Héraðsdómur Vesturlands D Ó M U R 12. febrúar 2026 Mál nr. E - 3 20 /2025 Dagur Ari Kristjánsson (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf . (Stefán A. Svensson lögmaður) og til réttargæslu íslenska ríkið (Ing v i Snær Einarsson lögmaður) _____________________________________________________________ Lárentsínus Kristjánsson héraðsdómari 2 Dómur Héraðsdóms Vesturlands 12. febrúar 2026 I. Dómkröfur, aðild og málsmeðferð 1. Mál þetta er höfðað 3 . nóv ember 2025. Stefnandi er Dagur Ari Kristjánsson, [...] , og stefndi er Hvalur hf., Miðsandi, 301 Akranesi. Stefndi stefnir til réttargæslu íslenska ríkinu, Arnarhvoli, 101 Reykjavík. 2. Stefnandi krefst þess að stefnda Hval hf. verði gert að greiða stefnanda 3. 676.122 kr. auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 4. nóvember 2025 til greiðsludags. 3. Stefnandi krefst þess til vara að stefnda verði gert að greiða hon um 1. 919.901 kr. auk dráttar - vaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 4. nóvember 2025 til greiðsludags. 4. Stefnandi krefst málskostnaðar úr hendi stefnda. 5. Stefndi krefst sýknu af kröfum stefnanda og málskostnaða r úr hendi stefnanda að skaðlausu. 6. Mál þetta er rekið samhliða fimm öðrum málum þar sem einstaklingar byggja á því að þeir eigi launakröfur á hendur stefnda vegna hvalvertíðar 2023 þrátt fyrir að ekkert hafi orðið úr hvalveiðum það ár vegna ákvörðunar stjórnvalda. Aðalmeðferð í öllum málunum fór fram samhliða 27. og 28. janúar sl. Fyrir dómi gáfu skýrslu stefnandi og Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri stefnda. Þá gáfu skýrslu Guðmundur Steinbach, fjármálastjóri stefnda, Jón Karl Svavarsson, vaktstjóri - Verkalýðsfélags Akraness. Skýrslur forsvarsmanns stefnda og starfsmanna stefnda sem og skýrsla forman ns Verkalýðsfélags Akraness koma til athugunar við úrlausn framangreindra mála að breyttu breytanda. Eftir munnlegan málflutning var málið dómtekið. Réttargæslustefndi skilaði inn greinargerð í málinu þar sem hann rökstuddi þá ákvörðun að hann myndi ekki l áta málið til sín taka. Byggir sú afstaða einkum á þeim grunni að hér sé um að ræða ágreining á milli einkaaðila jafnframt því að vísað er til máls stefnda á hendur réttargæslustefnda fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur nr. E - 2042/2025 þar sem krafist er viðurken ningar á bótaskyldu íslenska ríkisins gagnvart stefnda vegna setningar á reglugerð nr. 642/2023. Í samræmi við framangreint gerir réttargæslustefndi engar kröfur og engar kröfur eru gerðar á hendur honum. 3 II. Málsatvik 7. Stefndi fékk upphaflega leyfi ti l hvalveiða 29. janúar 1947 á grundvelli þágildandi laga nr. 72/1928 um hvalveiðar. Leyfi stefnda var endurnýjað þann 22. október 1959 á grundvelli núgild - andi laga nr. 26/1949 um hvalveiðar. Á grundvelli leyfisins stundaði stefndi hefðbundnar hval - veiðar allt til ársins 1985, er samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins frá 1982 um svokallaðan 0 - kvóta tók gildi, er fól í sér bann við öllum veiðum í atvinnuskyni frá 1986. Hvalveiðar í atvinnuskyni hófust aftur við Íslandsstrendur árið 2006 og munu hafa verið stundað ar síðan , þó með hléum. Stefndi hefur á framangreindu tímabili notið heimilda til veiða á langreyði í atvinnuskyni, samkvæmt gildandi regluverki á hverjum tíma. Gerir stefndi í dag út tvö hvalveiðiskip, auk þess sem starfsemi fer fram í Hvalfirði og Hafnar firði í tengslum við veiðar stefnda. 8. Í málinu er deilt um hvort stefnandi eigi launakröfu vegna hvalveiða sem til stóð að stunda sumarið 2023. Fyrir þá vertíð er ágreiningslaust að stefndi var með í gildi leyfi til veiða á lang - reyði árin 2019 2023, ú tgefið 5. júlí 2019, með tilvísun í 1. gr. laga nr. 26/1949 um hvalveiðar með síðari breytingum. 9. Matvælaráðherra gaf í júní 2023 út reglugerð nr. 642/2023, um breytingu á reglugerð nr. 163/1973 um hvalveiðar, sem undirrituð var 20. júní og birt í Stjó rnartíðindum samdægurs. Samkvæmt 2. gr. reglugerðarinnar var hún sett samkvæmt heimild í 4. gr. laga nr. 26/1949, um hvalveiðar. Var þar í 1. gr. mælt fyrir um að á árinu 2023 skyldu veiðar á langreyðum ekki hefjast fyrr en 1. september 2023. Mál þetta sný st um það hvort , áður en framangreind ákvörðun var tekin í júní 2023, hafi verið komnir á bindandi ráðningarsamningar gagnvart nánar tilgreindum einstaklingum, þ. á m. stefnanda, þannig að þeir eigi rétt til fullra vertíðarlauna án tillits til ákvörðunar r áðherra. 10. Stefndi kvartaði yfir meðferð málsins til umboðsmanns Alþingis sem skilaði áliti þann 5. janúar 2024. Það var álit umboðsmanns að ráðherra hefði við útgáfu reglugerðarinnar skort nægilega skýra stoð í 4. gr. laga um hvalveiðar, eins og sú gre in yrði skýrð með hliðsjón af markmiðum sínum, lagasamræmi og grunnreglum stjórnskipunarréttar um vernd atvinnuréttinda og atvinnufrelsis. Þá yrði að leggja til grundvallar að útgáfa reglugerðarinnar hefði falið í sér fyrirvaralausa og verulega íþyngjandi ráðstöfun m.t.t. stöðu og hagsmuna stefnda. Taldi umboðs - maður, einkum í ljósi réttmætra væntinga félagsins, að við þær aðstæður sem uppi voru við útgáfu reglugerðarinnar, yrði að leggja til grundvallar strangar kröfur til þess að gætt væri meðalhófs m.t.t . stöðu og hagsmuna stefnda. Var það álit umboðsmanns að útgáfa reglugerðarinnar hefði ekki samrýmst kröfum um meðalhóf. 4 11. Stefndi sendi þá 11. janúar 2024 erindi á embætti ríkislögmanns, hvar óskað var eftir við - ræðum við íslenska ríkið um bótauppgjör. Stefndi taldi við blasa í þeim efnum að félagið hefði orðið fyrir stórfelldum tekjumissi af því að geta ekki veitt langreyðar þann tíma sem bannið varði og síðar hagnýtt. Þá hefði félagið orðið fyrir stórfelldum fjárútlátum vegna ákvörðunar ráðherra. Til frádráttar gætu hins vegar komið, í samræmi við kenningar skaðabótaréttarins, spöruð útgjöld þann tíma sem bannið varði, einkum í formi launakostnaðar og annars breytilegs kostnaðar. Varðandi launakostnað væri þess þó að gæta að nánar tilgreind stéttarfélö g hefðu lýst yfir þeirri afstöðu sinni að þau litu svo á að nánar tilgreindir einstaklingar ættu launakröfur á hendur stefnda vegna þess tímabils sem bannið varði. Væri þessi forsenda á annað borð rétt hefði slíkt , eðli málsins samkvæmt , áhrif á afmörkun f járhæðar ætlaðra sparaðra útgjalda við útreikning skaða - bótakröfu, hvar þeim sparnaði væri þá raunar ekki til að dreifa. 12. Stefndi hefur höfðað viðurkenningarmál á hendur íslenska ríkinu til heimtu skaðabóta með stefnu þingfestri 8. apríl 2025. Íslenska ríkið hefur skilað greinargerð og krefst sýknu. Ljóst er að endanleg fjárhæð bótakröfu stefnda á hendur ríkinu kann að ráðast af því hvort nánar tilgreindir einstaklingar, þ. á m. stefnandi, eigi launakröfur á hendur stefnda, líkt og ef til hefð - bundinnar hvalvertíðar hefði stofnast, en fyrir liggur að stefndi hefur ekki greitt laun því til samræmis. Atvik er varða stefnanda sérstaklega 13. Á vormánuðum 2023 réði stefndi að sögn stefnanda einstaklinga, þ.m.t. stefnanda, til starfa við veiðar á langreyðum á hvalvertíðinni sumarið 2023, en fyrirhugað var að veiðarnar myndu hefjast hinn 21. júní 2023. Starfsfólkinu var skipt á tvær vaktir, Nonnavakt og Sæmavakt, og átti hin fyrrnefnda að hefja störf 21. júní 2023 en hin síðarnefnda 22. júní 2023. Stefndi bygg ir reyndar á því sbr. síðar að þarna hafi ekki verið um eiginlega ráðningu að ræða heldur vilyrði um starf. 14. Stefnandi kveðst hafa verið ráðin n til starfa á hvalveiðivertíð 2023 og skráður á Sæmavakt. Þann 20. júní 2023 hafi verkstjóri Sæmavaktar komið þeim boðum til starfsmanna á vaktinni að þeir skyldu mæta til vinnu fimmtudaginn 22. júní 2023 kl. 13:00. Stefnandi hafi í samræmi við framangreint gert ráðstafanir til þess að mæta til starfa 22. júní 2023 og starfa á hvalvertíð næstu þrjá mánuði. 5 15. Daginn sem vertíðin átti að hefjast, eða 21. júní, hafi stefndi sent bréf á stefnanda og annað starfsfólk með tölvuskeyti. Fram kom að matvælaráðherra hefði takmarkað veiðitímabil lang - reyða þannig að það gæti ekki hafist fyrr en 1. september 2023. Af þessum sökum væru forsendur fyrirhugaðra ráðninga brostnar og ekki gæti orðið af þeim. 16. Í kjölfar bréfsins sendi stéttarfélag stefnanda, Verkalýðsfélag Akraness, bréf fyrir hönd félagsmanna þess 23. júní 2023. Í bréfinu var fjallað um erindi stefnda og taldi félagið rétt að taka fram að stefndi Hvalur hf. hefði ráðið starfsfólk fyrir hvalvertíð 2023 og þannig hefði verið komið á tímabundnu ráðningarsambandi milli félagsins og starfsmannanna. Um sambandið giltu almennar reglur vinnuréttarins. Starfsmen nirnir ættu þannig réttindi gagnvart stefnda og að sama skapi bæri fyrirtækið skyldur gagnvart starfsmönnum. Stefndi ætti ekki einhliða rétt á því að enda ráðningarsamböndin án greiðslna. 17. Stefnanda ásamt öðru starfsfólki barst annað bréf frá stefnda 29. júní 2023, en erindið barst líkt og hið fyrra með tölvuskeyti. Í erindinu var áfram fjallað um ákvörðun ráðherra. Fram kom að með ákvörðuninni hefði ráðherra komið fyrirtækinu í opna skjöldu og að mati stefnda væru forsendur brostnar fyrir hvalvertíð 2 023 og ráðningum á henni, a.m.k. fram til 1. september. Í framhaldinu var greint frá því að stefndi hefði verið í sambandi við Verkalýðsfélag Akraness og að verkalýðsfélagið teldi að komnir væru á ráðningarsamningar sem bæri að efna. Stefndi vísaði aftur á móti til þess að hvalvertíð miðaðist við tímabilið frá því að hvalveiðar hæfust og þar til þeim lyki. Þetta tímabil gæti verið háð ytri aðstæðum og gildistíma opinberra leyfa til veiða og vinnslu. Jafnframt teldi stefndi að 3. gr. laga um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum o.fl. ætti við um þær aðstæður sem upp væru komnar og launagreiðslur féllu því niður. Loks kom fram að til vara, væri ráðningarsamningur fyrir hendi, segði stefndi upp þeim samningi, með uppsagnarfresti samkvæmt almennum kja rasamningi Samtaka atvinnulífsins og Verkalýðsfélags Akraness. 18. Í bréfinu kom jafnframt fram að vegna stöðunnar hefði stefndi til skoðunar að bjóða þeim sem áhuga hefðu ráðningu til starfa í Hvalfirði til loka ágústmánaðar 2023 til þess að sinna ýmsum viðhaldsstörfum og skyldum störfum. 19. Framangreint hafði víðtækar afleiðingar fyrir stefnanda enda hafði hann að sögn ekki aðra vinnu sumarið 2023 og höfðu allflest fyrirtæki þegar gengið frá ráðningum fyrir sumarið. Stefn - andi tók því tilboði stefnda um starf við viðhald í Hvalfirði til loka ágústmánaðar 2023 og hóf hann störf 10. júlí 2023. Um hafi verið að ræða nýja ráðningu í annað starf en stefndi hafði ráðið stefnanda í. Stefnandi hafi því orðið eftir sem áður fyrir talsverðu fjártjóni enda starfi ð verið 6 annars eðlis, bæði er varðaði vinnutíma og kaup. Laun stefnanda hafi þannig verið um helmingi lægri en þau laun sem hann hefði fengið vegna vinnu á vertíðinni. 20. Ný reglugerð um veiðar á langreyðum , nr. 895/2023 , var gefin út 31. ágúst 2023. Í kjölfarið hafi verið haldið til veiða hinn 6. september 2023 og hvalveiðivertíðin staðið yfir í 24 daga , til 30. september 2023. Stefnandi kveðst hafa unnið umrætt tímabil og til 4. október 2023 en það hafi verið aðeins brotabrot af þeirri vertíð sem lagt hafði verið upp með. Gerður var tímabundinn ráðningarsamningur 8. ágúst 2023, vegna vinnu á tímabilinu. Aðdragandi ákvörðunar ráðherra og eftirmál 21. Matvælaráðherra undirritaði 10. ágúst 2022 reglugerð nr. 917/2022, um eftirlit með velferð dýra við vei - bundið eftirlit með því að farið væri að lögum um velferð dýra við veiðar á hvölum á hvalvertíð 2022. 22. Þann 17. janúar 2023 bárust stefnda drög að eftirlitsskýrslu MAST með velferð dýra við veiðar á hvölum, sem var afrakstur fyrrnefnds eftirlits. Var stefnda veittur frestur til andmæla sem stefndi sendi 26. janúar 202 3 þar sem stefndi lýsti því að til að geta tekið afstöðu til þess sem segði í skýrsludrögunum, þ. á m. að san nreyna réttmæti/forsendur niðurstaðna, væri stefnda nauðsynlegt að fá í hendur öll þau gögn sem lágu skýrslunni til grundvallar auk þess að benda á að óljóst væri hvort rekið væri stjórnsýslumál í tengslum við skýrsluna. MAST svaraði erindi stefnda 2. febr úar 2023 þar sem fram kom að [e]f stjórnvaldsákvörðun [yrði] tekin á grundvelli þeirra gagna sem lögð hafa verið fram [myndi] slíkt verða tilkynnt til [stefnda]. Stefndi svaraði þessu erindi 4. febrúar 2023 og óskaði eftir að fá myndbandsupptökur sem lágu skýrsludrögunum til grundvallar, þar sem slíkt væri nauðsynlegt til að fá heillega mynd af málinu. Svar við beiðni stefnda barst 22. febrúar 2023 þar sem m.a. var beðist velvirðingar á töfum í málinu sem stöfuðu af miklu gagnamagni. 23. Stefndi svaraði e rindi MAST þann 23. febrúar 2023 og óskaði eftir fresti til andmæla út mars m.a. vegna þess hversu víðfe ð mt og vísindalegt málið væri. Í kjölfarið var stefnda veittur frestur til 31. mars 2023 til að koma á framfæri athugasemdum. Stefndi skilaði inn athuga semdum við skýrslu MAST 31. mars 2023. Í athugasemdum stefnda komu fram viðamiklar athugasemdir og þá einkum við þá aðferð sem beitt var við rannsóknina og niðurstöður hennar. Lokaskýrsla MAST barst stefnda svo rúmum mánuði síðar, n.t.t. 8. maí 2023, þ.e. sama dag og hún var birt á heimasíðu MAST. 7 24. Á heimasíðu MAST sagði m.a. svo um efni skýrslunnar: MAST telur að aflífun á hluta stórhvela við veiðar á Íslandi hafi tekið of langan tíma út frá meginmarkmiðum laga um velferð dýra. Stofnunin telur hins v egar að við veiðarnar hafi verið beitt bestu þekktu aðferðum miðað við þær aðstæður sem þessar veiðar eru stundaðar við og því hafi ákvæði um veiðar í lögum um velferð dýra ekki verið brotin. MAST mun fela fagráði um velferð dýra að fara yfir fyrirliggjan di gögn og meta hvort veiðar á stórhvelum geti yfir höfuð uppfyllt markmið laga um velferð dýra. Ef slíkt er talið mögulegt, þurfa stjórnvöld að setja reglugerð um framkvæmd veiðanna og lágmarkskröfur við þær. Matvælastofnun telur þörf á áframhaldandi eftirliti á komandi vertíð . Vert er að taka fram að skv. gildandi veiðileyfi og lögum um velferð dýra er ábyrgð á að aflífun dýranna sé með ásættanlegum hætti ávallt á höndum framkvæmdaraðila. 25. Framangreint var rökstutt nánar í erindi MAST til ráðuneytisins í tilefni skýrslunnar, hvar stofnunin gerði grein fyrir niðurstöðum sínum en hún taldi að aflífun [hefði] tekið of langan tíma á hlutfalli af þeim dýrum sem voru veidd á veiðitímabilinu 20 22 og [valdið] þeim dýrum meiri sársauka en ásættanlegt er ef horft er til markmiða laganna skv. 1. gr ., en hins vegar væri það mat stofnunarinnar að ákvæði 27. gr. laga um velferð dýra nr. 55/2013 um veiðar hafi ekki verið brotið . Þá taldi stofnunin þörf á áframhaldandi eftirliti á komandi vertíð . 26. Stefndi hefur lagt fyrir dóminn gögn þar sem fram koma svör þáverandi matvælaráðherra á Alþingi og opinberum vettvangi, eftir birtingu skýrslunnar, en þau hafi verið á sama veg, t.d. í ræðustól Alþingis, 8. maí 2023, að [l]eyfið sem þessi framkvæmdaraðilar [sic] [hefðu gilti] til ársins 2023, þ.e. til næstu áramóta og að það væri vandkvæðum háð að afturkalla leyfið sem nú [væri] í gildi . Í kvöldfréttatíma Ríkisútvarpsins sama dag sagði ráðherra að það þyrfti lagagrunn til að kippa þessu leyfi úr sambandi en sá lagagrunnur [væri] ekki fyrir hendi eftir því sem [hún væri] upplýst um í [sínu] ráðuneyti . Á opnum fundi atvinnuveganefndar Alþingis, 23. maí 2023, ítrekaði matvælaráðherra enn frekar fyrri afstöðu sína um afturköllun leyfis hvar hún sagði að [e]ins og nefndarmenn [vissu] þá [væri] afturköllun leyfis íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun, sem [þyrfti] að hafa skýra lagastoð en [ r]áðherrann [gæti] ekki gert neitt annað heldur en það sem þingið [hefði] ákveðið me ð lögu m og væri sú lagastoð ekki fyrir hendi hér . 8 27. Stefndi greinir frá því að eftir að eftirlitsskýrsla MAST lá fyrir hafi engin samskipti átt sér stað milli stefnda og MAST og hafi hann haldið áfram að undirbúa næstu hvalvertíð sem hefjast átti 21. jú ní 2023. Þann 19. júní 2023 kveðst stefndi fyrst hafa orðið þess var og þá úr fjölmiðlum að fagráð um velferð dýra h e fði yfirfarið eftirlitsskýrslu MAST og komist að þeirri niðurstöðu að við veiðar á stórhvelum [væri] ekki hægt að uppfylla þau skilyrði sem nauðsynleg [væru] til að tryggja velferð dýra við aflífun. Þann 20. júní 2023 kl. 11:25, eða degi áður en fyrirhuguð hvalvertíð átti að hefjast, að sögn stefnda að afloknum miklum og flóknum, þ. á m. kostnaðar - frekum, undirbúningi eðli málsins samkvæmt ha fi stefndi fengið tölvuskeyti frá matvæla - ráðuneytinu þess efnis að fyrirhugað væri að takmarka veiðitíma langreyða á árinu 2023 en með skeytinu var sent álit fagráðs um velferð dýra frá 16. júní, sem birst hafði í fjölmiðlum 19. júní. Síðar sama dag hafi svo borist tilkynning um setningu reglugerðar nr. 642/2023. Samkvæmt 1. gr. reglugerðarinnar skyldu veiðar á árinu 2023 á langreyðum ekki hefjast fyrr en 1. september. 28. Í ljósi þessa tímabundna banns stjórnvalda við veiðum á langreyðum sendi stefndi t ölvuskeyti 21. júní 2023 á nánar tilgreinda einstaklinga, þ. á m. stefnanda, þar sem greint var frá því að matvælaráðherra [ hefði ] þann 20. júní 2023, upp á sitt eindæmi og fyrirvaralaust, takmarkað veiðitímabil langreyða, þannig að þær [gætu] ekki hafist fyrr en fyrsta september 2023, samkvæmt því sem [segði] í ákvæði til bráðabirgða við reglugerð nr. 163/1973 um hvalveiðar, eins og henni [hafði] verið breytt af hálfu matvælaráðherra og að [v]egna framangreinds [væru] forsendur fyrirhugaðra ráðninga brostn ar og ekki [gæti] orðið af þeim . 29. Verkalýðsfélag Akraness (VLFA) svaraði erindinu, fyrir hönd félagsmanna sinna, þ. á m. stefnanda, með erindi 23. júní 2023 þar sem fram kom meðal annars að komið hafi verið á tímabundið ráðningarsamband milli félagsins og starfsmanna og að um það samband giltu almennar reglur vinnuréttar . Starfsmenn ættu þannig réttindi gagnvart [stefnda] og fyrirtækið [bæri] skyldur gagnvart starfsmönnum . Stefndi gæti ekki einhliða endað ráðningarsambandið án greiðslna og breytingar á reglugerð gæfu stefnda ekki rétt til að afnema réttindi starfsmanna. 30. Stefndi áréttaði framangreind sjónarmið sín með tölvuskeyti 29. j úní 2023 og kvað ákvörðun ráðherra hafa komið stefnda í opna skjöldu. og að forsendur fyrir hvalvertíð 2023, a.m.k. f ram til 1. september 2023 , væru brostnar og þar með forsendur fyrir fyrirhugaðri ráðningu. Þar fór stefndi yfir réttarstöðuna eins og hún blasti við honum en jafnframt að félagið hefði til skoðunar að bjóða þeim, sem áhuga hefðu á, ráðningu til starfa í Hv alfirði til loka ágústmánaðar það ár til að sinna ýmsum viðhaldsstörfum og skyldum störfum . Fór svo að fjöldi aðila þáði framangreint boð stefnda, þ. á m. stefnandi. 9 31. Lögmaður VLFA ítrekaði afstöðu félagsins í erindi 7. júlí 2023 sem svarað var á sömu lund með bréfi stefnda 27. s.m. á ður, eða 22. j úní 2023, hafði VLFA sent erindi til matvælaráðherra, þar sem lýst var undrun yfir ákvörðun ráðherra sem hefði verið á skjön við fyrri upplýsingar og yfirlýsingar. 32. Eftir að hinu tímabundna banni lauk, o g í kjölfar setningar sérstakrar reglugerðar um veiðar á langreyðum nr. 895/2023, hóf stefndi veiðar í september 2023 og stóðu veiðar fram í lok þess mánaðar, eða svo lengi sem veðurskilyrði buðu, en þegar líði á haust, upp úr mánaðamótum september/október , séu skilyrði til hvalveiða jafnan óhagfelld, ekki síst vegna birtuskilyrða og sjólags. Stefnandi vann einnig hjá stefnda er tímabundna banninu lauk og til loka vertíðar og fékk greidd vertíðarlaun fyrir það tímabil samkvæmt sérstökum ráðningarsamningi se m hann gerði vegna þessa. Stefndi hefur hins vegar ekki talið sér skylt að greiða vertíðarlaun fram að þeim tíma, líkt og stefnandi hefur krafist, sbr. mál þetta. III. Málsástæður og lagarök stefnanda 33. Stefnandi reisir málatilbúnað sinn á því að ráðnin garsamband hafi komist á milli stefnanda og stefnda. Það ráðningarsamband hafi verið tímabundið og miðað við hvalveiðivertíðina 2023, sem fyrirhugað var að hæfist 22. júní sama ár og stæði yfir í um þrjá mánuði. Þar af leiðandi hafi samningssambandið verið óuppsegjanlegt. 34. Stefnda hafi því verið óheimilt að segja stefnanda upp án bóta með bréfi 29. júní 2023. Að sama skapi hafi hvorki verið fyrir hendi skilyrði brostinna forsendna né 3. gr. laga nr. 19/1979. Því telur stefnandi að stefnda beri að greiða honum laun vegna hvalveiðitímabilsins 2023 í samræmi við það samkomulag sem var í gildi á milli aðila. Verði ekki fallist á aðalkröfu stefnanda byggir hann til vara á því að stefnda beri að greiða honum laun á uppsagnarfresti vegna tímabilsins frá 2 2 . jún í 2023 til 31. júlí 2023, í samræmi við ákvæði kjarasamnings og laga um hópuppsagnir nr. 63/2000. Ráðningarsamband hafi verið komið á milli stefnanda og stefnda 35. Um stofnun ráðningarsambands fari eftir almennum reglum samningaréttarins. Þegar tilboð um starf hefur verið samþykkt hefur verið stofnað til ráðningarsambands. Um ráðningarsamninga gildi sú meginregla íslensks réttar að samningar séu óformbundnir. Ráðningarsamband geti þar af leiðandi stofnast með óformlegum hætti og er samningur sem stofnas t hefur með slíkum hætti jafngildur skriflegum samningi. 10 36. Stefnandi hafi haft samband við stefnda vorið 2023 og óskað eftir því að starfa á hvalveiði - vertíðinni komandi sumar. Með vísan til eftirfarandi samskipta stefnanda og stefnda sé ljóst að aðilar komust að samkomulagi um ráðningarsamband sem næði yfir hvalvertíðina 2023. Þann 20. júní 2023 hafi verkstjóri stefnanda svo boðað starfsmenn Sæmavaktar til vinnu fimmtudaginn 22. júní 2023 kl. 13:00. 37. Allar athafnir stefnda hafi verið í samræmi við það ráðningarsamband sem stofnað hafði verið til. Samskipti aðila, háttsemi þeirra og venjur á hvalvertíð leiði til þess að líta verði svo á að komist hafi á bindandi samkomulag milli aðila um vinnusamban d á hvalvertíð 2023. Kominn hafi verið á samningur og stefnda ekki verið heimilt að afturkalla tilboð sitt eftir að stefnandi hafði samþykkt það, sbr. 7. gr. laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, nr. 7/1936. 38. Af samskiptum aðila og venjum á hvalvertíð hafi að sama skapi verið ljóst hvað fólst í samn - ingi aðila og stefndi hafi enga fyrirvara gert um ráðninguna eða önnur atriði ráðningarsambands - ins. 39. Þótt munnlegir og óformbundnir samningar séu jafngildir hvíli þó sú skylda á atvinnure kanda að gera skriflegan ráðningarsamning við starfsfólk. Bregðist hann skyldu sinni geti hann þó ekki komist undan skuldbindingum sínum. Samkvæmt ákvæði 1.13.1 í kjarasamningi Starfsgreina - samband s Íslands (SGS) og Samtaka atvinnulífsins (SA) skal gera s kriflegan ráðningarsamning við starfsmann eða staðfesta ráðningu skriflega, innan tveggja mánaða frá því að starfsmaður hefur störf. Það að skriflegur ráðningarsamningur hafi ekki verið gerður bendi þannig ekki til þess að til ráðningarsambands hafi ekki v erið stofnað enda hafi atvinnurekendur talsvert svigrúm til þess að ganga frá slíkum samningi í kjölfar ráðningar. Sé þannig með engu móti unnt að gagnálykta út frá því að skriflegur ráðningarsamningur hafi ekki verið fyrir hendi heldur verð i að líta til þ eirra aðstæðna sem voru uppi og háttsemi aðila. 40. Loks er bent á að stefndi hafi, í erindi til starfsfólks, þ.m.t. stefnanda, borið fyrir sig bæði brostnar forsendur og 3. gr. laga nr. 19/1979. Forsenda þess að brostnar forsendur geti verið fyrir hendi , sé að samningssamband hafi verið komið á. Hið sama gildi um 3. gr. laga nr. 19/1979, sem stefndi vísaði til, þar sem fjallað sé um þær aðstæður að vinna falli niður vegna hráefnisskorts eða ófyrirsjáanlegs áfalls í fiskiðjuverum eða við upp - og útskipuna rvinnu. Hafi stefndi þannig einnig, með þessum hætti, viðurkennt í verki að stofnað hafi verið til ráðningarsambands. Í þessu samhengi gildi einu þó svo að í bréfi Hvals hf. sé greint á milli réttarstöðu þeirra sem höfðu undirritað ráðningarsamning og þeir ra sem höfðu það ekki. Í báðum tilvikum hafi verið fyrir hendi ráðningarsamband. 11 Tímabundinn ráðningarsamningur uppsögn sé óheimil 41. Í ráðningarsambandinu milli stefnanda og stefnda hafi falist tímabundinn ráðningar - samningur vegna hvalveiðivertíðari nnar 2023. Tímabundinn ráðningarsamningur vísi til ráðn - ingar, þar sem lok samningsins ákvarðist af hlutlægum ástæðum, t.d. tiltekinni dagsetningu, lokum afmarkaðs verkefnis eða tilteknum aðstæðum, sbr. a - lið 1. mgr. 3. gr. laga um tímabundna ráðningu star fsmanna nr. 139/2003. Ljóst sé að stefnandi hafi verið ráðinn til þess að starfa á hvalveiðivertíðinni 2023 og var ráðning hans bundin við þá hlutlægu forsendu. 42. Meginreglan um tímabundna ráðningarsamninga sé að innan þess tíma sem ráðningin tekur til er ekki heimilt að slíta henni með uppsögn. Hafi stefnandi þar af leiðandi mátt búast við því að vera í vinnu hjá stefnda, uns ráðningartímanum lyki við enda hvalveiðitímabilsins, haustið 2023. Ef gera eigi undantekningu frá framangreind r i meginreglu verð i aðilar að semja sérstaklega um það og beri vinnuveitandi sönnunarbyrðina um tilvist slíks samkomulags. Ekkert slíkt samkomulag hafi komist á milli stefnanda og stefnda. 43. Af framangreindum ástæðum hafi stefnda verið óheimilt að slíta ráðningarsamband i aðila. Stefndi hafi verið bundinn af ráðningarsamningi sínum við stefnanda og hafi borið að efna skyldur sínar samkvæmt aðalefni hans og greiða stefnanda umsamin laun út hið umsamda tíma - bil. Það að stefndi réði stefnanda síðar í annað starf h afi engin á hrif á skuldbindingargildi þess tímabundna ráðningarsambands sem hafi verið komið á enda sé um aðskilda ráðningarsamninga að ræða, þó svo að það hafi áhrif á útreikning kröfu stefnanda. Skilyrði brostinna forsendna ekki fyrir hendi 44. Vegna fullyrðinga stefnda í bréfum til stefnanda og annars starfsfólks 21. júní 2023 og 29. júní 2023 þykir stefnanda nauðsynlegt að fjalla jafnframt um þær ástæður sem stefndi hafi borið fyrir sig til réttlætingar slit um ráðningarsambands við stefnanda og annað starfsfólk . H afi stefndi í þessum efnum fyrst og fremst reitt sig á regluna um brostnar forsendur. 45. Meginregla íslensks réttar sé að samninga beri að halda og efna eftir aðalefni þeirra. Af meginreglunni um skuldbindingargildi löggerninga leiðir að þegar samnin gur er kominn á getur aðili almennt ekki losnað undan skuldbindingum sínum. Aðalreglan er þannig sú að samnings - aðilar bera sjálfir áhættuna af því að aðstæður breytist eða forsendur þeirra fyrir samningsgerð bresti. 12 46. Reglan um brostnar forsendur feli í sér undantekningu á framangreindum meginreglum og beri að túlka mjög þröngt. Reglan feli í sér að framkvæma verð i hagsmunamat á því hvað sé sanngjörn og eðlileg niðurstaða, þ.e. hvorum samningsaðila standi nær að bera hallan n af hinum brostnu forsendum. Í því mati komi ýmislegt til skoðunar, m.a. staða aðila og möguleikar þeirra á að sjá fyrir og hafa áhrif á forsendurnar. 47. Við mat á framangreindu sé m.a. lagt til grundvallar að ef samningsaðili mátti sjá fyrir þau atvik sem leiddu til þess að forsend ur brustu, eða hafi séð þau sem nærtækan möguleika, geti hann ekki borið þær fyrir sig. Enn fremur sé litið til þess hvort samningsaðili sem vill bera fyrir sig brostnar forsendur hafi sjálfur valdið eða átt þátt í því að forsendur brest i eða að efndir ver ði erfiðar eða ómögulegar. 48. Það sé hlutverk atvinnurekanda að tryggja að hann hafi tilskilin leyfi til þess að stunda þá atvinnustarfsemi sem hann leggur fyrir sig. Atvinnurekstur sé í eðli sínu áhættusamur og slíkri áhættu verði ekki varpað yfir á starfsmenn, enda hafi þeir ekki gengist við samskonar áhættu. Eðli hagsmunanna hafi þannig þýðingu enda sé ekki um að ræða tvo jafnsetta aðila. Ef fallist væri á að skilyrði brostinna forsendna væru til staðar, væri fallist á að heimilt hafi verið að svipt a stefnanda vinnu sumarið 2023, daginn áður en hann átti að hefja störf, bótalaust. Við hagsmuna - mat hafi einnig þýðingu að stefnandi hafði gripið til ýmissa ráðstafana til þess að geta starfað hjá stefnda á hvalvertíðinni. Fyrirvaralaus tilkynning stefnda hafi því valdið stefnanda umtals verðu tjóni. 49. Það hafi ekki þýðingu í þessu samhengi að forsendur stefnda hafi brostið vegna reglugerðar ráðherra sem stefndi telur að hafi skort lagastoð og ekki verið í samræmi við meðalhóf. Telji stefndi að ábyrgð h víli hjá íslenska ríkinu sé honum rétt að leita réttar síns gagnvart því í stað þess að velta ábyrgðinni af hinni meintu ólögmætu háttsemi á stefnanda og aðra starfsmenn sína. Hugsanlegar kröfur stefnda á hendur íslenska ríkinu breyti hins vegar engu um sk yldur stefnda gagnvart stefnanda. 50. Stefnandi telur rétt að geta þess að skilyrði veiða og háttsemi stefnda hafði verið til skoðunar hjá stjórnvöldum um nokkra hríð. Hafi stefndi því mátt hafa leitt hugann að breyttum aðstæðum. Eftir sem áður hafi stefn di ekki upplýst stefnanda um þessa óvissuþætti í samræmi við trúnaðar - og tillitsskyldur í samningssamböndum. Stefnandi bjó þannig ekki yfir sömu upplýsingum og stefndi en einnig af þessum ástæðum standist ekki við sanngirnismat að varpa ábyrgðinni yfir á stefnanda. 13 Skilyrði 3. gr. laga nr. 19/1979 ekki fyrir hendi 51. Í erindi stefnda Hvals hf. til stefnanda, dags. 29. júní 2023, hafi jafnframt verið vísað til 3. gr. laga um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms - og slysaforfalla, nr. 19/1979. 52. Í ákvæðinu kemur fram að falli niður atvinna hjá atvinnurekanda, svo sem vegna þess að hráefni sé ekki fyrir hendi hjá fiskiðjuveri, upp - og útskipunarvinna sé ekki fyrir hendi hjá skipa - afgreiðslu, fyrirtæki verði fyrir ófyrirsjáanlegu áfalli svo sem vegna bruna eða skiptapa, yrði atvinnurekanda eigi gert að greiða bætur til launþega sinna, þó að vinna þeirra n æ mi eigi 130 klukkustundum á mánuði, enda misstu launþegar þá eigi uppsagnarrétt sinn meðan slíkt ástand var ði . 53. Ákvæðið hafi fyrst verið fest í lög með lögum um rétt verkafólks til uppsagnarfrest s frá störfum og rétt þess og fastra starfsmanna til launa vegna sjúkdóms - og slysaforfalla, nr. 16/1958. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi k omi fram að ákvæðinu sé ætlað að koma í veg fyrir ástæðulausar uppsagnir af hálfu atvinnurekanda, þegar vinna fellur niður af eðlilegum ástæðum. 54. Reglan feli, líkt og brostnar forsendur, í sér undantekningu frá því að samninga beri að halda og efna samkvæmt aðalefni þeirr a. Enn fremur feli hún í sér undantekningu á þeirri meginreglu að áhættu í rekstri verði ekki fleytt yfir á starfsmenn fyrirtækis. Vegna þessa sé ekki unnt að ljá ákvæðinu víðtækari merkingu en leiðir af orðanna hljóðan og samræmist tilgangi ákvæðisins. 55. Ákvæðinu hafi þannig ljóslega ekki verið ætlað að taka til aðstæðna eins og í þessu máli, þar sem heimildir fyrirtækis til atvinnustarfsemi eru takmarkaðar með stjórnvaldsfyrirmælum, enda sé ekki unnt að líta á slíkt sem ófyrirsjáanlegt áfall. Rekstrar aðilar geti ekki búist við að lögum um rekstrarumhverfi þeirra verði ekki breytt. Sé þannig ekki unnt að fella slík tilvik undir undantekningarákvæðið. 56. Til viðbótar sé markmið 3. gr. laga nr. 19/1979 ekki að veita vinnuveitanda heimild til þess að sl íta ráðningarsambandi við starfsfólk, líkt og stefndi hafi gert. Þvert á móti sé markmið ákvæðisins að koma í veg fyrir ráðningarslit. Heimilar það vinnuveitanda ekki að slíta ráðningu og borga ekki laun heldur sé markmiðið að tryggja atvinnu enda þótt lau n falli niður á afmörkuðu tímabili vegna óvænts áfalls. Það myndi þannig beinlínis ganga gegn tilgangi ákvæðisins að beita því í fyrirliggjandi aðstæðum. 14 57. Með sömu rökum og rakin hafa verið að framan get i almenn sjónarmið um force majeure ekki heldur átt við. Um aðalkröfu 58. Aðalkrafa stefnanda miðar að því að gera hann eins settan og hann hefði verið ef hann hefði ver ið í vinnu á hvalvertíð 2023 og fengið laun á vertíðinni í samræmi við samnings samband aðila. 59. Tímabil hvalvertíðar hafi í gegn um árin öðlast fasta og skilgreinda merkingu enda hafi vertíðir ávallt hafist nokkurn veginn á sama tíma og þeim einnig lokið á sama tíma, með aðeins nokkurra daga skekkjumörkum. Hvalvertíð hafi þannig verið um og yfir þrír mánuðir í mörg undanfarin ár. 60. Mótmælir stefnandi þannig fullyrðingum stefnda í bréfi frá 29. júní 2023 þar sem fram komi að hvalveiðivertíðin miði við það tímamark sem hvalveiðar hefjast og að það geti verið háð ytri aðstæðum og gildistíma opinberra leyfa. Væri byggt á túlkun stefn da hefði það í för með sér að vinnuveitandi hefði einhliða ákvörðunarvald um að breyta tímabili ráðningar starfsmanna veru - lega og starfsmenn væru í fullkominni óvissu um efni ráðningarsambandsins. Ljóst sé að slíkt fyrirkomulag væri óframkvæmanlegt jafnt sem það væri í verulegu ósamræmi bæði við megin - reglur vinnuréttarins og samningaréttarins. 61. Stefnandi hafi verið ráðinn á hvalveiðivertíð sem fyrir lá að myndi hefjast í upphafi sumars 2023 og vara fram á haust. Síðar hafi verið slegið föstu að vertíðin skyldi hefjast 2 2 . júní 2023. Telur stefnandi þannig rétt að miða við að upphafsdagur ráðningar hafi verið þann dag. Við afmörkun kröfu sinnar telur stefnandi rétt að miða við að hið tímabundna ráðningar samband hafi átt að vara í um og yfir þrjá mánuði frá 22. júní 2023. Síðasta launatímabil á hval vertíð klárist alltaf jafnvel þó að veiðum sé lokið og almennt taki nokkra daga að sinna frágang i eftir lok vertíðar. Af þeim sökum sé gerð krafa til 4. október 2023 þó að vertíð hafi klárast í lok sept ember en framangreint sé í samræmi við raunverulegan vinnutíma stefnanda. Allt sé þetta þá í samræmi við hvalveiðivertíðir fyrri ára. 62. Fjárhæð kröfu stefnanda á hendur stefnda samanstendur af vangreiddum launum stefnda til stefnanda á tímabilinu frá 21 . júní til 4. október 2023 að frádregnum greiðslum stefnda til stefnanda annars vegar vegna vinnu við viðhald á tímabilinu 10. júlí 2023 5. september 2023 en hins vegar vegna vinnu á vertíð 6. september til 4. október 2023. 15 63. Fjárhæð launa tekur mið af umsömdum launum og hefðbundnu vaktaplani hvalvertíða. Vegna dagvinnu greiddust þannig 2.445 kr., álag nam 1.125 kr., yfirvinna 4.400 kr., greiðslur vegna aksturs 4.400 kr., greiðslur vegna frítökuréttar 11.001 kr. og greiðslur vegna vikulegs frídags 19. 557 kr. 64. Við útreikning vinnutíma er tekið mið af fyrirkomulagi og vinnutíma stefnanda vegna vertíða fyrri ára. Samkvæmt þessu er miðað við að stefnandi hefði mætt í vinnu 21. júní 2023 og fengið átta dagvinnutíma og tvo yfirvinnutíma vegna vinnu umræ ddan dag. Vaktir hefðu svo verið settar á frá miðnætti aðfaranótt 23. júní 2023. Brælufrí hefðu verið tveir dagar samfelldir fyrir hverjar tvær vikur og vikulegir frídagar því einn. Frá og með 6. september 2023 er svo tekið mið af raunverulegu vinnuframlag i stefnanda. 65. Krafan sundurliðist með eftirfarandi hætti: 66. Samtals hefði stefnandi þannig fengið greiddar 6.946.961 kr. fyrir alla hvalvertíðina. Til frádráttar kröfunni kom i þau laun sem stefndi greiddi stefnanda vegna vinnu við viðhald á tíma - bilinu frá 10. júlí 2023 til 5. september 2023 og vegna vinnu á hvalveiðitímabilinu frá 6. septem - ber til 4. október 2023 . Til frádráttar komi þannig 585.242 kr. 1. ágúst 2023 vegna vin nu frá 10. júlí 2023 til 31. júlí 2023, 763.264 kr. 1. september 2023 vegna vinnu á tímabilinu 1. ágúst 2023 til 31. ágúst 2023 og 823.273 kr. 1. október vegna tímabilsins frá 1. til 4. september 2023. Þá komi til frádráttar laun sem stefnandi fékk greidd vegna vinnu á hvalveiðitímabilinu, eða 823.273 kr. 21. september 2023 vegna vinnu á tímabilinu 4. september 2023 til 17. september 2023, 915.004 kr. 5. október 2023 vegna tímabilsins frá 18. s eptember 2023 til 1. október 2023 og 184.056 kr. 19 október 2023 vegna vinnu á tímabilinu 1. október 2023 til 15. október 2023. 67. Samtals gerir stefnandi því kröfu um greiðslu 3.440.776 kr. (sic!) auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 4. nóvember 2025 til greiðsludag s. 16 Um varakröfu 68. Varakrafa stefnanda kemur aðeins til skoðunar ef fallist verður á að stefnanda hafi verið sagt upp störfum hjá stefnda með lögmætum hætti. 69. Stefnandi byggir á því að ef litið verði svo á að honum hafi verið sagt upp með lögmætum hætti eigi hann rétt til greiðslu launa á uppsagnarfresti samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um hóp - uppsagnir nr. 63/2000, sbr. og 9. gr. sömu laga. 70. Með aðgerðum sínum hafi stefndi raunar sagt upp tæplega 200 starfsmanna sinna. Upp - sagnirnar verði ekki rak tar til ástæðna sem tengjast starfsfólkinu og sé því ljóst að um ræðir hópuppsögn í skilningi 1. gr . laga um hópuppsagnir, nr. 63/2000. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laganna skal atvinnurekandi , áformi hann hópuppsagnir, svo fljótt sem auðið er hafa samráð við t rúnaðarmann stéttarfélaga eða, ef slíkum er ekki að dreifa, við annan fulltrúa starfsmanna sem þeir hafa til þess valið, með það fyrir augum að ná samkomulagi. Að loknu samráði við trúnaðar - menn ber vinnuveitanda, samkvæmt 7. gr. laga um hópuppsagnir, að t ilkynna fyrirhugaðar upp - sagnir til Vinnumálastofnunar. Í 8. gr. laganna sé svo mælt fyrir um að uppsagnir samkvæmt lögunum geti fyrst tekið gildi 30 dögum eftir að tilkynning um uppsagnir skv. 7. gr. berast Vinnu - málastofnun. Í 9. gr. laganna komi þá fram að uppsagnarfrestur starfsmanna samkvæmt lögum, kjarasamningum eða ráðningarsamningum breytist ekki þrátt fyrir ákvæði laganna, sbr. þó ákvæði 1. mgr. 8. gr. að því er snertir þá starfsmenn sem eigi styttri uppsagnarfrest en 30 daga. Með framangreindum ák væðum sé því einstaklingum sem eiga við hópuppsögn skemmri upp - sagnarfrest en sem nemur 30 dögum tryggður 30 daga uppsagnarfrestur frá þeim degi er atvinnu - rekandi sendir tilkynningu til Vinnumálastofnunar um hópuppsögnina. 71. Ágreiningslaust megi vera með aðilum að stefndi hafi ekki fylgt fyrirmælum laga um hóp - uppsagnir þegar ráðningarsamningi stefnanda hafi ver i ð sagt upp. Raunar hafi uppsögn ekki átt sér stað með lögmætum hætti fyrr en að loknu samráði eins og hafi verið slegið föstu í dóma - framkvæmd Evrópudómstólsins. 72. Hvað sem framangreindu líður geti stefndi ekki með vanrækslu sinni á því að fylgja fyrir - mælum laga nr. 63/2000 komið sér undan skyldu til greiðslu launa á uppsagnarfresti samkvæmt lögunum. Uppsagnarbréf stefnanda hafi borist honu m 29. júní 2023. Bar stefnda þannig að minnsta kosti að greiða stefnanda laun í uppsagnarfresti í 30 daga eftir þann dag eða til 29. júlí 2023. Bar stefnda þá einnig að greiða stefnanda laun frá upphafsdegi ráðningar og þar til honum hafi verið sagt upp 29 . júní 2023. Sé því gerð krafa um laun frá 2 2 . júní 2023 til og með 29. júní 2023 en laun á uppsagnarfresti frá 30. júní 2023 og til og með 29. júlí 2023. 17 73. Útreikningur varakröfu stefnanda tekur mið af sömu forsendum og útreikningur aðalkröfu hans, þ.e. miðað er við umsamin laun og vinnutími áætlaður miðað við vertíðir fyrri ára. Til frádráttar komi laun sem hann fékk greidd frá stefnda vegna vinnu í júlí 2023, alls 585.242 kr. 74. Varakrafa stefnanda sundurlið i st með eftirfarandi hætti: 75. Samtals gerir stefnandi því kröfu um greiðslu 1.9 19.901 kr. auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 4. nóvember 2025 til greiðsludags. IV. Málsástæður og lagarök stefnda 76. Sakarefni málsins hverfist um hvort stefnandi eigi rétt á fullum vertíðarlaunum, líkt og hann byggir á, ellegar út uppsagnarfrest samkvæmt varakröfu. 77. Stefndi mótmælir öllum málsástæðum stefnanda, þ. á m. varðandi túlkun laga og reglna. E kki er hins vegar gerður ágreiningur um tölulega útreikninga dómkrafna, samkvæmt þeim forsendum sem þeir byggja á. Þá er ekki gerður ágreiningur um upphafstíma dráttarvaxta. Jafnframt liggur fyrir að stefnandi, þ. á m. fyrir tilstuðlan síns stéttarfélags, hefur haldið meintum rétti til haga. Enginn samningur komst á 78. Stefndi byggir á því að ekki hafi komist á skuldbindandi ráðningarsamningur milli málsaðila, með þeim hætti sem stefnandi byggir á. Stefndi vísar til þess að stefnandi hafi ekki skrifað undir ráðningarsamning líkt og tíðkist þegar stofnað sé til tímabundinna ráðningarsambanda hjá stefnda í Hvalfirði. Stefndi hafi aldrei skuldbundið sig til að ráða stefnanda í vinnu. Það sé hvor t tveggja rangt og ósannað að stefn an di hafi fengið staðfestin gu frá stefnda , eða því um líkt, um stofnun ráðningarsambands. Stofnun , þ. á m. gildistaka, ráðningarsambands hafi þvert á móti, og eðli máls samkvæmt líkt og alltaf, þvert á það sem stefnandi staðhæfir, verið bundið því skilyrði/ fyrirvara og háð þeirri f orsendu að til hvalveiða kæmi, enda væri starf stefnanda, kæmi til þess, órjúfanlega tengt hvalveiðum. Hvorki árið 2023, né fyrri vertíðir, hafi stofnun ráðningar - sambanda verið með þeim hætti sem stefnandi virðist telja, sbr. m.a. meintar venjur sem séu r angar og ósannaðar. Hvalvertíð, og þar með stofnun ráðningarsambands vegna þess, miðist við 18 tímabil frá því hvalveiðar hefjist, en vertíðarlaun byrji í tengslum við komu fyrsta hvals í land, og þar til þeim lýkur, sem m.a. getur verið háð ytri aðstæðum og gildistíma opin berra leyfa til veiða og vinnslu. Framangreint endurspegl i st raunar í þeim samskiptum sem stefnandi vís i til, þ. á m. skilaboðum vaktstjóra þann 20. júní. 79. Stefndi hafi aldrei í verki viðurkennt að ráðningarsamband hafi stofnast, líkt o g stefnandi ámálgi í fyrsta sinn í stefnu, hvar stefnandi afbaki erindi stefnda frá 29. júní 2023. Í erindi stefnda þann 29. júní, rétt eins og þann 21. júní, hafi verið gert k i rfilega ljóst, þ. á m. í upphafi erindis, að vegna ákvörðunar ráðherra gæti ekk i orðið af stofnun fyrirhugaðs ráðningarsambands, þ.e. að forsendur fyrir stofnun þess væru brostnar. Í framhaldi hafi verið gerð grein fyrir þeirri afstöðu VLFA að stofnast hefði til ráðningarsambands sem stefndi féllst hins vegar ekki á. Í lok bréfsins h afi í samræmi við það jafnframt verið tiltekið sérstaklega að stefndi hefði til skoðunar að bjóða ráðningarsamband. Af erindum frá VLFA hafi mátt ráða skýrt að stefnanda hafi verið þessi afstaða stefnda ljós. Hvorki stefnandi né aðrir í sambærilegri stöðu hafi enda mætt til vinnu að fenginni frama ngreindri afstöðu stefnda. 80. Stefndi vísar jafnframt sérstaklega til þess að stefnandi hafi aldrei boðið fram vinnuframlag sitt til samræmis við efni meints ráðningarsambands sem hann telur hafa stofnast sem sta ndi þá þegar málatilbúnaði hans og kröfum í vegi. Hafi samningur komist á 81. Verði, þvert á framangreint, litið svo á að stofnast hafi til ráðningarsambands, telur stefndi kröfur stefnanda ekki eiga sér lagalegan grundvöll. 82. Stefndi vísar til þess a ð samkvæmt 3. gr. laga nr. 19/1979 um rétt verkafólks til uppsagnar - frests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms - og slysaforfalla falli niður atvinna hjá atvinnu - rekanda, svo sem vegna þess að hráefni er ekki fyrir hendi hjá fiskiðjuveri, upp - og útskipunar - vinna er ekki fyrir hendi hjá skipaafgreiðslu, fyrirtæki verður fyrir ófyrirsjáanlegu áfalli, svo sem vegna bruna eða skiptapa, og verður atvinnurekanda þá eigi gert að greiða bætur til launþega sinna, þó að vinna þeirra nemi eigi 130 klukkustun dum á mánuði, enda missa launþegar þá eigi uppsagnarrétt sinn meðan slíkt ástand varir. Stefndi byggir á því að skilyrði ákvæðisins séu upp - fyllt að virtum atvikum máls, þ. á m. þeirri staðreynd að af setningu reglugerðarinnar hafi leitt að tímabundið bann var sett við veiðum stefnda, fyrirvaralaust með tilheyrandi aflabresti og um leið tekjufalli, líkt og endurspeglist nánar í framlögðum útreikningum Deloitte ehf. um tekjufall stefnda vegna þessa á hvalvertíð 2023. Svo sem minnisblað Deloitte ehf. beri með sér, og leiðir af sjálfu, þá leiddi af banninu að veiddar langreyðar, og um leið fénýting þeirra, voru til muna 19 færri en ella hefði verið (24 í stað að jafnaði um 150), auk þess sem á sama tíma og tekjusam - dráttur varð hjá stefnda vegna bannsins hafi stef ndi þurft að bera tiltekinn rekstrarkostnað, þ. á m. fastan, svo sem vegna reksturs hvalveiðiskipa og starfsstöðva í Hvalfirði og Hafnarfirði, án þess að tekjur kæmu á móti. 83. Samkvæmt minnisblaðinu sé tjón stefnda vegna tímabundna bannsins metið um 1. 039 m.kr., en til viðbótar komi um 1 ma.kr. yrði fallist á að stefnda bæri að greiða full vertíðarlaun öllum þeim sem voru í sömu eða svipaðri stöðu og stefnandi. Stefndi bendir jafnframt sérstaklega á að bannið hafi verið ófyrirséð en þess utan séu ófyrir séð ytri atvik ekki skilyrði fyrir beitingu ákvæðisins. Vísist jafnframt til umfjöllunar í næstu málsgreinum að breyttu breytanda. 84. Stefndi byggir jafnframt á því að framangreint ákvæði eigi við samkvæmt lögjöfnun, falli stefnandi ekki undir það, enda skilyrði lögjöfnunar um efnislegan sambærileika og hallkvæmni og haganleika reglu sem fundin sé með lögjöfnun fullnægt. Yrðu atvik máls ekki talin falla undir ákvæðið byggir stefndi jafnframt á því að skilyrði lögjöfnunar séu uppfyllt hvað þau varðar , þ. á m. um efnislegan sambærileika og haganleika og hallkvæmni reglu sem fundin er með lög jöfnun. 85. Stefndi vísar jafnframt til þess að fyrir hendi hafi verið óviðráðanleg ytri atvik (force majeure). Efnislegt inntak reglunnar um force majeure sé að ófyri rséð, óviðráðanleg ytri atvik sem séu sérstök í eðli sínu og vald i því að ómögulegt, eða því sem næst, sé að efna samnings - skuldbindingu eigi að hafa áhrif á efndaskyldu eða það hvort eða hvaða vanefndaúrræðum megi beita. Stefndi byggir á því að skilyrði r eglunnar teljist uppfyllt. Setning stjórnvalds fyrirmælanna hafi verið ófyrirséð og raskaði forsendum samningssambandsins, enda leiddi af ákvörðun ráð - herra tímabundið bann við veiðum með tilheyrandi aflabresti og um leið tekjufalli, sbr. umfjöllun í næstu málsgrein um á undan, að breyttu breytanda. Með sömu rökum telur stefndi ljóst að skil - yrðum ólögfestrar meginreglu samningaréttar um brostnar forsendur sé fullnægt. Þá leiði 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga með sömu rök um til sömu niður - stöðu, enda ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera meintan ráðningarsamning fyrir sig að virtum atvikum sem síðar komu til í skilningi ákvæðisins, þ.e. ákvörðun ráðherra í formi stjórnvaldsfyrirmæla um tímabundið bann við v eiðum með þeim afleiðingum sem af því leiddi. Efni meints ráðningarsamnings sé um leið ósanngjarnt eigi hann að halda gildi sínu, eins og ekkert hafi í skorist. Því sé um leið mótmælt að atburðarásin hafi getað talist fyrirséð, enda í engu samræmi við orð og athafnir MAST og matvælaráðherra í undan fara setningar reglugerðarinnar, sbr. að framan , heldur hafi verið um fordæmalausa stjórnvalds athöfn að ræða, þvert m.a. á réttmætar væntingar og stjórnarskrárvarin réttindi stefnda. Hafi stefnda ekki verið 20 um a ð kenna og öll tilskilin leyfi verið til staðar. Stefnanda sé því rétt að sækja bætur á hendur íslenska ríkinu telji hann sig bera skarðan hlut frá borði . 86. Stefndi byggir jafnframt á því að það hafi verið forsenda ráðningarsamnings, hafi hann komist á, og þar með hluti hans, að réttur stefnanda til fullra vertíðarlauna væri háður því að hvalveiðar færu fram, en vertíðargreiðslur hefjist fyrst í tengslum við komu fyrsta hvals í land . 87. Stefndi vísar einnig til þess að hvalvertíð, sem hafi átt að byrja í júní, hafi í reynd lokið með ákvörðun ráðherra og þar með meintri tímabundinni ráðningu stefnanda, en ráðningarsambönd í gegnum tíðina, hafi verið með þeim hætti að þeim ljúki við lok hvalvertíðar, og ætti það sama þá við hér, sbr. einnig forsendukennin gar samningaréttar og venju, sem standi þá þegar kröfum stefnanda í vegi. Verði ekki annað séð en að stefnandi líti svo á að meintur ráðningarsamningur sem hafi stofnast hafi verið sama efnis og áður, sbr. meðal annars tilvísun til venju, og öðru ekki bori ð við. 88. Stefndi vísar jafnframt til þess, hvað sem öðru líður, að hafi stofnast til ráðningarsambands á annað borð, þá hafi stefndi sagt því upp með tilkynningu 29. júní 2023. Stefnandi, í ljósi þess að hann hafi unnið á hvalvertíð á árinu áður, þ.e. 2 022, eigi þá, að hámarki, og enda sé ekki fallist á framangreindar mótbárur, kjarasamningsbundinn rétt til launa í einn mánuð miðað við mánaðamót, þ.e. vegna júlímánaðar, líkt og felist í varakröfu stefnanda. Ekki verði séð að stefn - andi beri brigður á lög mæti uppsagnarinnar sem slíkrar, og þá a.m.k. ekki með þeim hætti að slíkt eigi að leiða til þess að horft sé framhjá henni. Hvað sem því líði, þá bendir stefndi á að ástæða þess að fyrirmælum laga nr. 63/2000 um hópuppsagnir hafi ekki verið fylgt út í hör gul, hafi eðli málsins samkvæmt verið sú að stefndi taldi að ekki hefði stofnast til ráðningarsambands yfir höfuð, engum trúnaðarmanni verið til að dreifa o.s.frv . Þá hafi aðstæður verið fordæmalausar, og stefndi þurft eðli máls samkvæmt að bregðast hratt við til að takmarka tjón sitt eftir föngum, og verði ekki séð að lögin nái til eða séu hugsuð fyrir aðstæður sem þessar. Þá leiði einnig af gildandi kjarasamningi að það teljist ekki til hópuppsagna þegar starfslok verða samkvæmt ráðningarsamningum sem ger ðir eru til ákveðins tíma eða vegna sérstakra verkefna. Telur stefndi , þegar litið er á aðstæður í heild og þá óvissu sem ríkti á þeim tíma , að uppsagnir stefnda hafi verið lögmætar og þannig að kjarasamningsbundinn uppsagnar frestur gildi, sem sé enginn í tilviki stefnanda, en ella sé að hámarki miðað við einn mánuð samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 63/2000 . 89. Stefndi hafnar þá þeirri viðbáru stefnanda, að stofnast hafi til tímabundins ráðningarsambands sem hafi verið óuppsegjanlegt. Vísar stefndi til þe ss að samkvæmt eldri ráðningarsamningum, þ. 21 á m. gagnvart stefnanda sjálfum, hafi alltaf verið gagnkvæmur uppsagnarfrestur á starfstíma samkvæmt kjarasamningi. Sama hafi gegnt um þann ráðningarsamning sem stofnað hafi verið til sérstaklega í september 2023 vegna vertíðarinnar sem hófst þá. Framangreint eigi þá líka við um meint ráðningarsamband, sbr. einnig forsendukenningu samningaréttar og venju , sbr. einnig fyrri málatilbúnað stefnanda þess efnis að [a]f samskiptum aðila og venjum á hvalvertíð hafi verið ljóst hvað fólst í samningi aðila og stefndi [hafi] enga fyrirvara gert um ráðninguna eða önnur atriði ráðningarsambandsins . Hefði stefndi heldur aldrei tekið annað í mál og ljóst að stefnanda hafi ekki getað dulist það. Samkvæmt samningsformi því s em átti að leggja til grundvallar á hvalvertíð 2023 hafi jafnframt verið gert sérstaklega ráð fyrir þessu líkt og alltaf hafi verið. Stefnandi geti þannig ekki bæði haldið og sleppt. V. Niðurstaða Almennt 90. Eins og rakið er hér að framan byggir starfsem i stefnda, þ.e. veiðar stefnda í gegnum árin, á lögum. Jafnframt liggur fyrir og er ágreiningslaust að þegar stefndi hófst handa við að undirbúa hvalvertíð á vordögum 2023 hafði hann til þess fullgild leyfi, sbr. framlagt leyfi stefnda til veiða á langreyð i árin 2019 2023, útgefið 5. júlí 2019, með tilvísun í 1. gr. laga nr. 26/1949 um hvalveiðar með síðari breytingum. Ekkert bendir til þess að teikn hafi þá verið á lofti um að stjórnvöld myndu koma í veg fyrir veiðar það sumarið með ákvörðun sem tekin var degi áður en vertíðin skyldi hefjast og undirbúningi fyrir hana að langmestu leyti lokið. Skýrsla MATÍS um eftirlit með hvalveiðum sem byggðu á reglugerð nr. 917/2022 kom út 8. maí 2023, eða ein hverju eftir að undirbúningur stefnda fyrir hvalvertíð hófst, og þrátt fyrir umræður, m.a. á Alþingi, þar sem réttmæti veiðanna var í einhverjum mæli dregið í efa verður ekki annað ráðið en að ráðherra málaflokksins hafi allt fram til þess að reglugerð nr. 642/2023 um breytingu á reglugerð nr. 163/1973 um hvalveiðar , leit dagsins ljós gefið eindregið til kynna að ekki væru forsendur til að stöðva eða takmarka fyrirhugaðar hvalveiðar. Ekki er í máli þessu þörf á að kveða upp úr um lögmæti þessara aðgerða stjórnvalda og áhrif þeirra á mögulegan bótarétt aðila gagn vart íslenska ríkinu, heldur skiptir þessi aðdragandi málsins máli við mat á því hvort stefndi hafi haft ástæðu til að slá sérstaka varnagla fyrir þessa hvalvertíð frekar en aðrar og hafa jafnvel einhverja fyrirvara á gagnvart því fólki sem til stóð að kæmi ti l starfa. Dómurinn telur með vísan til framangreindrar umfjöllunar um atvik málsins og framlagðra gagna að ekkert hafi gefið tilefni til slíks og líta verði svo á að stefndi hafi, líkt og þeir launþegar sem væntu þess, sbr. framan - greint, að hafa atvinnu o g talsverða búbót af hvalvertíð 2023, verið allt til síðasta dags í góðri trú um að af vertíðinni yrði. 22 91. Því verður að hafna þeirri málsástæðu stefnda að það hafi verið forsenda þess að gengið var til samninga við stefnanda eða aðra í sömu eða sambæri legri stöðu sem gerðu ráð fyrir því að starfa hjá stefnda á hvalvertíð 2023 að af vertíðinni yrði, þegar af þeirri ástæðu að slík forsenda var hvergi orðuð og hvorugur aðila gerði, að því er virðist með réttu, ráð fyrir því að til slíks gæti komið. Sú stað reynd að ekki varð síðan úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna stjórnvaldsákvörðunar sem kom miðað við gögn málsins afar óvænt getur því m.ö.o. ekki haft áhrif við mat á skuld - bindingargildi samningsins í öndverðu heldur kemur þá til skoðunar út frá reglum samn inga réttar á grundvelli sjónarmiða um brostnar forsendur sbr. síðar og varðandi réttaráhrif samnings aðila. 92. Að mati dómsins verður þannig að líta svo á að ráðningarsamningur á milli atvinnuveitanda og launþega teljist í samræmi við meginreglur samnin ga - og vinnuréttar kominn á þegar tilboð, hvort sem er frá vinnuveitanda eða launþega, um ákveðna og nokkuð skilgreinda atvinnu hefur verið samþykkt af móttakanda tilboðsins en munnlegur samningur er hér jafngildur skriflegum. Oftar en ekki liggur þetta fr umskilyrði ráðningarsamnings fyrir nokkru áður en launþegi mætir til starfa og því á, eðli máls samkvæmt, oft eftir að ganga frá ýmsum atriðum varðandi réttindi og skyldur aðila. Verður að ganga út frá því að þegar slíkum frágangi er ólokið þegar til þess kemur að hefja á störf en ekki getur orðið af því líkt og í framangreindum málum beri að jafnaði að miða við þau réttindi og skyldur sem sannanlega voru í boði, þ.m.t. launakjör. Því sé óhjákvæmilegt almennt að t.a.m. uppsagnarfrestur sem launþega hefði ve rið tryggður ef hann hefði hafið störf verði virtur. Ef aðilar eru ekki sammála um raunveruleg kjör og þeim sem heldur betri rétti fram tekst ekki slík sönnun verður allt að einu að líta svo á að aðilum sé alla jafnan tryggður lágmarksréttur eftir lögum og kjarasamningum þótt ekki komi til þess að atvinna á grundvelli ráðningarsamningsins hefjist. Eðli máls samkvæmt er undir slíkum kringumstæðum oftar um möguleg réttindi launþegans að ræða fremur en vinnuveitanda. 93. Í öllum framangreindum málum hafa ste fnendur byggt á því aðallega að stefnda beri að greiða þeim laun er samsvari því að ekkert hafi í skorist, að líta beri svo á að tímabundinn og óupp - segjanlegur samningur hafi stofnast í öllum tilvikum sem feli í sér að stefnda beri að greiða laun að fullu til samræmis við að hvalvertíð hefði allt að einu hafist og henni verið að fullu lokið á þeim u.þ.b. 100 dögum sem yfirleitt sé miðað við. Meginreglan er eðli máls samkvæmt sú að tímabundnum samningi er ætlað að gilda í ákveðinn tíma og þá oftar en ekki b undið við tiltekið og afmarkað verk og/eða tímabil. Hins vegar er ekkert sem girðir fyrir, og einnig í ráðningar - samningum, að þótt um slíkt sé að ræða og endamörk slíks samnings séu ákveðin og fyrirséð, að allt að einu sé samið um heimild, eftir atvikum g agnkvæma, til að segja upp slíkum samningi á tímabilinu. Af þeim samningum sem lagðir hafa verið fram í málinu og gerðir eru sérstaklega við starfsmenn stefnda í landi hefur verið gert ráð fyrir slíkum uppsagnarfresti. Í 2. gr. í samningum 23 sem bera yfirskr sé ráðinn tímabundið til starfa í Hvalstöðinni í Hvalfirði á komandi hvalvertíð og ljúki ráðn ingu án uppsagnar. Hvalvertíð teljist lokið þegar lokið sé vinnslu afurða úr síðasta hvalnum. Þá segir í beinu framhaldi: Án tillits til framangreinds er gagnkvæmur uppsagnarfrestur á starfs tímanum skv. kjarasamningi. Burtséð frá áhrifum annarra málsástæðna stefnenda í einstökum málum, sbr. eftirgreint, verður að miða við sbr. og sjónarm ið í lið 92 hér að framan að launþegar í landi hafi almennt ekki mátt vænta þess að þótt komist hafi á samningur við stefnda um vinnu á hvalvertíð hafi slíkur falið í sér óafturkræfan rétt til að fá laun eins og ef af áfallalausri hval vertíð hefði orðið, þótt aldrei yrði haldið til veiða eins og raunin varð og ekkert vinnuframlag launþegans komið til. 94. Ekki er hægt að fallast á að stefnendur í framangreindum málum geti krafist réttinda sér til handa eins og þeir hefðu ekki þurft að undirgangast framang reinda samninga þegar til hefði komið heldur notið frekari réttinda. Ef fallist er á að í öllum framangreindum tilfellum hafi komist á ráðningarsamningur verður því jafnframt slegið föstu að stefnendur hafi ekki haft réttmæta ástæðu til að vænta annars en að þurfa að undirgangast þau kjör, þ.m.t. réttindi og skyldur, sem gilt höfðu samkvæmt ráðningarsamningum stefnda. Ekki er hægt að miða við að stefnendur hafi við samþykki tilboðs um atvinnu hjá stefnda því öðlast réttindi sem hefði veitt þeim kjör sem mið að við gögn málsins hefðu aldrei boðist. Á þetta bæði við um starfsmenn sem höfðu áður starfað á vertíð og þekktu þessa samninga en einnig starfsmenn sem voru að koma til starfa á sína fyrstu vertíð. Skiptir hér engu þótt upplýst hafi verið að til þess haf i varla komið í gegnum tíðina að umrætt uppsagnarákvæði hefði verið nýtt. Afar fátítt væri að starfsmenn væru reknir úr starfi og það gerðist einungis vegna alvarlegra brota. Eðli máls samkvæmt verður umræddu ákvæði ekki beitt þegar vel gengur og vertíð í fullum gangi en samningsaðilar hafa þó undirgengist það í gegnum tíðina. Staða stefnanda uppsagnarfrestur 95. Ágreiningslaust er að stefndi réðst á vormánuðum 2023 í umfangsmikið ráðningarferli líkt og jafnan þegar í vændum er hvalvertíð það sumarið. Fyrirhugað var að veiðarnar myndu hefjast 21. júní 2023 og var starfsfólki skipt á tvær vaktir, Nonnavakt sem á tti að hefja störf 21. júní það ár og Sæmavakt sem átti að byrja degi síðar. 96. Af framburði í málinu sem og skyldum málum, sbr. framangreint, verður ekki séð að ágrein - ingur sé um hvernig málum hefur verið háttað við ráðningar fyrir hvalvertíð og að sa mi háttur hafi verið hafður á vorið 2023. Dómurinn telur ekkert gefa tilefni til að efast um að stefnandi hafi verið í góðri trú um að hans biði starf á Sæmavakt, hvalvertíðina 2023. Jafnframt liggur fyrir að 24 haft var samband við hann og hann boðaður ásamt öðrum starfsmönnum á vaktinni til starfa kl. 13:00 22. júní 2023. Eðli máls samkvæmt verður gengið út frá því að stefnandi hafi gert ráð - stafanir til þess að mæta til starfa þann dag og starfa á hvalvertíð næstu þrjá mánuði. 97. Í samræmi við framangreint var stefnandi einn þeirra sem fékk sent tölvuskeyti frá stefnda þann dag með tilkynningu um að matvælaráðherra hefði takmarkað veiðitímabil langreyða, þannig að það gæti ekki hafist fyrr en 1. september 2023. Af þessum sökum væru forsendur fyr irhugaðra ráðninga brostnar og ekki gæti orðið af þeim. Stefnanda ásamt öðru starfsfólki barst svo annað bréf frá stefnda 29. júní 2023, þar sem réttarstöðunni eins og hún horfði við stefnda var lýst. Forsendur fyrir ráðningu væru brostnar og aukinheldur m yndi 3. gr. laga nr. 19/1979 leiða til þess að skylda til launagreiðslna félli niður. Loks kom fram að til vara, væri ráðningar - samningur fyrir hendi, segði stefndi upp þeim samningi, með uppsagnarfresti samkvæmt al - mennum kjarasamningi Samtaka atvinnulífs ins og Verkalýðsfélags Akraness. Ágreiningslaust er að stefnandi móttók þetta bréf og leit svo á að um uppsagnarbréf væri að ræða líkt og fram kemur í umfjöllun í stefnu um varakröfu hans. 98. Enn frekar til marks um að samband hafði komist á milli aðila , ef þannig má orða það, er að eftir að þessi staða kom upp var stefnandi einn þeirra sem þáði starf hjá stefnda við viðhald í Hvalfirði til loka ágústmánaðar 2023 og hóf störf 10. júlí 2023. Ágreiningslaust er þó að þar hafi verið um að ræða nýja ráðningu í annað starf. Stefnandi varð því vafalaust eftir sem áður fyrir talsverðu fjártjóni enda starfið annars eðlis, bæði er varðaði vinnutíma og kaup, og laun stefnanda um helmingi lægri en þau laun sem hann hefði fengið vegna vinnu á vertíðinni. 99. Með ví san til framangreinds og umfjöllunar í liðum 90 94 hér að framan verður fallist á með stefnanda að með aðilum hafi komist á tímabundinn ráðningarsamningur. Ef ekkert samn ings - samband hefði stofnast á milli aðila hefði stefndi strangt til tekið ekki þurft, miðað við hans mála tilbúnað, að grípa til neinna ráðstafana eftir að hann móttók tilkynningu um að vertíðin hefði verið blásin af. Athafnir stefnda í kjölfarið benda þvert á móti eindregið til þess, ásamt framan - greindu, að félagið hafi litið svo á , og þ að með réttu að mati dómsins, að skuldbinding hafi stofnast. Við blasir hins vegar að ekkert varð af þeirri vertíð sem umræddur samningur byggði á og því kom ekki til þess að undir form legan ráðningarsamning yrði skrifað líkt og ágreiningslaust virðist ve ra með aðilum að hafi jafnan verið gert eftir að eða um það bil er vertíð hófst í raun og fyrsti hvalurinn kom á land. Lagarök standa ekki til þess að við svo búið hafi stefnandi eignast kröfu um fullar efndir eins og ekkert hefði í skorist án þess að til mótframlags hans sjálfs kæmi sbr. umfjöllun í liðum 93 og 94 hér að framan. Er því óhjákvæmilegt að sýkna stefnda af aðalkröfu stefnanda sem miðast við fullar efndir miðað við fullnaða hvalvertíð. 25 100. Á hinn bóginn var stefnanda, sbr. framangreint, að m ati dómsins líkt og öðrum tryggður sá lágmarksréttur við uppsögn sem hann naut samkvæmt kjarasamningi. Á það við hvort sem litið er til þess ákvæðis sem hann hefði undirgengist ef af vertíð hefði orðið, sbr. framangreint en einnig samkvæmt almennum reglum vinnuréttar . 101. Í tilviki stefnanda lítur dómurinn því þannig á að staða hans í þessu tilliti hafi verið öldungis hin sama við móttöku á uppsagnarbréfi frá stefnda 29. júní 2023 og hún hefði verið við móttöku slíks bréf eftir að hvalveiðivertíð hefði ve rið hafin en hún þá slegin af af einhverjum orsökum fljótlega. Staða stefnanda hafi m.ö.o. ekki getað orðið betri heldur en hún hefði orðið ef hvalvertíð hefði verið hafin þegar uppsögn barst, sbr. framangreint. 102. Ágreiningslaust er að stefnandi hafði ekki unnið sér inn og honum bar ekki uppsagnarfrestur samkvæmt kjarasamningum eða sérstökum samningi við stefnda við uppsögn úr starfi. Varakrafa stefnanda hvílir enda á þeim eina grunni að honum beri a.m.k. eins mánaðar uppsagnarfrestur samkvæmt lögum um hópuppsagnir nr. 63/2000. Lög nr. 6 3 /2000 um hópuppsagnir 103. Dómurinn fær ekki séð að ágreiningur sé gerður um að stefndi hafi í engu gætt að þeim skilyrðum sem sett eru í framangreindum lögum um það hvernig standa beri að hópuppsögn starfsfólks í ski lningi laganna. Er það enda í samræmi við grunnmálatilbúnað hans um að ekki hafi stofnast til ráðningarsamninga við þennan fjölda starfsfólks og því engin lagaskylda fyrir hendi um að fylgja því ferli. 104. Lögin voru sett til að innleiða tilskipun nr. 9 8/59/EB um samræmingu á lögum aðildarríkja Evrópusamband s ins um hópuppsagnir svo sem fram kemur í greinargerð með frumvarpi að lögunum. Tilskipunin var tekin upp í viðauka XVIII við EES - samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES - nefndarinnar 30. apríl 1999. Lögin leystu af hólmi lög nr. 95/1992 um sama efni sem höfðu verið sett til að innleiða eldri tilskipun ráðsins nr. 75/129/EBE um sama efni. 105. Stefnandi byggir á því að uppsagnir stefnda umrætt sinn eigi undir lögin og ganga verður út frá því að hann t elji því skilyrðum 1. gr. laganna um fjölda uppsagna í hlutfalli við starfsmenn atvinnuveitanda fullnægt. Ekki er þó gerð grein fyrir því með rökstuddum hætti í stefnu málsins, en af málatilbúnaði aðila má þó draga þá ályktun að um slíkan fjölda hafi verið að ræða. 26 106. Þrátt fyrir að dómurinn telji að ráðningarsamningar hafi komist á í málinu og virkjað þar með þann lágmarksrétt sem stefnanda var tryggður m.t.t. til uppsagnar þá blasir hins vegar við að stefnandi kom ekki til starfa vegna þess að sá tíma bundni samningur sem taka átti gildi um leið og hvalvertíð myndi raunverulega hefjast tók aldrei gildi. Er því ekki hægt að líta svo á að allur sá, reyndar í málinu óskilgreindi, fjöldi starfsmanna sem stóð til að myndu hefja störf hjá stefnda en gerðu það aldrei, hafi skapað grundvöll fyrir því að hægt sé að líta svo á að um hópuppsögn í skilningi laga nr. 63/2000 hafi verið að ræða. Líta verður svo á að lögunum sé ætlað öðru fremur að standa vörð um þá stöðu þegar hagsmunum talsverðs fjölda starfsmanna í föstu starfi hjá atvinnurekanda er raskað og að þá sé áskilið ákveðið samráð s ferli sbr. 5. gr. til að leita leiða til að forðast hópuppsagnir, fækka starfsmönnum sem fyrir slíkum verða og draga úr afleiðingum með hjálp félagslegra aðgerða. 107. Við þær k ringumstæður sem uppi voru í starfsemi stefnda kom að mati dómsins ekki upp sú staða sem framangreindum lögum er ætlað að vernda og tryggja ákveðna málsmeðferð. Áður en starfsmenn stefnda skyldu inna sitt framlag af hendi og hefja störf brast grundvöllur r áðningarsambandsins vegna utanaðkomandi ákvörðunar sem hafði hvorki með stefnda né stefnanda að gera að því leyti að hvorugur gat þar nokkur áhrif haft á sbr. að vissu leyti sjónarmið sem fjallað er um í dómi Hæstaréttar í máli nr. 196/2001. Dómurinn telur því að stefnandi geti ekki á grundvelli laga um hópuppsagnir öðlast betri rétt heldur en hann hafði samkvæmt þeim lágmarkskjörum sem honum buðust sbr. framangreint og verður þeirri kröfu hafnað. Niðurstaða málsins, málskostnaður og annað 10 8 . Með vísan til framangreinds verður því stefndi sýknaður af kröfum stefnanda þegar á þeim grundvelli að sá samningur sem stofnaðist milli aðila veitti ekki rétt til annars en þess upp - sagnarfrests sem stefnanda var tryggður samkvæmt kjarasamningi þegar honum barst up p - sagnarbréf og ljóst varð að af hvalvertíð yrði ekki. Jafnframt að lög nr. 63/2000 hafi ekki átt við og tryggðu því stefnanda ekki betri rétt en því nam. Því er ekki þörf á að fjalla um í þessu máli þær málsástæður stefnda sem byggja á lögum nr. 19/1979, sjónarmiðum um force majeure, brostnar forsendur eða eru byggðar á 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. 109. Að virtum málsatvikum og að teknu tilliti til stöðu aðila þykir rétt að málskostnaður milli aðila falli niður sa mkvæmt 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. 110. Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður flutti málið fyrir stefnanda og Dagur Fannar Jóhannesson lögmaður fyrir stefnda. 27 111. Málið dæmir Lárentsínus Kristjánsson héraðsdómari á Vesturlandi. D Ó M S O R Ð Stefndi, Hvalur hf., er sýkn af kröfum stefnanda, Dags Ara Kristjánssonar. Málskostnaður milli aðila fellur niður. Lárentsínus Kristjánsson