Héraðsdómur Norðurlands vestra Dómur 2 8 . maí 2024 Mál nr. E - 84/2021 : Einar Þorvaldsson ( Gísli Guðni Hall lögmaður ) g egn S kagafirði ( Björn Jóhannesson lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem tekið var til dóms 16. apríl sl., var höfðað 7. júní 2021 . Stefnandi er Einar Þorvaldsson , . Stefnd i er Skagafjörður, Skagfirðingabraut 17, Sauðárkróki . Dómkröfur Stefnandi krefst þess að stefnd i verði dæmdur til að greiða h onum 3.550.7 18 krónu r ásamt dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, af 67.346 krónum frá 1. febrúar 201 5 , af 65.596 krónum frá 1. mars 201 5 , af 68.693 krónu m frá 1. a p ríl 201 5 , af 66.908 krónum frá 1. maí 201 5 , af 57.095 krónum fr á 1. júní 201 5 , af 18.734 krónum frá 1. september 2015, af 60.664 krónum frá 1. október 201 5 , af 54.419 krónum frá 1. nóvember 201 5 , af 60.694 krónum frá 1. desember 201 5 , af 40.145 krónum frá 1. janúar 2016, af 54.419 krónum frá 1. febrúar 2016, af 60.664 krónum frá 1. mars 2016, af 41.929 krónu m frá 1. a p ríl 2016, af 60.664 krónum frá 1. maí 2016, af 44.606 krónum frá 1. júní 2016, af 29.440 krónum frá 1. september 2016, af 94.564 krónum frá 1. október 2016, af 91.888 krónum frá 1. nóvember 2016, af 100.809 krónum frá 1. desember 2016, af 62.448 krónum frá 1. janúar 2017, af 102.267 krónum frá 1. febrúar 2017, af 102.267 krónum frá 1. mars 2017, af 105.846 krónum frá 1. apríl 2017, af 55.544 krónum frá 1. maí 2017, af 80.695 krónum frá 1. júní 2017, a f 39.823 krónum frá 1. september 2017, af 111.086 krónum frá 1. október 2017, af 113.182 krónum frá 1. nóvember 2017, af 118.422 kr ónum frá 1. desember 2017, af 73.359 krónum frá 1. janúar 2018, af 105.846 krónum frá 1. febrúar 2018, af 100.607 krónum frá 1. mars 2018, af 85.935 krónum frá 1. apríl 2018, af 98.228 krónum frá 1. maí 2018, af 72.321 krónu frá 1. júní 2018, af 42.060 krónum frá september 2018, af 111.791 krónu frá 1 . október 2018, af 122.925 krónum frá 1. nóvember 2018, af 120.649 krónum frá 1 . 2 desember 2018, af 95.609 krónu m frá 1. janúar 2019, af 114.958 krónum frá 1. febrúar 2019, af 114.958 krónum frá 1. mars 2019, af 109.267 krónum frá 1. apríl 2019, af 81.950 krónu m frá 1. maí 2019 og af 69.430 krónum frá 1. júní 2019, í hverju tilviki ti l greiðsludags. Þá krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefnda að skaðlausu og að við ákvörðun hans ver ði tekið tillit til skyldu stefnanda til að greiða virðisaukaskatt af málflutningsþóknun. Stefnd i krefs t aðallega sýknu af kröfum stefnanda en til v ara að k r afa stefnanda verði lækkuð verulega. Í báðum tilfellum krefst stefndi málskostnaðar úr hendi stefnanda að skaðlausu. Stefnandi höfðaði málið upphaflega á hendur Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi. Eftir málshöfðunina sameinuðust sveitarfél ögin sem nú ber nafnið Skagafjörður og tók sameinað sveitarfélag við réttindum og skyldum beggja sveitarfélaganna og er því til varnar í máli þessu. Með úrskurði dómsins 10. febrúar 2022 var kröfu um frávísun málsins hafnað. II Atvik máls Stefnandi var ráðinn í fullt starf við Tónlistarskóla Skagafjarðar 20. ágúst 2003. Skólinn varð til við sameiningu Tónlistarskóla Sauðárkróks og Tónlistarskóla Skagafjarðar eftir að öll sveitarfélög í Skagafirði, utan Akrahrepps, sameinuðust í eitt árið 1996. Eftir að Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur sameinuðust hefur stefndi tekið við rekstri skólans sem nú hei tir Tónlistarskóli Skagafjarðar. Stefnandi tekur laun samkvæmt kjarasamningi milli Kennarasambands Íslands (KÍ) f.h. Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum ( hér eftir FT) og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Stefnandi er félagsmaður í FT sem er meðal aðildarfélaga KÍ. Í kjarasamningi sem gilti frá 1. maí 2011 til 31. apríl 2014 koma fram þau ákvæði sem hér skipta máli en efnislega hafa þau að mestu haldist óbreytt með síðari samningum. Við tónlistarskólann starfa að jafnaði átta til tíu kennarar og þrír þeirra ferðast á milli starfsstöðva skólans sem eru á Sauðárkróki, Varmahlíð, Hofsósi og að Hólum í Hjaltadal. Stefnandi hefur sinnt kennslu á öllum starfsstöðvunum að Hólum í Hjaltadal undanskildum. Á ferðum sínum milli starfs s töðva skólans hefur h ann notað bifreið í eigu stefnda . Stefnandi er búsettur á Hofsósi og sækir vinnu þaðan og heldur því fram að þar hafi hann svokallaða heimastöð. Stun daskrá stefnanda var ákveðin af tónlistarskólanum fyrir upphaf hvers skólaárs. Stefnandi hefur vinnu sinnar vegna þurft að aka á milli 3 starfsstöðva og lýsir akstri sínum þannig að hann hafi , í dæmigerðri vinnuviku, ekið tvisvar sinn um frá Hofsós i í Varmahlíð og til baka. Sá akstur taki , í hvert sinn og í góðu veðri 70 mínútur. Þá hafi h ann tvisvar í viku ekið frá Hofsósi til Sauðárkróks og til baka og einnig sömu leið einn föstudag í mánuði. Þessi akstur taki 5 0 mínútur. Samtals hafi akstur h ans í viku hverri tekið 240 mínútur. Við þetta bætist síðan 50 mínútur í akstri einu sinni í mánuði milli Sauðárkróks og Hofsóss . Stefn an di kveðst ekki gera ráð fyrir akstri vegna starfsdaga og tónleika á hverjum stað. Stefnandi greinir frá því í lýsingu sinni á málavöxtum að við skólann sé notað viðverukerfi sem kallast Vinnustund. Kennarar skólans hafi fengið stutta kynningu á því kerfi en þar hafi launafulltrúi stefnda lýst því að kerfið hentaði ekki tónlistarkennurum og að unnið væri að því að þróa betra kerf i fyrir þá. Slíkt kerfi hafi þó ekki litið dagsins ljós og því séu önnur fagleg störf ekki skráð í Vinnustund. Kennarar skólans og skólastjóri hafi í sameiningu tekið þá ákvörðun að nota kerfi við inn - og útskráningu hvers kennsludags . Fyrir liggur að ágre iningur aðila snýst um túlkun á kjarasamningi þeim sem áður er vikið að og má ætla að sá ágreiningur hafi verið uppi nánast allt frá því að stefnandi var ráðinn til kennslu við tónlistarskólann . Við aðalmeðferð málsins kom fram að á ákveðnu tímabili, senni lega frá 2007 til 2011 hafi vinnuskylda stefnanda verið minnkuð til samræmis við þann tíma sem fór í akstur en ekki hafa verið lögð fram gögn hvað þetta varðar. III Málsástæður stefnanda Stefn andi kveður heimastöð í skilningi kjarasamningsins sem hann tekur laun eftir sé á Hofsós i. Hann byggir kröfu sína um greiðslu yfirvinnu vegna tíma, sem hann hefur varið í akstur á milli vinnustaða á grein 5.3.2. í nefndum kjarasamningi. Í 2. mgr. greinarinnar komi fram að inni kennari vinnuskyldu sína í tilteknu starfi af hendi í tveimur skólum (starfsstöðvum) sem reknir eru af sama vinnuveitanda skuli greiða kennara fyrir ferðatíma milli vinnustaða og skv. akstur s dagbók vegna ferðakostnaðar. Heimilt sé að semj a nánar um hvernig ákvæði greinarinnar skuli framkvæm t í einstökum tilfellum svo og ef um sérstakar aðstæður er að ræða. Stefndi kveður kröfu sína eiga sér styrka stoð í orðalagi ákvæðisins enda hafi ekkert samkomulag verið gert um aðra tilhögun. Stefnand i bendir einnig á í þessu sambandi að í skýringum með ákvæðinu komi 4 eru fleiri en ein þannig að starfsmanni ber i að mæta á ólíkar vinnustöðvar eftir vikudögum gildir e ftirfarandi: Sé vinnustöð og heimastöð innan sama þéttbýlissvæðis ber starfsmanni að sækja vinnu á vinnustöð á eigin vegum og í tíma sínum, sbr. 1. mgr. greinar 5.3.2. Sé vinnustöð fjarri heimastöð greiðist ferðakostnaður og ferðatími frá Stefn andi bendir á að hann hafi leitað liðsinnis stéttarfélags síns og að ítrekað hafi verið fjallað um máls hans og önnur sambærileg á fundum samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og FT án þess að eiginleg niðurstaða fengist í mál hans gagnvart ste fnda. Bendir stefn an di á að hann hafi veitt stéttarfélagi sínu umboð til að koma fram fyrir hans hönd í ágúst 2018 og hann hafi fyrir þann tíma sjálfur, ítrekað, gert athugasemdir við stefnda varðandi þetta og því um árabil gert athugasemdir vegna þess ágreinings sem hér er uppi. Stefnandi vísar til þess að í svari stefnda , þar sem greiðsluskyldu er hafnað, hafi því verið borið við að ekki skuli greiða yfirvinnu vegna aksturs á dagvinnutíma, ekki frekar en í tilvikum annarra starfsmanna sveitarfélaga. Stefnandi telur þ etta svar ekki í samræmi við afstöðu kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga . Stefnandi heldur því fram að stefndi túlki ranglega afstöðu kjarasviðsins og vísar í því efni til bókunar í fundargerð 73. fundar , frá 29. nóvember 2018 , en þar komi fram að um sé að ræða kennara sem kenndi á þremur starfsstöðvum og að hann teldi sig eiga rétt til að fá greitt fyrir akstur á milli starfsstöðvanna samkvæmt grein 5.3.2 í kjarasamningi. Einróma niðurstaða nefndarinna r hafi verið sú að í skýringarákvæði við nefnda grein um akstur til og frá vinnu segi að sé vinnustöð fjarri heimastöð greiðist ferðakostnaður og ferðatími frá heimastöð. Í bókun fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga í nefndinni kemur fram að skólastjóri beri ábyrgð á og skuli hafa yfirsýn yfir það hvort kennari sem hjá honum starfar uppfylli allan sinn vinnutíma og hann ráðstafi tíma til faglegra starfa, skipuleggi faglegt starf og kennslu í skólanum ásamt því að skipuleggja endurmenntun og starfsdaga. Í bókuninni segir einnig að ef það sé staðfest af skólastjóra að öllum samningsbundnum vinnutíma sé skilað beri sveitarfélaginu að greiða yfirvinnu vegna aksturstíma milli starfsstöðva eða semja um greiðslu fyrir það vinnuframlag sem í akstrinum felst. Samb and íslenskra sveitarfélaga líti svo á að skilyrði þess að fá greidda yfirvinnu vegna aksturstíma sé að starfsmaður hafi uppfyllt 1.800 klst. árlegt vinnuframlag miðað við fullt starf og skili öllum sínum vinnutíma skv. kjarasamningi. Fulltrúar FT í nefndi nni létu þá m.a. bóka að akstur flokkist ekki undir önnur fagleg störf 5 og að ekki sé heimilt að reikna tíma sem fer í akstur milli vinnustöðva inn í starfshlutfall. Einnig kom fram í bókun FT að það þurfi að vera skýrt í upphafi skólaárs hvernig skólastjór i ráðstafi vinnu kennara til faglegra starfa og verkefna. Starfmönnum beri almennt að hlíta lögmætum fyrirmælum yfirmanns og það sé á ábyrgð skólastjóra að fylgjast með því að starfsmenn sinni starfi sínu. Stefnandi byggir á því að ítrekað hafi komið fram að tími sem fer í akstur falli ekki undir önnur fagleg störf samkvæmt kjarasamningi. Þá liggi og fyrir að yfirvinnu sé unnt að inna af hendi á dagvinnutíma andstætt því sem stefndi haldi fram. Stefnandi áré ttar að hann sé í fullu starfi hjá tónlistarskólanum og vinnutími hans skiptist samkvæmt kjarasamningsgrein 2.1.6.2. Þar komi fram að skólastjóri ráðstafi vinnu kennara til faglegra starfa og verkefna eftir þörfum skólans. Árlegur vinnutími sé 1.800 klukku stundir . Í greininni segi að árleg vinna á skóladögum (kennslutíma) nemenda skiptist í kennslu, tónleika, tónfundi og önnur fagleg störf auk þess sem tiltekið sé hversu margar stundir falli undir kaffitíma og vinnuhlé. Með öðrum faglegum störfum sé átt við undirbúning og úrvinnslu kennslu, æfingar og annað sem skólastjóri ákvarði. Stefndi byggir á því að hann hafi uppfyllt vinnuskyldu sína og aksturstíminn sé hrein viðbót. Stefnandi vísar einnig til fleiri bókana á fundum samráðsnefndarinnar þar sem tekin voru fyrir samkynja mál. Á 48. fundi nefndarinnar, 9. nóvember 2011, hafi hún fjallað um erindi vegna aksturs til og frá vinnu. Málið hafi snúið að því hvort starfsmanni bæri að ferðast með rútu sem á ákveðnum tímum ga ngi milli staða eða fái greitt fyrir a ð nota eigin bíl. Niðurstaða nefndarinnar í þessu máli hafi verið sú að ef vinnuveitandi krefjist þess að starfsmaður notist við áætlunarbíl beri honum að greiða fyrir heildarferðatíma, þar með talinn tíma sem fer í að bíða eftir áætlunarbílnum. Nefndin ha fi einnig fjallað um svipað efni á 17. fundi sínum. Þar hafi verið til umfjöllunar mál tónlistarkennara sem kenndi á fleiri en einni starfsstöð. Í niðurstöðu nefndarinnar komi fram að það séu kenndar stundir sem ákvarði starfshlutfall og óheimilt að taka a nnað inn í það. Það sé því ekki heimilt að reikna tíma, sem fer í akstur milli vinnustöðva, inn í starfshlutfallið. Stefnandi bendir einnig á bókun frá 60. fundi nefndarinnar, 24. september 2013. Í bókun þess fundar sé vísað til þess að svipuð mál hafi ver ið tekin fyrir á 17. og 28. fundi nefndarinnar og þar rakið hvað bókað var á 17. fundi nefndarinnar. Einnig komi umfram vikulega vinnutímaskyldu þótt á dagvinnutímabili sé . Vikuleg vinnuskylda afmarkast af kenndum stundum og afleiddum störfum skv. gr. 2.1.6.2. Þá er jafnframt 6 vísað til fyrri afgreiðslu samstarfsnefndar frá 28. fundi hennar þann 29. nóvember 2006 eglan varðandi greiðslu r fyrir yfirvinnu sé sú að þær skuli inntar af hendi ef unnið er lengur en nemur vinnuskyldu sbr. gr. 2.1.6.2. Ef aksturstími leiði til þess að unnið sé umfram skyldu skuli greiða fyrir það með yfirvinnu. Loks eru settar upp þrjár sp urningar. Í fyrsta lagi er spurt hvort sá tími sem fer í akstur flokkist undir önnur fagleg störf og er þeirri spurningu svarað neitandi. Í öðru lagi á hvaða taxta skuli greiða fyrir aksturstíma sem ekki rúmist innan annarra faglegra starfa. Svarið við þe irri spurningu er að greiða skuli með yfirvinnu annarri en kennslu sbr. gr. 1.7.5. Loks er spurt hvort heimilt sé að auka starfshlutfall kennara sem nemur þeim tíma sem fer í akstur milli starfsstöðva og er þeirri spurningu svarað neitandi. Stefnandi fell st ekki á að aksturstími geti fallið undir önnur fagleg störf sem þá rúmist innan vinnutíma. Aksturstími falli ekki undir skilgreiningu á faglegum störfum og þá heldur stefnandi því fram að hann hafi ávallt sinnt öðrum faglegum störfum sem samsvara fullu starfshlutfalli hans. Jafnframt bendir stefnandi á að skólastj óri hafi ald rei vikið að því að akstur milli starfsstöðva teljist til faglegra starfa. Teldist svo vera væru raunveruleg fagleg störf hans minni að umfangi sem því nemur og þá nytu nemendur ekki faglegra starfa hans svo sem undirbúningi sem kjarasamningur og aðalnámskrá skólans mæla fyrir um. Stefnandi byggir á því að skólastjóri beri ábyrgð á ráðstöfun vinnu kennara til þeirra faglegu starfa og verkefna sem starfsemi skólans kalli á hverju sinni. Skólastjóri hafi aldrei ætlað honum að uppfylla skyldur sín ar í þessum efnum með akstri. Til þess að svo gæti verið hafi það þurft að koma skýrt fram hjá skólastjóra en um leið hefði slík ákvörðun ekki verið í samræmi við kjarasamninginn líkt og áður hefur komið fram. Stefnandi vísar einnig til sameiginlegra bókan a á fundum samstarfsnefndarinnar um skýringu á kjarasamningsákvæðum sem áður er vikið að . Að mati stefnanda er stefndi bundinn af þeim skýringum sem þar komu fram enda h afi hvorki stefndi né Samband íslenskra sveitarfélaga leitast við að fá þeim breytt við síðari kjarasamningsgerð. Byggir stefnandi á því að í bókunum samstarfsnefndarinnar hafi ágreiningsefnum málsins verið svarað. Í stefnu geri stefnandi grein fyrir því hvernig hann reiknar kröfu sína út en ekki er lengur ágreiningur um þann útreikning og því ekki efni til að gera sérstaklega grein fyrir honum hér. 7 IV Málsástæður stefnda Stefndi byggir á því að akstur stefnanda milli starfsstöðva tónlistarskólans falli innan 100% starfsskyldu stefnanda sem sé bundin við dagvinnu, enda sér þar um að ræða vin nu að faglegu starfi og verkefnum sem starfsemi skólans kallar á. Í ráðningarsamningi stefnanda sé mælt fyrir um fullt starf og ekkert meira. Stefnand i hafi allt frá ráðningu mátt þekkja að kennarar við skólann hafi þurft að fara á milli starfsstöðva á vin n utíma sínum og það sé áréttað í meginte x ta ráðningarsamningsins. Stefnandi hafi því allt frá því að hann réði sig til vinnu við skólann getað gengið út frá því að það væri óhjákvæmilegur hluti starfs hans að fara á milli starfsstöðva skólans. Stefndi byg gir á því að stefnandi haldi því ranglega fram að hann eigi rétt á að fá greitt, og þá samkvæmt eftirvinnutaxta, fyrir aksturstíma milli starfsstöðva skólans, þótt akstur fari fram á dagvinnutíma og óháð því hvort stefnandi uppfylli vinnuskyldu sína. Stefn andi hafi ekki lagt fram gögn sem sanni að aksturinn hafi farið fram utan hefðbundins dagvinnutíma. Auk þess hafi stefnandi einfaldlega ekki lagt fram gögn sem sanna raunverulega tilhögun vinnu hans. Slík gögn hafi stefnanda borið að leggja fram í upphafi enda mátti honum vera ljóst að stefndi myndi andmæla framlagningu gagna á síðari stigum líkt og fram kom í greingargerð hans í fyrra máli um sama efni sem vísað var frá dómi svo og í umfjöllun um frávísun þessa máls. Stefndi vísar til þess að í 2.1.9 í kj arasamningi komi fram að skólastjóri skuli ákveða dagleg mörk viðverutíma, sem skuli, eftir því sem við verður komið, liggja innan marka dagvinnutímabils. Stefnandi hafi ekki sýnt fram á að það hafi ekki verið gert en stefndi heldur því fram að það sé stef nanda að sanna frávik frá þessari skyldu. Jafnframt vísar stefndi til þess að skólastjóri ráðstafi vinnu kennara til þeirra faglegu starfa og verkefna sem starfsemi skólans kallar á, sbr. grein 2.1.6.2. í kjarasamningi. Hér sé átt við undirbúning og úrvinn slu kennslu, æfingar og annað það sem skólastjóri ákvarðar. Stefnandi hafi ekki sannað að fagleg og önnur störf fylli 100% vinnuskyldu hans. Þá heldur stefndi því fram að akstur milli starfsstöðva teljist til faglegra starfa eins og það hugtak er skilgrein t í grein 2.1.6.2. Þetta leiði til þess að akstur falli innan 100% starfsskyldna tónlistarkennara, enda sé ekki um það að ræða að raunverulega sé unnið umfram fulla vinnuskyldu. Þá telur stefndi að akstur falli ekki undir skilgreiningu vinnuréttar á hugtak klukkustunda daglegs vinnutíma á dagvinnutímabili eins og það er skilgreint í 8 kjarasamningi. Þessi túlkun sé í samræmi við það sem fram kemur í fundargerð 28. fundar samstarfsnefndar. Stefndi mótmælir því að stefnandi hafi sýnt fram á að akstur hans hafi farið fram á yfirvinnutíma og þá hafi stefnandi ekki sýnt fram á að uppgjöri á launum til hans hafi verið áfátt. Stefndi hafi ekki lagt fram nein gögn, svo sem viðveruskrár eða annað, v arðandi hvenær hann hafi lokið fullri dagvinnu í raun og veru. Í málatilbúnaði stefnanda sé ekki vikið að því hvernig stefnandi nái að jafnaði 40 klukkustundum á viku yfir árið, sbr. grein 2.1.6 í kjarasamingi. Sökum þess að stefnandi hafi ekki fært sönnur á yfirvinnu sína telur stefndi að honum sé óskylt að greiða fyrir yfirvinnu. Hvað þetta varðar bendir stefndi á að tónlistarskólinn starfi minna en 37 vikur á ári og þá dreifist vinnuskyldan á styttra tímabil sem leiðir til þess að vinnuskylda hverrar vik u eykst. Stefndi byggir einnig á því að það sé skylda starfsmanns, skv. almennum reglum vinnuréttarins, að skrá vinnustundir sínar. Skyldan sé rík a ri þegar erfitt er fyrir vinnuveitanda að fylgjast með og sannreyna að vinnuskyldunni sé sinnt. Stór hluti s tarfa stefnanda fari fram utan veggja skólans, t.d. æfingar og símenntun. Vegna þessa hafi stefndi ekki tök á að fylgjast með því hvort skráning stefnanda á vinnuframlagi hans sé rétt og því sé ósanngjarnt að láta hann bera hallan n af því. Stefndi vísar ei nnig til reglna hans um viðveruskráningu sem nái til stefnanda. Stefn an da beri því, líkt og öðrum starfsmönnum stefnda, að nota viðverukerfi vegna allrar vinnu á vegum stefnda. Stefnandi hafi hins vegar ekki lagt fram nein gögn um skráningu viðveru sinnar og heldur ekki gögn um akstur sinn þrátt fyrir að honum hafi mátt vera ljóst mikilvægi þess að tryggja sönnun fyrir kröfum sínum. Af skorti á þessum gögnum verði stefnandi að bera hallann. Stefndi kveðst skilja kröfu stefnanda á þann veg að stefnandi telj i að hann eigi rétt að fá greidda yfirvinnu fyrir þann tíma sem fór í akstur óháð því hvort um raunverulega yfirvinnu hafi verið að ræða. Stefndi andmælir þessu og heldur því fram að stefndi eigi ekki að fá greidd laun fyrir annan akstur en frá heimastöð s em sé á Sauðárkróki. Síðan verði stefnandi að sanna þann tímafjölda sem hann geri kröfu um að fá greitt fyrir. Stefndi byggir á því að akstur stefnda hafi farið fram á dagvinnutímabili og það sé í verkahring stefnanda að sýna fram á að vinnan hafi ekki ver ið innan dagvinnuskyldu. 9 undirbúning og úrvinnslu kennslu, æfingar og annað sem skó lastjóri ákvarðar. Akstur milli starfsstöðva ráðist af ákvörðun skólastjóra og því eðlilegt að tíminn sem í aksturinn fer rúmist innan annarra faglegra starfa. Túlkun stefnanda fari gegn grunnreglum kröfu - og vinnuréttar um gagnkvæmni og greiðslu verkkaups . Ef fara eigi gegn þessum grunnreglum þurfi skýrt ákvæði í kjarasamningi. Stefndi hafnar því að umfjöllun á 78. og stefnandi heldur fram enda hafi nefndin ekki fjalla ð um yfirvinnukaup vegna vinnu sem unnin er í dagvinnu. Stefndi byggir á því að stefnandi hafi sýnt af sér tómlæti við innheimtu krafna sinna. Vísar stefndi til þess að stefnandi, sem starfað hafi hjá stefnda og fyrirrennurum hans í áratugi, hafi að fullu fengið greitt fyrir vinnu sína í þágu stefnda og hann hafi ekki gert athugasemdir fyrr en á síðari hluta ársins 2018. Því helgi venja framkvæmd launaútreiknings stefnda. Stefnandi bendir jafnframt á að rekstur tónlistarskóla sé ekki meðal lögbundinna verk efna stefnda. Því liggi í augum uppi að stefndi hefði þurft að taka aðrar ákvarðanir varðandi fjármögnun reksturs skólans ef kröfur stefnanda hefðu komið fram fyrr. Við mat á tómlæti stefnanda verði því að horfa til sjónarmiða um tillitskyldu gagnvart þeim sem krafan beinist að. Stefnandi hafi ekki fylgt kröfum sínum eftir með tölulegri framsetningu og rökstuðningi sem honum bar til þess að unnt sé að fallast megi á með honum að hann hafi haldið meintum rétti sínum nægjanlega til laga. Í þessu sambandi vísa r stefndi til þess sem áður er fram komið um skort á gögnum og rökstuðningi að baki kröfunni. Að mati stefnda hefur stefnandi sýnt af sér slíkt tómlæti að sýkna b e ri hann af kröfum stefnanda. Bendir stefndi á dóm Hæstaréttar í máli nr. 304/2010 hvað þetta varðar og þess að stefndi hafi starfað við skólann frá 2002. Hvað varakröfu um lækkun krafna stefnanda byggir stefndi á því að stefnandi geti aldrei átt kröfu um greiðslu launa fyrir akstur milli Hofsóss og Sauðárkróks. Stef n andi miði ranglega við að hann hafi heimastöð á Hofsósi en hið rétta sé að aðsetur skólans er á Sauðárkróki. Stefndi bendir á að í fundargerð 73. fundar samráðsnefndarinnar komi m.a. fram að starfsmaður skuli á eigin vegum sækja vinnu til fast s ráðningarstaðar (heimastöðvar) á eigin ve gum og í tíma sínum. Stefndi mótmælir kröfu stefnanda um dráttarvexti og vísar til þess að stefnandi geri ekki grein fyrir því hvenær í hverjum mánuði hann eigi rétt til yfirvinnu. Tímamörk sem tilgreind eru í stefnu geti ekki verið fyrr en síðla hvers árs að teknu tilliti til 1.800 klukkustunda vinnuskyldu. Einnig verði að taka tillit til þess að mótuð fjárkrafa stefnanda 10 kom ekki fram fyrr en í stefnu þessa máls. Telur stefndi því eðlilegt að miða upphaf dráttarvaxta við þann tíma, sbr. 3. mgr. 5. gr. lag a um vexti og verðtryggingu. V Niðurstaða Ágreiningur máls þessa snýst í aðalatriðum um það hvort stefnandi eigi rétt til að fá greidda y f ir vinnu fyrir þann tíma sem hann ók milli starfsstöðva tónlistarskólans. Ekki er ágreiningur um að aksturinn hafi í ra un átt sér stað . Af hálfu stefnda er m.a. á því byggt að ósannað sé að stefnandi hafi í raun unnið fullan vinnutíma og að aksturstími hans sé umfram vinnuskyldu hans. Stefnandi heldur því hins vegar fram að hann hafi uppfyllt vinnuskyldu sína og aksturstími sé því umfram v innuskyldu. Vinnutími tónlistarkennara er skilgreindur í kjarasamningi sem stefnandi tekur laun eftir. Á þeim tíma sem mál þetta tekur til var árleg vinnuskylda sundurliðuð í grein 2.1.6.2. Stefnandi er og hefur verið í fullu starfi við skólann og í þágildandi grein 2.1.6.2 er vinnutíma fyrir kennara sem kennir grunnnám líkt og stefnandi gerir skipt með ákveðnum hætti. Þannig er mælt fyrir um að á skóladögum sk yldi 705 tímum varið í kennslu, 88 tímum í tónleika og tónfundi, 581 tíma í önnur fagleg stö rf, kaffitímar og vinnuhlé t öldust 212 stundir. Auk þessa var vinna kennara við undirbúning og frágang fyrir og eftir kennslutíma 64 klukkustundir. Þeim tíma sem vantar upp á fulla vinnuskyldu sk yldi varið til undirbúnings og símenntunar að hámarki 150 kl ukkustundir, utan starfstíma skóla. Samtals var árleg vinnuskylda því 1.800 klukkustundir. Það er hluti af skyldum starfsfólks almennt að mæta stundvíslega til starfa og hefur atvinnurekandi eftirlit með skráningu starfsmanna sem er skylt að fara eftir re glum um skráningu. Sé stimpilklukka á vinnustað ber starfsmanni að nota hana. Í málinu liggur fyrir að stefnandi hefur að jafnaði ekki skráð viðveru sína í viðverukerfi stefnda fyrir utan það að hann kveðst hafa skráð þegar hann mæt ti til vinnu að morgni o g þegar hann yfirg af starfsstöð sína. Núverandi viðverukerfi sem stefndi notar býður upp á að viðvera sé skráð rafrænt en óljóst er hvenær það kerfi var tekið í notkun. Sveinn Sigurbjörnsson s kólastjóri tónlistarskólans frá 1999 , næsti yfirmaður stefnda , b ar hér fyrir dómi að hann hafi ekki krafist þess af kennunum skólans að þeir skrái viðveru sína . Af þessu verður ekki annað ráðið en að stefndi hafi unað við að tónlistarkennarar notuðu ekki viðverukerfi ð sem í notkun var á hverjum tíma. Verður því við það að miða að stefndi beri hallann af skorti á skráningu á vinnutíma stefn an da. 11 Við mat á því hvort fram sé komin nægjanleg sönnun fyrir því að stefnandi hafi uppfyllt vinnuskyldu sína er að mati dómsins rétt að horfa til yfirlýsingar og vættis skólastjóran s um að stefnandi hafi alla tíð uppfyllt 1.800 stunda vinnuskyldu sína. Í þessu efni ve r ður einnig horfa til þess að stefnandi hefur ekki af yfirmanni sínum verið krafinn um skráningu vinnutíma síns utan veggja skólans og þess að fyrir liggur að önnur vinn a en kennsla fer að jafnaði fram utan veggja skólans , þar sem þar er ekki aðstaða til að sinna öðrum faglegum störfum. Það er niðurstaða dómsins að stefnandi hafi fært fram nægjanlega sönnu n þess efnis að hann hafi skilað þeim vinnustundum sem honum bar á hverju ári en akstur milli starfsstöðva hafi verið þar fyrir utan. Fyrirmæli starfsmanna stefnda til skólastjóra í þá veru að skólastjóra bæri að skipuleggja starf skólans með þeim hætti að akstur rúmaðist innan árlegrar vinnuskyldu breyta engu þar um. Ha fi skólastjórinn ekki farið eftir fyrirmælum yfirmanna sinna, og þau yfir höfuð framkvæmanleg innan þess sem fram kemur í kjarasamningi , er ekki við stefnanda að sakast í þeim efnum. Þá er til þess að l í ta að skólastjórinn bar að ekki væri unnt að koma akstri fyrir innan 1.800 tíma vinnuskyldu nema taka annað út í staðinn eða minnka kennsluskyldu og því hafi aksturstíminn verið viðbót við fulla vinnuskyldu stefnanda . Þá er og til þess að líta að á 60. fundi samráðsnefndarinnar frá 24. september 2013 koms t nefndin að þeirri niðurstöðu að akstur gæti ekki talist til annarra faglegra starfa. Að fenginni þeirri niðurstöðu að stefn an di hafi sinnt 1.800 klukkustunda vinnuskyldu sinni og að sá tími sem fór í akstur hafi því verið umfram þá skyldu þarf að taka af stöðu til þess hvort stefnandi hafi fært fram næga sönnu um hversu mikill tími fór í aksturinn. Ágreiningslaust er að aksturstími falli undir vinnutíma . Stefnandi heldur því fram að hann hafi samviskusamlega skráð akstur sinn í akstursbók sem sé í vörslum stefnda. Skráninguna kveður hann byggða á skóladagatölum hvers árs. Stefndi hefur hins vegar ekki lagt akstursbækurnar eða samantekt úr þeim fram þrátt fyrir að stefnandi hafi skorað á hann að gera það. Að þessu gættu er, við úrlausn málsins, ekki efni ti l annars en að leggja til grundvallar að stefnandi hafi ekið þær ferðir sem hann byggir á en akstursbækur hefðu getað gefið skýra mynd af akstrinum. Að teknu tilliti þess að stefndi hefur ekki gert athugasemdir við þann aksturstíma milli starfsstöðva sem s tefnandi miðar við og að teknu tilliti til vegalengda milli starfsstöðva skólans er það mat dómsins að krafa stefnanda miðist við eðlilegan aksturstíma sem eðli máls getur 12 stundum verið styttri eða lengri eftir færð og veðri. Hefur stefnandi því fært fram næga sönnun fyrir þeim tíma sem fór í akstur milli starfsstöðva. Stefndi heldur því fram að stefnandi sé ekki með svokallaða heimastöð á Hofsósi þar sem hann býr. Stefnandi geti því ekki krafist greiðslu fyrir akstur frá Hofsósi til Sauðárkróks þar sem hon um hafi borið að mæta til vinnu. Hafi staðið til að stefnandi hefði heimastöð á Hofsósi hafi það þurft að koma fram í ráðningarsamningi. Hvað þetta varðar er til þess að líta að stefndi heldur úti tónlistarkennslu á Hofsósi. Til þess að svo megi vera þarf eðli máls samkvæmt kennara. Fyrir liggur að stefnandi hefur lengi búið á Hofsósi og stærsti hlut i kennslu hans farið þar fram. Í ráðningarsamningi stefnanda segir að hann sé ráðinn til starfa við tónlistarskóla viðkomandi sveitarfélags/byggðasamlags eða ei nkaskóla. Í því felist að vinnuveitanda sé heimilt að flytja starfsmann milli vinnustaða/starfsstöðva við tónlistarskóla viðkomandi sveitarfélags/byggðasamlags. Annað er ekki tekið fram um starfsstöð stefnanda. Grein 5.3.2. fjallar um akstur til og frá vin nu og þar segir að starfsmaður skuli sækja vinnu til fasts ráðningarstaðar (heimastöðvar) á eigin vegum og í tíma sínum. Stefndi hefur lengi lagt stefnanda til bifreið til aksturs milli starfsstöðva sem bendir eind r egið til þess að stefndi hafi í raun liti ð svo á að heimastöð stefnanda væri á Hofsósi , ella hefði bifreiðin verið til staðar fyrir stefnanda á Sauðárkróki. Þá kom fram í vætti skólastjóra hér fyrir dómi að kennarar skólans hafi starfsstöð þar sem þeir búa og því sé heimastöð stefnanda á Hofsósi. Að teknu tilliti til þessa er rétt að miða við að stefnandi hafi heimastöð á Hofsósi. Með vísan til þess sem að framan er rakið ber stefnda að greiða stefn an da fyrir þann tíma sem fór í akstur og er fallist á að stef n an di hafi nægjanlega gert grein fyrir þeim tíma. Stendur þá eftir að taka afstöðu til þeirrar málsástæðu stefnda að krafa stefnanda sé niður fallin vegna tómlætis. Óumdeilt er að stefnandi hefur um árabil haft uppi athugasemdir við stefnda og fyrirrennara hans vegna kröfunnar. Hann leitaði ti l stéttarfélags síns vegna þessa eigi síðar en á árinu 2018 . Ágreiningurinn var ítrekað ræddur á fundum samráðsnefndar svo sem áður er rakið. Hins vegar fékkst ekki niðurstaða í málið sem aðilar féllust á. Stefnandi höfðaði mál hér fyrir dómi 30. maí 2020 sem vísað var frá dómi og í framhaldi af því höfðaði hann mál þetta. . Þá má ráða að á einhverjum tíma hafi stefnandi leitast við að koma á móts við kröfur kennara við skólann með því að lækka starfshlutfall þeirra. Þá hafi stefndi einnig um tíma greitt ke nnurum úr svokölluðum launapotti til að vega upp á móti tíma sem fór í akstur en það fyrirkomulag var, að sögn skólastjóra, aflagt vegna 13 andstöðu stefnda. Stefnandi hefur því í langan tíma reynt að fá kröfu sína viðurkennda af stefnda en án árangurs og hef ur ekkert komið fram sem bendir til þess að stefndi hafi mátt ætla að stefnandi hafi sætt sig við afstöðu stefnda til kröfunnar . Að mati dóms n is hefur stefnandi ekki sýnt af sér slíkt tómlæti að krafa hans s é af þeim sökum niður fallin. Ekki eru efni til a nnars en að fallast á með stefnanda að stefnda beri að greiða honum samkvæmt yfirvinnutaxta enda allur tíminn sem fór í akstur umfram vinnuskyldu. Rétt þykir að krafan beri dráttarvexti frá 7. júní 2020 en þann dag var mál þetta var höfðað. Við aðlameðfer ð málsins féllst stefnandi á það sjónarmið stefnda að sá hluti kröfu stefnanda sem er eldri en fjögurra ára miðað 30. maí 2020 sé niður fallin vegna fyrningar. Krafa stefnanda verður því tekin til greina eins og í dómsorði greinir. Í samræmi við úrslit málsins verður stefnda gert að greiða stefn an da málskostnað sem telst hæfilega ákveðinn 900.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Við ákvörðun málskostnaðar er tekið tillit til þess að tvö önnur samkynja mál voru rekin samhliða máli þess u. Verulegur d ráttur hefur orðið á meðferð máls þessa hér fyrir dómi sem skýrist m.a. af því að fyrst var það flutt um kröfu stefnda um frávísun og að úrskurði þar um gegnum voru tvö önnur mál, að stórum hluta samkynja, einnig flutt um frávísun en sá málflutningur tafði st nokkuð vegna forfalla. Eftir að frávísunarkröfu í þeim málum var hafnað skilaði stefndi greinargerð varðandi efnishlið þessa máls. Jafnframt var þinghöldum í málunum ítrekað frestað vegna forfalla. Gísli Guðni Hall lögmaður flutti málið fyrir stefn an da en fyrir stefnda flutti málið Björn Jóhannesson lögmaður. Halldór Halldórsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan að gættu ákvæði 1. mgr. 115. gr. laga um meðferð einkamála. Dómsorð: Stefndi, Skagafjörður greiði stefnanda, Einari Þorvaldssyni 2.728.174 kr ónu r ásamt dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 7. júní 2020 til greiðsludags. Stefndi greiði stefnanda 900.000 krónur í málskostnað. 14 Halldór Halldórsson