Héraðsdómur Austurlands Dómur 2 5 . júní 2025 Mál nr. S - 75/2025 : Ákæruvaldið ( Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari ) g egn Mikael Má Unnarss yni Dómur Mál þetta, sem tekið var til dóms 11. þessa mánaðar , var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Aust urlandi 23. síðasta mánaðar á hendur Mikael Má Unnarssyni, kt. , fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 6. febrúar 2025, ekið bifreiðinni sviptur ökurétti um Þjóðveg 1, yfir Karlsá og áfram í átt að bænum Hnauk ar, í Múlaþingi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og að hafa þannig brotið gegn 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Um málsatvik er skírskotað til ákæru. Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll, en í fyrirkalli sem gefið var út 26. síðasta mánaðar og birt ásamt ákæru málsins 7 . þessa mánaðar kom meðal annars fram að sækti ákærði ekki þing mætti hann búast við að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið það brot sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum. Var málið því tekið til dóms á grundvelli 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Dómurinn telur sannað, með vísan til þess sem að framan greinir og gagna málsins, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem h onum er gefin að sök o g er brotið réttilega heimfært til refsiákvæða í ákæru. Ákær ði er því sakfelldur fyrir háttsemina og hefur unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærða í átta tilvikum frá og með árinu 2018 verið gerð refsing fyrir að brjóta gegn umferðarlögum . Þ ar af hafa eftirfarandi tilvik þar sem honum hefur verið gerð refsing fyrir að aka sviptur ökurétti áhrif við ákvörðun refsingar nú. Með sátt við lögreglustjóra 5. október 2022 gekkst hann undir greiðslu sektar og tímabundna sviptingu ökuréttar fyrir að aka sviptur ökurétti og undir áhrifum fyrr á þv í ári , en hann hafði þá með dómi 15. júní það ár tímabundið verið sviptur ökurétti fyrir ýmis brot, þar á meðal að aka undir áhrifum. Með dómi 26. janúar 2024 var hann 2 dæmdur í 105 daga fangelsi, þar af tvo mánuði skilorðsbund n a í tvö ár frá dómsuppsögu , og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir að aka undir áhrifum og sviptur ökurétti 8. ágúst 2023 . Með dómnum var tveggja mánaða skilorðsbundinn hluti dóms ins frá 15. júní 2022 tekinn upp vegna skilorðsrofa og ákærða gerð refsing í einu lagi. Dómurinn frá 26. jan úar 2024 v ar birtur ákærða 1. mars 2024. Nú síðast var ákærði með dómi 30. janúar á þessu ári dæmdur í fimm mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir að aka undir áhrifum o g sviptur ökurétti. Hi n n skilorðsbundni hluti dómsins frá 26. janúar 2024, sem í öndverðu kom til vegna brota gegn almennum hegningarlögum nr. 19/1940 , var ekki dæmdur upp með dómnum 30. janúar 2025. Brot ákærða nú fyrir að aka sviptur ökurétti 6. febrúar síðastliðinn er fjórða brot hans af því tagi, að því gættu að brotið framd i hann eftir að fyrrgreindur dómur 30. janúar á þessu ári gekk, sbr. til hliðsjónar dómi Hæstaréttar Íslands 30. október 2008 í máli nr. 92/2008 . Þá er þess og gætt að broti ð framdi hann á þeim tíma er hann sætti almennu skilorð i á tveggja mánaða hluta þei rrar refsingar sem hann var dæmdur til með fyrrgreindum dómi 26. janúar 2024. Verður sá hluti þess dóms því tekinn upp og ákærða ákvörðuð refsing í einu lagi, sbr. 60. og 77. gr. laga nr. 19/1940. Eins og hér hagar til og að framangreindum sakarferli ákærð a virtum, sbr. 5. tl. 1. mgr. 70. gr. sömu laga, þykir refsing ákærða hæfilega ákvörðuð fangelsi í fjóra mánuði, en verður fullnustu tveggja mánaða af refsingunni frestað í tvö ár haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. þeirra laga. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Hákon Þorsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærði, Mikael Már Unnarsson, sæti fangelsi í fjóra mánuði, en fresta skal fullnustu tveggja mánaða af refsingunni og skal sá hluti refsingarinnar falla niður að liðnum tvei mu r árum frá uppkvaðningu dóms þess að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 .