Héraðsdómur Reykjaness Dómur 31. mars 2026 Mál nr. S - 307/2026 : Ákæruvaldið ( Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi ) g egn Alberto Santiago Huarcaya Ramirez ( Ingi Freyr Ágústsson lögmaður ) Dómur Mál þetta er höfðað með ák æru héraðssaksóknara, útgefinni 30. janúar 2026, á hendur Alberto Santiago Huarcaya Ramirez, fæddum , ríkisborgara stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 20. nóvember 2025, staðið að innflutningi á samtals 2.581,49 g af kókaíni, með styrkleika 86 - 88%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin flutti ákærði til landsins s em farþegi með flugi nr. FI507, frá Amsterdam í Hollandi til Keflavíkurflugvallar, falin í ferðatösku. Ákærði flutti ferðatöskuna í hótelherbergi nr. á í í Reykjavík og geymdi fíkniefnin í hótelherberginu þar til að kvöldi föstudagsins 21. nóvember 2025 en þá kom tilgreindur aðili á hótelið og veitti fíkniefnunum viðtöku og flutti þau í íbúð í í Reykjavík þar sem lögregla lagði hald á fíkniefnin en ákærði fékk greiddar [5.000] evrur fyrir innflutning fíkniefnanna. Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þess er krafist að ger ð verði upptæk með dómi samtals 2.581,49 g af kókaíni sem hald var lagt á með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974. Þá er þess krafist að gerðar verðar upptækar [5.000] evrur (munaskr.nr. 201682) sem fundust við leit á ákærða vi ð handtöku, með vísan til 1. mgr. 69. gr. og 1. mgr. 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Loks er þess krafist að gerður verði upptækur Samsung farsími (munur nr. 686239) en farsíminn var notaður við framningu brotsins, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 69. Ákærði kom fyrir dóm og játaði sök eftir að ákæruvaldið hafði gert breytingu á ákæru að því er varðar þá fjárhæð er ákærði var sagður hafa fengið greiddar og 2 upptökukröfu. Með hliðsjón af játningu ákærða og því sem fyrir liggur í málinu telst ákærði sannur að sök samkvæmt þeirri heimfærslu sem í ákæru greinir. Við ákvörðun refsingar verður horft til þess að ákærði játar sök og hefur ekki saka feril hér á landi svo vitað sé. Ákærði er kominn yfir sjötugt og samkvæ mt gögnum málsins glímir hann við . Ákæri flutti til landsins rúmlega tvö og hálft kíló af sterku og hættulegu fíkniefni sem ætlað var til sölu og dreifingar. Þegar á allt er horft ákveðst refsing ákærða fangelsi í tvö og hálft ár með frádrætti sem í dó msorði greinir. Fallast ber á upptökukröfu. Ákærði verður dæmdur til greiðslu málsvarnarþóknunar verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar lögmanns, 2. 544 . 480 krónur með virðisaukaskatti , og 520.038 króna annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins fór Haukur G unnarsson aðstoðarsaksóknari með málið. Dómso r ð: Ákærði, Alberto Santiago Huarcaya Ramirez, sæti fangelsi í tvö og hálft ár. Frá refsingunni skal draga með fullri dagatölu gæzluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 23. nóvember 2025 til dómsuppsögu. Up ptæk eru gerð 2.581,49 g af kókaíni, 5.000 evrur og Samsung farsími. Ákærði greiði 2. 544 . 480 króna málsvarnarþóknun verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar lögmanns, og 520.038 króna annan sakarkostnað. Þorsteinn Davíðsson