Héraðsdómur Vestfjarða Dómur 5 . mars 2026 Mál nr. S - 10/2026 : Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Kristján Óskar Ásvaldsson saksóknarfulltrúi ) g egn Þórð i Sesselíus i Ú lf i Júlíuss yni Dómur Mál þetta, sem dómtekið var 4. mars sl., var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Vestfjörðum 6. febrúar 2026 , á hendur Þórði Sesselíusi Úlfi Júlíussyni , kt. , , Flateyri : umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 2. nóvember 2025, ekið bifreiðinni TN067 óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana - og fíkniefna ( í blóðsýni mældist tetrahýdrókannabínól 8,5 ng/ml) um Pollgötu, Ísafirði, þar sem lögregla stöðv Telst háttsemin varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, greiðslu alls sakarkostnaðar og til þess að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 99. og 10 1. gr. laga nr. 77/2019. Ákærði mætti við þingfestingu málsins og játaði skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök. Með vísan til þess og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játningin væri sannleikanum samkvæm var farið með málið eftir 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála eftir að sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og vísað til þess að hann hafi einungis neytt kannabis degi fyrir akst urinn umrætt sinn. Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og er hún þar rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur þ ví með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði gekkst ákærði undir sátt við lögreglustjóra 4. júlí 2017 vegna aksturs undir áhrifum ávana - og fíkniefna. Með dómi 20. mars 2018 var 2 ákvörðun refsingar ákærða vegna brota gegn 1 . mgr. 257. gr. og 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 frestað skilorðsbundið. Loks var ákærði með dómi 1. júlí 2020 dæmdur til að sæta fangelsi í átta mánuði , en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið, m.a. fyrir akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna. Samkvæmt dómvenju ber við ákvörðun refsingar vegna brota af þessu tagi að líta til brotaferils ákærða með vísan til sambærilegra sjónarmiða og ítrekunaráhrifa, sbr. t.d. dóm Hæstaréttar Íslands 9. desember 2021 í máli nr. 30/2021 . Af dómaframkv æmd verður ráðið að hafi ekki liðið fimm ár á milli þess að viðkomandi hefur tekið út fyrri refsinguna, hún fallið niður eða gefin upp , og þar til hann fremur síðari brotið , hafi fyrri refsiákvarðanir áhrif til refsiþyngingar. Þá verður ráðið að dómvenja s tandi til þess að refsing vegna brota af því tagi sem hér ræðir um verði ekki bundin skilorði nema í undantekningartilvikum. Samkvæmt framangrein du voru ítrekunartengsl ekki rofin á milli brota ákærða og ber að miða við að honum sé nú í þriðja sinn gerð re fsing fyrir akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna. Að þessu gættu er refsing ákærða ákveðin 30 daga fangelsi. Þá þykir samkvæmt framangreindu ekki tilefni til að binda refsinguna skilorði. Með vísan til 3. mgr., sbr. 1. mgr. 99. gr. laga nr. 77/2019 og 1. mgr. 101. gr. sömu laga er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja. Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til að greiða sakarkostnað . S amkvæmt yfirliti sækjanda nemur sakarkostnaður málsins 123.182 krónu m og féll hann til vegna blóðsýnatöku og rannsóknar. Oddur Þorri Viðarsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærði, Þórður Sesselíus Úlfur Júlíusson, sæti fangelsi í 30 daga. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja. Ákærði greiði 123.182 krónur í sakarkostnað. Oddur Þorri Viðarsson