Héraðsdómur Austurlands Dómur 13. apríl 2026 Mál nr. S - 40/2026: Ákæruvaldið (Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari) gegn Birgi Birni Birgissyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður) (Eva Dís Pálmadóttir, lögmaður brotaþola) Dómur Mál þetta, sem tekið var til dóms 10. þessa mánaðar, var höfðað af lögreglustjóranum á Austurlandi með ákæru útgefinni 9. síðasta mánaðar á hendur Birgi Birni Birgissyni, kt. , fyrir líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 2025, , slegið A , kt. , í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut nefbrot, mar í ytri augnkrók, sár í efri vör, hægri framtönn losnaði, þrjár tennur í vinstri góm urðu hreyfanlegar o g ásláttaraumar eftir höggið, auk þess sem það brotnaði úr gler ungi á einni tönn í efri góm og að hafa þannig brotið gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakar kostnaðar. Þá krefst fyrrgreindur brotaþoli þess að ákærði greiði honum skaðabætur að fjárhæð 1.076.351 króna auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verð - tryggingu frá 18. júlí 2025. Þá er endanleg krafa brotaþola um dráttarvexti sa mkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga frá 18. október 2025 til greiðsludags og krefst hann loks málskostnaðar að viðbættum virðisaukaskatti. Um málsatvik er skírskotað til ákæru. Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa viðhaft þá háttsemi se m honum er gefin að sök og var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð saka - mála nr. 88/2008, að gættum síðari málslið 1. mgr. þess laga ákvæðis, og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að aðilum hafði verið gefinn k ostur á að tjá sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Sannað er með skýlausri játningu ákærða, sem er í sam ræmi við framlögð gögn, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem saksókn á hendur honum tekur til samkvæmt framanrituðu og er hát tsemin réttilega heimfærð til refsiákvæðis í ákæru. Ákærði hefur því unnið sér til refsingar. 2 Af hans hálfu er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa, þar af er lögð til skilorðs - bundin frestun á ákvörðun refsingar en annars þess að refsing verði ákveðin skilorðs - bundin. Þá krefst hann lækkunar á miskabótahluta bótakröfu, síðara tímamarks dráttar - vaxta og þóknunar og aksturskostnaðar til handa verjanda að mati dómsins vegna starfa hans á rannsóknarstigi og eftir máls höfðun. Ákærði, sem er ára gamall, hefur eftir því sem greinir á sakavottorði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Þá horfir það honum og til málsbóta að hafa gengist við broti sínu. Á hinn bóginn bera gögn málsins með sér alvarleika atlögu hans sem beindist að höfði brotaþola með fyrrgreindum líkamlegum afleiðingum, sem eru all - nokkrar, auk vanlíðanar vegna þeirra og samfarandi verkja sem ráða má af málsgögnum og grein var gerð fyrir á dóm þingi. Þrátt fyrir aðstæður í málinu, einkum , þykja ekki efni til að fallast á það í ljós i þess hvernig málinu er háttað að 4. tl. 1. mgr. 74. gr. almennra hegningar laga eða annar laga grunnur geti í því tilliti orðið honum til hags bóta við ákvörðun refsingar. Er að því leyti gætt að því að ekki eru áhöld um refsiverða sök ákærða. Eins og ha gar til í málinu eftir því sem rakið hefur verið, en einnig með hliðsjón af dómaframkvæmd, þykir skilorðs bundin frestun refsi ákvörðunar samkvæmt a - lið 1. mgr. 57. gr. laganna ekki koma til álita. Eftir framan sögðu, þar á meðal með vísan til 2., 3., 5. og 8. tl. 1. mgr. 70. gr. sömu laga, þykir refsing ákærða samkvæmt 1. mgr. 218. gr. þeirra laga hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði. Að öllu virtu, þar á meðal því að hann hefur greiðlega gengist við sakar giftum, þykir mega fresta fullnustu refsingar i nnar á grunni b - liðar 1. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðn ingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð, sbr. 2. og 3. mgr. 57. gr. laganna. Af hálfu brotaþola er sem áður greinir krafist bóta ú r hendi ákærða auk vaxta vegna háttsemi ákærða, auk málskostnaðar. Í greinargerð um kröfuna er hún svo sundurliðuð að krafist er 1.000.000 króna í miskabætur samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og með vísan til dómvenju, og samanlagt 76.351 krónu ve gna sjúkrakostnaðar á grunni 1. gr. sömu laga. Ákærði hefur viðurkennt bótaskyldu og ber ekki brigður á sjúkrakostnað brotaþola, en telur efni til lækkunar á fjárhæð kröfu um miskabætur og síðara tíma marks dráttarvaxta. Með vísan til þessa og gagna til st uðnings kröfu brotaþola, sem bera með sér tjón brotaþola vegna háttsemi ákærða, er fallist á kröfu um skaðabætur vegna fyrr - greinds sjúkrakostnaðar brotaþola að fjárhæð 76.351 króna. Þá þykir ákærði með hátt - semi sinni einnig hafa bakað sér bótaábyrgð gagn vart brotaþola á grundvelli a - liðar 1. 3 mgr. 26. gr. skaðabóta laga og hefur viðurkennt skyldu sína til greiðslu bóta af því tagi, þótt hann telji að tildrög brots hans, sem rakin verði til háttsemi brotaþola, eigi að hafa áhrif á fjárhæð dæmdra miskabóta. Við mat á fjárhæð bóta að þessu leyti er horft til þess að framlögð gögn styðja að brotaþoli hafi orðið fyrir allnokkrum áverkum og upplifað vanlíðan vegna brotsins sem honum sjálfum verði ekki kennt um svo áhrif geti haft á bót a fjárhæð. Litið til þessa og nýlegrar dómaframkvæmdar þykir fjárhæð miskabóta hæfilega ákveðin 500.000 krónur. Um vexti fer samkvæmt því sem greinir í dómsorði, þar af dæmast dráttarvextir á grunni 9. gr. laga nr. 38/2001, í samræmi við endanlega kröfu af hálfu brotaþola þar um og me ð vísan til fyrrgreindra upplýsinga um birtingu bótakröfu og greinargerðar með henni, frá 18. október 2025. Um máls kostnað brotaþola fer sam kvæmt 3. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008 og verður ákærða gert að greiða brotaþola málskostnað, sem einkum með hlið sjón af tímaskýrslu, en einnig efni og umfangi, þykir hæfi lega ákveðinn 201.004 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Sakarkostnaður málsins samanstendur af kostnaði við öflun læknisvottorðs við rann - sókn og þóknun og aksturskostnaði verjanda, en með vísa n til 1. mgr. 235. gr. laga um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til að greiða þennan kostnað. Hann nemur 33.907 krónum vegna læknisvottorðsins og þykir þóknun verjanda ákærða eftir máls - höfðun og á rannsóknarstigi, Gísla M. Auðbergssonar lögmanns, með hliðsjón efni og umfangi málsins og leiðbeinandi reglum dómstólasýslunnar, hæfilega ákveðin 269.700 krónur að meðtöldum virðis aukaskatti. Loks ákvarðast verjandanum að samtölu 40.656 krónur í aksturskostað fyrir dómi og áður en málið var höfðað. Hákon Þo rsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómsorð: Ákærði, Birgir Björn Birgisson, sæti fangelsi í tvo mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði greiði A 576.351 krónu auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 2025, en með dráttarvöxtum frá 18. október 2025 til greiðsludags, og 201.004 krónur í málskostnað. Ákærði greiði 344.263 krónur í sakarkostnað, þar með talda þóknun verjanda síns fyrir dómi og á rannsóknarstigi, Gísla M. Auðbergssonar lögmanns, 269.700 krónur, og 40.656 krónur í aksturskostnað verjandans. 4 Hákon Þorsteinsson