Héraðsdómur Norðurlands vestra Dómur 30. september 2025 Mál nr. S - 20/2025 : Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra ( Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri ) g egn X ( Gunnar Gíslason lögmaður ) Dómur 1. Mál þetta, sem dómtekið var 10. september 2025, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi vestra, dags. 10. febrúar 2025 , á hendur X , kt. , á , hótanir og vopnalagabrot með því að hafa, síðdegis mánudaginn 4. október 2021, að , veist að fyrrverandi sambýliskonu sinni, Y , kt. , A , kt. , B , kt. , D , kt. , E , kt. , og F , kt. , hótað þeim að hann myndi skjóta þau og sjálfa n sig ein n ig, og með því að hafa sýnt einbeittan ásetning sinn til að standa við hótanirnar, með því að fara inn í búr og sækja þar kindabyssu og skotfæri, sbr. munaskrá lögreglu nr. 157377, sem hann hafði í vörslum sínum án þess að hafa tilskilið skotvopn aleyfi , en ákærði lét ekki af háttsemi sinni fyrr en hann hafði verið afvopnaður og tekinn í tök uns lögregla kom á vettvang. Telst framangreint varða við 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 1 9 /1940 og 1. mgr. 13. gr. og 1. mgr. 21. gr., sbr. 36. gr. , vopn alaga nr. 16/1998. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar og að gerð verði upptæk áður greind kindabyssa, sbr. munaskrá lögreglu nr. 157377, skv.1. 2. Dómarinn sem fer með málið tók við meðferð þess 1. september 2025 en hafði engin afskipti af því fyrir þann tíma. 3. Ákæra var birt 12. febrúar 2025 og málið þingfest 11. mars 2025. Ákærði mætti fyrir dóminn við þingfestingu málsins og aftur 10. september 2025, eftir að dómar inn sem nú fer með málið hafði tekið við rekstri þess. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst 2 sekur um þá háttsemi sem að framan greinir. Játningin er studd sakargögnum. Sannað er með henni og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem h onum er gefin að sök og brot hans eru rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. 4. Með framangreindri ákæru var ákærða einnig gefið að sök brot gegn 1. mgr. 218. gr. b. almennra hegningarlaga en þeim ákærulið var vísað frá dómi með úrskurði 8. apríl 2025. 5. Farið var með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákæruvaldið gerir sömu d ómkröfur og greinir í ákæru. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. 6. Ákærði er fæddur árið . Samkvæmt framlögðu sakarvottorði, dags. 1 0 . september 2025, hefur ákærði ekki áður gerst brotlegur við refsilög . Ákærða til málsbóta verður litið til ský lausrar játningar hans fyrir dómi. Þá verður til mildunar tekið tillit til málsatvika, eins og þau birtast í málsgögnum, en ljóst er að ákærði var í andlegu ójafnvægi á verknaðarstundu. Tafir urðu á meðferð málsins fyrir útgáfu ákæru og horfir það einnig t il mildunar. Á hinn bóginn er einnig litið til þess að brot ákærða beindist að manneskju sem var honum nákomin, sem eykur að mati dómsins á grófleika verknaðarins. Að öllu framangreindu virtu, og með vísan til b - liðar 1. mgr. 57. gr., 5. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. , 3. mgr. 70. gr. og 1. mgr. 77. gr. almennra hegningarlaga, er refsing ákærða ákveðin fangelsi í 6 0 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja haldi ákærði almenn t skilorð 3. mgr. 57. gr. sömu laga . 7. Þá skal, með vísan til 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998, gert upptæk kindabyssa , nr. 157377 í munaskrá lögreglu. 8. Með vísan til 1. mgr. 235. gr., sbr. 233. gr., laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til greiðslu sakar kostnaðar til ríkissjóðs. Til þess kostn aðar teljast málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða , Gunnars Gíslasonar lögmanns, 552.420 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og 24.306 krónur vegna aksturskostnaðar sama lögmanns. Að auki falla undir sakar kostnað útgjöld sam kvæmt yfirliti ákæruvaldsins, 55.000 krónur vegna læknisvottorðs . Vegna úrslita málsins verður ákærða gert að greiða helming sakarkostnaðarins in hinn helmingurinn skal greiðast úr ríkissjóði. Við ákvörðun um skiptingu sakarkostnaðar milli ákærða og ríkissjóðs er m.a. litið til kostnaðar sem hlaust af störfum verjanda vegna þess ákæruliðar sem var vísað frá dómi. 3 9. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sigurður Hólmar Kristjánsson settur lögreglustjóri og af hálfu ákærða, Gunnar Gíslason lögmaðu r, sem er skipaður verjandi hans. 10. Þorsteinn Magnússon héraðsdómari kveður upp dóm inn . Dómso r ð: Ákærði, X , sæti fangelsi í 6 0 daga en fresta skal fullnustu refsingar og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja haldi ákærði almennt skilorð 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði sæti upptöku kindabyssu sem skráð er nr. 157377 í munas krá lögreglu. Ákærði greiði 315.863 krónur í sakarkostnað til ríkissjóðs. Þar er innifalinn helming ur málsvarnarlauna skipaðs verjanda ha ns, Gunnars Gíslasonar lögmanns, sem í heild nemur 552.420 krón um með virðisaukaskatti , helming ur aksturskostnaðar sama lögmanns sem í heild nemur 24.306 krónum og helmingur útgjalda samkvæmt yfirliti ákæruvaldsins sem í heild nema 55.000 krón um. Að öðru leyti greiðist sakarkostnað ur úr ríkissjóði. Þorsteinn Magnússon