Héraðsdómur Norðurlands eystra Dómur 3. febrúar 2026 Mál nr. S - 2/2026 : Ákæruvaldið ( Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari ) g egn Jósef Val Þorlákss yni og ( Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður ) F lori Ymeri Dómur Mál þetta, sem var dómtekið 7. janúar sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 7. október 2025, á hendur Flori Ymeri, , en ríkisfang í Albaníu og Jósef Val Þorlákssyni, kt. , , og X , kt. , , . Gegn Flori fyrir brot á lögum um ávana - og fíkniefni og ákærðu öllum fyrir peningaþvætti: I. Fíkniefnalagabrot. Með því að hafa laugardagskvöldið 8. febrúar 2025, verið með í söluskyni í vörslum sínum á þáverandi dv alarstað sínum að , á Akureyri og á sér, þegar hann var handtekinn skammt frá dvalarstað sínum, samtals 74,44 grömm af amfetamíni, 35,37 grömm af kókaíni, 116,40 grömm af maríhúana. Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana o g fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum. II. Peningaþvætti. A. Gegn ákærða Flori, með því að hafa um nokkuð skeið áður en ha nn var handtekinn 8. febrúar 2025, aflað sér ávinnings með sölu á ávana - og fíkniefnum eða öðrum refsiverðum brotum, að fjárhæð 1.177.000 krónur, en 1.040.000 krónur afhenti ákærði meðákærðu Jósef Vali og X í seðlum og fékk þá til að leggja seðlana inn á b ankareikninga sína og síðan millifæra peninginn inn á albanska bankareikninga. Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum. B. 2 Gegn ákærða Jósef Vali, fyrir að í þrjú skipti tekið við ísle nskum peningaseðlum, meðal annars af meðákærða Flori, lagt þá inn á eigin bankareikninga og millifært peningana síðan inn á Albanska bankareikninga, en þetta gerði hann 18. desember 2024, 15. janúar 2025 og 27. janúar 2025 samtals færði hann þannig 1.496.9 97 krónur eða 10.270 evrur úr landi og inn á albanska bankareikninga, en þarna var um að ræða ávinning af fíkniefnasölu eða öðrum refsiverðum brotum meðal annars meðákærða Flori, en ákærði hagnaðist um rúmlega 40.000 krónur á þessu. Telst þetta varða við 1 . mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum. C. Gegn ákærða X , fyrir Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og jafnframt að ákærði Flori Ymeri sæti upptöku á e fnum þeim, sem lögreglan lagði hald á og tilgreind eru í efnaskrám nr. 55.631, 55.632 og 55.633, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Jafnframt er gerð krafa um að ákærði sæti upptöku til ríkissjóðs á ávinn ingi af framangreindri brotastarfsemi sinni að fjárhæð kr. 155.000 og eftirtöldum munum sem lögreglan haldlagði á dvalarstað ákærða Flori: Armbandsúri af tegundinni Tommy Hilfiger, armbandsúri af tegundinni Ferrucci og farsíma af gerðinni Apple, en upptöku krafan á peningunum og mununum er samkvæmt 1. mgr., sbr. 2. mgr. 69. gr. og 1. tl. 1. mgr. 69. gr. a, almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Við þingfesti ngu málsins neitaði ákærði X sök, var því ákveðið að skilja málið í sundur og dæma sérstaklega mál ákærðu Jósefs Vals og Flori, sbr. 2. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008. Ákærði Flori sótti ekki þing, þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008. Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 161. gr. sömu laga með áorðnum breytingum að leggja dó m á málið að ákærða fjarverandi, enda varðar brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a - lið og framlögð gögn verða talin nægjanleg til sakfellingar. Verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæða. Ákærði Jósef Valur hefur komið fyrir dóm og játað sök samkvæmt ákæru. Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, og gögnum málsins, er nægilega sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæru er lýst og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, sbr. heimildarákvæði 164. gr. laga nr. 88/2008. Ákærði Flori hefur ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað, svo vitað sé. Ákærði er nú sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni og peningaþvætti. Refsing ákærða er 3 ákveðin fangelsi í fimm mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið, eins og nánar greinir í dómsorði. Ákærði Jósef Valur hefur hreinan sakaf eril. Ákærði er sakfelldur fyrir peningaþvætti. Við ákvörðun refsingar verður litið til ungs aldurs ákærða og þess að ákærði hefur játað sök og lýst iðrun . Refsing ákærða er ákveðin fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið, eins og nánar greinir í dómsorði. Að kröfu ákæruvalds, og með vísan til 5. gr. og 6. gr. laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974 skal ákærði sæta upptöku á þeim efnum er í dómsorði greinir. Þá skal ákærði jafnframt sæta upptöku á 155.000 krónum, Tommy H i lfiger armbandsúri, Ferrucci armbandsúri og Apple síma, með vísan til 1. mgr., sbr. 2. mgr. 69. gr. og 1. tl. 1. mgr. 69. gr. a, almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/197 4. Að kröfu ákæruvalds og með vísan til dómsniðurstöðu verður ákærði Flori dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar, þ.e. þóknun tilnefnds verjanda síns á rannsóknarstigi , eins og hún ákveðst í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum . Að kröfu ákæruvalds og með vís an til dómsniðurstöðu verður ákærði Jósef Valur dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar, þ.e. þóknun skipaðs verjanda síns, eins og hún ákveðst í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum . Berglind Harðardóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn . Dómso r ð: Ákær ði, Flori Ymeri, sæti fangelsi í fimm mánuði. Fresta ber fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði, Jósef Valur Þ orláksson, sæti fangelsi í 30 daga. Fresta ber fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði Flori, sæti upptöku á 11 6,40 grömm um af marijúana , 74,44 grömm um af amfetamíni og 35,37 grömm um af kókaíni , 115.000 krónu m , Tommy Hilfiger armbandsúr i, Ferrucci armbandsúr i og Apple farsím a . Ákærði Flori greiði 247.380 krónur í sakarkostnað, þ. e . þóknun tilnefnds verjanda síns, Friðriks Smárasonar lögmanns . Ákærði Jósef Valur greiði 141.360 krónur í sakarkostnað, þ. e . þóknun skipaðs verjanda síns, Ásgeirs Arnar Blöndal Jóhannssonar lögmanns .