Héraðsdómur Norðurlands eystra Dómur 13. nóvember 2025 Mál nr. S - 431/2024 : Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) g egn X og (Friðrik Smárason lögmaður) Y ( Gísli Kr. Björnsson lögmaður ) Dómur 1 Mál þetta, sem var dómtekið 1 8. september sl., höfðaði lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra með ákæru dagsettri 10. október 2024 á hendur X , kt. , , , og Y , kt. , , , Y fyrir vopnalagabrot: I. Með því að hafa í sameiningu sunnudagskvöldið 27. ágúst 2023, ruðst án heimildar inn í herbergi að á Akureyri og gripið þar til sín JBL Partýbox 310 og Playstation 5 tölvu með diskadrifi og fjarstýringu og horfið af vettvangi í bifreið. Verðmæti þessara muna sem voru teknir er um 206.890 krónur. Telst þetta varða við 1. mgr. 231. gr. og 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, með síðari breytingum. II. Gegn ákærða Y , fyrir að hafa aðfaranótt mánudagsins 28. ágúst 2023, þ egar lögreglan gerði leit á þáverandi heimili hans að , verið með í vörslum sínum útdraganlega kylfu. Telst þetta varða við c lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998, með síðari breytingum. Þess er krafist að ákærðiu [svo] verði dæmdirr [svo] til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Jafnframt er gerð krafa um að ákærði Y sæti upptöku á kylfu sem lögreglan lagði hald á við rannsókn málsins, sbr. munskrárnúmer 179351, samkvæmt 1. mgr. 37. gr. vopnalaga. 2 Ákærð u krefjast b áðir vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna til handa skipuðum verjendum þeirra. 2 3 Aðalmeðferð málsins hófst 11. apríl sl. og var málið dómtekið. Eftir dómtöku málsins upplýsti sækjandi að fyrir lægi ný lögregluskýrsla þar sem vitni haf i gengist við að hafa borið ranglega fyrir dómi . Krafðist hann þess að fá að leggja þá skýrslu fram. Var málið tekið fyrir að nýju 13. júní . Dómari féllst á framlagninguna og var einnig fallist á frekari skýrslu töku r fyrir dómi . Málið var síðan tekið fyrir 18. september sl. Í því þinghaldi breytti ákæruvaldið kafla I . í ákæru Var málið síðan flutt að nýju , án frekari vitnaleiðslna, og tekið til dóms. Málavextir 4 Samkvæmt frumskýrslu lögreglu var tilkynnt um yfirstaðið innbrot í á Akureyri síðla kvölds 27. ágúst 2023. A tók á móti lögreglu á vettvangi, og er því lýst að hann hafi augljóslega verið í uppnámi og mikið niðri fyrir. Segir að hann hafi s kýrt frá því að félagi hans, B , byggi í húsinu en A verið í íbúðinni til að gefa kettinum hans. Hann hafi verið búinn að vera þar í um klukkustund þegar strákar hafi ráðist þar inn . Þeir hafi verið með h inn með trefi l , báðir hafi verið honum aftur í rúmið, tekið hvíta Playstation 5 tölvu með diskadrifi, hvíta fjarstýringu með henni og svartan Partybox hátalara. Kvað hann drengi na vera í og anna n þeirra heita X . Þ eir hafi komið á dökkbláum Volkswagen Golf. 5 Í kjölfarið var hringt í B sem var þá á leið til Akureyrar . Lögregla hitt i hann þegar hann var þangað kominn laust eftir miðnætti . Hann kvaðst vita hverjir þetta væru, þeir hétu X og D og byggju á Akureyri. Hann vissi ekki af hverju þeir hefðu brotist inn en vinur hans teldi það vera vegna tösku í eigu stúlku að nafni E sem hefði orðið eftir heima hjá honum. Hann hafi ítrekað boðið henni að sækja töskuna og ástæðulaust hafi verið að brjótast inn til hans og stela þar dýrum munum. Kom fram að drengirnir hefðu einnig tekið umrædda tösku en A gleymt að skýra lögreglu frá því. 6 Í kjölfarið var leitað að bifreið sem ætti við lýsingu A . Eftir nokkra leit hafi lögreglumaður komið auga á ljós á slóða gegnum kjarr úr Kjarnaskógi niður á Eyjafjarðarbraut. Þegar hann stöðvaði lögreglubifreiðina við enda slóðans hafi ljós in slokknað, menn stokkið af tækjum og hör fað inn í skóginn. Tækin hafi reynst vera golfbifreiðar af golfvellinum og gerðar ráðstafanir vegna þess. Síðan hafi verið ákveðið að kanna hvort bifreið in sem leitað var væri við golfskálann. 7 Þar reyndist vera bifreið sem samræmdist lýsingu A en skráning arnúmer hennar höfðu verið fjarlægð. Bifreiðin var heit viðkomu. Sjónpóstur var settur upp í nágrenninu og um klukkan 2:30 komu tveir menn á rafhlaupahjóli og stefn du á golfvöllinn. Annar mannanna kom síðan til baka á hjólinu og umrædd bifreið á eftir, þá með skráningarnúmer. Áhöfn annarrar lögreglubifreiðar var ræst út og stöðvað i för bifreiðarinnar . Ökumaður var D . Í bifreiðinni fannst hvít Playstation fjarstýring. Aðrir lögreglumenn eltu þann á hlaupahjólinu án árangurs. 8 Rætt var við móður ákærða X í sím a . Segir í skýrslu að X hafi þá verið nýkominn heim en neitað að hafa verið í Kjarnagötu. Hann hafi þó vita ð af málinu í og sag t að Y 3 væri með þá muni sem leitað væri. Þá hafi verið hringt í móður Y en hún sagt að hann gæti ekki hafa verið að verki , h a nn hafi verið í vörutalningu í um daginn og með kærustu sinni um kvöldið. 9 Farið var að heimili ákærða X þá um nóttina og leitað í herbergi hans. Fram kemur að hann hafi sagt að hann væri ekki með neitt þýfi , Y væri með það . Við leit fannst sams konar Partybox hátalari og hafði verið tekinn úr , hvít Playstation tölva og hvít fjarstýring. Ákærði gat ekki sýnt fram á að munirnir væru í hans eigu og voru þeir haldlagðir. Hann lýsti því að hafa farið í eitthvað hús á til að sækja b leika tösku fyrir vinkonu sína. Y hafi farið með honum og hann hafi tekið hátalara og tölv u . 10 Í kjölfarið var farið að heimili Y og einnig leitað í herbergi hans. Kemur fram að hann hafi bent á stóran svartan P artybox hátalara á miðju gólfi. Aðspurður hvor t hann ætti hátalarann hafi hann hrist höfuðið og sag t hafi hann skýrt frá því að hátalarinn væru úr , einhver hefði gefið honum hann en vildi ekki segja hver. Undir rúmi hafi fundist hvít Playstation 5 tölva og - standur o g kylfa. 11 Fram kemur að á lögreglustöð inni hafi verið kveikt á þeirri tölvu sem fannst hjá Y og fjarstýringin úr bifreið D hafi tengst henni um leið. Þá hafi verðmæti þeirra muna sem teknir voru verið kannað , sams konar hátalari hafi nýr kostað 99.895 krón ur og tölva 106.995. A hafi verið fengnir munirnir og ákærða X hafi verið skilað þeim munum sem haldlagðir voru hjá honum. 12 Ákærði X gaf skýrslu hjá lögreglu 28. september 2023 og ákærði Y 6. mars 2024. Einnig voru teknar skýrslur af D , E og A við rannsókn málsins. Framburðir ákærða og vitna fyrir dómi 13 Ákærði X kvaðst hafa farið að til að sækja tösku fyrir E . Hann hafi verið með meðákærða Y , D og E . B hafi ekki verið í bænum en hann rætt við bæði B og A um að koma og sækja töskuna, t il haf i staðið að A kæmi niður með töskuna . Þau hafi verið fjögur á ferð, hann, meðákærði, D og E . Þegar þau komu hafi A hafi hins vegar opnað fyrir þeim niðri og hann og einn annar hafi farið með honum upp . Ákærði vildi ekki tjá sig um hver það var . Ákærði kvað st ekki hafa verið með klút eða annað fyrir andlitinu en kvaðst ekki vilja tjá sig um hvort sá sem var með honum hafi verið það. Hann kvaðst ekki hafa tekið þá muni sem greinir í ákæru en vildi ekki tjá sig um hver hefði gert það. Hann kvað hvorki rétt að þeir hafi ruðst inn né að þeir hafi ýtt A . 14 Ákærði Y kvað þá meðákærða hafa farið á staðinn til að sækja poka . O pnað hafi verið fyrir þeim og vísað þeim inn í herbergið, þeir hefðu ekki getað vitað hvaða herbergi B ætti nema þeim hefði verið vísað þangað. Hann kvað það ekki hafa verið B sem opnaði og minnti að sá sem það gerði héti A . Ákærði gekkst við því að hafa tekið bæði hátalarann og tölvuna og kvað meðákærð a X ekki hafa átt hlut að því, hann hafi bara sótt poka. Hann kvaðst hafa verið að hefna sín á B sem hafi verið búinn að dreifa nektarmyndum af vinkonu hans . Ákærði hafi verið í neyslu og fullur og ruglaður þegar þetta gerðist. Hann hafi verið búinn að ákveða að ræna B vegna myndanna og verið með grímu . Með - ákærði X hafi ekki verið með grímu. Hann ha fi þó ekki verið búinn að plana að fyrirfram 4 að ræna B , þetta hafi komið upp á staðnum . Þá hafi þetta ekki verið gríma heldur hafi hann hafi haft bol fyrir andlitinu því hann hafi ekki viljað að A vissi hver hann væri. 15 Vitnið A kvaðst hafa verið á heimili B í að passa köttinn og gist þar stöku sinnum. Vinkona, eða fyrrum vinkona, hans og B hafi átt poka í íbúðinni en eitthvert vesen komið upp milli hennar og B . B hafi sagst ætla að láta hana hafa pokann en hún ætti ekki að ko ma inn. Bankað hafi verið niðri og hann rölt niður. Þar hafi verið ákærðu X og Y sem hafi spurt hvort þeir mættu koma inn og hann sagt að það væri ekkert mál, þeir gætu tekið X pokann. Hann hafi séð að þeir fóru að líta í kringum sig og Y síðan verið kominn með tölvuna og hátalarann í hendurnar. Hann hafi reynt að stöðva þ á en X ýtt við honum, þeir svo farið út og vitni ð hringt í lögreglu. 16 Vitnið E kvaðst hafa viljað fá töskuna sína og beðið ákæ rða X og D að hjálpa sér, hún hafi ekki þorað að fara ein . Hún hafi beðið í bílnum meðan X og einhver annar fóru inn . Hún hafi ekki verið að fylgjast með þeim þegar þeir fóru inn. Þeir hafi komið til baka með töskuna og fleiri muni og h enni svo verið skutl að heim. 17 Vitnið D kvaðst hafa verið að keyra, og með honum hafi verið X og Y . Þeir hafi verið á rúntinum en komið upp að það þyrfti að sækja tösku fyrir vinkonu X , hann minni að hún heiti E . Þeir hafi ekið að og ákærðu farið að hurðinni , verið hleypt inn og þeir sótt töskuna. Aðspurður hvort hann væri viss um að þeim hafi verið hleypt inn kvaðst hann ekki hafa fylgst vel með en hann haldi að þeim hafi verið hleypt inn . Aðspurður hvort ákærðu hafi verið grímur kvaðst vitnið ekki muna það. Niðurstaða 18 Ákærð i Y hefur játað sakargiftir í I. og II. kafla ákæru, eftir þá orðalagsbreytingu sem gerð var á I. kafla ákæru og lýst er í efnisgrein 3 . Ákærði X hefur játað húsbrot eftir framangreinda orðalagsbreyting u . Samkvæmt framangreindu þykir sann að að ákærðu hafi báðir gerst sekir um húsbrot og ákærði Y hafi einnig gerst sekur um gripdeild og vopnalagabrot svo sem greinir í ákæru. Varða brotin við þar tilgreind lagaákvæði. 19 Ákærði X neitar að hafa átt aðild að gripdeild og andmælir því sérstaklega að um samverknað hafi verið að ræða. Verður nú fjallað um hvort sannað telst að ákærði X hafi verið samverkamaður meðákærða í gripdeild. Við málflutning var málið einnig reifað með tilliti til þess hvort hann h af i verið hlutdeildarmaður. 20 Ákærði X kannaði st við að hafa farið inn í umrætt sinn til að sækja tösku og þar hafi annar maður verið með í för en vildi ekki segja hver það hefði verið. Hann kvaðst ekki hafa tekið þá muni sem greinir í ákæru en kvaðst ekki vilja tjá sig um hver hefði gert það. Meðákær ði Y gekkst við að hafa farið þarna inn og tekið hátalara og tölvu en kvað ákærða X ekki hafa átt þátt í því. Vitnið A kvað ákærðu hafa komið inn til að sækja pokann. Hann hafi síðan séð að þeir hafi litið í kringum sig og Y verið kominn með tölvuna og hát alarann í hendur. Hann hafi reynt að stöðva þá án árangurs. Vitni E og D voru ekki vitni að því sem gerðist inni en vitnið E kvað ákærðu hafa komið út í bíl með tösku hennar og fleiri muni. 5 21 Fram er komið að ákærði Y hafi verið sá sem tók umrædda muni. Hvor ki verður talið sannað að ákærðu hafi sammælst um að grípa með sér muni húsráðanda né að ákærði X hafi tekið þátt í verknaðinum með Y . Með vísan til 108. gr. og 1. mgr. 111. gr. laga nr. 88/2008 verður talið ósannað að ákærði X hafi verið samverkamaður Y í broti gegn 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 . 22 Samkvæmt 22. gr. almennra hegningarlaga skal hver maður, sem með liðsinni í orði eða verki, fortölum, hvatningum eða á annan hátt á þátt í því, að brot samkvæmt lögunum er framið, skal sæta þeir ri refsingu sem við brotinu er lögð. Þótt telja verði fram komið að ákærði X hafi látið þessa háttsemi meðákærða átölulausa þykir ekki fram komið að háttsemi hans hafi verið með þeim hætti að hann verði talinn haf a átt hlutdeild í brotinu. Verður ákærði sa mkvæmt því sýknaður af ákæru um gripdeild. Ákvörðun refsingar 23 Ákærði X er sakfelldur fyrir húsbrot. Hann var 15 ára þegar atvik urðu. Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins gekkst hann undir sektargreiðslu með viðurlagaákvörðun vegna brota gegn lögreglulögum og umferðarlögum 13. júní 2024. Þann 4. júlí 2024 var ákæru vegna brots gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gerð sekt fyrir umferðarlagabrot 10. janúar 2025. Það brot sem hann er nú sakfelldur fyrir f ramdi hann áður en honum voru gerðar framangreindar refsingar og verður honum því gerður hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga . Með vísan til framangreinds , ungs aldurs ákærða og þess hve langt er liði ð frá því að atvik urðu verður ákvörðun re fsing ar ákærða frestað skilorðsbundið svo sem nánar greinir í dómsorði . 24 Ákærði Y er sakfelldur fyrir húsbrot, gripdeild og vopnalagabrot. Hann var 16 ára þegar atvik urðu. Af sakaferli hans skiptir hér máli að þann 29. febrúar 2024 var ákærði sakfelldur fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var hann sakfelldur fyrir eignaspjöll 21. maí 2025 . Skilorðsdómurinn var tekinn upp og ákærði gert að sæta fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar fresta ð skilorðsbundið í tvö ár. Þau brot sem ákærði er nú sakfelldur fyrir framdi hann fyrir uppsögu framangreindra dóma og verður honum nú gerður hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Með vísan til 60. gr. sömu laga verður skilorðsdómurinn frá 21 . maí 2025 tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi samkvæmt reglum 77. gr. laganna. Með vísan til framangreinds, ungs aldurs ákærða, játningar hans og þess hve langt er liðið frá atvikum þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga en fulln ustu refsingarinnar verður frestað skilorðsbundið svo sem nánar greinir í dómsorði. 25 Samkvæmt úrslitum málsins og 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998 verður fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins. 26 Sakarkostnaður er ekki annar en málsvarnarlaun og ferðakost naður verjenda ákærðu. Á kærð i X er að mestu sýknaður af kröfum ákæruvalds og þykir rétt að málsvarnarlaun skipaðs verjanda hans greiðist úr ríkissjóði, svo sem nánar greinir í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum. Ákærði Y játaði ekki sakargiftir fyrr en við aðalmeðferð 6 málsins. Hann greiði málsvarnarlaun og ferðakostnað skipaðs verjanda síns svo sem nánar greinir í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum. Arnbjörg Sigurðardóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan. D ó m s o r ð : Ákvörðun refsingar á kærð a X er frestað og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði Y sæti fangelsi í 60 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Gerð er upptæk útdraganleg kylfa. Málsvarnarlaun skipaðs verjanda á kærð a X , Friðriks Smárasonar lögmanns, 1.004.400 krónur, greiðist úr ríkissjó ði. Ákærði Y greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Gísla Kr. Björnssonar lögmanns, 870.480 krónur og 127.380 króna ferðakostnað hans.