pressa efni og um að útvega pressuvél. Loks segir svo í skýrslunni að erfitt sé að greina nákvæmlega samhengi samskiptanna þar sem þeir hafi einnig talað mikið saman. Þá liggur frammi upplýsingaskýrsla sérfræðings lögreglu nr. N vegna rann sóknar á þeim farsíma sem fannst við leit í sameiginlegu rými þeirra ákærðu Sokol s og Valmir s í íbúðarhluta húsnæðisins að [...] . Þar kemur fram a ð rannsókn á efnisinnihaldi umrædds farsíma gefi til kynna að ákærði Sokol hafi verið notandi hans og því lýst af hverju svo sé. Hann hafi verið notaður til að auglýsa fíkniefni á Tele gram sem og til að selja fíkniefni. Þá hafi hann innihaldið skilaboðasa mskipti á dulkóð aða samskiptamiðlinum Signal sem lotið hafi að greiðslum, skipulagningu funda og stöðu uppfærslum. Enn fremur hafi hann innihaldið SMS - skilaboðasamskipti við fjölda aðila sem snúist hafi um sölu, dreifingu og kaup á fíkniefnum. Þá hafi han n innihaldið myndir af ætluðum fíkniefnum og 10.000 króna peningaseðlum. Dæmi um slíkar myndir er að finna í umræddri upplýsingaskýrslu. 9. Þá liggja frammi tvær skýrslur lögreglumanns nr. K vegna rannsóknar á far símum ákærða Valmirs , annars vegar skýrsla vegna rannsóknar á þeim farsíma sem hann var með á sér þegar hann var handtekinn og hins vegar vegna rannsóknar á einum þeirra farsíma sem fundust við leit í herbergi hans í íbúðarhluta húsnæðisins að [...] . Í fyrri skýrslunni kemur fram að rannsókn á efnisinnihaldi umrædds farsíma hafi leitt í ljós að síðasta símtalið sem hringt var úr honum hafi verið fimm sekúndna símtal í ákærða Sokol á þeim tíma sem lögregla hafi ráðist í handtökur á vettvangi. Í símanum hafi verið skjámynd af mi P gegnum reikning ákærða Valmirs hjá Revolut. Fram kemur að ákærði Valmir hafi við skýrslutöku hjá lögreglu sagt umrædda millifærslu hafa verið vegna bifreiðakaupa. Í fyrri skýrslutöku hj á lögreglu hafi hann sagst hafa hætt við kaupin þar sem í ljós hafi komið 13 að ekki væri hægt að breyta bifreiðinni og í síðari skýrslutöku hafi hann sagst hafa hætt við þar sem seljandi bifreiðarinnar hafi hækkað verðið á henni. Í símanum hafi jafnframt ver ið skjámynd af innstæðu á bankareikningi ákærða Valmirs þann 8. september 2025. Innstæða hafi verið 15.812.125 krónur. Þá kemur fram að rannsókn á símanum hafi leitt í ljós að kl. 19:05 þann 18. september 2025 hafi Egilsstöðum verið flett upp á Google Maps . Loks kemur fram í skýrslunni að leit hafi verið gerð í símanum að heitum þeirra bifreiðategunda sem ákærði Valmir hafi við skýrslutöku hjá lögreglu sagst hafa ætlað að kaupa sem og nafni ætlaðs seljanda þeirra en ekkert fundist við þá leit. Í síðari ský rslunni kemur fram að ekki hafi verið hringt úr þeim síma eftir 7. september 2025. Við rannsókn á efnisinnihaldi hans hafi fundist ljósmynd af QR - kóða P áður en framangrei nd millifærsla hafi verið framkvæmd. Leit hafi verið gerð í símanum að heitum þeirra bifreiðategunda sem ákærði Valmir hafi við skýrslutöku hjá lögreglu sagst hafa ætlað að kaupa sem og nafni ætlaðs seljanda þeirra en ekkert fundist við þá leit. 10. Í mál inu liggur frammi tilvikaskýrsla lögreglumanns nr. F vegna framan greindrar uppflettingar á Egilsstöðum á Google Maps í farsíma ákærða Valmirs kl. 19:05 þann 18. september 2025. Fram kemur að síminn hafi verið staðsettur að í Hafnarfirði þegar Egilsstö ðum hafi verið flett upp. Rannsókn á efnisinnihaldi auka farsíma ákærðu Söndru af síma með Google Maps á skjánum þar sem búið hafi verið að fletta upp hvað það taki langan tíma að aka frá Egilsstöðum að . Lögregla telji ljóst að sú ljósmynd sé af síma ákærða Valmirs. Rannsókn á efnisinnihaldi farsíma ákærða Sokols hafi leitt í ljós að ljósmynd af síma ákærða Valmirs með framangreint á skjánum hafi verið tekin á síma ákærð a Sokols kl. 19:06 umræddan dag. 11. Ákærða Sandra gaf þrívegis skýrslu hjá lögreglu á rannsóknarstigi. Hún gaf fyrst skýrslu þann 19. september 2025 og liggja bæði lögregluskýrsla sem hefur að geyma samantekt af frásögn hennar sem og upptaka af henni fra mmi í málinu. Hún greindi frá því að í byrjun júlí hafi sonur hennar lent í fangelsi. Hann hafi verið handtekinn í Frakk - landi á leið frá Þýskalandi til Spánar og hún hafi ekki heyrt í honum síðan. Nokkru síðar hafi óþekktur aðili hringt í hana og boðið he nni að fara í frí til að dreifa huganum. Hann 14 hafi látið hana hafa bifreið til að fara á til Íslands svo hún þyrfti ekki að fara á sinni eigin. Hún hafi sótt bifreiðina til Berlínar og skráð hana á sitt nafn. Hún hafi svo ekið frá heimili sínu til Amsterda m þar sem hún hafi dvalið eina nótt. Þaðan hafi hún ekið til Flensborgar á leið sinni til Hirtshals þar sem hún hafi tekið farþegaferjuna Norrænu. Hún hafi verið stöðvuð af tollinum á Seyðisfirði sem hafi tekið langan tíma og hún verið spurð margra heimsku legra spurninga. Hún hafi svo fengið skilaboð þann 19. september um að aka á höfuðborgarsvæðið og fengið fyrirmæli um að fara að bílastæði við verslun Fjarðarkaupa í Hafnarfirði. Þar hafi hún óvænt hitt mann sem hafi vinkað henni. Svo hafi hún fengið skila boð um að sá maður ætti að gefa henni upp lykilorð sem hann hafi gert. Hún hafi ekkert vitað hvað væri í gangi. Maðurinn hafi svo sagt henni að elta sig að iðnaðarbilinu að [...] í Hafnarfirði og aka bifreið sinni þar inn. Hann hafi lokað á eftir þeim og þ vingað hana til að taka efnin úr bifreiðinni og telja pakkningarnar. Svo hafi hann skyndilega sagt að lögreglan væri að koma og skipað henni að setja pakkningarnar aftur á sinn stað. Hún hafi ekki vitað af fíkniefnunum í bifreiðinni. Ákærða Sandra gaf næs t skýrslu hjá lögreglu 24. september 2025 og liggja lög - regluskýrsla sem hefur að geyma samantekt af frásögn hennar sem og bæði endurrit af henni og upptaka frammi í málinu. Við þá skýrslutöku gekkst ákærða Sandra að fullu við því að hafa staðið að innflut ningi fíkniefna hingað til lands. Hún hafi fengið fyrirmæli um að fara á tiltekinn stað í Hollandi þar sem tveir óþekktir aðilar hafi komið efnunum fyrir í bifreiðinni. Hún hafi fengið 2.000 evrur greiddar sem óþekktur aðili hafi sagt að væri fyrir lögmann skostnaði sonar hennar. Svo hafi hún þurft að fara í þessa ferð til Íslands þar sem hún hafi þegið umrædda fjármuni. Þá hafi henni verið sagt að fylgst væri með henni öllum stundum. Hún hafi aldrei áður tekið þátt í flutningi fíkniefna. Með - ákærði Sokol ha fi átt frumkvæði að samskiptum við hana á bílastæðinu við verslun Fjarðarkaupa. Hann hafi ekki getað gefið henni upp lykilorðið sem hafi átt að vera rað - númer á peningaseðli. Hún hafi rætt við sinn tengilið sem hafi þá sagt henni að nýtt lyki - lorð væri Fra nce. Meðákærði Sokol hafi verið í myndsímtali við óþekktan aðila á óþekktu tungumáli og í framhaldi af því gefið henni upp það lykilorð. Meðákærði Sokol hafi svo leiðsagt henni að iðnaðarbilinu að [...] og þar hafi hann sagt henni að taka efnin úr bifreiði nni. Aðspurð kvaðst hún hafa vitað hver fjöldi pakkninganna hafi verið sem og að hún hafi talið þær. Meðákærði Sokol hafi ekki beitt hana neinum þrýstingi. Þá kvað hún aðkomu meðákærða Sokols vera meiri en hann vilji vera láta. Loks baðst ákærða 15 Sandra afs ökunar á að hafa logið að lögreglu. Hún hafi verið nauðbeygð að fara í þessa ferð. Ákærða Sandra gaf svo skýrslu hjá lögreglu í þriðja sinn þann 21. október 2025 og bæði lögregluskýrsla sem hefur að geyma samantekt af frásögn hennar sem og upp - taka af hen ni frammi í málinu. Við þá skýrslutöku var ákærða Sandra spurð nánar út í fjölmörg atriði, auk þess sem borin voru undir hana ýmis rannsóknargögn. Hún greindi m.a. frá því að hún hafi fengið bifreiðina í Berlín frá óþekktum aðila. Hún hafi ekkert greitt fy rir hana en skráð hana á sitt nafn vegna trygginga. Umræddur aðili hafi látið hana hafa 4.000 evrur sem hún hafi notað til að greiða fyrir gistingu og miða í ferjuna. Hún hafi ekki vitað af leynihólfunum í bifreiðinni fyrr en þeir hafi haft samband við han a eftir að hún hafi verið komin á bifreiðinni heim til sín. Hún hafi ekki viljað fara í þessa ferð en þeir sagst vita hvar hún byggi og hvar sonur hennar væri. Hún hafi fengið nákvæmar upplýsingar um það hvernig hún ætti að opna leynihólf bifreiðarinnar. H enni hafi svo verið gefið upp heimilisfang í Hollandi þar sem hún hafi hitt aðila sem komið hafi efnun - um fyrir í bifreiðinni. Hún hafi svo ekið til Flensborgar og verið þar eina nótt. Svo hafi hún ekið til Hirtshals. Hún sé í þessari stöðu þar sem sonur h ennar hafi verið handtekinn í Frakklandi. Hún hafi fengið upplýsingar um son sinn frá Roberto Carlos og hann bent henni á lögmann í Frakklandi sem hún hafi fengið til að taka mál sonar hennar að sér. Þá greindi hún frá því að hún hafi fengið farsíma í hend ur síðastliðið sumar þar sem sonur hennar hafi verið búinn að setja hana í spjallhóp með aðila sem hafi verið staðsettur á Spáni. Í framhaldi af því hafi hún fengið annan farsíma og þá átt að flytja fíkniefni til staðsettur í Dúbaí . Hennar upplifun sé sú M um að kaupa slíkan síma þar sem verið vær i að hlusta hinn símann. Hún hafi svo þurft að fara til ákveðins aðila sem hafi sett símann upp fyrir hana. Hann hafi búið til aðgang Aðspurð um það hvort hún viti h verjir aðrir sem hún hafi átt í samskiptum við á Signal L , sonur hennar. Aðspurð kvaðst tengslum við ferðina hingað til lan ds og samskipt in hafi farið fram á þýsku. Hún sé þó ekki móðurmál þeirra. Hún hafi ekki vitað fyrr en hún hafi komið til Íslands að hún ætti að aka með efnin á höfuðborgarsvæðið en þeir hafi ekki virst geta sótt þau austur. Hún 16 hafi fengið senda mynd af Í slandi og verið sagt að aka norðurleiðina. Þegar hún hafi verið komin ásamt meðákærða Sokol inn í iðnaðar bilið að [...] hafi meðákærði Valmir komið þar inn með ryksugu. Meðákærði Sokol hafi svo rétt henni poka og sagt henni að setja efnin í hann. Þá grein di hún frá því að meðákærði Sokol hafi látið hana hafa þá fjármuni sem hún hafi verið með á sér þegar hún hafi verið handtekin. Loks kvaðst hún svo aðspurð ekki hafa beðið meðákærða Sokol um ryksugu. 12. Ákærði Sokol gaf í fjórgang skýrslu hjá lögreglu á rannsóknarstigi. Hann gaf fyrst skýrslu þann 19. september 2025 og liggja bæði lögregluskýrsla sem hefur að geyma samantekt af frásögn hans sem og upptaka af henni frammi í málinu. Hann skýrði frá því hafi beðið hann um að gera fara að Bíldshöfða 8 eða 10 og hitta þar annan Albana. Sá hafi afhent honum Samsung - farsíma og SIM - kort. Hann hafi hins vegar hvorki fengið upp gefið PIN - númer né vitað hvað hann hafi átt að gera við farsímann og SIM - kortið. Hann hafi svo sett SIM - kortið í um að hitta frænku sína við verslun Fjarðarkaupa. Þar hafi komið að honum kona og gefið sig á tal við hann. Hún hafi beðið hann um pening og gert handahreyfingar til að sem hafi beitt hann þrýstingi og sagt honum að hjálpa konunni. Ákærði Sokol hafi leið - sagt henni að iðnaðarbilinu að [...] og hún ekið bifreiðinni þar inn. Hún hafi viljað ryksuga bifreiðina og hann farið út og fyrir tilviljun hitt meðákærða Valmir og spurt hann hvort hann mætti fá ryksugu lánaða hjá honum. Það hafi verið auðsótt og hafi meðákærði Valmir haldið á ryksugunni inn, hitt meðákærðu Söndru og heilsað henni. Ekki hafi staðið til að hann aðstoðaði meðákærðu Söndru við að laga bifreið hennar. Hann hafi eingöngu átt að útvega stað. Aðspurður kvað ákærð i Sokol þá meðákærða Valmir ekki hafa talað saman í síma eftir að bifreiðinni hafi verið ekið inn í iðnaðarbilið. Aðspurður um það sem fundist hafi inni í ryksugu í sameiginlegu rými í íbúðarhluta hús næðisins að [...] kvaðst ákærði Sokol eiga það en það v hann ekki hafa látið meðákærðu Söndru fá neina fjármuni. Loks neitaði hann alfarið allri aðild að innflutningi fíkniefna til landsins. Ákærði Sokol gaf næst skýrslu hjá lögreglu 24. september 2025 og liggja lög - reg luskýrsla sem hefur að geyma samantekt af frásögn hans sem og bæði endurrit af 17 henni og upptaka frammi í málinu. Við þá skýrslugjöf staðfesti ákærði Sokol fyrri frá - sögn. Þá bætti hann við að meðákærða Sandra hefði beðið hann um lykilorð þegar þau hefðu hi eins ryksuga hafi þegar verið á staðnum. Þess vegna hafi hann beðið meðákærða Valmir um að lána sér ryksugu. Þá kvaðst hann ekki minnast þess að meðákærði Valmir hafi hringt í han n eftir að bifreið meðákærðu Söndru hafi verið komin inn í iðnaðarbilið. Þá kvað ákærði Sokol farsímann sem fundist hafi í sameiginlegu rými í íbúðarhluta hús - næðisins að [...] ekki vera í sinni eigu. Hann sé í eigu manna sem hann vilji ekki nafn - greina. S íminn sé notaður til að búa til auglýsingar til að selja kókaín. Þá dró ákærði Sokol til baka fyrri frásögn um að hafa ekki látið meðákærðu Söndru hafa fjármuni og - ljósin. Hann hafi ekki grunað fyrr en hann hafi hitt meðákærðu Söndru og hún beðið hann um lykilorð að fíkniefni væru í bifreið hennar. Þá voru borin undir ákærða Sokol ýmis atriði sem rannsókn lögreglu hafi leitt í ljós. Aðspurður kvaðst hann ekkert muna eftir s amtali þeirra meðákærðu Söndru inni í iðnaðarbilinu og ekki hafa vitað um fíkniefnin. Þá dró hann til baka fyrri frásögn um að meðákærða Sandra hafi nálgast hann fyrir utan og nálgast hana. Aðspurður um það af hverju meðákærði Valmir hafi hringt og varað hann við þegar lögregla hafi komið á vettvang kvað hann eðlilegt að fólk segi frá því sem það sjái. Þá gaf ákærði Sokol skýrslu hjá lögreglu 30. september 2025 og liggja bæði lög - regluskýrsla sem hefur að geyma samantekt af frásögn hans sem og upptaka af henni e ingöngu spænsku símanúmeri. Ákærði Sokol sé búinn að eiga í samskiptum við hann í nokkra mánuði. Þau samskipti hafi fyrst og fremst lotið að fjölskylduvandamálum veikir hann ekki verið í bol sem bendi til þess að hann hafi verið annars staðar en í Íslandi. Þá kvaðst st í 18 Danmörku og að ákærði Sokol ætti að láta hana fá 2.000 evrur þar sem hún væri ekki hann koma og fara. Loks gaf ákærði Sokol skýrslu hjá lögreglu 21. október 2025 og liggja bæði lög - regluskýrsla sem hefur að geyma samantekt af frásögn hans sem og upptaka af henni frammi í málinu. Í frásögn hans kom fram að hann hefði verið notaður í þessum innflut n - handtöku ákærðu, m.a. að þeir hafi rætt að von væri á ferðatösku, rætt um staði t il að taka á móti sendingunni sem og um greiðslur til meðákærðu Söndru þar sem hún hafi verið orðin auralaus. Ákærði Sokol gekkst við því að með ferðatösku væri átt við fíkniefni en að fyrri samskipti hafi verið skáldskapur þar sem rætt hafi verið um sendi ngu sem væri á leiðinni en hafi aldrei komið. Þá var ákærði Sokol spurður út í mynd sem hafi fundist í farsíma hans af öðrum farsíma þar sem búið hafi verið að fletta upp á Google Maps leiðinni frá Egilsstöðum að . Ákærði Sokol kvaðst hafa beðið meðákær ða Valmir að fletta þessu upp og svo tekið mynd af skjánum á farsíma hans. Þá kvaðst ákærði Sokol enn vera í áfalli eftir að hafa verið handtekinn. Hann hafi aldrei gert neitt ólöglegt. Nokkru síðar kvaðst hann þó hafa verið að selja og dreifa kókaíni. Þá sagði hann aðspurður að meðákærði Valmir hafi verið að spyrja hann hvað hann ætti að kaupa í Krónunni þegar hann hafi hringt í hann rétt áður en þau hafi verið handtekin. Aðspurður um bifreiðaviðskipti meðákærða Valmirs kvaðst ákærði Sokol hafa tvívegis að stoðað hann við bifreiðakaup því hann þekki menn og hafi fengið afslátt. 13. Ákærði Valmir gaf einnig skýrslu í fjórgang hjá lögreglu á rannsóknarstigi. Hann gaf fyrst skýrslu þann 19. september 2025 og liggja bæði lögregluskýrsla sem hefur að geyma saman tekt af frásögn hans sem og upptaka af henni frammi í málinu. Hann skýrði frá því að hann hafi verið í vinnu þann dag. Hann starfi við pípulagnir hjá fyrirtæki í eigu bróður síns. Hann hafi fengið símtal frá meðákærða Sokol sem hafi beðið hann um að lána s ér DeWalt - ryksugu sem hann eigi. Hann hafi farið með ryksuguna inn í iðnaðar bilið að [...] og látið meðákærða Sokol fá hana og farið svo aftur. Hann hafi ekki séð neinn annan þar inni en tekið eftir bifreið sem hafi staðið þar. Hann hafi sest stuttlega in n í bifreið sína en farið svo aftur inn í iðnaðarbilið til að spyrja meðákærða Sokol hvort hann 19 vildi aukahluti með ryksugunni sem hann hafi afþakkað. Því næst hafi hann sest aftur inn í bifreið sína og ætlað að hringja í vin sinn sem búi í Bretlandi en ek ki náð sambandi við hann. Hann hafi þá hringt í ákærða Sokol og spurt hvort hann vantaði eitthvað úr Krónunni þar sem hann hafi verið á leið þangað. Svo hafi hann verið hand tekinn. Aðspurður kvaðst ákærði Valmir hvorki hafa komið nálægt innflutningi á fík ni efnum né komið nálægt fíkniefnum yfirleitt. Aðspurður kvaðst ákærði Valmir fá um 400.000 krónur útborgað mánaðarlega og borga 80.000 krónur í húsaleigu að [...] . Hann sé almennt á núlli um mánaðamót. Hann hafi búið á Íslandi frá árinu 2014 og fari í frí til Albaníu einu sinni á ári. Aðspurður kvaðst ákærði Valmir hafa ætlað að kaupa fasteign í Bretlandi og hafa stofnað bankareikning þar. Hann hafi notað heimilisfang vinar síns til að stofna þann bankareikning og greitt vatnsreikning þar. Aðspurður kvaðst ákærði Valmir hafa þekkt meðákærða Sokol í nokkur ár en ekki þekkja meðákærðu Söndru neitt. Aðspurður um farsíma sem fundist hafi í sameiginlegu rými íbúðarhluta húsnæðisins að [...] kvað ákærði Valmir meðákærða Sokol eiga þann síma. Þá kvaðst hann ekki h afa átt það sem fundist hafi í ryksugu inni í umræddu sameiginlegu rými. Ákærði Valmir gaf næst skýrslu hjá lögreglu 24. september 2025 og liggja lög - regluskýrsla sem hefur að geyma samantekt af frásögn hans sem og bæði endurrit af henni og upptaka frammi í málinu. Við þá skýrslugjöf staðfesti ákærði Valmir fyrri frá - sögn og kvaðst ekki geta útskýrt af hverju hans frásögn stangaðist á við frásögn með - ákærða Sokols. Aðspurður neitaði hann því að hafa hringt í meðákærða Sokol til að vara hann við þegar lögreg la hafi komið á vettvang. Þá kvaðst hann aðspurður ekki kannast við að hafa eytt umræddu símtali úr símtalaskrá í síma sínum. Þá gaf ákærði Valmir skýrslu hjá lögreglu 3. október 2025 og liggja bæði lög - regluskýrsla sem hefur að geyma samantekt af frásögn hans sem og upptaka af henni frammi í málinu. Við þá skýrslugjöf staðfesti ákærði Valmir á ný fyrri frásögn. Þá skýrði hann frá því að umræddan dag hafi hann farið með O í hádegismat í IKEA. Aðspurður um það hvort hann hafi ætlað að ferðast til útlanda áðu r en hann hafi verið handtekinn greindi hann frá því að hann hafi ætlað að fara að heimsækja frænda sinn sem búi á Egilsstöðum. Þess vegna hafi hann flett leiðarlýsingu þangað upp á Google Maps. Þá voru bornar undir ákærða Valmir ýmsar færslur inn á bankar eikning hans. Aðspurður um 8.000 evra innlögn þann 10. mars 2025 kvaðst hann hafa ætlað að kaupa bifreið í Bret - landi en hætt við þar sem stýrið hafi verið öfugum megin og kostnaðarsamt að breyta því. Aðspurður um 29.968 evra innlögn þann 30. júní 2025 kva ðst hann hafa lagt þann 20 pening inn á sinn eigin reikning í Albaníu þar sem hann hafi viljað eiga hann til að kaupa fasteign þar í framtíðinni. Aðspurður um millifærslur í gegnum Revolut - reikning hans til P rur og svo eina að fjárhæð 29.880 P honum. Aðspurður um 9.500 evra innlögn þann 22. júlí 2025 kvaðst hann hafa millifært það fé af sínum bankareikningi í Albaníu. Aðsp urður um þær 40.000 evrur sem hann hafi lagt inn á bankareikning sinn í Albaníu undanfarið kvað hann það vera fjármuni sem hann hafi fengið þegar hann hafi selt íbúðina sína hér á landi. Aðspurður um það hvernig ljósmynd af síma hans þar sem búið hafi veri ð fletta upp leiðarlýsingu frá Egilsstöðum að á Google Maps hafi ratað í farsíma meðákærðu Söndru kvaðst ákærði Valmir ekki getað svarað því. Hann hafi ekki tekið þá ljósmynd. Aðspurð ur hver hafi tekið hana kvað hann meðákærða Sokol hafa gert það. Aðs purður um það af hverju hann hafi sent P P meðákærða Sokol rétt áður en þau voru handtekin kva ðst ákærði Valmir hafa ætlað að spyrja hann hvort hann vantaði eitthvað úr búðinni. Með ákærði Sokol hafi ekki náð að svara í símann áður en lögregla hafi komið og handtekið hann. Aðspurður um DeWalt - ryksuguna kvaðst ákærði Valmir hafa keypt hana í Costco í lok ágúst. Hann hafi átt aðra eins sem hafi eyðilagst. Aðspurður um það hvort með ákærði Sokol hafi kynnt hann fyrir P hann keypt Audi Q7 bifreið frá Bandaríkjunum sem ha nn hafi látið senda til Albaníu. Fyrir þá bifreið hafi hann greitt 18.000 bandaríkja dali. Vinur hans sem búi í Bandaríkjunum hafi greitt hluta kaupverðsins en ákærði Valmir millifært hluta þess af bankareikningi sínum í Albaníu. Loks gaf ákærði Valmir skýrslu hjá lögreglu 21. október 2025 og liggja bæði lögregluskýrsla sem hefur að geyma samantekt af frásögn hans sem og upptaka af henni frammi í málinu. Við þá skýrslugjöf var ákærði Valmir spurður frekar út í þau bifreiða - viðskipti sem hann hafi greint frá. Hann skýrði frá því að hann hafi fyrst ætla að kaupa bifreið frá Bretlandi. Kaupverðið hafi átt að vera 30.000 evrur. Það hafi svo verið hækkað og hann hætt við og frekar keypt Audi Q7 bifreið frá Bandaríkjunum. Hún hafi verið flutt beint til Albaníu . Ákærði Sokol hafi verið milliliður í þessum viðskiptum. Hann hafi átt samskipti við þá aðila sem tengst hafi þessum viðskiptum á Messenger og WhatsApp og skýrði frá nöfnum þeirra. Þá var ákærði Valmir spurður frekar út í myndina af farsíma 21 hans. Hann ský rði frá því að þeir meðákærði Sokol hefðu staðið í dyragættinni heima hjá sér og verið að reykja. Hann hafi ætlað að fara að heimsækja einstakling sem búi á Egils - stöðum og því flett þessu upp og sýnt meðákærða Sokol. Síðan hafi hann látið með - ákærða Sokol fá farsíma sinn og farið sjálfur út að reykja. Meðákærði Sokol hljóti að hafa tekið þessa mynd þá. Aðspurður um misræmi í frásögn þeirra meðákærða Sokols um þetta atriði greindi hann svo frá því að meðákærði Sokol hafi beðið hann um að fletta þessu upp. H ann viti hins vegar ekki af hverju hann hafi ekki bara gert það sjálfur í sínum eigin síma. Þá kvaðst ákærði Valmir aldrei hafa komið nálægt neinu ólöglegu og ekki vilja neitt með slíkt hafa. Aðspurður um það hvort honum hafi þá ekki fundist óþægilegt að m eðákærði Sokol stundaði sölu og dreifingu fíkniefna kvaðst hann ekkert vita um það. Hann sjái meðákærða Sokol lítið. Þá kannaðist hann aðspurður ekki við að meðákærði 14. Loks tók lö gregla þann 2. október 2025 skýrslu af O sem í upphafi var grunaður um aðild að málinu og liggja bæði lögregluskýrsla sem hefur að geyma samantekt frásagnar hans sem og upptaka af henni frammi í málinu. O skýrði frá því að þeir ákærði Valmir væru vinir. Ha nn kvaðst hins vegar ekki þekkja ákærða Sokol og hvorki hafa komið að heimili þeirra ákærða Valmirs né vita hvar þeir búi. Aðspurður kvaðst hann hafa séð DeWalt - ryksuguna í bifreið ákærða Valmirs. Föstudaginn 19. september 2025 hafi þeir ákærði Valmir borð að saman hádegismat í IKEA. Almennt spjalli þeir um verkefni dagsins en þennan dag hafi ákærði Valmir ekkert viljað tjá sig um það hvað hann væri að fara að gera þrátt fyrir að O hafi ítrekað spurt hann. Ákærði Valmir hafi sótt hann um kl. 11:30 og þeir sv o farið í IKEA. Þegar þeir hafi verið búnir að borða hafi O viljað fara í Costco en ákærði Valmir sagst ekki hafa tíma til þess. Honum hafi fundist ákærði Valmir vera stressaður þennan dag. Þeir hafi talað saman um kl. 16:00 og O þá beðið ákærða Valmir um að koma til sín til að setja á sig verkjaplástur en hann sagst ekki hafa tíma til þess. 15. Í málinu liggja aukinheldur frammi ýmis önnur rannsóknargögn. Á meðal þeirra er tilvikaskýrsla lögreglumanns nr. I um ferð ákærðu Söndru frá heimili sínu í Sch aafheim í Þýskalandi og þar til hún steig um borð í farþegaferjuna Norrænu í Hirtshals í Danmörku unnin út frá staðsetningargögnum á farsíma hennar og í bifreiðinni [...] . Fram kemur að umrædd rannsóknargögn styðji frásögn hennar sjálfrar um ferðalagið. 22 16 . Þá er á meðal gagnanna tilvikaskýrsla lögreglumanns nr. E um viðskipti ákærða Valmirs. Í upphafi þeirrar skýrslu kemur fram að með henni sé dregið saman það sem fram hafi komið í frásögn ákærða Valmirs hjá lögreglu á rannsóknarstigi um meint bifreiðakau p hans. Rannsóknargögn málsins beri með sér að ákærði Valmir hafi millifært háar fjárhæðir bæði inn á fyrirtæki í Suður - Karólínu í Bandaríkjum sem og inn á albanskan einstakling sem lögregla telji að sé staðsettur í Bretlandi. Ákærði Valmir hafi greint frá því að hann hafi verið að leita sér að bifreið til að kaupa og flytja til Albaníu. P P í ljós að verulega kostnaðarsamt hafi verið að færa stýrið yfir á vinstri hlið bifreiðarinnar og hann því hætt við og fengið kaupverðið endurgreitt. Í síðari skýrslutöku hafi hann hins P reið arinnar og hann hætt við kaupin af þeim sökum. Síðan hafi hann fundið Audi Q7 bifreið á bifreiðasölunni Gemelli´s Auto Shop í Suður - Karólínu í Bandaríkjunum og keypt hana fyrir 18.000 bandaríkjadali og flutt til Albaníu. Hanni hafi millifært kaupverð bifre iðarinnar á albanskan einstakling í Suður - Karólínu en ekki á bílasöluna sjálfa. Hann hafi millifært af bankareikningi sínum í Union Bank í Albaníu. Sá sem hafi selt honum umrædda bifreið hafi verið vinur ákærða Sokols. Rannsóknargögn málsins bendi til þes s að frásögn ákærða Valmirs sé ekki sann - leikanum samkvæm og að hluti þessara greiðslna tengist innflutningi fíkniefnanna. Við skoðun á efnisinnihaldi farsíma ákærða Valmirs hafi komið í ljós samskipti við ákærða Sokol varðandi Audi Q7 bifreið á Gemelli´s Auto Shop frá því í mars 2025. Í framhaldi af því hafi svo átt sér stað samskipti þeirra á milli um kaup á þeirri bifreið sem ákærði Sokol virðist hafa haft milligöngu um, m.a. með því að leiðbeina ákærða Valmir um það hvert hann eigi að millifæra kaupverð ið. Þá hafi verið skjáskot í síma hans af staðfestingu á milli færslu á 14.000 bandaríkjadölum frá 25. apríl 2025. Hann hafi hins vegar millifært P - reikning sinn 23. júní 2025. Þetta komi á engan hátt saman við þá atburða rás sem ákærði Valmir hafi lýst. Þá liggi fyrir samskipti milli þeirra ákærðu Sokols og Valmirs frá 23. júní 2025, P P dinu sem hafi verið þýdd af 23 Farðu í gegnum Revolut, þar er nafnið, sendu allt í gegnum Revolut en alls ekki með o tekið skjáskot af millifærslunni og sent ákærða Sokol. Ákærði Sokol hafi þegar í stað sent það skjáskot á rið beintengdur aðilum í Signal - spjallhópi sem ákærða Sandra hafi verið hluti af og þar sem hún hafi fengið fyrir - Sokols vegna innflutnings fíkniefnanna og m.a. gefið honu m upp lykilorðið sem hann hafi átt að gefa ákærðu Söndru upp. Í framhaldi af þessari millifærslu hafi ákærði Sokol svo sent ákærða Sokol skilaboð um að endurgreiðsla mu ndi berast. Í beinu framhaldi af P 29 . júlí 2025 hafi ákærði Valmir svo millifært 40.036 evrur af Revolut - reikningi sínum inn á banka reikning sinn í Union Bank í Albaníu. Ekki hafi fengist gögn f rá Union Bank í Albaníu og því sé óvitað hvað orðið hafi um umrædda fjármuni. Ákærði Valmir hafi verið staddur í Albaníu þegar i inntur af hendi með reiðufé í Albaníu. Enn fremur er á meðal þeirra tilvikaskýrsla lögreglumanns nr. E þar sem tekin eru upp og þýdd samskipti ákærðu Sokols og Valmirs frá því í mars og apríl 2025 varð - andi kaup á áður nefndri Audi Q7 bifreið. 17. Loks er á meðal gagnanna tilvikaskýrsla lögreglumanns nr. E um iðnaðar - ryksuguna. Í þeirri skýrslu kemur fram að ákærði Valmir hafi lagt bifreið sinni fyrir utan iðnaðarbilið að [...] og að svo búnu sótt pappakassa sem hafi inni haldið DeWalt - iðnaðarryksugu og farið með hann inn í iðnaðarbilið og skilið hann eftir. Þegar lögregla hafi komið á vettvang hafi verið búið að opna pappakassann og opna ryk suguna. Þá hafi önnur alveg eins ryksuga einnig verið þar inni. Lögreglu gruni að til hafi staðið að setja fíknief nin í ryksugurnar. Á vettvangi hafi ákærði Valmir neitað því að hafa farið inn í iðnaðarbilið sem hafi vakið grunsemdir lögreglu. Framburðir ákærðu um hvernig það hafi komið til að ákærði Valmir hafi farið inn með umrædda ryksugu stangist á. Aflað hafi ver ið upplýsinga frá Costco. Sú upplýsingaöflun hafi leitt í ljós að tvær alveg eins 24 DeWalt - iðnaðarryksugur hafi verið keyptar á aðildarkorti ákærða Valmirs í lok ágúst 2025 með tveggja klukkustunda millibili. Greitt hafi verið fyrir þær báðar með reiðufé. 18 . Við aðalmeðferð málsins var af hálfu ákæruvaldsins lögð fram matsgerð Q , geðlæknis, dagsett 27. janúar 2023. Umræddur geðlæknir, sem er með sérhæfingu í fíknigeðlækningum, var dómkvaddur af Héraðsdómi Reykjaness 16. janúar 2023 í tengslum við mál sem va r til rannsóknar hjá lögreglu á þeim tíma til að svara þremur matsspurningum. Í fyrsta lagi var honum falið að svara því með hvaða hætti ketamíns á duftformi sé almennt neytt, í öðru lagi því hvaða áhrif neysla ketamíns hafi á þann sem þess neytir og í þri ðja lagi hverjir hættueiginleikar ketamíns á þann sem þess neytir séu, annars vegar til skamms tíma og hins vegar til lengri tíma. Í svörum hans kemur fram að ketamíndufts sé hægt að neyta í æð, í vöðva, um lungu um nef og um munn. Algengast sé að neyta ke tamíndufts um nef þegar efnið sé notað sem vímugjafi. Bráðaáhrif ketamíns komi fram í víðtækum geðrænum einkennum, m.a. skyntruflunum, ofskynjunum og hugrofi. Ketamínáhrif skerði hugræna getu og minni. Ketamín hafi einnig áhrif á hreyfigetu og geti valdið tímabundinni lömun. Sá sem sé í bráðavímu vegna ketamíns sé í aukinni hættu á slysum og á því að verða fyrir ofbeldi. Langvinn neysla á ketamíni geti valdið líkamlegum og andlegum kvillum hjá neytandanum. Neysla ketamíns geti valdið hefðbundnu fíkniheilken ni. Skaði ketamínfíknar sé metinn tiltölu lega lítill miðað við mörg önnur vímuefni, minni en kannabis en meiri en Ecstasy . Þá voru af hálfu ákærða Valmirs lagðar fram ljósmyndir af skjölum ásamt íslenskum þýðingum á þeim skjölum sem og ljósmyndir af vett vangi. Samkvæmt íslenskum þýðingum á umræddum skjölum er annars vegar um að ræða skjal sem sýnir heildarstöðu bankareiknings ákærða Valmirs hjá ótilgreindu fjármálafyrirtæki 30. desember 2025 og hins vegar skírteini tengd bifreið eða bifreiðum. II. Frambur ðir ákærðu og vitna fyrir dómi 1. Ákærða Sandra kom fyrir dóminn við þingfestingu málsins 8. janúar 2026 og viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök. Við aðalmeðferð málsins áréttaði hún þá afstöðu sína. Þá skýrði hú n frá því að hún hafi verið nauðbeygð til að flytja umrædd fíkniefni til landsins. Sonur hennar hafi verið handtekinn í Frakklandi í júlímánuði síðastliðnum og hún hafi þurft að fara í þessa ferð til að afla 25 fjár til að greiða lögmannskostnað hans. Upphafl ega hafi henni verið sagt að hún þyrfti að fara í frí vegna þess sem á hefði gengið og að hún ætti að sækja bifreið til Berlínar til að fara á. Henni hafi verið sagt að skrá bifreiðina á sitt nafn. Þegar hún hafi verið búin að gera það hafi henni verið sag t að hún væri ekki bara að fara í frí heldur ætti hún einnig að leysa ákveðið verkefni af hendi. Hún hafi ekki viljað gera það en hafi þá verið sagt að bifreiðin væri útbúin þannig að fylgst væri með henni. Um hættulegt fólk sé að ræða og hún hafi því veri ð hrædd. Hún hafi verið hrædd um að þetta fólk skaðaði son hennar sem sitji í fangelsi í Frakklandi. Henni hafi verið sagt hvert hún ætti að aka og henni látnar í té 4.000 evrur fyrir gisti - og ferðakostnaði. Annað hvort 12. eða 13. september hafi hún feng ið leiðbeiningar um að fara til Hollands og sækja fíkniefnin. Þegar hún hafi verið komin þangað sem henni hafi verið sagt að fara hafi verið komið með stóra tösku og henni sagt að aka á eftir öðrum bíl. Þau hafi svo numið staðar og henni verið sýnt hvernig hún ætti að ganga frá fíkniefnunum í bifreiðina sem hún hafi svo gert. Fylgst hafi verið með henni á meðan hún hafi verið að koma efnunum fyrir. Svo hafi hún keyrt til Dan - merkur og farið í ferjuna. Hún hafi verið stöðvuð af tollinum við komu hingað til l ands og leitað hafi verið í bifreið hennar. Það hafi tekið fjórar og hálfa klukkustund. Settur hafi verið búnaður í bifreiðina án hennar vitundar. Hún hafi svo skráð sig inn á gisti - heimili og látið vita inni í spjallhópnum að hún væri komin. Fyrst hafi he nni verið sagt að fíkniefnin yrðu sótt þangað og að hún gæti notað það sem eftir lifði ferðar til að gera það sem hún vildi. Svo hafi hún fengið skilaboð um að fíkniefnin yrðu ekki sótt og að hún þyrfti að aka með þau á höfuðborgarsvæðið 19. september. Hún hafi orðið fúl. Hún hafi fengið heimilisfang sent og ekið þangað. Þar hafi meðákærði Sokol setið í bifreið og vinkað henni. Henni hafi verið sagt að láta hann gefa upp lykilorð. Meðákærði Sokol hafi hringt myndsímtal í annan mann sem hafi látið hann hafa lykilorðið. Hann hafi svo sagt henni að elta sig sem hún hafi gert. Þau hafi ekið að iðnaðarbilinu og hún ekið sinni bifreið þar inn. Meðákærði Sokol hafi spurt hana hvort það væri nokkuð eftirfarar - búnaður í bifreiðinni eða hvort einhver hafi elt hana. Ha nn hafi látið hana hafa poka og beðið hana um að taka efnin úr bifreiðinni og setja í pokann. Svo hafi sími meðákærða Sokols hringt og hann svarað og að svo búnu sagt að lögregla væri komin og að hún ætti að setja efnin aftur í bifreiðina. Áður en hún hafi byrjað að taka efnin úr bifreiðinni hafi hann rétt henni seðlabúnt. Því fé hafi verið ætlað að standa undir kostnaði hennar við ferðina. Svo hafi lögregla komið og þau verið handtekin. 26 Aðspurð um það hvort hún viti hverjir það séu sem hafi fengið hana ti l að fara í þessa ferð kvaðst ákærða Sandra ekki vita það. Búið hafi verið að bæta henni við spjall - hópinn Driver 1.0 þegar hún hafi fengið símann í hendur frá þeim sem hafi sett hann upp. Hún hafi keypt símann sjálf. Aðspurð um það hvort hún hafi greitt e itthvað fyrir bifreið - ina kvað hún svo ekki vera. Þegar hún hafi fengið bifreiðina í hendur hafi verið búið að útbúa leynihólfin. Henni hafi hins vegar ekki verið sagt frá því fyrr en eftir að hún hafi verið búin að skrá bifreiðina á sitt nafn. Þá hafi hún einnig fengið leiðbeiningar í myndsímtali um það hvernig ætti að opna leynihólfin. Aðspurð kvaðst ákærða Sandra sjálf hafa bókað miða í ferjuna. Henni hafi verið sagt að bóka miða í þessa tilteknu ferð. Þá kvaðst hún aðspurð ekki hafa hugmynd um það hvaða fólk þetta sé sem hún hafi verið í samskiptum við í tengslum við ferðina. Aðspurð kvaðst hún hafa átt að fá 2.000 til 3.000 evrur greiddar þegar hún væri komin aftur til Þýskalands. Nánar aðspurð um atburðarásina þegar þau meðákærði Sokol hafi verið komin í iðnaðarbilið kvaðst ákærða Sandra hafa byrjað á því að fara á salernið. Svo hafi hann rétt henni seðla búntið. Því næst hafi hann spurt hana áður nefndra spurninga. Hún hafi svo opnað leyni hólfin og hann rétt henni poka og sagt henni að setja efnin í h ann. Þegar hún hafi verið byrjuð að taka efnin úr bifreiðinni hafi hann fengið símtal og sagt henni að setja efnin aftur á sinn stað þar sem lögregla væri komin. Aðspurð kvaðst ákærða Sandra ekki hafa beðið um ryksugu. Þá kvaðst hún ekki hafa séð hver hafi komið með ryksuguna. Aðspurð kvaðst ákærða Aðspurð um það hvort hún hafi þekkt manninn sem meðákærði Sokol hafi verið í myndsímtali við fyrir utan verslun Fjarðarkaupa kvaðst hún ekki hafa þekkt hann. Þá hafi þeir talað saman á tungumáli sem hún hafi ekki þekkt. Aðspurð kvaðst ákærða Sandra hópnum. Hún hafi eytt öllum fyrri samskiptum í spjallhópnum þegar hún haf i verið stöðvuð í tollinum. 2. Ákærði Sokol kom fyrir dóminn við þingfestingu málsins og neitaði sök. Við aðalmeðferð málsins áréttaði hann þá afstöðu sína. Þá skýrði hann frá því að hann sé búinn að búa hér á landi í þrjú og hálft ár og starfi sem málari hjá Reykjavíkurborg. Tengsl hans við meðákærðu Söndru séu engin en hann sé búinn að þekkja meðákærða Valmir lengi. Þeir búi saman. Meðákærði Valmir hafi átt fasteign á Akranesi sem hann hafi selt. Hann hafi verið að leita sér að húsnæði á höfuðborgarsvæði nu og ákærði Sokol því boðið honum aukaherbergi sem hann hafi verið með. Þá kvaðst ákærði Sokol vera 27 honum að það væri maður á leið til hans með bifreið sem þyrfti að ger a við. Hann hafi ekki átt neina aðkomu að innflutningi þessara fíkniefna. Hann hafi verið notaður. Þeir honum alls konar lygasögur um fíkniefnainnflutning. Stundum haf i hann sent frændfólk sitt eða vinafólk hingað til lands til að taka á móti pökkum og beðið ákærða Sokol um að láta það fólk fá pening fyrir mat og öðrum nauðsynjum. Þennan dag hafi ákærði Sokol átt að taka á móti þessum manni á bílaplaninu við Fjarðarkaup og fara með bílinn í iðnað - vegabréf. Svo hafi enginn karlmaður verið þar. Það hafi átt að vera einhver fæðubótarefni í bifreiðinni. Hann hafi hins vegar ekki vitað neitt meira um það. Samskiptin milli hans karl og væru þýskar. Þá hafi hann séð meðákærðu Söndru og þau vinkað hvort öðru. Hún hafi komið að bifreið hans á meðan ur í sína bifreið og hann að þetta væru bara töflur. Sjálfur hafi hann á engan hátt áttað sig á því hvað væri um að hótað honum og sagt honum að fara með bifreiðina í iðnaðarbilið þar sem töflurnar væru undir bifreiðinni. Svo hafi meðákærða Sandra ekið á eftir honum að iðnaðarbilinu. Hann hafi rétt meðákærðu Söndru þessar 290.000 krónur sem hann hafi átt að afhenda ungu því gert það. Hann hafi klætt sig í hanska þar sem töflurnar hafi átt að vera undir bifreiðinni. Meðákærða Sandra hafi beðið hann um ryksugu og hann því spurt meðákærða Valmir hvort hann gæti lánað honum ryksugu sem hann hafi gert. Hann hafi ekki talað við meðákærða Valmir í síma eftir að hann hafi farið inn í iðnaðarbilið. Meðákærða Sandra hafi viljað fá símann hans til að nota vasaljósið á honum. Hún hafi því haldið á símanum þegar meðákærði Valmir hafi hringt í hann rétt áður en þau hafi a einn og sama P 28 hann ekki hafa vitað að fíkniefni væru í bifreiðinni og í raun ekki hafa grunað neitt fyrr en meðákærða Sandra hafi beðið um lykilorð. Þá kvaðst ákærði Soko l aðspurður aldrei hafa sagt meðákærða Valmir frá sam - - efni til landsins og því eðli máls samkvæmt ekki greint meðákærða Valmir frá því eða meðákærði Valmir fjármagnað nok kuð slíkt. Þeir meðákærði Valmir hafi átt samskipti vegna bifreiðakaupa þar sem greiðsla kaupverðs hafi verið rædd. Þá kvaðst ákærði Sokol aðspurður hafa flett upp leiðinni frá Egilsstöðum að í síma meðákærða Valmirs án hans vitundar. Þá kvaðst hann að spurður ekki hafa sagt meðákærða Valmir af hverju hann hafi viljað fá ryksuguna lánaða né heldur hafa beðið hann um að standa vörð utan við iðnaðarbilið að [...] . Hann hafi ekki svarað í símann þegar með ákærði Valmir hafi hringt í hann rétt áður en þau ha fi verið handtekin þar sem meðákærða Sandra hafi haldið á símanum. Hann hafi því ekki fengið neina viðvörun frá meðákærða Valmir og ekki vitað að lögregla væri komin á vettvang. Þegar hann hafi séð hvað var í bifreiðinni hafi hann ekki viljað vera þarna le ekki hafa haft neitt með þetta mál að gera. Yfirleitt hafi þau bara snúist um einhverjar Þá kvað hann samskipti um greiðslu 23. júní hafa snúist um bifreiðakaup. Að spurður um ljósmyndina af síma með ákærða Valmirs þar sem búið hafi verið að fletta upp leiðinni frá Egilsstöðum að hann um að fletta þessu upp og senda sér. Aðspurður um ryksuguna sem fundist hafi í sameiginlegu rými íbúðarhlut a húsnæðisins að [...] og það sem í henni hafi verið kvað ákærði Sokol aðra Albani eiga þessa ryksugu. Hann hafi ekki viljað segja til þeirra. Þá kvaðst hann aðspurður hafa aðstoðað meðákærða Valmir við bifreiðakaup. Þeir séu búnir að þekkjast lengi og treysti hvor öðrum. Fjármunirnir sem hafi verið millifærðir 23. júní hafi verið vegna bifreiðakaupa. Svo hafi hann glatað trausti á seljanda bifreiðarinnar og fjármunirnir því verið endurgreiddir. Aðsp urður um það hvort meðákærði Valmir sé vinurinn sem búinn hafi verið að millifæra á albanska reikninginn sem þeir ákærði Sokol ekki vera. Þau samskipti hafi ekkert með þett a mál að gera. Aðspurður um samskipti 29 með reiðufé hér landi 30. júní 2025 og hvort meðákærði Valmir hafi verið sá sem hafi átt að greiða með reiðufé í Albaníu kvað ákæ rði Sokol þau samskipti ekki hafa haft neitt með meðákærða Valmir að gera. 3. Ákærði Valmir kom einnig fyrir dóminn við þingfestingu málsins og neitaði sök. Við aðalmeðferð þess áréttaði hann þá afstöðu sína. Þá skýrði hann frá því að hann sé búinn að búa á Íslandi í átta ár og starfi við pípulagningar. Hann sé íslenskur ríkisborgari. Yngsti bróðir hans búi einnig hér á landi. Tengsl hans við meðákærðu Söndru séu engin en þeir meðákærði Sokol séu vinir og búi saman. Þá kvaðst ákærði Valmir ekki tengjast þe ssu máli á neinn hátt. Þetta hafi bara verið eins og hver annar dagur. Þegar hann hafi verið á leið heim úr vinnunni hafi meðákærði Sokol hringt í hann og beðið hann um að koma með ryksugu sem hann hafi verið með í bifreið sinni. Hann hafi skilið ryksuguna eftir og sest aftur inn í bifreið sína og hringt í tvo vini sem hvorugur hafi svarað. Svo hafi hann hringt í meðákærða Sokol til að spyrja hvað hann ætti að hafa í matinn. Þá hafi lögregla komið og handtekið hann. Hann hafi strax látið lögreglu í té aðgan gsorðið að símanum sínum enda hafi hann ekkert að fela. Þegar hann hafi komið með ryksuguna hafi meðákærði Sokol verið einn inni í iðnaðarbilinu. Hann hafi ekki séð meðákærðu Söndru. Hann hafi ekki spurt meðákærða Sokol af hverju hann vildi fá ryksuguna. A ðspurður kvaðst hann hafa keypt ryksuguna í Costco í lok ágúst. Aðspurður kvaðst að millifærslan 23. júní hafi verið vegna bifreiðakaupa. Hann hafi ætlað að kaupa Porsche - bif reið. Seljandinn hafi svo hækkað verðið og hann því hætt við og fengið endurgreitt. Meðákærði Sokol hafi aðstoðað hann við þessi bifreiðakaup. Hann hafi áður keypt bifreiðar með aðstoð hans. Þessi millifærsla hafi því ekki haft neitt með innflutning fíknie fna að gera. Hann hafi áður keypt Audi Q7 bifreið með aðstoð meðákærða Sokol. Þá liggi þær 40.000 evrur sem hann hafi millifært inn á reikning sinn í Albaníu 29 . júlí enn á reikningi hans þar. Hann hafi verið í Albaníu þegar hann hafi framkvæmt þá millifær slu. Aðspurður neitaði ákærði Valmir því alfarið að hafa fjár magnað innflutninginn með greiðslu reiðufjár til einhvers í Albaníu. Hann hafi aldrei komið nálægt nokkru slíku. Aðspurður kvaðst hann hvorki hafa séð leynihólfin í bifreið meðákærðu Söndru né f íkniefnin. Hann hafi lagt kassann með ryksugunni frá sér við dyrnar. Þá kvað hann af og frá að meðákærði Sokol hafi beðið hann um að standa vörð fyrir utan. Um það nægi að vísa til þess að bifreið hans hafi verið þannig staðsett að hann 30 hafi ekkert séð. Þá hafi meðákærði Sokol ekki svarað í símann þegar hann hafi hringt í hann og hann því eðli máls samkvæmt ekki varað hann við. Hann hafi svo alls ekki eytt því símtali út úr símtalskránni í síma sínum enda hafi meðákærði Sokol ekki svarað. Hann kunni því eng a aðra skýringu á því af hverju svo virðist vera en þá að lögregla hafi gert það fyrir mistök. Þá kvaðst hann aðspurður ekki hafa hugmynd um það hvernig mynd af hans síma hafi endað í síma meðákærðu Söndru. Meðákærði Sokol hafi beðið hann um að fletta þess u upp sem hann hafi gert og að svo búnu rétt meðákærða Sokol símann og farið sjálfur út að reykja. Aðspurður kvaðst ákærði Valmir ekki hafa átt þá ryksugu sem fundist hafi við leit í sameiginlegu rými íbúðarhluta húsnæðisins að [...] og ekkert vita um það sem verið hafi í henni. Þá kvaðst hann ekkert vita um samskipti ekki vita hver hafi átt hina DeWalt - ryksuguna sem verið hafi inni í iðnaðarbilinu. Hina ryksuguna sem keypt haf i verið með Costco - korti hans í lok ágúst hafi bróðir hans keypt og hún sé því hjá honum. 4. R , verkefnastjóri hjá Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja - og eiturefnafræði, gaf vitnaskýrslu fyrir dómi í gegnum fjarfundarbúnað, staðfesti fram lagðar matsgerðir rannsóknastofunnar, dagsettar 2. og 6. október 2025, sem fjallað er um í kafla I.4. hér að framan, og gerði grein fyrir og svaraði spurningum um efni þeirra. Aðspurður kvað hann rannsóknastofuna eingöngu hafa greint og styrkleikamælt þau efnissýni sem hún hafi fengið send. Ekki eru efni til að rekja frekar það sem fram kom í vitnisburði hans. 5. Þá gáfu vitnaskýrslur fyrir dómi tollverðir nr. B og nr. S , tollvörður nr. B í gegnum fjarfundarbúnað, sem og sérfræðingar lögreglu nr. T og nr. U (skráð í skýrslu sem nr. N ), og gerðu hver um sig grein fyrir aðkomu sinni að málinu, staðfestu þær skýrslur sem frá þeim stafa og svöruðu spurningum um efni þeirra og annað viðvíkjandi aðkomu þeirra að málinu. Ekki eru efni til að rekja sérstaklega það sem fram kom í vitnisburði þeirra. 6. Enn fremur gáfu vitnaskýrslur fyrir dómi lögreglumenn nr. G , nr. K , nr. H , nr. C , nr. D , nr. F , nr. I , nr. E og nr. J , lögreglumaður nr. C í gegnum fjarfundarbúnað, og gerðu hver um sig grein fyrir aðkomu sinni að mál inu, staðfestu þær skýrslur sem frá þeim stafa og svöruðu spurningum um efni þeirra og annað viðvíkjandi rannsókn málsins. 31 Í vitnisburði lögreglumanns nr. G kom m.a. fram að hann hafi tekið þátt í skyggingu ákærðu Söndru sem og handtöku sem og öðrum aðge rðum á vettvangi. Hann skýrði frá því að svo til um leið og lögregla hafi komið á vettvang að [...] hafi ákærði Sokol opnað dyrnar og verið handtekinn. Aðspurður kvaðst hann ekki hafa tekið eftir því hvort bifreið ákærða Valmirs hafi verið í gangi þegar lö gregla hafi komið á vettvang. Þá kvaðst hann ekki muna hvernig bifreiðin hafi snúið. Í vitnisburði lögreglumanns nr. K kom m.a. fram að hann hafi rannsakað efnisinnihald farsíma ákærða Sokols. Þau samskipti sem tekin séu upp í skýrslum hans þar um séu það sem hafi fundist við þá rannsókn. Búið hafi verið að eyða einhverju af samskiptum. Þá skýrði hann frá því að lögreglu hafi þrátt fyrir rannsóknar aðgerðir ekki Sérstaklega samhengið skiljist í raun ekki nema þau séu skoðuð heildstætt og með hliðsjón af öðrum fyrirliggjandi rannsóknargögnum. Einnig skýrði hann frá því að hann hafi rann sakað efnisinnihald beggja farsíma ákærða Valmirs. Það sem tilgreint sé í skýrslum hans þar um sé það sem fundist hafi við þá rannsókn. Það hafi vakið athygli lögreglu að far - símanotkun ákærða Valmirs hafi verið í hámarki dagana áður en ákærðu voru handtekin. Þá hafi engin gö P hafi tengst bifreiðaviðskiptum. Þá greindi hann frá því að lögreglu hafi þrátt fyrir P Í vitnisburði lögreglumanns nr. H kom m.a. fram að hann hafi tekið þátt í handtöku ákærða Valmirs sem og leitum og öðrum aðgerðum á vettvangi. Hann skýrði frá því að ákærði Valmir hafi verið með símann í hendinni við handtöku. Bifreið hans hafi verið lagt við innganginn og framendi hennar snúið að húsinu. Hann hafi hins vegar haft yfirsýn úr ökumannssæti hennar. Þá greindi hann frá því að bifreiðin hafi verið í gangi. Í vitnisburði lögreglumanns nr. F kom m.a. fram að hann hafi stjórnað að gerðum á vettvangi. Hann hafi fylgst með þeim úr stjórnstöð í gegnu m eftirlitsdróna auk þess sem þeir lögreglumenn sem verið hafi á staðnum hafi gefið reglulegar stöðu uppfærslur í gegnum talstöð. Þá hafi verið hlustunarbúnaður í bifreiðinni sem hafi bæði tekið upp og miðlað því sem fram fór inni í iðnaðarbilinu til lögre glumanna á vettvangi í rauntíma. Ákærði Valmir hafi setið í bifreið sinni fyrir utan og virst vera að fylgjast með. Ekkert hafi hindrað sjónlínu hans enda hafi hann séð lögreglu koma, hringt í ákærða Sokol og 32 varað hann við líkt og bæði frásögn ákærðu Sönd ru sem og hljóðupptaka úr hlustunarbúnaði bifreiðarinnar staðfesti. Af umræddri hljóðupptöku sé skýrt að ákærði Í vitnisburði lögregluman ns nr. I kom m.a. fram að hann hafi verið yfir - rannsakandi málsins. Hann hafi m.a. rannsakað efnisinnihald farsíma ákærðu Söndru. annars vegar og í spjallhópnum Driver 1.0 hins vegar séu það sem hafi fundist við þá rannsókn af slíkum samskiptum. Búið hafi verið að eyða bæði símtölum og samskiptum og sami aðilinn. Þá hafi hann m.a. rannsakað bifreiðina [...] . Þær breytingar sem gerðar hafi verið hafi augljóslega verið unnar af sérfræðingi líkt og nánar sé rakið í skýrslu hans þar að lútandi. Þá skýrði hann fr á því að það sem liggi fyrir sé að ákærða Sandra hafi komið með fíkniefnin hingað til lands og að ákærði Sokol hafi tekið á móti henni og látið hana hafa fjármuni. Þau hafi svo farið saman í iðnaðarbilið að [...] . Þangað hafi ákærði Valmir komið með ryksug u. Önnur alveg eins ryksuga hafi verið á staðnum fyrir og lögregla telji að ætlunin hafi verið að setja fíkniefnin í ryksugurnar. Sú ályktun sé m.a. byggð á því að í sameiginlegu rými í íbúðarhluta hús næðisins hafi fundist ryksuga með íblöndunarefni, gram mavog og smelluláspokum inni í. Ákærði Valmir hafi svo sest aftur út í bíl og fylgst með. Ákærðu Sokol og Valmir búi saman að [...] . Þá liggi auðvitað fyrir þau umfangsmiklu gögn sem fundist hafi við rannsókn á efnisinnihaldi farsíma ákærðu. Í vitnisburði lögreglumanns nr. E kom m.a. fram að hann hafi komið að rann sókn málsins allt frá upphafi og tekið þátt í aðgerðum á vettvangi. Nánast á sama tíma og lögregla hafi látið til skara skríða á vettvangi hafi ákærði Sokol opnað dyrnar og verið þá í bláum late xhönskum. Hann hafi virst vera í geðshræringu. Miðað við það hvernig bifreið ákærða Valmirs hafi verið staðsett séu allar líkur á því að hann hafi séð lögreglu koma að húsinu. Þá hafi hann m.a. komið að rannsókn á efnisinnihaldi farsíma ákærða Sokols og te greiðslur. Ekki sé hægt að segja til um hversu margar sendingar þeir hafi rætt sín á milli. Erfitt sé að fá heildstæða mynd þar sem þeir hafi einnig ræðst mikið við í síma. Einnig hafi hann m.a. rannsakað viðskipti ákærða Valmirs líkt og fram komi í tilvikaskýrslu 33 hans þar að lútandi. Í henni hafi verið reynt að gera heildstæða grein fyrir þeim milli - fæ rslum ákærða Valmirs sem virst hafi tengjast ákærða Sokol á einhvern hátt. Frásögn ákærða Valmirs viðvíkjandi þessum millifærslum og öðru hafi verið mjög breytileg. Þá hafi frásögn hans um tímaröð atvika á engan hátt komið heim og saman við fyrirliggjandi gögn. Hann hafi millifært 40.000 evrur af Revolut - reikningi sínum inn á reikning í Albaníu. Þar hverfi þeir fjármunir úr augsýn lögreglu. Lögregla hafi óskað eftir gögnum frá Albaníu með réttarbeiðni en þeirri beiðni hafi ekki verið svarað. Í samskiptum ák ærða með reiðufé í Albaníu. Ákærði Valmir hafi verið staddur þar þegar framangreind milli - færsla hafi verið framkvæmd. Aðspurður kvað hann lögreglu ekki draga það sérs taklega í efa að ákærði Valmir hafi átt í einhverjum bifreiðaviðskiptum í Bandaríkjunum í apríl 2025. Það sé hins vegar augljóst að þær millifærslur sem framkvæmdar hafi verið í júní og júlí 2025 hafi ekki tengst þeim bifreiðaviðskiptum enda hafi þau þá ve rið um garð gengin. Þá kvað hann aðspurður rannsókn lögreglu ótvírætt gefa til kynna að ákærði Valmir hafi átt þátt í umræddum innflutningi. Ákærði Sokol hafi annast skipulagningu hans og verið í samskiptum við óþekkta erlenda aðila í tengslum við þá skipu lagningu. Ákærði Valmir hafi aftur á móti fjármagnað hann auk þess sem hann hafi tekið þátt í móttöku efnanna. Hann hafi m.a. staðið vörð fyrir utan húsnæðið að [...] og gert ákærða Sokol viðvart þegar lögregla hafi komið á vettvang auk þess sem hann hafi komið með ryksuguna. Þá hafi hann flett ferðaleið frá Egilsstöðum að [...] upp í síma sínum. Loks P líkt og áður greinir millifært háa fjárhæð inn á reikning sinn í Albaní u. Að endingu hafi frásögn hans um þessi atriði verið margbreytileg. Allt gefi þetta þá heildarmynd að ákærði Valmir hafi átt þátt í þessum innflutningi. Loks kvað hann að spurður hafa verið búið að taka í sundur ryksuguna sem ákærði Valmir hafi komið með þegar lögregla hafi komið á vettvang. Lögregla telji að ætlunin hafi verið að koma efnunum fyrir í henni. Þá hafi svör ákærðu um það hvernig það hafi komið til að ákærði Valmir hafi komið með ryksugu á staðinn verið öll á skjön. Í vitnisburði lögreglumann s nr. J kom m.a. fram að hann hafi verið á bakvakt hjá tæknideild lögreglu þegar umrætt mál hafi komið upp. Hann hafi tekið ljósmyndir við leit í bifreiðinni [...] og af þeim efnum sem í henni voru. Þá hafi hann farið með efnin til greiningar á tæknideild. Allar pakkningarnar hafi verið efnagreindar og gefið sömu svörun, ýmist á ketamín eða MDMA - kristalla. Þess vegna hafi einungis hluti þeirra verið 34 sendur til nánari greiningar og styrkleikamælingar hjá Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja - og eiturefnafr æði. Umfram það sem að framan greinir eru ekki efni til að rekja sérstaklega það sem fram kom í vitnisburði umræddra lögreglumanna. 7. Loks gaf V , bróðir ákærða Valmirs, vitnaskýrslu fyrir dómi í gegnum fjarfundarbúnað. Hann skýrði frá því að hann starf i við pípulagnir. Þá greindi hann frá því að í lok ágúst 2025 hafi hann keypt ryksugu í Costco á aðildarkorti ákærða Valmirs. III. Málatilbúnaður ákæruvaldsins og ákærðu 1. Af hálfu ákæruvaldsins er byggt á því að komin sé fram lögfull sönnun um að ákærð u hafi gerst sek um þá háttsemi sem þeim sé gefin að sök í ákæru. Ákærða Sandra hafi undanbragðalaust viðurkennt að hafa viðhaft þá háttsemi sem henni sé gefin að sök. Ákærðu Sokol og Valmir hafi aftur á móti neitað sök. Sú sakarneitun og bæði framburðir þ eirra fyrir dómi sem og frásögn þeirra á rannsóknarstigi eigi sér ekki stoð í umfangs - miklum rannsóknargögnum málsins. Þá hafi frásagnir þeirra beggja hjá lögreglu á rann - sóknarstigi verið margbreytilegar um fjölmörg atriði auk þess sem þeir hafi báðir um sumt borið á annan veg fyrir dómi. Enn fremur sé umtalsvert misræmi á milli frásagna og framburða þeirra tveggja um ýmis atriði. Nokkuð hafi þó dregið úr því eftir að ein - angrun hafi verið aflétt. Hvorki gæti því innra né ytra samræmis í framburðum ákærðu Sokols og Valmirs og þeir því verulega ótrúverðugir. Ákæruvaldið telji því sýnt að ákærðu Sokol og Valmir hafi viðhaft þá háttsemi sem þeim sé gefin að sök. Umrætt brot hafi ákærðu framið í félagi. Það sé samverknaður þegar tveir eða fleiri hafa samvinnu e ða samtök um framkvæmd refsiverðs verknaðar. Þótt samverkamenn teljist allir aðal - menn í afbroti geti þátttaka þeirra verið verkskipt aðild líkt og algengt sé við fíkniefna - lagabrot og verið hafi í þessu tilviki. Sú aðferð sem beitt hafi verið við innflutn ing fíkni - efnanna, að notast við milliliði og skipta hlutverkum, sé þekkt og hafi þann tilgang að koma því til leiðar að fíkniefnin fari á milli landa frá sendanda til endanlegs móttakanda án þess að löggæsluyfirvöld komist á snoðir um málið eða aðila þess . Algengt sé að milliliðir viti einungis hvert þeirra hlutverk sé en þekki ekki til annarra í keðjunni. Þá sé dómaframkvæmd skýr um það að jafnvel þótt því sé teflt fram að ákærði hafi ekki haft vitneskju um magn og eftir atvikum tegund og styrkleika fíkni efna sem um ræði sé allt 35 að einu um ásetningsbrot að ræða og þá í öllu falli um lægsta stig ásetnings eða dolus eventualis. Loks sé útilokað annað en að umrædd fíkniefni hafi verið flutt hingað til lands til söludreifingar í ágóðaskyni, hvort heldur sem er í heildsölu eða smásölu. Að öllu þessu virtu telji ákæruvaldið hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærðu hafi gerst sek um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök og því beri að sakfella þau samkvæmt ákæru. 2. Af hálfu ákærðu Söndru er þess krafist að henni ve rði gerð vægasta refsing sem lög leyfa. Hún hafi allt frá upphafi gengist við broti sínu og gert allt sem í hennar valdi hafi staðið til að leggja rannsókn lögreglu lið. Hún hafi hvorki átt þátt í skipulagningu né fjármögnun innflutningsins og hennar eina hlutverk hafi verið að koma með fíkniefnin hingað til lands sem hún hafi gert nauðbeygð af ótta um son sinn. Þá hafi hún átt að fá óverulega greiðslu fyrir og því augljóst að tilgangur hennar hafi ekki verið fjárhagslegur. Loks verði að taka mið að hættuei ginleikum þeirra efna sem um sé að ræða. Samkvæmt framlagðri matsgerð séu hættueiginleikar ketamíns óverulegir í samanburði við ýmis önnur fíkniefni. Með hliðsjón af því sem þar komi fram sé við ákvörðun refsingar nærtækast að taka mið af dómaframkvæmd í m álum sem varða innflutning á kannabis. 3. Af hálfu ákærða Sokols er byggt á því að það sé með öllu ósannað að hlutverk hans og meint aðkoma að innflutningi umræddra fíkniefna hafi verið með þeim hætti sem ákærðu Söndru, látið hana fá fjármuni og veitt henni aðgang að iðnaðarbilinu að [...] . Hann hafi ekki haft hugmynd um að fíkniefni væru í bifreið hennar og enga aðkomu átt að skipulagningu þess innflutnings. Þa valdið hafi ekki fært sönnur á hið gagnstæða. Þá hafi ákærði Sokol engar greiðslur innt af hendi eða haft milligöngu um slíkt en það ligg i í hlutarins eðli að kaupverð á svo miklu magni fíkniefna sé verulegt. Sú greiðsla sem hafi verið innt af hendi í júní 2025 hafi skilað sér til baka og því augljóslega ekki haft neitt með umræddan innflutning að gera. Að mati ákærða andi þessara efna. Þá hafi hugsanleg smásala ákærða Sokols á fíkniefnum ekkert með þetta mál að gera. Ekkert hafi komið fram við rannsókn lögreglu sem bendi til að ákærði Sokol hafi átt von á svo miklu magn i fíkniefna eða hann hafið undirbúning að sölu þeirra og dreifingu. Þvert á móti bendi allt til þess að hann hafi ekki haft hugmynd um hvað hafi verið í 36 vændum. Þannig hafi þeir sem í reynd hafi staðið að umræddum innflutningi komið á hann sök. Það sé því á engan hátt sannað svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa að ákærði Sokol hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum sé gefin að sök. Standi því engin rök til annars en að sýkna hann. Í öllu falli geti aðild hans aldrei verið önnur en hlutdeild. 4. Af hálfu ákærða Valmirs er byggt á því að það sé með öllu ósannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum sé gefin að sök. Sönnunarbyrði þar um hvíli á ákæruvaldinu og sú sönnun hafi ekki tekist. Ákærði Valmir verði ekki látinn bera hallann af því að ákær uvaldinu hafi ekki tekist að upplýsa málið. Það sem ákæruvaldið byggi á um aðild hans séu ekkert annað en getgátur. Ákærði Valmir hafi gefið trúverðugar skýr - ingar á öllum þeim millifærslum af reikningum hans sem til rannsóknar hafi verið og ákæruvaldið ha fi á engan hátt sýnt fram á að hann hafi átt nokkurn þátt í fjármögnun umrædds fíkniefnainnflutnings. Þá hafi hann frá upphafi neitað því að hafa varað meðákærða Sokol við lögreglu eða staðið vörð fyrir utan iðnaðarbilið að [...] sem fái hvort tveggja stoð í framburði meðákærða Sokols. Staðreyndin sé sú að hann hafi ekki haft hugmynd um það sem gengið hafi á inni í iðnaðarbilinu. Hann hafi einfaldlega setið í bifreið sinni utan við heimili sitt þar sem hann hafi ætlað að hringja nokkur símtöl. Þá hafi ákærð i Valmir ekki átt í neinum samskiptum við þá sem að umræddum inn flutn ingi hafi staðið auk þess sem hann hafi gefið trúverðuga skýringu á því hvernig það hafi komið til að hann hafi flett leiðinni frá Egilsstöðum að [...] upp í síma sínum og mynd af síma hans ratað í síma ákærðu Söndru. Þá hafi meðákærði Sokol beðið hann um að lána sér ryksugu án þess að tilgreina ástæðu þess. Hann hafi ekki hugmynd um hver eigi hina ryksuguna sem verið hafi í iðnaðarbilinu. Í öllu falli hafi það ekki verið önnur ryksugan sem keypt hafi verið með Costco - korti hans þar sem hún sé í eigu bróður hans líkt og hann hafi borið um. Þess utan liggi ekkert fyrir um að þessar ryksugur hafi einhverja þýðingu enda hafi þær ekki verið rannsakaðar. Að öllu þessu virtu sé á engan hátt san nað svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa að ákærði Valmir hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum sé gefin að sök. Standi því engin rök til annars en að sýkna hann. Í öllu falli geti aðild hans aldrei verið önnur en hlutdeild. IV. Niðurstaða 1. 37 Samkvæmt 1 08. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála hvílir sönnunarbyrði um sekt ákærðu og atvik sem telja má þeim í óhag á ákæruvaldinu og verð a þeir því aðeins sakfelld ir að nægileg sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, teljist fram komin um hv ert það atriði er varðar sekt, sbr. 1. mgr. 109. gr. Tekur þetta mat m.a. til þess hvaða sönnunargildi skýrslur ákærðu eigi að hafa sem og skýrslur vitna. Í þessu sambandi geta skýrslur vitna, sem ekki hafa skynjað atvik af eigin raun, sem og önnur óbein s önnunargögn, haft þýðingu, enda sé hægt að draga ályktanir um sakarefnið af slíkum framburði og gögnum. Metur dómari enn fremur, ef þörf krefur, hvert sönnun - argildi þær staðhæfingar hafa sem varða ekki beinlínis það atriði sem sanna skal en ályktanir má l eiða af um það, sbr. 2. mgr. 109. gr. Samkvæmt 1. mgr. 111. gr. laganna gildir og sú grundvallarregla að dómur skuli reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi. 2. Svo sem fram hefur komið er ákærðu í máli þessu gefið að sök st órfellt fíkniefnalagabrot. Nánar tiltekið er þeim gefið að sök að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals tæplega 15 kílógrömmum af ketamíni, með 87% styrkleika, og tæplega fimm kílógrömmum af MDMA kristöllum, með 83% styrkleika, ætluðu til söludrei fingar í ágóðaskyni. Í ákæru kemur fram að fíkniefnin hafi verið falin í samtals 20 pakkningum í tveimur leynilegum hólfum undir framsætum bifreiðar með skráningarnúmerið [...] , frá Hollandi til Íslands, en þau hafi fundist í bifreiðinni og í poka á gólfi tilgreinds iðnaðarbils að [...] í Hafnarfirði, við handtöku ákærðu allra föstudaginn 19. september. Við handtöku hafi ákærðu verið byrjuð að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni og undirbúa söludreifingu þeirra en við leit í húsnæðinu að [...] , sem ákærðu Sokol og Valmir hafi haft til umráða, hafi fundist grammavog, smelluláspokar og íblöndunarefni falin í iðnaðarryksugu. Þá kemur fram í ákæru að ákærðu hafi skipt með sér verkum m.a. á þann hátt sem þar greinir og nánar verður vikið að í köflum IV.3. - IV.5. hér á eftir. Í ákæru kemur fram að ákærði Sokol hafi afhent ákærðu Söndru 290.000 krónur í reiðufé á bifreiðastæði við Fjarðarkaup í Hafnarfirði áður en þau hafi ekið að [...] og ákærða Sandra ekið bifreiðinni inn í áður nefnt iðnaðarbil. Af framburðum bæ ði ákærðu Söndru og ákærða Sokol s fyrir dómi er ljóst að ákærði Sokol afhenti ákærðu Söndru umrætt reiðufé eftir að þau voru komin að [...] . Sú staðreynd að þetta aukaatriði er ekki 38 rétt tilgreint í ákæru hafði engin áhrif á vörn ákærðu, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008. 3. Ákærðu Söndru er í ákæru gefið að sök að hafa flutt fíkniefnin frá Hollandi til Íslands falin í áður nefndri bifreið með ferjunni Norrænu sem kom til Seyðisfjarðar að morgni miðvikudagsins 17. september 2025 og haldið áf ram för sinni á bifreiðinni til Hafnarfjarðar föstudaginn 19. september og hitt ákærða Sokol á bifreiðarstæði við Fjarðarkaup í Hafnarfirði , tekið við 290.000 krónum í reiðufé , ekið á eftir honum að [...] og ekið bifreiðinni inn í tiltekið iðnaðarbil. Lík t og fram kemur í kafla II.1. hér að framan gekkst ákærða Sandra undanbragðalaust við því fyrir dómi að hafa viðhaft þá háttsemi sem henni er gefin að sök samkvæmt framansögðu. Með skýlausri játningu hennar, sem samrýmist að fullu bæði framburði skýrslugja fa fyrir dómi og umfangsmiklum sýnilegum sönnunargögnum málsins, er sannað að ákærða Sandra hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og verður hún því sakfelld. Um heimfærslu háttsemi hennar og ákvörðun refsingar verður fjallað í köflum IV.6 . - IV.7. hér á eftir. 4. Ákærða Sokol er í ákæru gefið að sök að hafa átt í samskiptum við óþekktan mann dagana 23. júní - 30. júlí og 10. - 19. september 2025 þar sem lagt hafi verið á ráðin um innflutning og fjármögnun fíkniefna og 16. september um greiðslur til ákærðu Söndru vegna innflutningsins og um hvert fara ætti með bifreiðina en þessum upplýsingum hafi verið komið áfram til ákærðu Söndru í gegnum óþekktan mann. Þá hafi ákærði Sokol hitt ákærðu Söndru föstudaginn 19. september á biðreiðarstæði við Fjar ðarkaup í Hafnarfirði, afhent henni 290.000 krónur í reiðufé og ekið á undan henni að [...] . r hann hafi séð hvað var í bifreiðinni hafi hann ekki viljað vera þarna lengur og því sagt ákærða Sokols fyrir dómi annars vegar, sem rakinn er í kafla II.2., og frásögn um hans hjá lögreglu á rannsóknarstigi, sem raktar eru í kafla I.12. hér að framan, hins vegar auk þess sem misræmi er um fjölmörg atriði frá einni skýrslutöku til annarrar hjá lögreglu. Þannig hefur ákærði Sokol m.a. borið með ólíkum hætti um aðdraganda þ ess að hann eða 39 hafi farið á milli í því sambandi, hvort hann hafi látið meðákærðu Söndru hafa fjármuni og í hvaða tilgangi, hvernig það hafi komið til að meðákærði Valmi r kom með ryksugu, hvort þeir meðákærði Valmir hafi talað saman í síma eftir að inn í iðnaðarbilið var komið og hvert efni þess samtals hafi verið, hvernig það hafi komið til að leiðinni frá Egilsstöðum að [...] var flett upp í síma meðákærða Valmirs, hver eigi ryksuguna sem fundist hafi við leit í íbúðarhluta húsnæðisins að [...] og það sem í henni hafi verið og um í frásögnum ákærða Sokols um ýmis atriði hjá lögreglu annars vegar og meðákærða Valmirs hins vegar á þeim tíma sem þeir sættu báðir einangrun en frásagnir þeirra beggja tóku ákveðnum breytingum eftir að einangrun var aflétt. Á móti sakarneitun ákærða Sokol og margbreytilegum framburði hans standa svo framburð ir annarra skýrslugjafa, einkum meðákærðu Söndru og lögreglumanna nr. K , nr. F , nr. I og nr. E , sem og umfangsmikil sýnileg sönnunargögn málsins. Þannig liggur beinlínis fyrir að ákærði Sokol átti í samskiptum við óþekktan einstakling með spænskt símanúmer dagana 23. júní 30. júlí 2025 sem snerust að verulegu leyti um innflutning og fjármögnun fíkniefna, sbr. umfjöllun í kafla I.8. Þá liggur fyrir að hann átti í samskipti við óþekktan einsta kling með annað spænskt símanúmer dagana 10. 19. september 2025 auk annars um væntanlega sendingu, fjármögnun og greiðslu til meðákærðu Söndru, sbr. einnig umfjöllun í kafla I.8. Enn fremur liggur fyrir að upplýsingar sem ákærði Sokol sendi viðkomandi sk iluðu sér til meðákærðu Söndru frá óþekktum einstaklingi, m.a. heimilisfangið í Reykjavík sem og ljósmynd af síma meðákærða Valmirs þar sem búið var að fletta upp leiðinni frá Egilsstöðum að [...] , sbr. umfjöllun í köflum I.7. og I.8. Ákærði Sokol skýr ði bæði frá því hjá lögreglu á rannsóknarstigi og bar um það fyrir dómi að þessi tvö spænsku símanúmer tilheyri sama einstaklingnum, meðákærðu Söndru á bifreiðastæði við ve rslun Fjarðarkaupa og ók á undan henni að heimili þeirra meðákærða Valmirs að [...] þar sem hún ók bifreiðinni með fíkniefnunum inn í iðnaðarbil, sbr. umfjöllun í kafla I.2. Þá bar ákærði Sokol um það fyrir dómi að hafa afhent ákærðu Söndru 290.000 krónur þegar þangað var komið. Enn fremur liggur frammi hljóðupptaka af samskiptum þeirra ákærða Sokols og meðákærðu Söndru inni í iðnaðarbilinu, sem spiluð var við aðalmeðferð málsins, sem og upplýsingaskýrsla þar um, sbr. umfjöllun kafla I.2. Þau samskipt bera að mati dómsins ótvírætt með sér að ákærða Sokol hafi verið fulljóst að fíkniefni væru í bifreiðinni. Þá má á umræddri 40 upptöku glöggt heyra farsíma ákærða Sokol hringja þegar þau höfðu hafist handa við að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni og ákærða Sokol kom fram í framburði meðákærðu Söndru fyrir dómi, sbr. kafla II.1., sem og frásögn hennar hjá lögreglu á rannsóknarstigi, sbr. kafla I.11. Loks fundust grammavog, smelluláspokar og íblöndunarefni falin í iðnaðaryksug u við húsleit í íbúðarhluta húsnæðisins að [...] , sbr. umfjöllun í kafla I.5., sem ber að mati dómsins vott um um að undirbúningur að söludreifingu umræddra fíkniefna hafi verið hafinn. Samkvæmt framansögðu gætir því hvorki innra né ytra samræmis í margbre ytilegum framburði ákærða Sokols og er hann að mati dómsins verulega ótrúverðugur. Að þ ví og öðru framansögðu gættu og að öðru leyti með vísan til umfangsmikilla sýnilegra sönnunargagna málsins og atvika þess þykir sannað, gegn neitun ákærð a Sokols , svo ek ki verði vefengt með skynsamlegum rökum, sbr. 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og verður hann því sakfelldur. Um heimfærslu háttsemi hans og ákvörðun refsingar verður fjallað í köflum IV.6 . - IV.7. hér á eftir. 5. Ákærða Valmir er í ákæru gefið að sök að hafa komið að innflutningi og fjármögnun fíkniefna, fyrst með því að greiða samtals 29.968 evrur í gegnum tilgreindan reikning sinn hjá fjármálafyrirtækinu Revolut á óþekktan mann mánudaginn 23. júní 2025, en fjármunirnir voru endurgreiddir inn á sama reikning ákærða hjá Revolut mánudaginn 30. júní 2025 og stuttu síðar með því að greiða 40.036 evrur í gegnum reikning sinn hjá Revolut inn á eigin bankareikning í albanska bankanum Union bank þr iðjudaginn 29. júlí 2025. Þá hafi ákærði Valmir flett upp ferðaleið frá Egilsstöðum til Hafnarfjarðar í smáforritinu Google Maps fimmtudaginn 18. september 2025 og upplýsingarnar borist m ákærðu Söndru í gegnum óþekk t an mann . Einnig hafi ákærði Valmir komið í margnefnt iðnaðarbili að [...] föstudaginn 19. september þar sem með ákærðu Sokol og Sandra hafi verið við bifreiðina með fíkniefnunum og skömmu síðar náð í kassa í bifreið sína sem hafi innihaldið iðnaðarryksugu og sett hana við bifreiðina með fíkniefnu num og s etið áfram í bifreið sinni fyrir utan húsið á meðan með ákærðu Sokol og Sandra h afið tekið til við að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni og ger t ákærða Sokol viðvart þegar lögregla hafi kom ið á vettvang. Ákærði Valmir neitar sök. Í framburði hans fyrir dómi kom m.a. fram að hann tengist þessu máli ekki á neinn hátt. Meðákærði Sokol hafi hringt í hann og beðið hann 41 um að koma með ryksugu sem hann hafi gert. Hann hafi svo setið i bifreið sinni fyrir utan og hringt í tvo vini sem hafi ekki svarað. Þá hafi hann hringt í meðákærða Sokol til að spyrja hann hvað hann ætti að hafa í matinn. Hann hafi ekki svarað. Millifærslan 23. júní 2025 hafi verið vegna bifreiðakaupa. Þá liggi þeir fjármunir sem hann hafi greitt inn á reikning sinn í Albaníu 29 . júlí 202 5 enn þar. Misræmi er um ákveðin atriði í framburði ákærða Valmirs fyrir dómi annars vegar, sem rakinn er í kafla II.2., og frásögnum hans hjá lögreglu á rannsóknarstigi, sem raktar eru í kafla I.12. hér að framan, hins vegar auk þess sem misræmi er um ákv eðin atriði frá einni skýrslutöku til annarrar hjá lögreglu. Þannig hefur ákærði Valmir m.a. borið með ólíkum hætti um það af hverju leiðinni frá Egilsstöðum að [...] hafi verið flett upp í síma hans, af hverju hann hafi hætt við að kaupa P fjármunir það hafi verið sem hann greiddi inn á reikning sinn í albanska bankanum Union bank 29 . júlí 2025 . Þá er áberandi misræmi í frásögnum ákærða Valmirs hjá lögreglu um ýmis atriði annars vegar og meðákærða Sokols hins vegar á þeim tíma sem þeir sættu báðir einangrun en frásagnir þeirra beggja tóku ákveðnum breytingum eftir að einangrun var aflétt. Á móti sakarneitun ákærða Valmir og breytilegum framburði hans standa svo framburðir annarra skýrslugjafa, einkum lögreglumanna nr. K , nr. H , nr. F , nr. I og nr. E sem og umfangsmikil sýnileg sönnunargögn málsins. Þannig liggur beinlínis fyrir að ákærði Valmir greiddi 29.968 evrur í gegnum reikning sinn hjá Revolut P 2025 að b eiðni meðákærða Sokol, sendi meðákærða Sokol skjáskot af millifærslunni sem meðákærði Sokol sendi beint á umfjöllun í kafla I.16. Einnig liggur fyrir að 30 með ákærða Sokol um að endurgreiðsla muni berast og í beinu framhaldi af því millifærði P umfjöllun í kafla I.16. Þá liggur og beinlínis fyrir að ákærði Valmir greiddi 40.036 evrur í gegnum reik ning sinn hjá Revolut inn á eigin bankareikning í albanska bankanum Union bank 29 . júlí 2025, sbr. einnig umfjöllun í kafla I.16. Í framburði ákærða Valmirs fyrir dómi kom fram að hann hafi verið staddur í Albaníu þegar umrædd greiðsla hafi verið framkvæmd . Í samskiptum meðákærða Sokols og greiðsla eigi að fara fram með rafmynt, reiðufé í Albaníu og reiðufé á Íslandi, sbr. umfjöllun í kafla I.8. Þá liggur fyrir að ferðaleiðinni frá Egilsstöðum að [...] var fle tt upp í síma ákærða Valmir s , sbr. umfjöllun í kafla I.9., og hefur hann verið margsaga um það 42 hvernig það hafi komið til. Þá liggur og fyrir að meðákærða Sandra fékk senda ljósmynd af síma ákærða Valmirs með ferðaleiðinni frá Egilsstöðum að [...] á skjánu m, sbr. umfjöllun í kafla 1.10. Að sama skapi liggur ótvírætt fyrir að ákærði Valmir kom með ryksugu í iðnaðarbilið að [...] eftir að bifreiðinni með fíkniefnunum var ekið þar inn , þrátt fyrir að önnur nákvæmlega eins ryksuga hafi verið þar fyrir , og sat þ ar fyrir utan í bifreið sinni á meðan meðákærðu Sandra og Sokol hófu að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni, sbr. umfjöllun í kafla I.2. Enn fremur er að mati dómsins sýnt að ákærði Valmir hringdi í meðákærða Sokol og varaði hann við þegar lögregla kom á v ettvang svo sem ótvírætt má ráða af framlagðri hljóðupptöku og rannsóknum á efnisinnihaldi farsíma þeirra beggja, sbr. umfjöllun í k öflum I.8. og I.9. Framangreindu til viðbótar koma svo skýringar ákærða Valmir s P bifreiðaviðskiptum og því hvernig bifreiðaviðskiptum hans hafi að örðu leyti verið háttað á engan hátt saman við sýnileg sönnunargögn málsins, sbr. umfjöllun í kafla I.16. Loks verður ekki litið fram hjá þeirri staðreynd að umrædd fíkniefni komu til landsins og enduðu á sameiginlegu heimili þeirra ákærða Valmirs og meðákærða Sokols þar sem grammavog, smelluláspokar og íblöndunarefni falin í iðnaðaryksugu fundust við húsleit, sbr. kafla I.5. Samkvæmt framansögðu gætir því hvorki innra né ytra samræmis í breytilegum framburði ákærða Valmirs og er hann að mati dómsins heilt yfir ótrúverðugur og yfir honum ólíkindablær. Þá er ekki hægt að leggja þá ljósmynd af skjali sem lögð var fram af hálfu ákærða Valmirs við aðalmeðferð málsins og sagt er sýna heildarstöðu bankareiknings hans hjá ótilgreindu fjármálafyrirtæki til grundvallar um að þeir fármunir sem hann greiddi í gegnum reikning sinn hjá Revolut inn á eigin bankareikning í albanska bankanum Union bank 29 . júlí 2025 liggi þar enn óhreyfðir. Þann ig ber umrætt skjal og framlögð íslensk þýðing þess hvorki með sér að það stafi í reynd frá albanska bankanum Union bank né heldur ber það á nokkurn hátt með sér að þeir fjármunir sem þar eru tilgreindir sem heildarinnstæða séu umræddir fjármunir. Að þessu og öðru framansögðu gættu og að öðru leyti með vísan til umfangsmikilla sýnilegra sönnunargagna málsins og atvika þess þykir sannað, gegn neitun ákærð a Valmirs, svo ekki verði vefengt með skynsamlegum rökum, sbr. 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og verður hann því sakfelldur. Um heimfærslu háttsemi hans og ákvörðun refsingar verður fjallað í köflum IV.6. - IV.7. hér á eftir. 6. 43 Samkvæmt framansögðu hafa ákærðu öll verið sakfelld fyrir þá háttsemi sem þeim er gefin að sök. Nær sú sakfelling til þeirrar háttsemi sem þeim er gefin að sök í inngangskafla ákæru en þau stóðu sannarlega að innflutningi umræddra fíkniefna ætluðum til söludreifingar í ágóðaskyni í félagi þótt hlutverk þeirra hvers um sig hafi verið ólíkt. Sú aðferð að notast við milliliði við miðlun upplýsinga og skipta hlutverkum er þekkt við brot af þessum toga og hefur þann tilgang að koma því til leiðar að fíkniefni fari á milli landa frá sendanda til móttakanda án þess að viðei gandi yfirvöld verði þess áskynja eða þeim auðnist að bera kennsl á alla þá sem að broti standa hverju sinni. Algengt er að einstakir samverkamenn að slíku broti þekki eingöngu sitt hlutverk og þekki ekki til allra annarra sem að því standa líkt og í þessu tilviki. Er brot ákærðu allra réttilega heimfært til 2. mgr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga og þáttur hvers þeirra um sig þannig að engin efni standa til að gera á aðild þeirra greinarmun þótt þátttaka þeirra hafi verið verkskipt. 7. Samkvæmt 2. mgr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga skal sá sæta fangelsi allt að tólf árum, sem gegn ákvæðum laga um ávana - og fíkniefni, framleiðir, býr til, flytur inn, flytur út, kaupir lætur af hendi, tekur við eða hefur í vörslum sínum ávana - og fíkniefni í því skyni að afhenda þau gegn verulegu gjaldi eða á annan sérstaklega saknæman hátt. Samkvæmt framansögðu eru ákærðu nú sakfelld fyrir að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 14.952,33 grömmum af ketamíni, með 87% styrkleika, sem samsvarar 100% af ketamín klóríði, og 4.999,46 grömmum af MDMA kristöllum, með 83% styrkleika, sem samsvarar 99% af MDMA klóríði, ætluðum til söludreifingar í ágóðaskyni. Er því um verulegt magn ávana - og fíkniefna að miklum styrkleika að ræða. Samkvæmt framlagðri upplýsingaskýrslu lögreglu nemur götuverðmæti þeirra samtals 374.038.500 krónum, sbr. kafla I.4. og vætti lögreglumanns nr. F fyrir dómi. Ákærða Sandra hefur ekki áður sætt refsingu svo vitað sé. Þá játaði hún brot sitt undanbragðalaust bæði hjá lögreglu á rannsóknarstigi og fyrir dómi og greindi skilmerkilega frá sínum þætti og aðild meðákærðu að svo miklu leyti sem hún gat. Að því og öðru framansögðu virtu, einkum magni, styrkleika og tegund umræddra efna, og með vísan til 1., 5., 6., 8. og 9. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 70 . gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærðu Söndru hæfilega ákveðin fangelsi í fimm ár og sex mánuði. Ekki standa efni til að skilorðsbinda tildæmda refsingu. Frá refsingunni dragist gæsluvarðhald ákærðu frá 20. september 2025 að fullri dagatölu, sbr . 76. gr. almennra hegningarlaga. 44 Samkvæmt framlögðum sakavottorðum ákærðu Sokol s og Valmir s hefur hvorugur þeirra áður sætt refsingu hér á landi þannig að þýðingu hafi. Að því og öðru framansögðu virtu, einkum magni, styrkleika og tegund umræddra efna, og með vísan til 1., 5. og 6. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing þeirra hvors um sig hæfilega ákveðin fangelsi í sjö ár. Ekki standa efni til að skilorðsbinda tildæmda refsingu. Frá refsingunni dragist í báðum tilvikum gæs luvarðhald ákærðu frá 20. september 2025 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga. Með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974 og 69. gr. a. almennra hegningarlaga skulu umrædd fíkniefni, grammavog (munur nr. 676349), smelluláspokar (munur nr. 676350) og plastpoki (munur nr. 676351) gerð upptæk. Með vísan til 69. gr. a. almennra hegningarlaga skulu jafnframt gerð upptæk bifreið með skráningarnúmerið [...] (munur nr. 676337), auk sex farsíma sem ákærðu notuðu v ið brotið (munir nr. 676305, 676306, 676319, 676487, 676314 og 676315). Loks skulu með vísan til 1. mgr. 69. gr. og 1. mgr. 69. gr. b. almennra hegningarlaga, sbr. 2. gr. lag nr. 149/2009, gerðar upptækar 290.000 íslenskar krónur í reiðufé sem fundust við leit á ákærðu Söndru við handtöku hennar (munur nr. 367331). 8. Í ljósi greindra málsúrslita ber samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að dæma ákærðu til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst 1.901.992 króna útlagður ko stnaður samkvæmt framlögðum reikningum ákæruvaldsins, sem ákærðu greiði óskipt, en samtala þeirra er ranglega tilgreind á heildaryfirliti ákæruvaldsins, sem og málsvarnarlaun skipaðra verjenda þeirra og eftir atvikum útlagður kostnaður. Ákærða Sandra greið i málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Odds Valssonar lögmanns, sem þykja með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjandans og leiðbeinandi reglna dómstólasýslunnar nr. 1/2026, hæfilega ákveðin 4.594.200 krónur að meðtöld um virðisaukaskatti. Ákærði Sokol greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Baldvins Más Kristjánssonar lögmanns, sem þykja með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjandans og leiðbeinandi reglna dómstólasýslunnar nr. 1/2026, hæfilega ákveðin 7.421.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, sem og 31.200 króna útlagðan kostnað hans samkvæmt framlögðum reikningi. Ákærði Valmir greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Benedikts Smára Skúlasonar lögmanns, sem þykja með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjandans og leiðbeinandi reglna dómstólasýslunnar 45 nr. 1/2026, hæfilega ákveðin 7.421.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, sem og 180.576 króna aksturskostnað hans. Hulda Árnadóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærða, Sandra Dorothea Becker, sæti fangelsi í fimm ár og sex mánuði. Til frádráttar dæmdri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærðu frá 20. september 2025. Ákærði, Sokol Dushku, sæti fangelsi í sjö ár. Til frádráttar dæmdri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 20. september 2025. Ákærði, Valmir Qeleposhi, sæti fangelsi í sjö ár. Til frádráttar dæmdri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 20. september 2 025. Upptæk skulu gerð 14.952,33 grömm af ketamíni, 4.999,46 grömm af MDMA kristöllum, grammavog (munur nr. 676349), smelluláspokar (munur nr. 676350), plastpoki (munur nr. 676351), bifreið með skráningarnúmerið [...] (munur nr. 676337), sex farsímar (mun ir nr. 676305, 676306, 676319, 676487, 676314 og 676315) og 290.000 íslenskar krónur í reiðufé (munur nr. 367331). Ákærðu greiði óskipt 1.901.992 króna útlagðan kostnað samkvæmt framlögðum reikningum ákæruvaldsins. Ákærða Sandra greiði 4.594.200 króna má lsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Odds Valssonar lögmanns. Ákærði Sokol greiði 7.421.400 króna málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Baldvins Más Kristjánssonar lögmanns, og 31.200 króna útlagðan kostnað hans. Ákærði Valmir greiði 7.421.400 króna málsv arnarlaun skipaðs verjanda síns, Benedikts Smára Skúlasonar lögmanns, og 180.576 króna aksturskostnað hans. Hulda Árnadóttir