Héraðsdómur Reykjaness Dómur 24. mars 2026 Mál nr. S - 2011/2025 : Ákæruvaldið ( Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari ) g egn Magdalen u M. Cruz Pálsdótt ur ( Stefán Karl Kristjánsson lögmaður ) Dómur Mál þetta var þingfest 14. ágúst 2025 og dómtekið 9. mars 2026. Málið höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru útgefinni 3. júlí 2025, á hendur ákærðu Magdalenu M. Cruz Pálsdóttur, kt. 000000 - 0000 , , , fyrir ,, Mál númer S - 2968 /202 5 sem var höfðað á hendur ákærð u með ákæru útgefinni 2 . október 202 5 var þingfe st og sameinað þessu máli á dómþingi 24. október 2025, sbr. heimild í 1. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í þeirri ákæru er ákærð u gefið að sök: ,, I. [...] umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 7. ágúst 2025 ekið bifreiðinni svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana - og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 410 ng/ml) austur Suðurlandsbraut í Reykjavík, við Mörkina, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2 . mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr.umferðarlaga nr. 77/2019. 2 II. [...] umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 29. ágúst 2025 ekið bifreiðinni svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana - og fí kniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 270 ng/ml) um Elliðavatnsveg í Garðabæ, við Urriðavatn, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Í báðum ákærum er þess krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019. Ákærða kom fyrir dóminn 23. september 2025 og neitaði sök samkvæmt ákæru útgef inni 3. júlí 2025. Ákærða koma aftur fyrir dóminn 24. október 2025 og neitaði þá sök samkvæmt ákæru útgefinni 2. október 2025. Í þinghaldi 9. mars 2026 óskaði ákærða eftir að breyta afstöðu sinni til sakargifta samkvæmt báðum ákærum og játaði þá undanbragð alaust að hafa viðhaft alla þá háttsemi sem henni er þar gefin að sök samkvæmt framansögðu. Var því farið með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sakflytjendur höfðu tjáð sig stu ttlega um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Ákærða krefst þess að henni verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa. Þá krefst verjandi ákærðu hæfilegrar þóknunar sér til handa. Með skýlausri játningu ákærðu fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er sannað að hún hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök samkvæmt báðum ákærum, og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða. Ákærða er fædd í og á að baki sakaferil samkvæmt framlögðu sakavottorði. Við ákvörðun refsingar ákærðu er sérstaklega til þess að líta að ákærða gekkst undir sektargerð hjá lögreglu 10. febrúar 2023 til greiðslu 200.000 króna sektar og sviptingar ökuréttar í níu mánuði fyrir akstur undir áhrifum. Þá var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. mars 20 24 dæmd til 45 daga fangelsisrefsingar sem frestað var skilorðsbundið í tvö ár fyrir akstur undir áhrifum, akstur svipt ökurétti og fleiri brot auk þess sem hún var svipt ökurétti í fimm ár. Var um hegningarauka að ræða að hluta. Með þeim brotum sem ákærða er nú sakfelld fyrir rauf hún skilorð framangreinds dóms. Með vísan til 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga verður skilorðshluti þess dóms nú tekinn upp og ákærða gerð refsing fyrir bæði málin í einu lagi . 3 Ákærða játaði brot sín án undanbragða fyrir dómi. Ákærða er nú sakfelld fyrir að aka undir áhrifum í þriðja sinn og fyrir að aka svipt ökurétti í annað sinn. Í dómaframkvæmd í málum þar sem ákært er fyrir akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna eða akstur sviptur ökurétti hefur sakfelldum verið ge rð sektarrefsing vegna fyrstu og annarrar ákæru. Fyrir aðra ítrekun hefur hinsvegar mótast dómvenja um að dæma sakfellda til óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar. Að þessu og öðru framansögðu gættu og með vísan til 1., 5. og 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. alme nnra hegningarlaga þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 105 daga. Eftir atvikum þykir mega fresta fullnustu 45 daga refsingarinnar og skal sá hluti hennar falla niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegnin garlaga. Þá greiði ákærða 600.000 króna sekt til ríkissjóðs. Greiði ákærða ekki sektina innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu skal koma í hennar stað fangelsi í 32 daga. Í ljósi framangreinds og með vísan til 99. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 er ákæ rð a svipt ökurétti ævilangt. Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærð u til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samtals 1.151.683 krón um . Um er að ræða kostnað vegna rannsókna r á blóðsýn um samkvæmt yfirliti ákæruvaldsins sem og þóknun skipaðs verjanda ákærð u , Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, sem þykir með hliðsjón af eðli og umfangi máls og leiðbeinandi reglum dómstólasýslunnar nr. 1/2026 hæfilega ákveðinn 706.800 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Hulda Árnadóttir héra ðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómsorð: Ákærð a Magdalena M. Cruz Pálsdóttir , sæti fangelsi í 105 daga en fresta skal fullnustu 45 daga af refsingunni og sá hluti hennar falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærð a almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærð a greiði 600.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu en sæti ella fangelsi í 32 daga . Ákærð a er svipt ökurétti ævilangt. Ákærð a greiði 1.151.683 krónur í sak arkostnað, þar meðtalda 706 . 80 0 króna þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns. 4 Hulda Árnadóttir