Héraðsdómur Suðurlands Dómur 20. mars 2026 Mál nr. S - 58/2026 : Ákæruvaldið ( Karl Ingi Vilbergsson saksóknari ) g egn Birgi Magnús i Sveinss y n i Dómur Mál þetta, sem dómtekið var 12. mars sl. , var höfðað með ákæru, útgefinni af embætti héraðssaksóknara 29. janúar 2026, á hendur Birgi Magnúsi Sveinssyni, fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa miðvikudaginn 20. ágúst 2025 bæði innandyra og fyrir utan A Vestmannaeyjum, veist með ofbeldi að lögreglumanni h1907 sem var þar við skyldustörf, en ákærði sló lögreglumanninn fyrirvaralaust í bringuna í tvö skipti. Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ák ærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall . Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a - lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/20 08 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins. Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði er fæddu r í . Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsett u 30. janúar 2026, hefur sakarferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn máls þessa. Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 3 0 daga fangelsi , en fullnustu refsingarinna r er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningar laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955 . 2 Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Silja Rán Arnard óttir saksóknarfulltrúi. Sigurður G. Gíslason dómstjór i kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærð i , Birgir Magnús Sveinsson, sæti fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningar laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955 . Sigurður G. Gíslason