Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur 8 . apríl 2026 Mál nr. E - 3259/2025 : A (Flóki Ásgeirsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg ( Þórður Guðmundsson lögmaður ) Dómur Málsmeðferð og dómkröfur aðila 1. Mál þetta, sem dómtekið var 1 2 . mars 2026, var höfðað 26. maí 2025 af A , í Reykjavík , gegn Reykjavíkurborg, Ráðhúsi Reykjavík ur við Tjarna r götu 11 í Reykjavík. 2. Stefnandi krefst þess að stefnd i greiði stefnanda 1.300.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 26. júní 2025 til greiðsludags. Þá krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefnd a . 3. Stefnd i krefst sýknu af öllum kröfum stefnanda o g að stefnanda verði gert að greiða stefnd a málskostnað. Helstu málsatvik A 4. Stefnandi, sem er fæddur árið , er greindur með , , , , og . Hann býr hjá foreldrum sínu m og þarf aðstoð við flestar athafnir daglegs lífs . 5. Hinn 15. mars 2017 var lögð inn umsókn til stefnd a um sértækt húsnæðisúrræð i stefn - anda til handa , en þá var stefnandi ekki orðinn ára gamall . Í upplýsingum með um - sókninni, svokallaðri mats - og þarfagreiningu frá 16. mars 2017 , kemur m.a. fram að stefnandi þurfi á næturvakt að halda og að stuðningsþjónust a hans sé meti n til 30 stiga . Um aðra stoðþjónustu sagði að stefnandi væri með tiltekin n tíma í skammtímavistun, liðveislu og hjá stuðningsfjölskyldu. Stefnd i samþykkti umsókn stefnanda á biðlista 17. mars 2017 . 6. Á sama tíma og s tefnandi sótti um sértækt húsnæðisúrræði sótti hann einnig um að vera þátttakandi í tilraunaverkefninu , sem var samþykkt 28. mars s.á. og skyldi þjónusta í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar um tilraunaverkefni ð hefjast við ára aldurs hans . Móðir stefnanda ritaði undir 2 samning þess efnis 22. júní það ár . Stefnandi var með , á grundvelli framangreinds samnings , 252 tíma á mánuði í st oð - og stuðningsþjónustu . Samningurinn var í gildi frá 15. júlí 2017 og síðan endurnýjaður allt til 31. desember 2022. Að tilraunaverkefninu loknu, frá byrjun árs 2023 , var stefnandi með beingreiðslusamning við stefnd a með 248 tíma á mánuði í stoð - og stuð ningsþjónustu sem jókst í 356 tíma á mánuði vorið 2024. Stefnandi var einnig á biðtím anum í 2 3 sólarhringa vistun á mánuði hjá stuðningsfjölskyldu . Þá hefur stefnandi einnig stundað nám og nýtt sér akstursþjónustu á vegum stefnda . 7. Í viðtali ráðgjafa stefnd a í september 2019 var móðir stefnanda m.a. spurð hvort hún hefði kynnt sér notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) fyrir stefnanda , sem hún mun hafa ætlað að skoða betur síðar . 8. Umsókn s tefnanda um sértækt húsnæði fyrir fatlað fólk var endurmetin í d esember 2019 á grundvelli nýrra reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði og hann metin n til 8 stiga samkvæmt matsviðmiðum. Í bréfi stefnd a 6. desember 2019 þar um til stefnanda kom og héldi gildi sínu og væri áfram samþykkt á biðlista. 9. Hinn 27. október 2020 er bókað um viðtal starfsmanns stefnd a við foreldra stefnanda, hvar fram kom að rætt hafi verið um tilraunaverkefnið Sv sem myndi senn ljúka. Þá hafi umsókn stefnanda um sértækt hús - næði verið rædd og foreldrar sagt stefnanda ekki tilbúinn að fara að heiman alveg strax og óskað eftir að hann yrði áfram á biðlista en ekki til nefndur. Í júní 202 1 óskaði ráðgjafi stefnd a í tölvubréfi eftir óskum stefnanda og foreldra hans í tengslum við áframhaldandi þjónustu . Kvaðst móðir stefnanda óska eftir beingr ei ðslusamning i fyrir árið 2022 en líklega yrðu þau tilbúin í NPA eftir það . Í september 2021 ræ ddi starfsmaður stefnd a við stefnanda og móður hans um lok tilraunaverkefnisins , áframhaldandi beingreiðslu - samninga og að stefnandi myndi sækja um NPA svo unnt væri að veita honum sambæri - lega þjónustu og hann hefði verið með í tilraunave rkefninu . Munu stefnandi og móðir hans hafi verið því samþykk . 10. S tefnandi undirritaði umsókn um NPA 1. október 2021 . Með bréfi stefnda 21. sama mánaðar var umsókn stefnanda samþykkt en jafnframt vakin athy gli á því að þótt um - sóknin væri samþykkt væri ekki hægt að veita umrædda þjónustu að svo stöddu. Þar sagði m.a. að samþykktar umsóknir um NPA r ö ð uðu st eftir forgangsröð hverju sinni, sbr. 3. gr. reglna Reykjavíkurborgar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk. Samkvæmt 4. gr. framangreindra reglna væri ákvörðun um veitingu NPA tekin á fundi úthlutunarteymis sem væri skipað með erindisbré fi af velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Umsókn stefnanda væri því samþykkt og myndi halda gildi sínu þangað til ákvörðun um veitingu þjónustu hefði verið tekin. 3 11. B ókað var um símtal starfsmanns stefnd a við móður stefnanda 4. apríl 2022 hvar hún var spurð h vort þau vildu að stefnandi yrði með í umræðunni vegna úthlutana í sérstakt húsnæði. Aðspurð , samkvæmt bókuninni , sagði hún þau ekki tilbúin og myndu því ekki ósk a eftir að vera með í umræðunni , en vil d i vera það næst þegar kæmi að úthlutun. 12. Einnig kemur fram í ódagsettri mats - og þarfagreiningu að greiningin hafi ekki verið uppfærð sl. ár þar sem stefnandi h afi ekki verið tilbúinn að hefja sjálfstæða búsetu og hafi ósk að eftir að vera ekki til umræðu vegna úthlutana í sér tækt húsnæði að svo stöddu (október 2022) en mögulega á næsta ári (2023). Að mati móður stefnanda væri hann þó fljótlega tilbúinn að taka skrefið og flytja að heiman. 13. Hinn 18. ágúst 2023 var stefnand i , með bréfi frá velferðarsviði stefnd a , upplýstur um stöðu u msóknar hans um húsnæði fyrir fatlað fólk þar sem vísað var til umsóknar hans frá 15. mars 201 7. Í bréfinu sagði m.a. að 1. júní 2023 hefðu alls 133 einstaklingar átt gilda umsókn um húsnæði fyrir fatlað fólk, þar af 27 sem metnir væru í sama þjónustu - flok ki og stefnandi. Við forgangsröðun umsókna væru lögð til grundvallar þau viðmið sem til greind væru í matsviðmiðum í reglum stefnd a um félagslegt leiguhúsnæði. Við forgangs röðun væri m.a. horft til þarfa viðkomandi og lengdar biðtíma eftir húsnæði. Einnig væri horft til annarrar þjónustu sem stæði til boða á biðtíma, sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk. Þá væri litið til núverandi húsnæðis - aðstöðu umsækjanda og hversu brýna þörf viðkomandi hefði fyrir viðeigandi húsnæði . Sagði þar og að endurskoðuð uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk hefði verið samþykkt á fundi borgarráðs 11. ágúst 2022 og vísað til fjárhagsáætlunargerðar. Þessi áætlun gerði ráð fyrir umtalsverðri uppbyggingu húsnæðis á næstu árum. Í áætluninn i væri gert ráð fyrir 10 íbúðakjörnum fyrir fatlaða einstaklinga í þjónustuflokki I II sem kæmu til úthlutunar á árunum 2023 2030. Þar að auki myndi koma til úthlutunar hús - næðis í einum íbúðakjarna á grundvelli fyrri uppbyggingaráætlunar sem samþykkt hafi verið árið 2017. Miðað við framangreint væri gert ráð fyrir að stefnandi fengi úthlutað húsnæði á árinu 202 7 . Í bréfinu sagði einnig að einstaklingsbundin áætlun væri með fyrirvörum um ýmsar óviðráðan legar aðstæður sem gætu haft áhrif á uppbyggingar - áætlu n húsnæðis fyrir fatlað fólk, svo sem fjármögnun, breytingar sem orsakist m.a. af aðstæðum á byggingamarkaði og hugsanlegar breytingar á skipulagi innan borgarinnar, m.a. hvað varðar lóðaframboð. Þá gætu breyttar stuðningsþarfir stefnanda og/eða annarra ha ft áhrif á forgangsröðun á bið lista, auk þess sem fjölgun eða fækkun umsækjenda í mismunandi þjónustuflokkum g æ ti haft áhrif á röðun biðlista . Að lokum er tilgreint að upp byggingaráætlun um húsnæði fyrir fatlað fólk sé endurmetin árlega. Að loknu endurmati hennar verði haft samband við stefnanda og honum veittar upplýsingar um áætlaða leng d biðtíma, stöðu áætlunarinnar og þann stuðning sem honum standi til boða á biðtíma, sbr. 10. gr. reglugerðar nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk. 4 14. Í október og desember 2024 ítrekaði móðir stefnanda annars vegar og stefnandi og foreldrar hans hins vegar m.a. þörf á úthlutun á samningi um NPA til handa stefnanda . Aftur ítrekaði stefnandi umsókn sína um NPA í símtali við ráðgjafa stefnd a í mars 2025. 15. Hinn 25. október 2024 var stefnandi, með bréfi frá velferðarsviði stefnd a , upplýstur um uppfærða stöðu umsóknar hans um húsnæði fyrir fatlað fólk. Bréfið var sambærilegt því sem honum var sent árið áður að öðru leyti en um fjölda umsókna, íbúðakjarna og þ. u.l . Miðað við stöðuna og endurmat á uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk árið 2024 væri , sem fyrr, gert ráð fyrir að stefnandi fengi úthlutað húsnæði á árinu 2027. 16. S tefnanda barst ákvörðun um veitingu þjónustu í formi NPA fyrir fatlað fólk 16. apríl 20 25 . Í bréfi stefnd a sagði að fallist hefði verið á að veita stefnanda þá þjónustu á grund - velli umsóknar hans frá 21. október 2021. Sama dag upplýsti starfsmaður stefnd a stefn - anda um ákvörðunina með tölvubréfi og símtali . Í bókun um það sem rætt var í símtali starfsmanns stefnd a við stefnanda og móður hans kemur fram að rætt hafi verið um húsnæðismál stefnanda, ekkert sérherbergi væri fyrir starfsfólkið heima hjá stefnanda og því ekki hægt að veita þjónustu á nóttunni að svo stöddu. Þá hafi starfsmað urinn m.a. upplýst um að stefnandi væri ekki með umsókn um almennt féla gslegt leiguhúsnæði. Kvaðst stefnandi hafa skrifað undir umsókn um húsnæði. Starfsmaðurinn mun þá hafa upplýst stefnanda að það hafi verið umsókn um sértækt húsnæði. Með rafrænni undirr itun stefnanda sama dag gaf s tefnandi samþykki sitt fyrir veitingu þjónustu í formi NPA . 17. Hinn 29. apríl 2025 sendi starfsmaður stefnd a tölvubréf til stefnanda og móður hans. Í skeytinu stóð að þar sem stefnandi hafði s amþykkt þjónustu í formi NPA myndi ha nn í kjölfarið missa rétt sinn til stuðningsfjölskyldu og beingreiðslusamning s . Jafnframt geti þeir sem séu með slíkan samning ekki fengið þá þjónustu í sértæku húsnæði fyrir fatlað fólk. Þá var óskað staðfestingar á móttöku tölvubréfsins , að stefnandi væri meðvitaður um áðurnefndar upplýsingar og jafnframt óskað staðfestingar á því að stefnandi dr æ gi umsókn sína um sértækt húsnæði til baka. Loks var stefnanda bent á að hann gæti sótt um almennt félagslegt leiguhúsnæði, sem þyrfti að setja fram sem nýja umsókn. Starfs - maður stefnd a ítrekaði með tölvu bréfi 21. maí s.á. við stefnanda og móður hans að afgreiða þyrfti umsókn stefnanda um félagsleg t leiguhúsnæði. Hinn 6. júní 2025 skrifaði stefnandi undir yfirlýsingu um að hann drægi umsókn sína um sértækt hús næði til baka þar sem hann væri að sækja um almennt félagslegt leiguhúsnæði. 18. Með bréfi stefnd a til stefnanda 30. júní 2025 var umsókn stefnanda um almennt félags - legt leiguhúsnæði hafnað. Hinn 20. ágúst s.á. lá fyrir niðurstaða áfrýjunarnefndar velferð - ar ráðs stefnd a þess efnis að á frýjunarnefnd in samþykkti að veita stefnanda undanþágu frá skilyrði d - liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leigu húsnæði varðandi tekju - og eignamörk. 19. Í viðtali starfsmanns stefnd a við stefnanda og móður hans 18. ágúst 2025 er bókað eftir móður stefnanda að hún sé ósátt við búsetumál og að stefnandi hafi ekki verið á biðlista 5 eftir almennu félagslegu leiguhúsnæði. Stefnandi væri líka kvíðinn að hefja NPA - samning sinn í foreldrahúsum . Var stefnandi upplýstur um beiðni um forgang í hverfi sem yrði tekin fyrir á fundi í þeirri viku eða næstu. 20. Með bréfi, 1. september 2025, var stefnanda aftur tilkynnt að umsókn hans um NPA hefði verið samþykkt. Þá var vakin athygli stefnanda á því að þó tt umsókn hans um NPA hefði ve rið samþykkt væri ekki unnt að veita umrædda þjónustu að svo stöddu. Samþykktar umsóknir um NPA r ö ð uðu st eftir forgangsröð hverju sinni, sbr. 3. gr. reglna Reykjavíkur - borgar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk. Samkvæmt 4. g r. framan - gre indra reglna væri ákvörðun um veitingu NPA tekin á fundi úthlutunarteymis sem væri skipað með erindisbréfi af velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Umsókn stefnanda væri því samþykkt og myndi halda gildi sínu þangað til ákvörðun um veitingu þjónustu hefði veri ð tekin. Samdægurs var gerður samstarfssamningur um NPA til handa stefnanda , milli móður stefnanda (umsýsluaðila) og velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, sem gildir til 1. desember 2027. B 21. Fyrir liggur að Land s samtökin Þroskahjálp voru í samskiptum við stefn da árin 2023 og 2024, m.a. vegna málefna stefnanda. Lögmaður land s samtakanna óskað i með bréfi 16. janúar 2024 m.a. eftir afstöðu stefnd a til bótaskyldu hans gagnvart stefnanda vegna biðtíma og upplýsingagj afar við úthlutun sértæks húsnæðisúrræðis . Með svarbréfi stefnd a 29. febrúar 2024 hafnaði hann bótaskyldu vegna stefnanda. C 22. Við aðalmeðferð málsins gaf stefnandi aðilaskýrslu og móðir hans, B , vitnaskýrslu . Verður vitnað til framburða þeirra eftir því sem þurfa þykir. Helstu m álsástæður stefnanda 23. Stefnandi byggir á því að hann njóti réttar til sértæks húsnæðisúrræðis á grundvelli 9. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, sbr. umsókn stefnanda þar að lútandi frá 15. mars 2017 sem samþykkt hafi verið af hálf u stefnd a 17. mars 2017. Þessi réttur stefnanda til sértæks húsnæðisúrræðis sæki sér ekki aðeins stoð í lög nr. 38/2018, heldur eigi hann rætur sínar að rekja til þeirrar félagslegu lágmarksaðstoðar sem stefnandi eigi rétt til samkvæmt 76. gr. stjórnarskrárinnar , sbr. lög nr. 33/1944 . Enn fremur sé réttur stefnanda til sértæks húsnæðisúrræðis, í samræmi við þarfir hans og óskir, grundvallarforsenda þess að hann njóti fullra mannréttinda til jafns við aðra og að honum s éu sköpuð skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 38/2018, 65. og 71. gr. stjórnarskrárinnar, 8. og 14. gr. mannréttinda - sáttmála Evrópu og 5. og 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. 6 24. Stefnandi kveður á greining málsins ekki snúa að tilvist réttinda sinna til sér tæks húsnæðisúrræðis heldur að þeim drætti sem h afi orðið á því að hann fengi notið réttar síns og hvort aðgerðaleysi stefnda við að tryggja þau réttindi feli í sér miska bótaskylda mein gerð gegn sér , sbr. b - lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 . 25. Byggir stefnandi á því að hann h afi orðið fyrir ólögmætri meingerð sem fel ist í brotum gegn réttindum hans samkvæmt 34. gr. laga nr. 38/2018, sbr. 9. gr. þeirra, 8. 10. gr. reglugerðar nr . 370/2016, 9. og 11. gr. stjórnsýs lulaga, 65., 71. og 76. gr. stjórnar - skrárinnar, 8. og 14. gr. mannréttindasáttmála Evrópu , sbr. 41. gr. hans, og 5. og 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Stefnd i hafi br otið gegn framan - greind um lagaákvæðum með óhóflegum biðtíma eftir veitingu réttindanna og með því að vanrækja að raða stefnanda á biðlista, vinna einstaklingsbundna áætlun um veitingu húsnæðis og upplýsa stefnanda um áætlaðan biðtíma. Enn fremur hafi stefnd i brotið gegn réttindu m stefnanda með því að rétta ekki hlut hans með sama hætti og hlutur aðila máls í dómi H éraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E - 2712/2020 og síðar aðila máls í dómi dómstólsins í máli nr. E - 1623/2024 hafi verið réttur. 26. Stefnandi byggir nánar á því að brot stefnd a gegn réttindum hans hafi verið þríþætt. Í fyrsta lagi felist brot stefnd a í þeim óhóflega langa tíma sem stefnand a hafi verið gert að bíða eftir húsnæðisúrræði. Frá því að stefnandi hafi fyrst sótt um úthlutun sértæks húsnæðisúrræðis og umsóknin ve rið samþykkt á biðlista hafi við höfðun málsins þannig verið liðin átta ár og tveir mánuðir. Við gildistöku laga nr. 38/2018 hafi stefnandi verið búinn að vera á biðlista í eitt ár og sjö mánuði og frá gildistöku þeirra h afi stefnandi , við málshöfðun, veri ð búinn að bíða í sex ár og átta mánuði til viðbótar. Samkvæmt áætlun stefnd a frá 2023 sé áætlað að stefnandi muni þurfa að bíða í tvö ár til viðbótar eftir sértæku húsnæðisúrræði, til ársins 2027, alls í a.m.k. 10 ár. Stefnd i h afi í samræmi við sjálfstjórnarrétt sinn samkvæmt 78. gr. stjórnarskrárinnar ákveðið svigrúm til þess að forgangsraða lögbundnum verkefnum sínum innan ramma laganna og svigrúm til þess að meta hvert tilvik fyrir sig. Það svigrúm takmark ist hins vegar af rétti ndum stefnanda. Stefnd i get i þannig t.a.m. ekki látið hjá líða að vinna að því með skipulegum og málefnalegum hætti að útfæra og veita lö gbundna þjónustu. Þrátt fyrir það svigrúm sem ber i að ljá stefnd a verð i eins og nú sé komið að telja þann drátt sem haf i verið á því að stefnandi fái notið réttinda sinna, sem viðurkennd hafa verið af stefnd a , svo úr hófi að hann brjóti gegn þeim viðmiðum um málshraða sem leið i af 9. gr. stjórnsýslulaga og 34. gr. laga nr. 38/2018. 27. Í öðru lagi byggir stefnandi á því að st efnd i hafi brotið gegn réttindum hans með því að láta undir höfuð leggjast að framfylgja málsmeðferðarreglum 34. gr. laga nr. 38/2018 og reglugerðar nr. 370/2016, fram til ágústmánaðar 2023. Stefnd i hafi aðeins skipað stefnanda í þjónustuflokk III en ekki raðað honum innbyrðis á biðlista innan þess flokks. H afi stefnd i þannig ekki haldið úti neinum raunverulegum biðlista þrátt fyrir lagaboð 7 þess efnis í 8. og 9. gr. reglugerðar nr. 370/2016. Framangreind vanræksla stefnda haf i haft í för með sér að engin n f yrirsjáanleiki eða gagnsæi hafi verið í úthlutunum sértækra húsnæðisúrræða. Að sama skapi hafi stefnd i ekki unnið einstaklingsbundna áætlun um útvegun sértæks húsnæðisúrræðis í samræmi við skyldur sínar samkvæmt 8. gr. reglu - gerðar nr. 370/2016 og ekki veitt stefnanda upplýsingar um stöðu umsóknar hans eða áætlaðan biðtíma eða átt frumkvæði að því að eiga samráð við stefnanda að öðru leyti í samræmi við skyldur sínar samkvæmt 8. og 10. gr. reglugerðar nr. 370/2016. Þegar stefnanda hafi loks verið send áæ tlun um útvegun húsnæðis haustið 2023 hafi verið liðin sex ár og fimm mánuðir frá umsókn stefnanda og fjögur ár og níu mánuðir frá gildistöku laga nr. 38/2018 og breytingu reglugerðar nr. 370/2016. 28. Í þriðja lagi byggir stefnandi á því að stefnd i hafi brot ið gegn réttindum stefnanda þegar stefndi rétti ekki hlut stefnanda í kjölfar dóms H éraðsdóms Reykjavíkur 16. júní 2021 í máli nr. E - 2712/2020. Umrædd skylda hafi jafnframt raknað við í kjölfar dóms 31. mars 2025 í máli nr. E - 1623/2024. Aðilar síðastnefndr a dómsmála hafi v e rið í öldungis sambæri legri stöðu og stefnandi . Í samræmi við jafnræðisreglu , sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga , og lögmætisreglu hafi stefnd a borið að leysa eins úr máli stefnanda og annarra í sambærilegri stöðu og aðila héraðsdómsmáls nr. E - 2712/2020. Í ljósi þess að stefnd i hafi búið yfir vitneskju um brot sín gegn lögum og að þau brot fælu í sér ólög mæta meingerð hafi stefnd a sem stjórnvaldi ekki verið stætt á að viðhalda því ólögmæta ástandi, heldur hafi honum borið að bregðast við og rétta hlut stefnanda. 29. Stefnandi kveðst tel ja að hvert og eitt brot stefnd a gegn réttindum stefnanda eigi að leiða til miskabótaskyldu stefnd a . Sé viðhaft heildstæt t mat á háttsemi stefnd a verð i hins vegar enn ljósara að meðferð hans á umsókn stefnanda hafi vikið talsvert frá því sem lög kveð i á um og stefnandi hafi mátt búast við. Brotin teng ist þó jafnframt innbyrðis en ómarkviss meðferð stefnd a á umsókn stefnanda, í andstöðu við 34. gr. laga nr. 38/2018 og reglugerð nr. 370/2016, h afi m.a. valdið því að málsmeðferðartími stefnd a h afi dregist eins mikið úr hófi og raun ber i vitni. 30. Stefnandi vísar til þess að öllum skilyrðum bótaábyrgðar stefnd a sé fullnægt. Telja verð i að háttsemi stefnd a hafi vikið svo verulega frá þeim lagaskyldum sem hvíla á honum og þeirri háttsemi sem af honum mátti búast að saknæmisskilyrðum sé jafnframt fullnægt. Afleiðing brota stefnd a sé sú að stefnanda h afi ekki verið mögulegt að hefja sjálfstætt líf á eigin heimili og eigin forsendum. Þvert á móti h afi líf stefnanda verið í eins konar biðstöðu í rúm átta ár á meðan hann hafi beðið eftir lögbundinni þjónustu. Um sé að ræða hagsmuni sem stand i persónu stefnanda afar nærr i og haf i brot stefnd a haft tilfinnanleg áhrif á líf stefnanda. Vegna brota stefnd a hafi stefnandi ekki getað gert ráðstafanir og skipulagt líf sitt til framtíðar heldur lifað við mikla óvissu. Framangreind brot stefnd a gegn réttindum stefnanda fel i þannig í eðli sínu í sér bótaskylda meingerð gegn persónu hans og öðrum hagsmunum sem njót i verndar b - liðar 1. mgr. 26. gr. skaða bótalaga nr. 8 50/1993. Þá sé miski stefnanda í beinum orsakatengslum við og sennileg afleiðing af háttsemi stefnd a . Helstu m álsástæ ður stefnd a 31. Stefnd i hafnar málatilbúnaði stefnanda alfarið og byggir á því að málsmeðferð í máli stefnanda hafi verið lögum samkvæmt. Öll húsnæðis - og þjónustuúrræði stefnd a hafi verið í samræmi við ákvæði stjórnarskrár, laga, reglugerða og eigin reglna stefnd a og upplýsingagjöf til stefnanda og aðstandenda hans verið sinnt og stefnanda boðin úrræði á biðtíma. 32. Um stöðu sveitarfélaga varðandi málefni fatlaðs fólks vísar stefn d i til 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar , sbr. lög nr. 33/1944. Í dómaframkvæmd hafi ákvæðið verið túlkað á þann veg að það tryggi þessum einstaklingum ákveðin lágmarksréttindi eftir fyrir fram gefnu skipulagi sem ákveðið skuli á málefnalegan hátt. Í ákvæ ðinu fel ist að löggjafanum sé skylt að tryggja ákveðinn lagaramma um þjónustu og slíkan lagaramma sé m.a. að finna í lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og í lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. 33. Vísar stefnd i til þess að ú tfærsla réttar samkvæmt 76. gr. stjórnarskrár taki mið af ákvæði 78. gr. stjórnarskrárinnar, sem tryggi sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt sveitar félaga, sbr. og ákvæði 1. mgr. 1. gr. og 1. mgr. 3. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 13 8/2011. Með hliðsjón af þeirri sjálfstjórn sem sveitarfélögum sé veitt setj i þau sér sínar eigin reglur um rétt íbúa á grundvelli laganna, þ. á m. um umfang og útfærslu þjónustu við fatlað fólk. Sveitarfélög haf i ákveðið svigrúm til að forgangsraða framkvæ md lög bund inna verkefna innan ramma laganna samkvæmt 78. gr. stjórnarskrárinnar. Því get i ein staklingar ekki gert kröfu um ákveðna, skilyrðis - og tafarlausa þjónustu heldur helg i st framboð hennar af því í hvaða mæli sveitarfélagi sé unnt að veita þjónus tuna. Í samræmi við framangreint hafi stefnd i sett reglur um félagslegt leiguhúsnæði og fel i þær reglur í sér lögmæta og málefnalega útfærslu sveitarfélagsins á þeim skyldum sem lagðar séu því á herðar með 76. gr. stjórnarskrárinnar, lögum nr. 38/2018 og lögum nr. 40/1991 . Stefnd i hafi samþykkt uppbyggingaráætlun húsnæðis til að mæta húsnæðisþörf og endurskoðað uppbyggingaráætlunina reglulega, að teknu tilliti til breyttra aðstæðna. Eðli málsins sam - kvæmt fylgi slíkum áætlunum og framkvæmdum á grundvel li þeirra mikil vinna, tími og kostnaður. Húsnæði þurfi enda að taka mið af þjónustuþörf einstaklinga sem samþykktir haf i verið á biðlista, forgangsröðun og því fjármagni sem veitt hafi verið til málaflokksins af hálfu sveitarfélagsins. Þá geti einstakling ar sótt um húsnæði hjá öðru sveitarfélagi en lögheimilissveitarfélagi, sem geri það að verkum að erfitt sé að gera sér grein fyrir raun - verulegri þörf fyrir húsnæðisúrræði á landsvísu. 34. Stefnd i byggir á því að á greiningslaust sé í málinu að umsókn stefnand a um húsnæði hafi verið sa mþykkt af hálfu stefnd a og að stefnandi sé ekki lengur á biðlista eftir hús næði. Í 9 samþykkt umsóknar felist ekki að á stefnd a hafi hvílt afdráttarlaus skylda til að veita stefnanda húsnæðið tafarlaust. S tefnandi hafi ekki þurft a ð bíða í svo óhóflega langan tíma eftir úthlutun á húsnæði að það fari gegn málshraðareglu stjórnsýsluréttarins, sbr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Umsókn stefnanda hafi verið lögð fram og sam þykkt í gildistíð eldri laga nr. 59/199 2 um málefni fatlað s fólk s . Lög nr. 38/2018 hafi tekið gildi 1. október 2018 og eig i því að mati stefnd a ekki við í máli stefnanda fyrr en eftir þann tíma. Stefnandi hafi beðið í um átta ár frá því að umsóknin var samþykkt þar til hann hafi dregið umsókn sína til baka . Fyrir ligg i að stóran hluta þess tímabils hafi vilji stefnanda ekki staðið til þess að fá úthlutað húsnæði þrátt fyrir að vilja vera áfram á biðlistanum. 35. Þá vísar stefnd i til þess að s tefnandi h afi verið upplýstur um ástæður tafa og næstu fyrir - hugaðar úthlutanir hjá stefnd a . Lögð h afi verið áhersla á bein samskipti við stefnanda og aðstandendur hans af hálfu stefnd a og upplýsingagjöf um stöðu húsnæðis fyrir fatlað fólk með reglulegum viðtölum og svörum við fyrirspurnum. Staða stefnanda hafi verið endur - metin reglulega og reynt að koma til móts við þjónustuþarfir hans á biðtíma eftir húsnæði. Þá hafi stefnandi ekki sýnt fram á að ekki hafi verið staðið málefnalega að úthlutun hús - næðis af hálfu stefnd a . 36. Þá kveður stefnd i bótaskyldu vegna skorts á upplýsin gagjöf ekki hafa stofnast og mót - mælir því að hafa brotið gegn ákvæðum laga nr. 38/2018 eða gegn ákvæðum reglugerðar nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, sbr. breytingareglugerð nr. 1039/2018. Þá mótmælir stefnd i því að upplýsingagjöf til stef nanda hafi verið svo stór lega vanrækt af hálfu stefnd a að leitt hafi til miskatjóns . 37. Vísar stefnd i til 1. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018, ákvæðis sem sé nánar útfært í reglugerð nr. 1039/2018 . Sams konar ákvæði sé einnig að finna í 9. gr. reglna stefnd a u m félagslegt leiguhúsnæði. Í 8. gr. reglugerðar nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, með síðari breytingum samkvæmt breytingareglugerð nr. 1039/2018 , sé vikið að biðlistum. Stefnd i hafi metið það sem svo að uppbyggingaráætlanir Reykjavíkurborgar varðandi sértæk húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, sem tak i mið af þeim einstaklingum sem samþykktir hafa verið á biðlista eftir slíku húsnæði, væru í samræmi við áskilnað laga, reglugerðar og reglur ste fnd a um félagslegt húsnæði og því teldi stefnd i sér ekki skylt að gera aðra áætlun til viðbótar fyrir sérhvern einstakling á biðlista. Stefnd i hafi því verið ósammála þeirri niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E - 2712/2020 að stefnd i hefði vísvitan di látið undir höfuð leggjast að gera slíkar persónubundnar áætlanir. H vorki í lögunum né breytingareglugerð nr. 1039/2018 sé að finna beinan áskilnað þess efnis að sveitarfélag skuli vinna slíkar persónubundnar áætlanir en s á skilningur verð i hvorki ráðin n af orðalagi 8. gr. reglugerðarinnar né ákvæðum laga nr. 38/2018, eða lögskýringargögnum með þeim. 38. Þá byggir stefnd i á því að breytingareglugerð nr. 1039/2018 hafi ekki verið komið á með viðhlítandi hætti og skorti lagastoð. Hún hafi verið sett með stoð í 2. mgr. 34. gr. laga nr. 10 38/2018 sem mæli skýrt fyrir um að setning reglugerðar sé háð samráði við Sam band íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks. Óumdeilt sé að slíku sam ráði hafi ekki verið til að dreifa við setningu regluge rðarinnar. Verð i því að mati stefnd a að leggja til grundvallar að breytingareglugerð nr. 1039/2018 hafi að þessu leyti ekki fullnægjandi stoð í 2. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018. Breyti engu þó svo að um lagastoð sé einnig vísað til 40. gr. laganna enda sé það ákvæði eingöngu yfirlitsákvæði yfir reglu - gerðarheimildir í lögunum. 39. Kveður stefnd i að í kjölfar fyrrgreinds dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E - 2712/2020 hafi stefndi ger t úrbætur á verklagi sínu og hafið að senda út ítarlegri persónu - bundnar áætlanir á einstaklinga þar sem m.a. hafi verið getið um hvenær fyrir hugað væri að viðkomandi fengi úthlutað húsnæðisúrræði. Ekki hafi verið í slíkum áætl unum unnt að segja með nákvæmum hætti fyrir um hvenær viðkomandi myndi fá út hlutað hús næði . Það sé með öllu ógerlegt að lofa viðkomandi úthlutun á einhverjum nánar til greindum tíma og væri til þess fallið að vekja hjá viðkomandi falskar væntingar. 40. Stefnd i telji ljóst af fyrirliggjandi gögnum að upplýsingagjöf til stefnanda og aðstand enda hans hafi verið viðhlítandi og síður en svo með þeim hætti að bótaskylda hafi stofn ast. Þá megi af gögnum í máli stefnanda leiða að meiri áhersla hafi verið lögð á það af hálfu stefnanda og foreldra hans að hann fengi úthlutað notendastýrðri persónulegri aðst oð heldur en sértæku húsnæði fyrir fatlað fólk. 41. Þá mótmælir s tefnd i þeim málatilbúnaði stefnanda að unnt sé að draga víðtækar álykt anir af niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E - 2712/2020 og E - 1623/2024, svo sem að allir einstaklingar á biðlista eftir sértæku húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk öðlist á grundvelli þeirra sjálfkrafa rétt til miskabóta . D óma r héraðsdóms fel i í sér niður stöðu um rétt þeirra málsaðila sem þar áttu í hlut. Við mat á því hvort bótaskylda hafi stofnast verð i ávallt að byggja á atviksbundnu mati hverju sinni enda hvoru tveggja persónulegar aðstæður einstaklinganna og upplýsingagjöfin af hálfu stefnd a mismun andi. Þá verð i að mati stefnd a einnig að horfa til þess að í kjölfar aðfinnslna við þá verandi verklag stefnd a í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E - 2712/2020 hafi stefnd i gert úrbætur á verklagi sínu og hafið að senda árlega út persónubundnar áætlanir til allra á biðlista eftir húsnæði fyrir fatlaða. Stefnd i hafi bætt upplýsingagjöf , þ. á m. í tilviki stefnanda , og horfa verð i til þess þegar fram fari heildstætt mat á því hvort háttsemi stefnd a uppfylli ströng saknæmisskilyrði 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Í fyrr greind um dómi héraðsdóms hafi því verið slegið föstu að stefnd i haf i vísvitandi láti ð undir höfuð leggjast að gera einstaklingsbundnar áætlanir fyrir umsækje ndur en því sé harðlega mótmælt af hálfu stefnd a . Engan skýran áskilnað um skriflega persónubundna áætlun sé að finna í skráðum reglum, hvorki 34. gr. laga nr. 38/2018 né 8. 10. gr. r eglu gerðar nr. 370/2016. 42. Hvað varðar ákvæð i 65. og 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. og 14. gr. mannréttinda - sáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sem fjall i um vernd friðhelgi einkalífs, heimilis og 11 fjölskyldu , f eli það ekki í sér brot á ætluðum jákvæðum athafnaskyldum af hálfu stefnd a að hafa ekki veitt stefnanda það húsnæði sem sótt var um og stefnd i hefur sam þykkt að stefnandi eigi rétt til. F yrrgreind ákvæði legg i engar slíkar jákvæðar athafna skyldur á stefnd a heldur sé stefnd a lögum samkvæmt heimilt að útfæra þá þjónustu sem í boði sé að teknu tilliti til fjármagns og forgangsröðunar. 43. Stefnd i mótmælir því að hafa á nokkurn hátt brotið gegn frelsi, friði, æru eða persónu stefnanda , sbr. b - lið 1. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1993, þó að stefnd i dragi ekki úr að þung - bært sé fyrir stefnanda að hafa þurft að bí ð a eftir húsnæði. Þá mótmælir stefnd i því sér - staklega að uppfyllt sé hið aukna saknæmisskilyrði 26. gr. laga nr. 50/1993 . Frá árinu 2011 hafi verið unnið hörðum höndum að uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk. Eftir - spurn eftir slíku húsnæði hafi á þeim tíma aukist verulega og þrátt fyrir meira en tvö - földun búsetuúrræða á tímabilinu hafi fjölgað umtalsvert á biðlistum. Af heildar sam - henginu sé ljós t að málshraði sé ekki óhóflegur og tafir séu réttmætar og málefnalegar. 44. Komi til þess að stefnanda verði dæmdar bætur krefst stefnd i lækkun ar bótafjárhæðar og þá er dráttarvaxtakröfu stefnanda sérstaklega mótmælt. Stefnd i byggir á því, með hliðsjón af óvenjulegum aðstæðum og atvikum málsins að öðru leyti, að sanngjarnt sé að bótaábyrgð verð i felld niður eða bótafjárhæð lækkuð verulega með vísan til 1. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1993 . Í máli stefnanda hafi m.a. verið ljóst að hann vildi ekki koma til álita við úthlutun sértæks húsnæðis á árunum 2020 2022 þar sem hann hafi ekki verið reiðubúinn að flytja að heiman. Slíkt get i ekki talist á ábyrgð stefnd a . Niðurstaða 45. Ágreiningur málsins lýtur í aðalatriðum að því hvort stefnand i eigi rétt til miskabóta úr hendi stefnd a vegna þess að óréttmætar tafir hafi orðið á afgreiðslu stefnd a við úthlutun húsnæðis til handa stefnanda vegna fötlunar hans svo og hvort skort hafi lögbundna upplýsingagjöf á meðan á töfunum stóð. 46. Í 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. lög nr. 33/1944, er mælt fyrir um að öllum sem þess þurfi skuli í lögum tryggður réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku og sambæri - legra atvika. Í dómaframkvæmd hefur ákvæðið verið túlkað á þann veg að það tryggi þessum einstaklingum ákveðin lágmarksréttindi eftir fyrir fram gefnu skipulagi sem ákveðið skuli á málefnalegan hátt. Hefur almenni löggjafinn vald um það hvernig því skipulagi er háttað en það verður eigi að síður að fulln ægja þeim lágmarksréttindum sem í 1. mgr. 76. gr. felast, sbr. m.a. dóma Hæstaréttar 19. desember 2000 í máli nr. 125/2000 og 8. október 2020 í máli nr. 13/2020 og dóm Landsréttar 12. mars 2021 í máli nr. 72/2020. Með lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatl að fólk með langvarandi stuðningsþarfir hefur löggjafinn sett reglur í samræmi við þær skyldur sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar. 12 47. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2018 er það í höndum sveitarfélaga að útfæra og veita þjónustu vi ð fatlað fólk, þ. á m. um húsnæðisúrræði. Þegar þjónustuveiting er falin sveitarfélögum eru þau jafn framt bundin af 76. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. fyrrnefndan dóm Hæstaréttar í máli nr. 13/2020. Sveitarfélög hafa hins vegar svigrúm til að forgangs - raða framkvæmd lög bund inna verkefna innan ramma laga samkvæmt 78. gr. stjórnar - skrárinnar, sbr. dóm Hæsta réttar 25. október 2018 í máli nr. 106/2017. Hafa þau þannig svigrúm til að ákveða forgangs röðun lögbundinna verkefna innan ákveðins ramma sem og svigrú m til að meta hvert tilvik fyrir sig. Sveitarfélög geta þó ekki látið hjá líða að vinna að því með skipulegum og málefnalegum hætti að útfæra og veita þjónustu, sbr. fyrrnefndan dóm Landsréttar í máli nr. 72/2020 , efnisgrein 29 . 48. Fyrir liggur í gögnum málsi ns að af hálfu stefnd a hefur verið unnið í að mæta þjónustu - þörf sem er eftir sértækum húsnæðisúrræðum eftir að sveitarfélög tóku við þjónustu við fatlað fólk frá íslenska ríkinu árið 2011. Frá þeim tíma hafa verið í gildi áætl anir um sértæk húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk. Árið 2017 var m.a. samþykkt á vett vangi stefnd a u ppbyggingaráætlun sértækra húsnæðisúrræða 2018 2030 fyrir fatlaða einstaklinga , en í henni fólst áfangaskipt áætlun um uppbyggingu húsnæði s í þremur áföngum á tímabilinu. Endurskoðuð uppbyggingaráætlun húsnæðis fyrir fatlað fólk er frá ágúst 2022 . Í henni kemur m.a. fram að í heild sé lögð til uppbygging á 168 íbúðum auk starfsmannaaðstöðu, í heildina sé um að ræða 20 íbúðakjarna með 120 íbúðum og tveimur færanlegum teymum sem veiti fólki stuðning í 48 íbúðum og er tímabil áætlunarinnar afmarkað frá 2022 til 2028. Þar kemur og fram að þegar stefnd i tók við málaflokki fatlaðs fólks frá íslenska ríkinu 2011 hafi 219 einstaklingar búið í sértæku húsnæði. Í lok árs 2016 hafi 310 íbúar búið í hús næði fyrir fatlað fólk og í lok árs 2021 hafi 489 íbúar verið í húsnæði fyrir fatlað fólk. Af gögnum málsins má m.a. ráða að umsækjendur á biðlista eftir húsnæði fyrir fatlað fólk , þ.e. nýjar umsóknir , hafi verið alls 175 í lok árs 2018, þar af 44 í sama þjónustuflokk i og stefnandi var í, og í lok árs 2024 hafi þær verið alls 176, þar af 40 í sama þjónustuflokk i og stefnandi var í . 49. Verður í ljósi þess sem að framan greinir ekki fallist á með stefnanda að hann hafi, sam - kvæmt 9. gr. laga nr . 38/ 2018, sem tekur mið af 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, 5. og 9. gr. sama samnings, 65. og 76. gr. stjórnar skrárinnar, 14. gr. mannréttindasáttmála E vrópu , 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eða 34. gr. laga nr. 38/201 8 , átt skýran rétt til húsnæðis á vegum stefnda fyrr en áætlað var , þar sem gögn málsins bera með sér að stefnd i vann að uppbyggingu slíkra úrræða með skipulegum og málefnalegum hætti. Fyrir liggur og að á biðtíma eftir húsnæði veitti stefnd i stefnanda ýmiss konar þjónustu, m.a. stoð - og stuðningsþjónustu , aðallega í formi beingreiðslu - samninga . Þá verður ekki fallist á með stefnanda að jákvæðar skyldur hafi hvílt á stefnd a til að veita honum aðgang að sértæku búsetuúrræði á grundvelli 1. mgr. 71. gr. stjórnar - skrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, enda fela þau 13 ákvæði ekki í sér rétt til húsnæðis, sbr. til hliðsjónar fyrrnefndan dóm Landsréttar 12. mars 2021 í máli nr. 72/2020, efnisgrein 36 . 50. Í máli þessu liggu r fyrir að stefnandi sótti um sértækt húsnæðisúrræði hjá stefnd a 15. mars 2017 , u msókn stefnanda var samþykkt á biðlista 17. sama mánaðar og hann metinn í þjónustuflokk III. Hinn 21. október 2021 var umsókn stefnanda um NPA samþykkt. Samkvæmt upplýsingum s tefnd a um uppfærða stöðu umsóknar stefnanda um sértækt húsnæði fyrir fatlað fólk hinn 25. október 2024 var gert ráð fyrir að stefnandi fengi úthlutað húsnæði árið 2027. Stefnandi dró umsókn sína um sértækt húsnæðisúrræði til baka 6. júní 2025 , í kjölfar þe ss að fjárveiting vegna umsókn ar hans um NPA - þjónustu var samþykkt, og lagði inn nýja umsókn hjá stefnd a um almennt félagslegt leiguhús næði. Frá því hann sótti um sértækt húsnæðisúrræði og þar til umsókn þar um var dregin til baka liðu rúm lega átta ár . Ekkert í gögnum málsins gefur til kynna að stefnandi hafi sótt um húsnæðisúrræði hjá öðrum sveitarfélögum. 51. Í aðilaskýrslu stefnanda kom m.a. fram að þegar hann hafi fengið úthl utaðr i NPA - þjónustu hafi komið í ljós að hann hafi verið á röngum lista yfir hús næði hjá stefnd a . H ann hafi sótt um húsnæðisúrræði hjá stefnd a til þess að flytja að heiman. Í samskiptum við stefnd a hafi stefnandi ekki fengið leiðbeiningar eða upplýsingar um á hvaða biðlista hann ætti að vera , þ.e. að hann ætti að vera á biðlista fyrir almennt félagslegt leiguhús - næði vegna NPA - aðstoðar, en ekki á biðlista vegna sér tæks húsnæðisúrræð i s . 52. Í vitnaskýrslu móður stefnanda fyrir dómi kom fram að þegar stefnandi var eða ára hafi verið byrjað með beingreiðslusamninga fyrir fatlaða krakka og óskað hafi verið eftir því að stefnandi tæki þátt í verkefninu. Til að stefnandi gæti tekið þátt hafi hann þurft að sækja um húsnæði hjá stefnd a . Árið 2020 hafi starfsmaður stefnd a rætt við vitnið og spurt hvort rétt væri að virkja umsókn um húsnæðið. Stefnandi hafi þá verið tvítugur, Covid - 19 faraldur í gangi og þau talið óráðlegt að hann færi þá í eigin búsetu. Hann hafi jafnframt verið á þessum tíma samþykktur í NPA - þjónustu hjá stefn d a . Árið 2022 hafi aftur verið spurt af hálfu stefnd a hvort rétt væri að virkja íbúðarúrræði fyrir stefnanda. Þá hafi vitnið spurt hvernig stefnandi ætti að geta búið einn, en hann þyrfti sólarhrings - þjónustu. Ekki hafi því verið tímabært að stefnandi færi í eigið húsnæði , m.a. þar sem húsnæðinu fylgdi engin frekari þjónusta . Um páskana 2025 hafi stefnandi fengið úthlutað NPA - fjármunum frá stefnd a . Þá hafi komið í ljós að stefnandi hafi verið á röngum húsnæðislista hjá stefnd a . Hann megi ekki vera á lista f yrir sértækt húsnæðisúrræði út af NPA - samningnum , en vitnið hafi ekki skilið muninn á þessum listum og stefnd i ekki leiðbeint um þetta . Upplýsti vitnið um að stefnandi væri nú að fara í leiguhúsnæði á almennum markaði með NPA - þjónustu . 53. Í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 38/2018 segir að fatlað fólk eigi rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir og félagslegri þjónustu sem geri því kleift að búa á eigin heimili og stuðli að fullri aðlögun þess og þátttöku í samfélaginu. Í 3. mgr. 9. gr. se gir að ráðherra 14 setji reglugerð um sérstök húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, m.a. um fjölda samliggjandi íbúða, einkarými, viðbótarrými vegna fötlunar og sameiginleg rými. Þá segir jafnframt í 3. tölul. 1. mgr. 40. gr. laganna að ráðherra setji reglugerð u m sérstök húsnæðisúrræði, sbr. 9. gr. laganna. 54. Í 1. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018 segir að ákvörðun um að veita þjónustu skuli taka svo fljótt sem kostur sé. Sé ekki unnt að hefja þjónustu strax og umsókn sé samþykkt skuli tilkynna umsækjanda um ástæður þ ess og hvenær þjónustan verði veitt. Sé fyrirséð að þjónusta sem sótt var um geti ekki hafist innan þriggja mánaða frá samþykkt umsóknar skuli leiðbeina umsækjanda um þau úrræði sem hann hafi á biðtíma og aðra þjónustu sem sé í boði. Þá skuli veita honum a ðra viðeigandi þjónustu á meðan beðið sé eftir að þjón - ustan sem samþykkt hafi verið hefjist. Í 2. mgr. ákvæðisins segir að ráðherra setji reglu - gerð um biðlista, forgangsröðun og úrræði á biðtíma í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasa mtök fatlaðs fólks. Þá segir jafnframt í 7 . tölul. 1. mgr. 40. gr. laganna að ráðherra setji reglugerð um biðlista, forgangsröðun og úrræði á biðtíma, sbr. 34. gr. laganna. 55. Félags - og húsnæðismálaráðherra setti reglugerð nr. 370/2016 um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, sem tók gildi 9. maí 2016, með stoð í 10. gr. þágildandi laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks. Umræddri reglugerð var breytt með reglugerð félags - og jafnréttis - málaráðherra nr. 1039/2018 hinn 7. nóvember 2018, með vísan til 34. og 40. gr. laga nr. 38/2018, en með breytingareglugerðinni komu þrjú ný ákvæði inn í reglugerð nr. 370/2016, þ.e. 8., 9. og 10. gr. 56. Í 1. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 370/2016 segir um biðlista að hafi umsókn um húsnæðis - úrræði samkvæmt reglugerðinni verið sam þykkt en ljóst sé að ekki muni unnt að útvega það innan þriggja mánaða skuli tilkynna umsækjanda um ástæður tafanna og hvenær fyrirhugað sé að húsnæðisúrræði geti verið tilbúið. Þá skuli setja umsókn á biðlista. Þegar umsækjanda sé tilkynnt um að hann sé k ominn á biðlista skuli unnin áætlun um útvegun viðeigandi húsnæðisúrræðis og hvort og þá hvers konar annað úrræði standi umsækjanda til boða á biðtíma. Efnislega samhljóða ákvæði er í 9. gr. reglna stefnd a nr. 465/2019 um félagslegt leiguhúsnæði. 57. Í 9. gr. reglugerðarinnar segir að raða skuli á biðlista eftir sömu sjónarmiðum og komi fram í matsviðmiðum sveitarfélaga. Sveitarfélög skuli kveða skýrt á um það í reglum sínum á hvaða matsviðmiðum skuli byggt, hvernig samþykktum umsóknum skuli for - gangsraðað efti r þörf viðkomandi, lengd biðtíma eftir húsnæðisúrræði og öðrum þeim úrræðum sem standi til boða á biðtíma. Við mat á þörf og forgangi skuli sveitarfélag líta til sömu viðmiða og varðandi úthlutun á félagslegu leiguhúsnæði, þ.m.t. núverandi húsnæðisaðstöðu umsækjanda og hversu brýna þörf viðkomandi hefur fyrir viðeigandi húsnæðisúrræði. 15 58. Þá segir í 10. gr. reglugerðarinnar að sveitarfélag skuli tryggja reglubundið samráð við umsækjanda á biðtíma. Umsækjandi skuli þá upplýstur um stöðu á biðlista, áætlaða leng d biðtíma og þau úrræði sem standa honum til boða á biðtímanum. 59. Líkt og rakið hefur verið hér að framan er ekki á það fallist að stefnandi hafi átt lögvarinn rétt til húsnæðis sér til handa fyrr en áætlun stefnd a bar með sér , áður en stefnandi dró til baka umsókn sína um sértækt húsnæði . Á hinn bóginn liggur fyrir að í kjölfar setningar laga nr. 38/2018 var, sem fyrr greinir, sett breytingareglugerð nr. 1039/2018, sem tók gildi 7. nóvember 2018, þar sem mælt er fyrir um að umsókn um sækjanda um húsnæðisúrræ ði fyrir fatlað fólk skuli raða á biðlista og að umsækjandi skuli upplýstur um hvenær fyrirhugað sé að húsnæðisúrræði hans geti orðið tilbúið, sbr. 1. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 370/2016. Þá skuli sveitarfélag tryggja reglubundið samráð við umsækjand a á b iðtíma og upplýsa um stöðu á biðlista, áætlaða lengd biðtíma og þau úrræði sem standi honum til boða á biðtíma, sbr. 10. gr. reglugerðarinnar. 60. Hvað varðar málatilbúnað stefnd a um undirbúning og setningu breytingareglugerðar nr. 1039/2018 má ráða af framlögðum gögnum að samráð hafi ekki verið haft við Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks í aðdraganda setning ar hennar, svo sem ráðgert er í 2. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018. Umrædd reglugerð var samþykkt 7. nóvember 2018 og birt í B - deild Stjórnartíðinda 26. s.m., en ekki verður ráðið að stefnd i eða aðrir hagsmunaaðilar hafi vefengt gildi hennar gagnvart ráðherra er fékk framselt lagasetningarvald á grundvelli umrædds lagaákvæðis, svo sem stefnandi vísaði og til við munnlegan flutning málsins . Skoðast framangreint m.a. í ljósi sjónarmiða um birtingu laga , réttaröryggi og réttmætar væntingar þeirra er öðlast réttindi á grundvelli birtra stjórnvaldsfyrirmæla . Þess utan liggur fyrir að í kjölfar setningar umræddrar reglu gerðar setti stefnd i sér sjálf ur reglur , sbr. 9. gr. reglna stefnd a nr. 465/2019 um félagslegt leigu - húsnæð i, sem eru efnislega samhljóða 1. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 370/2016 eins og henni var breytt með reglugerð nr. 1039/2018. Verður í þessu ljósi ekk i fallist á með stefnd a að lagastoð hafi skort fyrir umræddri breytingareglugerð eða að stefnda hafi ekki borið að fylgja þeim málsmeðferðarreglum er þar greinir og birtast jafnframt um margt í eigin reglum stefnda . 61. Af gögnum máls þessa, sem nánar eru rei fuð í málsatvikalýsingu, er ljóst að frá því að stefnandi sótti um sértækt húsnæðisúrræði hjá stefnd a 15. mars 2017, sem var samþykkt á biðlista 17. sama mánaðar , og allt til þess að stefnd i sendi honum fyrst bréf um stöðu umsóknar hans 18. ágúst 2023 hafði hann aldrei fengið upplýsingar um stöðu á biðlista og hvenær vænta mætti þess að hann fengi úthlutað húsnæði. Þannig er m.a. ljóst að frá því að ákvæði reglugerðar nr. 1039/2018 tóku gildi veitti stefnd i stefnanda ekki upp - lýsingar um stöðu á biðlista og áætlaða lengd biðtíma eftir húsnæði í tæp lega fimm ár, í andstöðu við 8. og 10. gr. reglugerðarinnar svo og 9. gr. reglna stefnda nr. 465/2019. H inn 25. október 2024 var stefnandi, með bréf i frá velferðarsviði stefnd a , upplýstur um 16 uppfærða stöðu umsóknar sinnar um húsnæði fyrir fatlað fólk. Aðrar upplýsingar sem stefnandi fékk á þorra biðtíma eftir sértæku húsnæðisúrræði , þ.e. allt þar til hann dró þá umsókn sína til baka sumarið 2025 , komu að mestu fram í samskiptum starfsfólks stefnd a við stefnanda sjálfan og foreldra hans en þar var ekki að finna sértækar upplýsingar um stöðu stefnanda á biðlista og áætlaða lengd biðtíma. Tilvísanir stefnd a til uppbyggingaráætlana si nna varðandi húsnæðisú rræði fyrir fatlað fólk uppfylla í fyrirliggjandi samhengi ekki kröfur fyrrgreindra ákvæða enda er þar ekki að finna sér - tækar upplýsingar svo stefnandi hefði getað áttað sig á stöðu sinni hvað húsnæði áhrærði. Skoðast framangreint og í ljósi þeirrar almen nari upplýsingaskyldu sem hvíldi á stefnd a samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 38/2018, sbr. og 3. mgr. 9. gr. laga nr. 37/1993, en af atvikum máls þessa er ljóst að upplýsingagjöf stefnd a á stærstum hluta biðtímans eða allt til ársins 2023 , hvað stöðu umsók nar hans vegna húsnæðisúrræðis varðaði , var ógagnsæ og laut að mestu að öðrum atrið um að undanskildum tveimur samtölum starfs manna stefnd a við stefnanda og aðstandendur hans annars vegar í október 2020 og hins vegar í apríl 2022 hvar fram kom að stefnandi óskaði ekki eftir að koma til álita varðandi úthlutun á þeim tímapunkti. Haggar sú afstaða stefnanda og móður hans í óformlegum samskiptum við stefnd a e kki framangreindum skorti á sértækri upplýsingagjöf. 62. Ljóst er að s t e fnandi sótti fyrst um sértækt húsnæðisúrræði hjá stefnd a í tengslum við tilraunaverkefni sem hann var samþykktur í árið 2017 en s amkvæmt 3. gr. reglna Reykja - víkurborgar um tilraunaverkef nið var m.a. skilyrði fyrir þátttöku í tilraunaverkefninu að notandi skyldi eiga gilda umsókn um sértækt húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk . Var þjónustuþörf hans metin í flokk III sam - kvæmt verklagi þar að lútandi, sem fól í sér að umsækjandi hafi verið metinn í þörf fyrir sólarhringsumönnun. Á meðan á verkefninu stóð virðist í samskiptum stefnanda og starfsfólks stefnd a hafa verið lögð áhersla á NPA - þjónustu sem næsta skref fyrir stefn anda sem myndi gera honum kleift að þiggja sambærilega þjónustu og hann h efði þegið árin á undan , sem stefnandi sótti síðan um , líkt og að framan er rakið . Rennir þ að frekari stoðum undir ógagnsæ i í upplýsingagjöf til stefnanda að af gögnum málsins og fram burði stefnanda og móður hans fyrir dómi má ráða að stefnandi hafi ekki verið á réttum lista yfir húsnæðisúrræði , í það minnsta til að geta nýtt sér NPA - aðstoð , eftir að tilraunaverkefninu lauk og allt þar til hann dró umsókn sína um sértækt húsnæðisúrræði formlega til baka 6. júní 2025 , eftir höfðun máls þessa, og lagði inn nýja umsókn hjá stefnd a um almennt félagslegt leiguhúsnæði . 63. Telja verður af framangreindum ástæðu m að háttsemi stefnd a vegna meðferðar umsókn - ar stefnanda um sértækt húsnæðisúrræði hafi vikið svo frá þeirri háttsemi sem krefjast mátti af stefnda að uppfylltar séu saknæmiskröfur b - liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Stefnd i veitti stefnanda afar takmarkaðar upplýsingar um meðferð og framgang máls um húsnæði honum til handa um langt skeið sem varða r 17 grundvallarhagsmuni hans , svo og um hvers konar húsnæði rétt væri að sækja um fyrir einstakling í hans stöðu . Aðstöðumunur er á milli aðila og um að ræða hagsmuni sem stand a persónu stefnanda nærri . V erður fallist á með stefnanda að skortur á upplýsingagjöf til hans hafi verið íþyngjandi og haft tilfinnanleg áhrif á líf hans , m.a. þar sem örðugt var fyrir stefnanda að skipuleggja líf sitt til framtíðar vegna óvissu og skorts á fyrirsjáanleika um úthlutun og útvegun hentugs húsnæðis , sem enn virðist raunar ekki vera séð fram úr á vettvangi stefnd a . G ildir þá einu þótt stefnandi hafi ekki óskað eftir að koma til álita varðandi úthlutun sértæks húsnæðisúrræðis í tvígang áður en stefnd i hóf að senda út persón ubundnar áætlanir. 64. Er samkvæmt öllu framansögðu fallist á með stefnanda að í meðferð stefnd a á umsókn stefnanda hafi falist meingerð gegn persónu hans sem sé á ábyrgð stefnd a og eigi stefnandi því rétt til bóta vegna ófjárhagslegs tjóns samkvæmt b - lið 1. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1993. Í ljósi atvika og aðstæðna stefnanda er ekki tilefni til að lækka bætur honum til handa á grundvelli 1. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1993. Verður fa llist á kröfu stefnanda um greiðslu miskabóta úr hendi stefnd a sem þykja hæfilega ákveðnar , svo sem stefnandi krefst, 1.300.000 krónur . Þarf þá ekki að taka afstöðu til annarra málsástæð na stefnanda sem hann hefur teflt fram til stuðnings kröfu sinni , sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar 4. maí 2022 í máli nr. 50/2021, efnisgrein 40. 65. Stefnd i færir ekki fram nein efnisleg rök gegn drátta r vaxtakröfu stefnanda , en upp hafs - tími kröfunnar er í samræmi við 1. málsl. 9. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtrygg - ingu, og verður því fallist á hana svo sem í dómsorði greinir. 66. Eftir úrslitum málsins og með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála verður stefnd a gert að greiða málskostnað eins og nánar greinir í dómsorði og skal hann renna í r íkissjóð í samræmi við 4. mgr. 128. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála . 67. Stefnandi nýtur gjafsóknar samkvæmt gjafsóknarleyfi, dags. 12. mars 2026. Gjaf sókn ar - kostnaður stefnanda greiðist úr ríkissjóði, þ.m.t. þóknun lögmanns hans , sem þykir með hl iðsjón af efni og umfangi málsins hæfilega ákveðin svo sem greinir í dómsorði, en sú þóknun er í samræmi við dómvenju ákveðin án virðisaukaskatts, sbr. til hliðsjónar úrskurð Landsréttar frá 10. apríl 2018 í máli nr. 288/2018. 68. Flóki Ásgeirsson lögmaður flu tti málið fyrir stefnanda og Þórður Guðmundsson lögmaður fyrir stefnd a . 69. Sindri M. Stephensen héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dóms orð: Stefnd i , Reykjavíkurborg, greiði stefnanda, A , 1.300.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verð tryggingu frá 26. júní 2025 til greiðsludags. 18 Stefnd i greiði 1. 6 00.000 krónur í málskostnað sem renni í ríkissjóð . Allur gjafsóknarkostnaður stefnanda greiðist úr ríkissjóði, þ.m.t. málflutnings þóknun lögmanns hans, 1. 6 00.000 krón ur.