Héraðsdómur Vestfjarða Dómur 15 . maí 2025 Mál nr. S - 95/2024 : Lögreglustjórinn á Vestfjörðum ( Kristján Óskar Ásvaldsson saksóknarfulltrúi ) g egn H irti Smár a Birkiss yni ( Svavar Daðason lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem dómtekið var 5. maí sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Vestfjörðum 17. nóvember 2024 á hendur Hirti Smára Birkissyni, kt. , fyrir líkamsárás í Ísafjarðarbæ með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 22. október 2023, á bifreiðastæði utan við hús nr. 2 við Pollgötu, Ísafirði, ráðist að A , skellt honum í jörðina og síðan sparkað einu sinni í höfuð hans, með þeim afleiðingum að han n hlaut skurð á vinstri augabrún, tímabundnar sjóntruflanir, heilahristing og höfuðverk. Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakar kostnaðar. Í málinu gerir brotaþoli kröfu um að ákærða verði gert að greiða sér skaða - og miskabætur samtals að fjárhæð 1.501.158 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr., sbr. 4. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 22. október 2023 til þess dags þegar mánuður er liðinn frá því að bótakrafan er kynnt fyrir ákærða en með dráttarvöxtum frá þeim degi samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., sömu laga til greiðsludags. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til d óms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Um málavexti vísast til ákæru. Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er hún réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa úr ríkissjóði. Krafist er sýknu af einkaréttarkröfu en til vara að hún verði lækkuð verulega. Í því sambandi er vísað til þess af hálfu ákærða að krafan sé litlum gögnum 2 studd og njóti engra gagna við um orsakasamband, tannskaða og launamissi brotaþola. Þá hafi brotaþola ekki verið þörf á aðstoð lögmanns við kröfugerðina. Ákærði er fæddur árið . Samkvæmt vottorði frá sakaskrá ríkisins hefur ákærða ekki áður verið gerð refsing í sakamáli. Þá horfir skýlaus játning ákærða honum til málsbóta. Hins vegar verður að leggja til grundvallar að árás ákærða í garð brotaþola hafi verið tilefnislaus auk þess sem hún fól í sér spark í höfuð á liggjandi manni sem telja verður háskalegt athæfi . Með hliðsjón af framangreindu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga en fresta skal fullnu stu hennar skilorðsbundið eins og nánar greinir í dómsorði . Með háttsemi sinni hefur ákærði bakað sér bótaábyrgð gagnvart brotaþola. Fyrir liggur að brotaþoli hefur þurft að leita atbeina tannlæknis og sjúkraþjálfara vegna áverka sem hann hlaut og eru reik ningar vegna kostnaðarins meðal gagna málsins, alls að fjárhæð 246.798 krónur. Þá er að mati dómsins ljóst að brotaþoli hefur orðið fyrir miska vegna árásarinnar og þykja bætur vegna hans á grundvelli a - liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 eftir atvikum hæfilega ákveðnar 500.000 krónur. Miðast upphafstími dráttarvaxta vegna framangreinds við þann dag er mánuður var liðinn frá því að ákæra var kynnt bótakrafan með fyrirkalli 31. janúar sl. Loks skal ákærði greiða brotaþola málskostnað vegna bótakröfunnar, 79.360 krónur , og hefur þar verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Ekki liggja hins vegar fyrir gögn sem sýna fram á ætlað tekjutap brotaþola vegna óvinnufærni og er því ekki unnt að fallast á bótakröfuna hvað þann hluta hennar varðar. Með vísan til 1. mgr. 235. , sbr. 233. gr., laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til greiðslu sakarkostnaðar málsins, alls 392.000 krónur . Þar með talin n er kostnaður vegna þóknun ar Svavars Daðasonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða, sem þykir hæfilega ákveðin 372.000 krónur, en við ákvörðun hennar hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts , og anna r sakarkostnað ur , 20.000 krónur, sem féll til vegna áverkavottorðs. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kristján Óskar Ásvaldsson saksóknarfulltrúi. Oddur Þorri V iðarsson dómstjóri kveður upp dóm þennan. 3 Dómso r ð: Ákærði, Hjörtur Smári Birkisson, sæti fangelsi í 60 daga en f resta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði greiði brotaþola, A , 746.798 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 17. nóvember 2024 til 2. mars 2025 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga frá þeim degi til greiðsludags , auk 79.360 króna í málskostnað. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Svavars Daðasonar lögmanns, 372.000 krónur og 20.000 krónur í annan sakarkostnað. Oddur Þorri Viðarsson