Héraðsdómur Suðurlands Dómur 4. mars 2026. Mál nr. S - 389/2025 : Lögreglustjórinn á Suðurlandi ( Ólafur Hallgrímsson fulltrúi ) g egn Jóhann i Helg a Í . Kristjánss yni ( Sigurður Sigurjónsson lögmaður ) . Dómur I. Mál þetta, sem dómtekið var hinn 4. febrúar 2026, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi, útgefinni 18. ágúst 2025 á hendur Jóhanni Helga Í. Kristjánssyni, Í ákæru er ákærða gefið að sök fíkniefnalagabrot með því að hafa mánudaginn 17. maí 2021, í húsi við A , haft í vörslum sínum í sölu - og dreifingarskyni samtals 126 kannabisplöntur í ræktun [6 85 cm á hæð] sem samtals vógu 24.930,29 g og fyrir að hafa um nokkurt skeið fram til þess da gs ræktað þar framangreindar kannabisplöntur. Í ákærðu er brot ákærða talið varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana - og fíkniefni með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar nr. 233/2001 um ávana - og fíkniefni og ö nnur eftirlitsskyld efni með síðari breytingum. Er þess krafist í ákæru að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Enn fremur til að sæta upptöku á 126 kannabisplöntum , sbr. efnaskrá lögreglu nr. 46057 og búnaði til ólögmætr ar ræktunar og meðferðar fíkniefna: sex viftum, einum mæli, tveimur loftsíum, sex lömpum, þremur loftdælum og einum tíma/hitastilli, sbr. munaskrá lögreglu nr. 153718, samkvæmt 6. og 7. gr. laga nr. 65/1974 með síðari breytingum. 2 Er málið var þingfest hinn 23. október 2025 mætti ákærði ásamt Sigurði Sigurjónssyni lögmanni sem skipaður var verjandi ákærða að hans ósk. Ákærði neitaði sök og var bókað af hans hálfu að gögn málsins bæru ekki með sér að hann hefði stundað sölu og dreifingu fíkniefna. Er málið va r næst tekið fyrir þann 6. nóvember 2025 mætti ákærði ekki. Er aðalmeðferð skyldi fara fram 29. janúar 2026 mætti ákærði ekki en fær ð var til bókar af hálfu lögreglustjóra breyting ákæru þannig orðin - féllu út. Var málinu frestað til 4. febrúar 2026 þannig að aðalmeðferð færi fram en við upphaf hennar þann dag játaði ákærði skýlaust sök samkvæmt ákæru eins og henni h afði verið breytt. II. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning ákærða væri sannleikanum samkvæm var farið með málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og aðilum gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Um málsatvik vísast til ákæru með fyrrgreindri breytingu. Er sannað að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er endanlega gefin að sök. Hefur ákærði þannig með háttsemi sinni gerst sekur um brot gegn 2. gr. , sbr. 4., 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 , sbr. ákvæði reglugerðar nr. 233/2001. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði sætt refsingum fyrir ávana - og fíkniefnalagabrot, fyrst með dómi 14. nóvember 2012 og síðan með dómi 25. maí 2018. Hefur ákærði einnig sætt refsingum fyrir umferðalagabrot með dómum frá árunum 2016, 2017 , 2021 en einnig með dómi frá 25. febrúar 2022 sem og með nefndum dómi frá 25. maí 2018. Brot það sem ákærði er nú sakfelldur fyrir var framið áður en ákærði sætti 30 daga fangelsi fyrir umferðalagabrot með dómi 25. febrúar 2022 og verður refsing ákærða því ákveð in sem hegningarauki við síðastgreindan dóm, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 . Við ákvörðun refsingar verður horft til skýlausrar játningar ákærða samkvæmt breyttri ákæru og þess að málið dróst verulega uns ákæra var gefin út. Þykir refsing ákærða með tilliti til þessa hæflega ákveðin fangelsi í 6 0 daga en fresta ber fullnustu refsingarinna r 3 og hún falla niður haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegni n g arlaga nr. 19/1940 í tvö ár frá uppsögu dóms þessa að telja. Samkvæmt 6. gr. la ga nr. 65/1974 skal ákærði sæta upptöku á 126 kannabisplöntum, sbr. efnaskrá lögreglu nr. 46057 og búnaði til ólögmætrar ræktunar og meðferðar fíkniefna: sex viftum, einum mæli, tveimur loftsíum, sex lömpum, þremur loftdælum og einum tíma/hitastilli, sbr. munaskrá lögreglu nr. 153718. Við ákvörðun sakarkostnaðar verður samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 horft til þess að ákæruvaldið féll frá því að halda uppi saksókn fyrir sölu og dreifingu fíkniefna en sá liður ákæru var veigamikill hluti sa kargif ta . Þykir rétt að ákærði greiði helming sakarkostnaðar. Samkvæmt yfirliti lögreglustjóra um sakarkostnað nemur hann 721.005 krónum. Þá nema málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða fyrir dómi 706. 8 00 krónum að meðtöldum virðisaukaskatti. Verður ákærða því ge rt að greiða helming sakarkostnaðar sem í heild nemur 1.427.805 krónu m . Einar Karl Hallvarðsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærði, Jóhann Helgi Í. Kristjánsson, sæti fangelsi í 6 0 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að tveimur árum liðnum frá uppsögu dóms þess að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði sæti upptöku á 126 kannabisplöntum, sbr. efnaskrá lögreglu nr. 46057 og búnaði til ólö gmætrar ræktunar og meðferðar fíkniefna , þ.e. sex viftum, einum mæli, tveimur loftsíum, sex lömpum, þremur loftdælum og einum tíma/hitastilli, sbr. munaskrá lögreglu nr. 153718. Ákærði greiði 713.902 krónur í sakarkostnað þar með talinn helming málsvarnar launa skipaðs verjanda síns Sigur ðar Sigurjónssonar lögmanns sem í heild nema 706.800 krónum. Áð ö ðru leyti greiðist sakarkostnaður úr ríkissjóði. Einar Karl Hallvarðsson 4