Héraðsdómur Norðurlands eystra Dómur 2. desember 2025 Mál nr. S - 515/2025 : Héraðssaksóknari ( Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi ) g egn Elísabet u Emm u Jóhannsdótt ur ( Jón Stefán Hjaltalín Einarsson lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem var dómtekið 5. nóvember sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 25. september 202 5 , á hendur Elísabetu Emmu Jóhannsdóttur, kt. , , , fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 29. janúar 2023, utan við félagsheimilið við [staður] , kastað glerglasi í höfuð A , kt. , með þeim afleiðingum að A hlaut tvo skurði á milli augna, annars vegar 2 sm að l engd og hins vegar 0,5 sm að lengd. Telst þetta varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Einkaréttarkrafa: Af hálfu A , er þess krafist að ákærðu verð i gert að greiða honum samtals kr. 1.290.000 í skaða - og miskabætur auk vaxta skv. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá 29. janúar 2023, en með dráttarvöxtum skv. 9. gr. sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga, frá þeim degi er mánuður er liðinn fr á því að bótakrafa þessi er birt og til greiðsludags. Þá er jafnframt krafist þess að ákærðu verði gert að greiða málskostnað að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi, að viðbættum virðisaukaskatti. Af hálfu ákærðu er krafist v ægustu refsingar sem lög leyfa og að hún verði að öllu leyti skilorðsbundin. Þá er krafist lækku nar á bótakröfu . Að lokum er krafist þóknunar til handa skipuðum verjanda. Ákærða hefur komið fyrir dóm og játað sök samkvæmt ákæru. Með játningu hennar, sem ek ki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, og gögnum málsins, er nægilega sannað að hún hafi gerst sek um þá háttsemi sem í ákæru er lýst og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, sbr. hei mildarákvæði 164. gr. laga nr. 88/2008. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 25. september 2025 , hefur ákærða ekki áður gerst sek um refsivert brot. Ákærða hefur játað sök og kvaðst iðrast gjörða sinna . Með 2 hliðsjón af framangreindu, drætti sem varð á m eðferð málsins en einnig alvarlei ka árásar ákærðu þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið, eins og nánar greinir í dómsorði. Af hálfu A er krafist miskabóta að fjárhæð 1.200.000 krónur auk bóta vegna sjúkrakostnaðar að fjárhæð 90.000 krónur. Krafa um sjúkrakostnað er vegna sálfræðiviðtala. Af gögnum málsins er ljóst að margt gekk á umrætt kvöld, ekkert í vottorði sálfræðings gefur til kyn na að vanlíðan brotaþola sé einungis til komin vegna árásar ákærðu. Með vísan til þess er fallist á sjúkrakostnað að hluta, þ.e. 45.000 krónur . Ákærða hefur v erið sakfelld fyrir alvarlegt brot gagnvart brotaþola og framlögð gögn benda til þess að brotaþoli hafi orðið fyrir miska vegna árásarinnar. Hefur ákærða með háttsemi sinni bakað sér bótaábyrgð á grundvelli 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Við mat á miskabótum verður sérstaklega litið til þeirrar alvarlegu aðferðar sem ákærða beitti, sem beindist að höfði brotaþ ola. Þykir fjárhæð miskabóta hæfilega ákveðin, með hliðsjón af atvikum og dómafordæmum, 600.000 krónur, auk vaxta og dráttarvaxta eins og greinir í dómsorði. Við ákvörðun á upphafstíma dráttarvaxta er litið til þess að ákærð u var kynnt bótakraf an við þingfestingu málsins 5. nóvember 2025. Ákærða greiði brotaþola 45 0.000 krónur í málskostnað . Að kröfu ákæruvalds og með vísan til dómsniðurstöðu verður ákærð a dæmd til greiðslu sakarkostnaðar, þ. m . t. þóknun skipaðs verjanda síns, á rannsóknarstigi og fyrir dómi, eins og hún ákveðst í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum . Berglind Harðardóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn. Dómso r ð: Ákærða, Elísabet Emma Jóhannsdóttir, sæti fangelsi í sex mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi hún almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr.19/1940. Ákærða greiði A 6 45 .000 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 29. janúar 202 3 til 5. desember 2025, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags , og 45 0.000 krónur í málskostnað. Ákærða greiði 350.266 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda hennar, Jóns Stefáns Hjaltalín Einar ssonar lögmanns, 309.690 krónur.