Héraðsdómur Vesturlands Dómur 9. apríl 2026 Mál nr. S - 99/2026 : Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari) g egn Oleg Vrabie Dómur 1. Mál þetta höfðaði lögreglustjórinn á Vesturlandi með ákæru 6. mars 2026 á hendur ákærða, Oleg Vrabie, kt. ... , ... , ... . Málið var dómtekið 7. apríl 2026. 2. Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða: . desember 2025, í verslun Krónunnar við Dalbraut á Akranesi stolið matvöru samtals að söluverðmæti 2.523 kr. Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. M: 313 - 2025 - 031260 Þess er krafist að ákærði verði dæmdur ti l refsingar og til greiðslu alls 3. Við þingfestingu málsins sótti ákærði þing og játaði sök samkvæmt ákæru. Í ljósi framangreinds voru skilyrði til að fara með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun refsingar. 4. Ákæruvaldið gerir sömu dómkröfur og greinir í ákæru. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. 5. Ákærði hefur skýlaus t játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. 6. Ákærði er fæddur ... . Samkvæmt framlögðu sakavottorði dagsett 6. mars 2026 hefur ákærða tvívegis áður verið gerð refsing fyrir auðgu n arbrot. Þann 13. mars 2024 gekkst ákærði undir greiðslu sektar með sátt lögreglustjóra ns á Suðurlandi fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga og með viðurlagaákvörðun Héraðsdóm s Ve sturlands 28. október 2024 gekkst ákærði undir greiðslu sektar fyrir brot gegn 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga. 7. Við ákvörðun refsingar nú verður litið til þess að ákærði er nú sakfelldur í þriðja sinn fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlag a , innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. sömu laga . Til refsimildunar verður á hinn bóginn litið til þess að ákærði játaði brot sitt skýlaust og kvaðst iðrast gjörða sinna . Þá var verðmætið sem brot ákærða beindist að fremur lítið. 2 8. Með vísan til framang reinds, sakarefni þessa máls, dómvenju og 255. gr. almennra hegningarlaga, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almenn t skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. 9. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. 10. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari. 11. Dóminn kveður upp Snorri Örn Clausen aðstoðarmaður dómara. Dómso r ð: Ákærði, Oleg Vrabie, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr . laga nr. 22/1955. Snorri Örn Clausen