Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur 14. apríl 2026. Mál nr. S - 995/2026 : Lögreglustjórinn á höfuðborgars væðinu (Sonja Wiium saksóknarfulltrúi) gegn Ástþór i Tómass yni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) Dómur Mál þetta, sem dómtekið var 25. mars sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 16. febrúar 2026 , á hendur Ástþóri Tómassyni, kt. Reykjavík, I. F yrir tilraun til þjófnaðar, fíkniefna - og vopnalagabrot með því að hafa fimmtudaginn 3. ágúst 2023, brotist inn í geymslur í húsnæði við í Reykjavík og gert tilraun til að stela þaðan skíðum, snjóbretti, golfsettum, ísexi, veiðistöng, verkfærum, bakpok a, kajakár, tágkörfu, spennubreytum, hlaupahjóli og hjálmi og á sama tíma haft í vörslum sínum 0,22 grömm amfetamíni, 0,4 grömm og hálfa töflu af Alprazolam Krka, 5,22 grömm af marihúana og hníf sem lögregla lagði hald á við leit á ákærða. Telst háttsemi þ essi varða við 244. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 2. gr. og 3. gr. sbr. 4 og 6. gr. laga um ávana og fíkniefni nr. 65/1974 og 1. mgr. 30. gr. vopnalaga nr. 16/1998 . II. Fyrir fíkniefna - og vopnalagabrot með því að hafa mánudaginn 1 9. ágúst 2024, við í Reykjavík, haft í vörslum sínum 1,44 grömm af amfetamíni og kasthníf sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða. Telst háttsemi þessi varða við 2. gr. sbr. 4 og 6. gr. laga um ávana og fíkniefni nr. 65/1974 og b. lið 2. mgr. 30. gr . vopnalaga nr. 16/1998 . 2 III. Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 16. maí 2025, ekið bifreiðinni sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (í blóðsýni mældist sturinn við Hólmaháls þar sem lögregla hafði afskipti af honum. Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 3. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. IV. Fyrir vopnalagabrot með því að hafa sunnudaginn 3. ágúst 2025, við í Stykkishólmi, haft í vörslum sínum hníf sem lögregla lagði hald á við öryggisleit á ákærða. Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 30. gr. vopnalaga nr. 16/1998 og 21. gr. sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998. Þess er krafist að ákærði verði dæ mdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019. Þá er krafist upptöku á 1,66 grömmum af amfetamíni, 5,22 grömmum af marihuana, 0,4. grömmum og hálfri töflu af Alprazolam Kr ka, og þremur hnífum með munanúmerum 614140, 642998 og 673132. Við þingfestingu málsins var af hálfu ákæruvaldsins óskað leiðréttingar á ákærulið I. Þar hafði ranglega verið tilgreint að magn Alprazolam Krka sem ákærða er gefið að sök að hafa haft í vörslum sínum hafi verið 0,4 grömm auk hálfrar töflu, en hið rétta er að magn þess var 0,04 grömm og hálf tafla. Þá var af hálfu ákæruvaldsins fallið frá þeim hluta ákæruliðar II er varðar vörslur á 1,44 gr ömmum a f amfetamíni , sbr. 2. gr. sbr. 4 og 6. gr. laga um ávana og fíkniefni nr. 65/1974 . Loks féll ákæruvaldið frá tilvísun til 21. gr., sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998 í ákærulið IV. Af hálfu ákærða voru ekki gerðar athugasemdir við að ákæran yrði leiðrétt með þessum hætti. 3 Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærð a hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærð i hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærð a og öðrum gögnum málsins að ákærð i er sek ur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimf ærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærð a krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra r málsvarnar þóknunar sér til handa. Ákærða er í ákærulið I gefinn að sök þjófnaður, fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot. Brot ákærða gegn 244. gr. almennra hegni ngarlaga, sbr. 20. gr. sömu laga, fyrnist á 5 árum, sbr. 2. tölulið 1. mgr. 81. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot ákærða samkvæmt lögum nr. 65/1974 um ávana - og fíkniefni og vopnalögum nr. 16/1998 varða eins og hér háttar aðeins sektum og fyrnas t þau því á 2 árum, sbr. 1. tölulið sömu málsgreinar. Brot ákærða eru ekki samkynja eða eðlisskyld og verður fyrning þeirra því ekki metin eftir 4. mgr. 81. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. greinargerð með frumvarpi til laga nr. 20/1981 um brey ting á almennum hegningarlögum nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955. Ekki verður af gögnum málsins ráðið að fyrningarfrestur hafi síðar rofnað eftir ákvæði 4. mgr. 82. gr. laganna. Með vísan til framangreinds teljast fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot ákærða í ákærulið I fyrnd. Verður ákærði því sýknaður af broti gegn 2. gr. og 3. gr. , sbr. 4 og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana - og fíkniefni og 1. mgr. 30. gr. vopnalaga nr. 16/1998 í ákærulið I. Ákærð i er fædd ur í . Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsett u 13. febrúar 2026 , á ákærð i nokkurn sakaferil að baki . Með sátt lögreglustjórans á Austurlandi 9. janúar 2018 gekkst ákærð i undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar vegna brota á lögum nr. 65/1974 um ávana - og fíkniefni sem og vegna aksturs undir áhrifum ávana - og fíkniefna. Aftur gekkst ákærð i undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar með sátt lögreglustjórans á Austurlandi 29. apríl 2019 fyrir akstur undir áhrif um ávana - og fíkniefna. Með tveimur sáttu m lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, annars vegar 11. september 2020 og hins vegar 7. október 2020, gekkst ákærði undir greiðslu sekta fyrir akstur sviptur ökurétti, brots á lögum nr. 65/1974 um ávana - og fíknie fni, sem og fyrir brot á vopnalögum nr. 1 6/1998. Nú síðast var ákærða með dómi Héraðsdóm s Reykjavíkur 12. apríl 2023 gert að sæta fangelsi í 30 daga og hann sviptur ökurétti ævilangt vegna aksturs undir áhrifum ávana - og fíkniefna. Að öðru leyti hefur saka ferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn máls þessa. 4 Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í fjórða sinn , eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna og í annað sinn gerst sekur um akstur sviptur ökurétti. Undir meðferð málsins játaði ákærð i brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegn ingarlaga nr. 19/1940. Þá verður og til þess litið að ákærði hefur ekki áður gerst sekur um auðgunarbrot sem og þess að langt er um liðið síðan brot samkvæmt ákærulið I átti sér stað . Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr . almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærð a hæfilega ákveðin 75 daga fangelsi. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærð a áréttuð frá birtingu dóms þessa að telja . Þá er u með vísan til lagaákvæða í ákæru gerð upptæ k 1,66 grömm af amfetamíni, 5,22 grömm af maríhúana, 0, 0 4 grömm og hálf tafla af Alprazolam Krka, og þrír hnífar með munanúmerum 614140, 642998 og 673132. Ákærð i greiði málsvarnar þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmund a r St. Ragnarsson ar lögmanns , 176.600 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 197.120 krónur í annan sakarkostnað . Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi. Sigurbjörg Birta Berndsen , aðstoðarmaður dómara , kveður upp dóm þennan. Dóms orð: Ákærð i , Ástþór Tómas son , sæti fangelsi 75 daga. Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða. Ákærð i sæti upptöku á 1,66 grömmum af amfetamíni, 5,22 grömmum af marihuana, 0, 0 4 grömmum og hálfri töflu af Alprazolam Krka, og þremur hnífum með munanúmerum 614140, 642998 og 673132. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmund a r St. Ragnarsson ar lögma nns, 176.600 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 197.120 krónur í annan sakarkostnað. Sigurbjörg Birta Berndsen