Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur 16. apríl 2026 Mál nr. S - 2372/2025 : Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ( Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari ) g egn Ricardo Mario Villalobos ( Ingi Freyr Ágústsson lögmaður ) Dómur I Ákæra, málsmeðferð og dómkröfur 1. Mál þetta, sem dómtekið var 19. mars 2026, var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglu - stjóranum á höfuðborgarsvæðinu 29. apríl 2025 , á hendur Ricardo Mario Villalobos, kt. , , Reykjavík, fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 17. júní 2022 [svo] , við í Reykjavík, veist með ofbeldi að A , kt. , tekið hann hálstaki með því að setja handlegginn utan um framanverðan háls A , dregið hann áfram og hert að hálsi hans og í kjölfarið fellt hann svo hann lenti á bakinu á jörðinni með þeim afleiðingum að hann hlaut roða og yfir borðsáverka á hálsi. Með háttsemi þessari sýndi ákærði drengnum yfirgang og rudda legt athæfi auk ógnandi og vanvirðandi framko mu. M. 007 - 2022 - Teljast framangreind brot varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 . Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Einkaréttarkrafa: Fyrir hönd B , kt. , fyrir hönd ólögráða sonar hennar , A , kt. , gerir Lilja Margrét Olsen lögmaður kröfu þess efni að Ricardo Mario Villalobos , kt. , verði 2 gert að greiða A kr. [ 800.000 ] í miskabætur, auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8 . gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá 17. júní 2022 en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt síðar framlögðum reikningi, að v 2. Málið var þingfest 28. maí 2025 og neitaði ákærði sök samkvæmt ákæru og hafnaði bóta - kröfu . Næst var málið tekið fyrir 25. september 2025 til undirbúnings aðalmeðferðar sem fyrirhuguð var 3. desember 2025. Aðalmeðferð var fres tað utan réttar vegna dagskrár dómara til 12. febrúar 2026 og svo frestað á ný utan réttar til 19. mars 2026 að beiðni sækjanda. 3. Ákæruvaldið gerir sömu dómkröfur og greinir í ákæru og hið sama á við um bótakrefj - anda, en við upphaf aðalmeðferðar lækkaði bótakrefjandi höfuðstól dómkröfu sinnar úr 1.800.000 krónum í 800.000 krónur. Ákærði krefst aðallega sýknu, til vara að ákvörðun refsingar verði frestað skilorðsbundið og til þrautavara krefst hann vægustu refsinga r sem lög leyfa og að hún ver ði bundin skilorði. Þá er þess aðallega krafist að bótakröfu ver ði vísað frá dómi, til vara er krafist sýknu af bótakröfu og til þrautavara er krafist verulegrar lækkunar bótakröfu nnar . Loks er krafist málsvarnarlauna til handa skipuðum verjanda ákærða í samræmi við tímaskýrslu, sem greiðist úr ríkissjóði. II Málsatvik 4. Samkvæmt frumskýrslu var lögregla kölluð út eftir miðnætti 17. júní 2022 að heimili brotaþola að í Kópavogi vegna yfirstaðinnar líkamsárásar. Þegar lögregla kom á vettvang var rætt við brotaþola og móður hans. Kemur fram í skýrslunni að brota þoli hafi sjáanlega verið í uppnámi og átt erfitt með að tjá sig um atvikið. Kvaðst brotaþoli hafa verið að gera dyraat með félögum sínum í að íbúð í og svo hlaupið í burtu. Þeir félagarnir hefðu svo gengið aftur fram hjá húsinu á leið sinni heim og þá tekið eftir konu í glugganum sem sýndi þeim lö ngutöng og kvaðst brotaþoli þá hafa bakkað og litið aftur inn um gluggann. Þessu næst hafi maður komið hlaupandi að honum aftan frá og hefði brotaþoli í fyrstu haldið að þetta væri skokkari. Maðurinn hafi hins vegar tekið hann hálstaki og haldið honum þannig. Kvað brotaþoli manninn hafa dregið sig í hálstaki út á sameiginlegt garðsvæði sem væri á milli íbúðanna í . Þar hafi 3 þannig að hann skall á bakið. Kvaðst brotaþoli ekki muna nákvæmlega eftir því hversu fast hann hefði skollið á bakið og taldi sig hafa misst með vitund um stund eftir hálstakið. Kvaðst brotaþoli næst hafa rankað við sér þegar maðurinn hafi verið að öskra á hann gið sína leið með félögum sínum og farið heim til móður sinnar og skýrt henni frá atvikinu. Kvaðst brotaþoli hafa flett því upp á vefsíðunni ja.is hver maðurinn væri sem ráðist hefði á hann og kvaðst geta staðfest út frá Facebook - mynd að um v æri að ræða ákærða. Í frumskýrsl unni kemur fram að sjá hafi mátt áverka á hálsi brotaþola sem náðu út á axlarsvæði og niður á bringu. Sjá hafi mátt sprungnar háræðar ásamt mari sem væri að myndast á hálsi. Frumskýrslunni fylgdu þrjár ljósmyndir af áverkum á hálsi bro taþola. 5. Samkvæmt frumskýrslu fór lögregla þessu næst að og handtók ákærða og kynnt i honum að hann væri grunaður um líkamsárás gegn barni. Í frumskýrslunni er haft orðrétt i greint lögreglu öndunarsýni. Var ákærði fluttur á lögreglustöð og vistaðu r í fangaklefa. 6. Tekin var skýrsla af ákærða með réttarstöðu sakbornings eftir dvöl í fangageymslu daginn eftir, 17. júní 2022 . Greindi hann frá því að hann og kona hans hefðu verið heima umrætt kvöld, hann á efri hæðinni og hún á neðri hæðinni , og allt í e inu h efði komið svakalegur hann hafi hrokkið við , þotið niður og farið þar í skó. Kvaðst ákærði hafa litið út um gluggann og þá séð í það minnsta einn dökkklæddan st rák og fundist eins og það væru fleiri þarna. Kvaðst ákærði hafa farið út að leita að þeim og lýsti leit sinni, en kvaðst ekki hafa fundið þá. Þegar hann hafi komið til baka hafi hann séð þrjá aðila fyrir utan hús sitt. Kvaðst ákærði hafa hlaupið að þeim o g þeir ekki áttað sig alveg strax og hann hefði náð að grípa einn aðilann. Ákærði kvaðst hafa verið æstur og spurt hvað þeir væru að gera þarna, hann hefði verið stressaður , ekki vitað hvernig hann æ tti að bregðast við og hefði skammað þá. Ákærði kvaðst lí þá og svo hefði hann sleppt þeim og farið inn í húsið. 4 7. Nánar aðspurður um hávaðann sem hann hefði heyr t kvað á Kvaðst ákærði hafa hugsað hvort keyrt hefði verið á húsið og greindi frá því að útidyrahurðin væri stór og öflug hurð úr tekki. Aðspurður kvaðst ákærði hafa farið út þar sem hann hefði verið m drukkinn maður brotið rúðu í húsinu og lögregla hefði verið kölluð til í það skipti. Að - spurður kvað ákærði markmið sitt með því að en kvaðst svo ekki hafa hugsað út í hvað hann myndi gera ef hann næði honum. Lýsti ákærði nánar að hann hefði ekki fundið þessa aðila, en þegar hann hefði komið til baka hefðu verið þrír aðilar fyrir u tan húsið, tve var inni í garðinum og gripið með annarri hendinni aðeins frá og kvaðst ákærði hafa verið að reyna að ná þeim líka og þess vegna farið með þann sem hann náði í áttina að þeim. Þegar framburður brotaþola úr frumskýrslu var borinn undir ákærða svaraði hann því játandi að hann hefði dregið brotaþola í hálstaki og kvaðst hafa gert það af því að hann hefði líka verið að reyna að ná hinum strákunum. Ákærði kvaðst hafa verið að ræða við strákana og spyrja hvað þeir væru að gera við húsið hans ði hafa tekið drenginn , sem hann var með í tökum , niður með því að setja fót sinn fyrir hann þannig að hann fór niður í jörðina. Ákærði kvaðst hafa fellt hann svipað og í júdó en hann hefði haldið í hann á leiðinni niður og ekki skellt honum í jörðina. Aðs purður kvaðst ákærði ekki hafa gert sér grein fyrir aldri strákanna, þetta hefði gerst svo snöggt . Enn fremur kvaðst ákærði aldrei hafa merkt það að brotaþoli misst i meðvitund og kvaðst ekki hafa séð neina áverka á honum. Ákærði kvaðst aðspurður hafa verið undir áhrifum áfengis umrætt sinn og taldi jafnframt aðspurður að hann hefði brugðist öðruvísi , eftir á að hyggja þá á maður auðvitað aldrei að beita ofbeldi á einn eða neinn hátt en þe tta gerðist einhvern veginn í hasarnum 8. Tekin var skýrsla af brotaþola í Barnahúsi, en endurrit skýrslunnar ber ekki með sér hvenær sú skýrslutaka fór fram. Þó er ljóst af efni skýrslunnar að hún hefur farið fram eftir 2022, því í skýrslunni kemur fr am að brotaþoli var þ á nýorðinn fjórtán ára. Í skýrslunni lýsti brotaþoli atvikum mjög á sama veg og haft var eftir honum í frumskýrslu lögreglu, en þó með mun nákvæmari hætti. Þá voru teknar skýrslur af vitnunum C og D 5 17. maí og 24. maí 2024 og enn fremur af vitninu E , sambýlis konu ákærða, þann 29. október 2024. 9. Í málinu liggur fyrir ódagsett læknisvottorð F , læknis á Heilsugæslunni . Í vottorðinu kemur fram að brotaþoli hafi komið á heilsu gæsluna 21. júní 2022 og h itt þar G sérnámslækni. Í vottorðinu kemur fram lýsing brotaþola á því að hann hafi verið að gera dyraat 16. júní þegar maðurinn sem bjó í húsinu hafi komið hlaupandi, tekið brotaþola [ hrist ] brotaþola niðri nokkra stund og á þeim tíma hafi brotaþoli ekki getað dregið andann. Í vottorðinu kemur fram að brotaþoli neiti vanlíðan og kvíða og beri sig vel. Við skoðun á hálsi kemur fram að læknirinn greini ekki bólgu, mar, sár eða önnur áverkamerki á andliti eða hálsi en brotaþoli sé þreifiaumur yfir gagn augasvæði hægra megin. Þá þreifi læknirinn eymsli yfir vöðvum á hálsi og væg eymsli séu yfir efstu rifjum og rifjabilum hægra megin og einnig hægra megin við brjósthrygg og eymsli séu yfir hægra her ðablaði. III Skýrslutökur fyrir dómi 10. Ákærði gaf skýrslu fyrir dómi og kvaðst hafa verið heima hjá sér umrætt sinn á 2. hæð telja að sparkað hefði verið í útidyrnar. Kona hans, sem hafi verið á neðri hæð hússins, h af i öskrað og hann h afi út um glugga og s éð stráka hlaupa í áttina að . Kvaðst ákærði hafa farið í skó og hugsað með sér að hann yrði að ná þessum strákum, en um hafi verið að ræða þrjá hettu - klædda aðila. Hann hefði svo farið út að leita að strákunum en ekki fundið þá og þegar hann hafi komið til baka hafi hann séð þessa þrjá aðila fyrir utan húsið sitt, þar af hafi einn þeirra verið í garðinum við húsið en hinir tveir á göngustíg um met ra frá garðinum. Ákærði kvaðst hafa þóst ætla að hlaupa fram hjá strákunum en þegar hann hafi komið að þeim hafi hann gripið þann sem var í garðinum með vinstri hendi og hefði hann gripið í vinstri öxl stráksins (brotaþola) , sem hafi á þessum tímapunkti snúið að ákærða. Ákærði kvaðst hafa reynt að ná líka hinum strákunum en þeir hafi forðast hann og hann hafi þv í gengið aðeins með brotaþola á eftir þeim og yfir á grasbala sem sé þarna á milli húsanna. 11. Þegar á grasbalann hafi verið komið hafi hann enn haldið í treyju brotaþola en nú við hægri öxl hans og hafi drengurinn þarna snúið frá ákærða. Kvaðst ákærði hafa s purt 6 t í mapunkti. Á kærði kvaðst einnig hafa verið skelkaður og hræddur og fun dist hann þá snúið sér að honum og haldið í peysu brotaþola sitt hvorum megin við axlir og brugðið fyrir hann fæti og lagt hann niður á grasið . Þetta hefði gerst snöggt, en ákærði hefði passað sig á því að halda í brotaþola og hann hefði ekki fengið þungt högg þegar hann kom niður. Ákærði kvaðst hafa kropið niður á annað hnéð við hlið brotaþola og áfram verið að skamma þá þegar hann hafi skynjað að hinir tveir strákarnir k og hafi ákærði óttast að þeir myndu ráðast á hann. Ákærði hefði því staðið upp með brota - þola og farið að ræða við strákana og hafi á meðan haldið í hægri öxl brotaþola sem hafi snúið baki í ákærða. Kvaðst ákærði hafa haldið í hettupeysuna, líka til þess að verja sig mig e úr húsinu og spurt hvað þetta ætti eiginlega að þýða , beðið þá um að hætta þessum hávaða ákærði að kona hans hefði þarna verið að tala við þá alla fjóra . Ákærði hafi svo sleppt stráknum og þeir allir gengið í burtu. 12. Ákærði kvaðst aðspurður hafa drukkið um þrjá til fjóra bjó ra í útskriftarveislu sem hann hefði farið í fyrr um daginn og hefði fundið til einhverra áfengisáhrifa, en þó ekki mikið. A ðspurður kvað ákærði húsið vera steinhús og að útidyrahurðin væri þung , t æplega tveggja tommu tekkhurð. Hefðu ekki verið neinar sjáa nlegar skemmdir á hurðinni eftir atvikið. Sérstaklega aðspurður kvaðst ákærði hafa farið út að leita að strákunum þar sem um hefði verið á hús hans. Markmið hans hefði verið að ná strákunum sem i hafa verið búinn að hugsa út í hvað hann - og haf a talið sig í hættu þar sem hinir honum . Sé rstaklega aðspurður kvaðst ákærði hafa upplifað ég sé þá hlaupa að mér þar sem ég ligg niðri hvort strákarnir hefðu sýnt honum ógnandi hegðun í orðum eða gjörðum, eða hvort þetta hafi aðeins verið tilfinning ákærða , , já. Ég upplifði hættu, þeir flýðu ekki af vettvangi, heldur voru honum til stuðnings. Ég upplifði hættu þarna þar sem ég var k ominn niður á hnén og þeir hlupu að mér , já. En þeir fóru ekki í 7 Kvaðst ákærði hafa sagt þeim að passa sig þar sem hann kynni MMA, og kvaðst hafa sagt þetta til þess að þeir myndu ekki fara í hann að honum stafaði h ætta af strákunum. Aðspurður kvað ákærði að strákarnir tveir hefðu í lokin, rétt áður en kona hans kom út, beðið ákærða um að losa brotaþola úr tökum og eftir 13. Sérstaklega aðspurður kvaðst ákærði ekki hafa séð áverka á brotaþola og ekki hafa orðið var við það á neinum tímapunkti að hann missti meðvitund eða dytti út. Ákærði kvaðst ekki telja að takið sem hann hafi verið með yfir öxlina á brotaþola haf i verið hálstak, en kvaðst hafa gengið með hann þannig áfram í áttina að hinum strákunum. S agði ákærði að mögulega, og jafnvel mjög líklega, hefði peysa brotaþola teygst og þrengt að hálsi hans á meðan hann gekk með hann á eftir strákunum. Ákærði hafi hins vegar ekki verið að hugsa aftur komnir f yrir framan húsið. Ákærði kvaðst aðspurður hafa upplifað ótta hjá drengjunum í lokin þegar þeir báðust fyrirgefningar og 14. Brotaþoli kvað st umrætt sinn hafa verið að leika sér með félögum sínum , vitnunum C og D og þeir hafi ákveðið að gera dyraat. Þeir hafi bankað eða sparkað í hurðina og svo hlaupið í burtu. Hafi þeir svo gengið aftur fram hjá húsinu nokkru síðar á leið sinni heim og þá sé utan húsið , en ekki farið aftur að hurðinni í það skipti . Í þann mund hafi komið að maður sem brotaþoli hafi bara haldið að væri úti að skokka, en maðurinn hafi svo tekið brotaþ ola hálstaki aftan frá , fellt hann niður og hótað þeim og sagt þeim að koma þarna aldrei aftur og sleppt þeim að svo búnu. Aðspurður kvaðst brotaþoli hafa verið sá sem bankaði á hurðina og kvaðst telja að þetta hefðu verið tvö högg og þau hefðu ekki verið létt. Kvaðst brotaþoli ekki muna hvort hann hefði einnig sparkað í hurðina en það gæti þó vel verið. Kvað hann ekkert hafa sést á hurðinni eftir þetta. Aðspurður kvað brotaþoli að þeir hefðu ekki farið aftur að hurðinni í seinna skiptið heldur hefðu þeir s taðið til hliðar framan við húsið og hefði hann verið nær húsinu en hinir strákarnir. Brotaþoli lýsti því nánar fyrir dóminum hvar þeir hefðu staðið og benti á hvar þeir stóðu á yfirlitsmynd af vettvangi. 15. Beðinn um að lýsa því nánar hvernig ákærði hefði te kið hann hálstaki lýsti brotaþoli því að ákærði hefði tekið utan um brotaþola með hægri hendi og sýndi að ákærði hefði tekið 8 utan um brotaþola þannig að háls brotaþola hefði verið í olnbogabót ákærða. Kvað hann ákærða hafa haft sig í því taki í nokkurn tím a og á sama tíma verið að reyna að ná í hina strákana. Kvaðst brotaþoli hafa misst andann í um fimm sekúndur og hefði verið feginn þegar ákærði sleppti takinu því þá hefði hann getað andað. Sérstaklega aðspurður kvaðst brotaþoli ekki muna hvort ákærði hefð i dregið hann áfram þegar hann var að reyna að ná í hina strákana. Þá kvað hann aðspurður að tak ákærða á hálsinum hefði herst smám saman en svo hefði hann sleppt takinu . Enn fremur kvaðst brotaþoli aðspurður ekki muna hvort hann hefði misst meðvitund. 16. Eftir að ákærði sleppti hálstakinu kvað brotaþoli ákærða hafa gripið í peysu brotaþola að framanverðu ákærði þannig fellt hann og sett hann niður í grasið og kvaðst brotaþoli hafa le nt á bakinu. hugsa um hvernig hann gæti komið sér út úr þessu og verið að reyna að sleppa. Aðspurður kvaðst hann halda að hann hefði beðið ákærða um að sleppa sér og kv að vini sína hafa Hefðu vinirnir staðið um tvo metra frá þeim ákærða og séð þetta allt mjög vel þar sem ekkert hefði byrgt þeim sýn. Sérstaklega aðspurður kvaðst brotaþoli aldrei hafa getað farið í burtu á meðan á þessu öllu stóð þar sem ákærði hefði haldið í peysuna og haldið honum niðri. Brotaþoli hefði því ekki getað farið þótt ákærði hefði sleppt hálstakinu. 17. hálsinum og alveg yfir eftir atlögu ákærða en kvaðst ekki muna það nákvæmlega þar sem svo langt væri um liðið. Þá kvað hann föður sinn hafa tekið myndir af áverkunum og staðfesti að myndir sem fylg ja frumskýrslu málsins væru myndirnar sem faði r hans hefði tekið . Þá kvaðst brotaþoli hafa farið til læknis um viku eftir atvikið og kvað ástæðu þess að hann hefði ekki farið fyrr vera þá að hann fór í sumarbústað með fjölskyldu sinni daginn eftir atvikið. Hann hefði svo farið til læknis þegar þau kom u til baka. Brotaþoli kvað sér hafa liðið illa fyrst eftir atvikið og kvaðst líða illa þegar eitthvað kæmi upp sem minnti hann á það . 18. Brotaþoli kvaðst aðspurður aldrei hafa verið ógnandi við ákærða enda hefði hann verið í strákarnir ekki heldur verið ógnandi við ákærða heldur hefðu þeir verið að biðja hann um að hætta og hefðu verið að an . Aðspurður um tilganginn með dyraatinu kvað hann þá b 9 fyrir spennu. Kvaðst brotaþoli hafa vitað að verið gæti að einhver opnaði hurðina og yrði pirraður en þeir hafi ekki ætlað að gera neinn reiðan eða hræddan. Brotaþoli kvaðst ekki hafa ætlað að gera dyraat á ný þegar þeir komu til baka á leið sinni heim, heldur hefðu Kvaðst hann telja að þeir hafi verið um tvo metra frá tröppunum sem liggja að útidyrunum þegar ákærði kom að þeim og hafi brotaþoli verið nær húsinu en hinir strákarnir. 19. Vitnið C greindi frá því að hann hefði umrætt sinn verið með brotaþola og vitninu D að gera dyraat og hefðu þeir skipst á að gera það . Kvað vitnið sig minna að brotaþoli hefði gert dyraatið heima hjá ákærða en kvaðst ekki muna hve oft hann hefði barið á hurðina og kvaðst aðspurður ekki muna hvort það hefði heyrst mikill hávaði en það hefði verið . Þeir hefðu svo farið í burtu á okkur í til að útskýra nánar hvað hann ætti við með því sýndi vitnið löngutöng. Þeir hefðu hugsað með sér hvort þeir ættu að fara og banka aftur og hefðu þá séð manninn hlaupa á gangstígnum, en ekki veitt h onum sérstaka athygli. Maðurinn hefði svo beygt að en hann hefði einnig verið að reyna að ná þeim D á sama tíma. Hefði maðurinn öskrað á þá , sagt að hann æfði MMA og spurt þá um heimilisföng sín. 20. Sérstaklega aðspurður kvað vitnið konuna hafa sýnt þeim löngutöngina í glugganum þegar þeir voru að fara í burtu eftir dyraatið. Vitnið lýsti því nánar að ákærði hefði tekið brotaþola í hálstak og sýndi vitnið dóminum hvernig ákærði hefði verið með brotaþola í olnbog abótinni - þoli hefði þó ekki verið langt frá jörðu. Á meðan ákærði var með brotaþola í hálst akinu hefði hann verið að reyna að ná í vitnið og D og alltaf komið nær og nær þeim, en þeir hafi alltaf hörfað lengra í burtu. Kvaðst vitnið telja að brotaþoli hafi losnað úr hálstakinu þegar maðurinn setti hann í jörðina. Beðinn um að lýsa nánar hvernig hann hefði gert það kvað vitnið ákærða hafa sett fót í hann á meðan. Kvaðst vitnið hafa séð atvikið mjög vel, hann hefði ásamt D verið aðeins frá en ákærði hefði sífellt verið að koma nær þeim þannig að hann hefði séð vel það sem gerðist. 21. Aðspurður kvað vitnið sér hafa liðið mjög illa á meðan á þessu stóð. Hann hafi verið hræddur og í sjokki og ekki getað sagt neitt. Þá kvaðst vitnið aldrei hafa verið ógnand i við ákærða og það hefðu brotaþoli og vitnið D ekki heldur verið. Vitnið kvaðst hafa séð 10 eftir atvikið að brotaþoli var rauður um allan hálsinn. Aðspurður kvað vitnið engan sérstakan tilgang hafa verið með dyraatinu anna n hlaupa út. Sérstaklega aðspurður um hvort þeir hefðu ætlað að gera aftur dyraat þarna þegar þeir komu þar öðru sinni svaraði vitni ð því játandi, en kvaðst ekki hafa verið með í því, heldur hefðu það verið brotaþoli og vitnið D . Hefðu þeir talað um að gera eitt dyraat 22. Vitnið D kvaðst umrætt sinn hafa veri ð með brotaþola og vitninu C og hefðu þeir ákveðið að fara í að gera dyraat. Þeir hafi komið að umræddu húsi og þar taldi hann að eiðinni heim þegar þeir hafi séð konuna gefa þeim komið hlaupandi úr sömu átt og þeir komu úr. Maðurinn hafi náð brotaþola og tekið hann hálstaki og farið að öskra eitthvað sem hann hefði ekki heyrt vel, en m.a. hefði hann spurt hvar þeir ættu heima. Vitnið sagði að þeir hefðu reynt að fá manninn til þess að sleppa brotaþola og kallað á hann að sleppa takinu, en maðurinn hafi ekki gert það heldur reynt að ná vitninu með anna rri hendi sem ekki hafi tekist. Á endan um hafi maðurinn svo sleppt brotaþola og þeir þrír hlaupið í burtu og farið heim. 23. - spurður kvað hann ekki hafa orðið meiri læti við þetta en í hinum húsunum sem þeir bönkuðu á. Vitnið var beðinn um að lýsa hvar þeir hefðu verið þegar þeir komu til baka og maðurinn kom hlaupandi. K vað vitnið að þeir hefðu gengið á göngustíg sem liggur meðfram húsinu og þar í glugga á hlið hússins hafi - komið hlaupandi og þeir hafi haldið að maðurinn væri bara að skokka, en þá hafi hann tekið brotaþola hálstaki og þeir þá áttað sig á þv í að um væri að ræða mann sem byggi í húsinu sem þeir voru við. Vitnið benti á staðsetningu þeirra á yfirlits mynd af vettvangi sem er á meðal gagna málsins og benti vitnið á stað fyrir framan tvær hvítar bifreiðar sem sjást á yfirlitsmyndinni . 24. Vitnið kvaðs t aðspurður ekki muna nákvæmlega hvernig brotaþoli var tekinn hálstaki þar Kvað hann manninn hafa haft bro taþola í hálstaki með annarri hendi á meðan hann var að reyna að ná í vitnið og vitnið 11 C með hinni hendinni . Þegar borið var undir vitnið það sem haft er eftir honum í lögregluskýrslu staðfesti vitnið að það væri rétt eftir sér haft, m.a. að maðurinn h efði tekið brotaþola hálstaki með því að setja hann í olnbogabótina. Vitnið kvaðst ekki muna hvernig maðurinn sleppti brotaþola, sem hafi verið að verða fjólublár í framan, og kvaðst ekki heldur muna hversu lengi þetta stóð. Þá kvaðst vitnið ekki muna eftir br otaþola á jörðinni, en sagði að hann hefði þó ekki með hann í hálstaki. Enn fremur kvaðst vi tnið ekki muna hvort maðurinn hefði fellt brota - þola , en kvaðst hafa séð atvikið vel , hann hafi verið um tveimur til þr emur metrum frá og ekkert hefði byrgt honum sýn. 25. Aðspurður sagði vitnið að h ann og félagar hans tveir hefðu aldrei verið ógnandi við ákærða. Þeir hefðu bara bankað og hlaupið í burtu, en svo hefði ákærði komið og ógnað þeim. Hefðu þeir beðið ákærða ítrekað um að hætta og að sleppa brotaþola úr hálstakinu. Þá kvað hann brotaþola hafa átt erfitt með að anda í lokin þegar hann hafi verið orðinn fjólublár. Aðspurður kvaðst vitnið ekki muna hvort hann hefði skoðað áverka á brotaþola eftir atvikið en hann hefði s vo fengið mynd senda þar sem hafi mátt s j á að brotaþoli var rauður á hálsinum. Þá kvaðst hann aðspurður hafa verið hræddur á meðan á þessu stóð. 26. Sérstaklega aðspurður kvað vitnið þá félagana ekki hafa stoppað þegar þeir sáu konuna glugganum heldur hefðu þeir haldið áfram að ganga og ekki stoppað fyrr en ákærði náði brotaþola og tók hann hálstaki. Sérstaklega aðspurður neitaði vitnið að þeir hefðu ætlað að gera annað dyraat í þessu húsi, þeir hefðu bara verið á leið - inni heim. Kvað h ann framburð vitnisins C þar að lútandi ekki vera rétt an , því þeir hefðu verið að ganga til baka og verið á leiðinni heim. 27. Vitnið E , sambýliskona ákærða , kaus að gefa skýrslu fyrir dóm inum. Kvaðst hún hafa verið á neðri hæð íbúðarinnar að horfa á sjónvarp en ákærði hefði verið uppi á efri hæðinni. Vitnið kvaðst hafa séð einhvern útundan sér á stéttinni fyrir framan otið í burtu. Hefði vitninu krossbrugðið því hávaðinn h efði verið svo mikill og kvaðst hún hafa rekið upp gól . stígnum. Ákærði hefði komið niður , spurt hvað hefði eiginlega gerst og fa rið í skó og út . K vaðst vitnið ekki hafa fylgst meira með því og á þeim tímapunkti hefði hún ekki séð strákana. 28. Stuttu síðar kvaðst vitnið hafa séð strákana þrjá koma til baka, þeir hefðu séð hana í eld - hafa orðið svo reið þar sem henni 12 þeir horfið og hún hafi ekki séð þegar ákærði kom . Kvaðst vitnið hafa farið inn í stofu þar sem hún sjái vel út um stofugluggann sem sé á sömu hlið hússins og útidyrahurðin. Þá hafi hún séð að ákærði var búinn að ná einum stráknum sem hafi verið dökkhærður og [ v erið] lmenningnum fyrir framan húsið - Kvaðst vitnið hafa ákveðið að fara út og stoppa þetta. Þegar hún hefði komið út hefði , hættið þessu nú og ég hefði bara betur hringt í lögregl - Aðspurð kvaðst vitnið hafa beint orðum sínum að ákærða og stráknum þegar hún sagði þeim að hætta, enda hefðu það verið þeir sem tókust á. Svo hefðu strákarnir farið í burtu. 29. Aðspurð kv aðst vitnið ekki hafa séð hálstak, heldur hefði ákærði tekið í öxlina á stráknum og strákurinn verið að brjótast um til þess að losna. Kvaðst vitnið halda að ákærði hefði þá staðið á ská fyrir aftan strákinn. Aðspurð kvað hún ákærða hafa ætlað að tala líka við hina strákana og þannig farið ] áfram en hinir strákarnir h efðu hlaupið í burtu . Vitnið kvaðst ekki hafa séð ákærða fella strákinn í jörðina . Aðspurð kvaðst vitnið ekki hafa séð strákinn veitast að ákærða, heldur hefði Kvaðst vitnið ekki hafa séð hvað gerðist á þeim tíma sem það tók hana að ganga frá stofuglugganum og út að hurðinni, en þegar hún hafi komið út hafi hún séð að ákærði hélt stráknum, sem hafi verið að reyna gaf þeim puttan n 30. Sérstaklega aðspurð kvað vitnið ákærða hafa verið búinn að drekka um þrjá bjóra í útskrif t arveislu fyrr um daginn og s vo hefði ákærði drukkið eitthvað eftir að heim var komið, fyrir atvikið. Kvaðst vitnið ekki vita hversu mik ið ákærði hefði drukkið þá , þar sem hann hefði verið á efri hæðinni og hún ekki fylgst með því, en hún kvað ákærða hafa verið undir áhrifum. Aðspurð kvað vitnið sér hafa verið mjög brugðið við þetta og lengi 31. Lögreglumaður H gaf skýrslu fyrir dómi og staðfesti frumskýrslu sem hún ritaði . Vitnið kvaðst muna eftir að hafa séð áverka á hálsi brotaþola þegar hún fór á heimili hans sama kvöld. Jafnframt hefði faðir drengsins verið búinn að taka ljósmyndir af áverkunum, sem hann k om til lögreglu og fylgdu þær frumskýrslunni. Vitnið kvaðst sérstaklega að spur ð 13 atinu fyrir lögreglu, en taldi það þó líklegt úr því að það stendur í frumskýrslunni. 32. G læknir greindi frá því að hún hefði skoðað brotaþola á Heilsu gæslu nni 21. júní 2022 , en annar læknir hefði skrifað vottorðið eftir sjúkra nótum sem vitnið skrifaði. Kvað læknirinn enga sjáanlega áverka hafa verið á brotaþola við skoðunina en í vottor ðinu sé lýst þreifieymslum, m.a. yfir hálsvöðvum og niður á herðar. Aðspurð kvað læknirinn mjög einstaklingsbundið hversu lengi mar eða sár séu að gróa og kvað punktblæðingar geta gróið á fjórum dögum. Lækninum voru sýndar ljós myndirnar af áverkum brotaþo la sem fylgdu frumskýrslunni og kvaðst hún ekki geta stað fest að um punktblæðingar væri að ræða þar sem myndirnar væru ekki nógu skýrar til að greina það. Sérstaklega aðspurð kvað hún áverka na sem sjást á ljósmyndunum geta sam rýmst þeirri sögu sem brotaþ oli gaf við skoðunina, en kvaðst eiga erfitt með að svara hvort umræddir áverkar gætu horfið á fjórum dögum. Þá kvaðst vitnið ekki geta svarað því af eða á hvort svona áverkar geti myndast við peysutog. IV Niðurstaða 33. Ákærða er gefið að sök að hafa á þeim stað og tíma sem greinir í ákæru veist með ofbeldi að brotaþola, tekið hann hálstaki með því að setja handlegginn utan um framanverðan háls brotaþola, dregið hann áfram og hert að hálsi hans og í kjölfarið fellt hann s vo að hann lenti á bakinu með þeim afleiðingum sem nánar er lýst í ákæru. Er ákærða jafnframt gefið að sök að hafa með þessari háttsemi sýnt brotaþola yfirgang og ruddalegt athæfi auk ógnandi og vanvirðandi framkomu. Tímasetning framangreinds atviks er í á kærunni til - greint sem föstudagurinn 17. júní 2022 . Frumskýrsla lögreglu er enn fremur dagsett 17. júní 2022 en í reit fyrir dagsetningu og tímasetningu meints brots er skráður tíminn kl. 00:40. Er því ljóst samkvæmt frumskýrslunni og öðrum gögnum málsins að sú háttsemi sem ákært er fyrir hefur átt sér stað að kvöldi 16. júní 2022, en ekki 17. júní það ár. Verður þó ekki talið að vörn ákærða hafi verið áfátt vegna þessa, en um aukaatriði brots er að ræða, sbr. 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008. Er háttsemin í ákæru talin varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2022. 34. Ákærði neitar því að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Kemur þá til úrlausnar hvort ákæruva ldið hafi axlað þá sönnunarbyrði sem á því hvílir 14 samkvæmt 1 08 . gr. laga nr. 88/2008. Við sönnunarmatið þarf að gæta þeirrar meginreglu sem kemur fram í 1. mgr. 109. gr. sömu laga, en samkvæmt henni metur dómari hvort nægileg sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum röku m , sé komin fram um hvert það atriði er varðar sekt og ákvörðun viðurlaga við broti, þar á meðal hvaða sönnunargildi skýrslur ákærða hafi, vitnisburðir, mats - og skoðunargjörðir, skjöl og önnur sýnileg sönnunar g ögn. Samkvæmt 115. gr. laga nr. 88/2008 metur dómari sönnunargildi framburðar ákærða fyrir dómi, þar á meðal trúverðugleika hans, við úrlausn máls. Sam - kvæmt ákvæðinu skal í því sambandi m.a. huga að ástandi og hegðun ákærða við skýrslu - gjöf og stöðugleika í frásögn hans. Samkvæ mt 126. gr. sömu laga metur dómari sönnunar - gildi vitnisburðar við úrlausn máls og skal í því samband i huga að afstöðu vitnis til ákærða og eftir atvikum brotaþola, hagsmunum þess af málsúrslitum, þroska þess, áreiðanleika skynjunar þess á atvikum, minni, ástandi og hegðun þess við skýrslugjöf, öryggi þess og skýrleika í svörum og samræmi í frásögn. Ber þannig við úrlausn málsins að leggja mat á innra samræmi framburða ákærða og vitna, bæði fyrir dómi og hjá lögreglu, með tilliti til þess hvort mótsagna gæt i í frásögn, auk þess sem leggja þarf mat á ytra samræmi fram - burðar í ljósi annarra sönnunargagna. Þá skal dómur reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram fyrir dómi, sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 88/2008. 35. Hér að framan hafa málsatvik verið rakin nokkuð ítarlega, sem og framburðir ákærða og vitna fyrir dómi, auk þess sem rakinn er framburður ákærða hjá lögreglu. Eins og að framan greinir liggur nokkuð skýrt fyrir að brotaþoli fór ásamt félögum sínum, vitnunum C og D , að húsi ákærða umrætt kvöld og gerðu þar dyraat með því að brota þoli annað hvort bankaði eða sparkaði í útidyrahurðina. Ja f nframt er óumdeilt í málinu að strákarnir fóru í burtu, ákærði fór út að leita að þeim og sá þá svo fyrir utan hús sitt þegar hann kom til baka. Ákærða og strákunum ber hins vegar ekki fyllilega saman um það sem gerðist fyrir utan húsið umrætt sinn. 36. Fyrir dómi kvaðst ákærði hafa náð brotaþola með því að grípa í vinstri öxl hans með vinstri hendi sinni og að brotaþoli hefði á þessum tímapunkti snúið að honum. Í skýrslu sinni hjá lögreglu kvaðst ákærði hins vegar hafa náð brotaþola og gripið með annarri hendinni Jafnframt svaraði ákærði því játandi hjá lögreglu að hann hefði dregið brotaþola í hálstaki eins og haft er eftir brotaþola í frum - skýrslunni. Samkvæmt þessu er ekki samræmi hvað þetta varðar milli framburða r ákærða hjá lögreglu og fyrir dómi og þykir breyttur framburður hans fyrir dómi ekki vera trúverð - ugur og þykir ber a þess merki að hann sé að reyna að fegra sinn hlut . Þannig er að mati 15 dómsins verulega ó trúverðugt að ákærði hafi gripið með sinni vinstri hendi í vinstri öxl brotaþola ef sá síðarnefndi á að hafa snúið að ákærða þegar hann greip í hann. Þ etta ósam - ræmi rýrir sönnunargildi framburðar ákærða fyrir dómi. Á kærði bar einnig um það fyrir dómi að hann hefði, á meðan hann hélt í brotaþola, verið að reyna að ná í hina strákana tvo og þannig fært sig nær þeim haldandi í brotaþola. Enn fremur að hann hafi svo tekið um leið svo hann fengi ekki þungt högg þegar hann kom ni ður. Viðurkenndi ákærði fyrir dómi að hafa verið æstur og undir einhverjum áhrifum áfengis er atvikið átti sér stað. 37. Framburður brotaþola hefur á hinn bóginn verið stöðugur í gegnum meðferð málsins um allt sem máli skiptir og er ekkert fram komið að mati d ómsins sem rýrir trúverðugleika hans hvað varðar atvik þegar ætluð líkamsárás átti sér stað. Þó mundi brotaþoli ekki fyrir dómi hvort ákærði hefði dregið hann áfram í hálstakinu þegar ákærði var að reyna að ná í hina strákana, eins og haft er eftir honum í frumskýrslu lögreglu og kom einnig fram í skýrslu brotaþola í Barnahúsi við rannsókn málsins . Ber þetta að mati dómsins ekki vott um annað en að brotaþoli hafi sýnt varfærni í framburði sínum fyrir dómi og ekki viljað fullyrða um annað en það sem hann mundi vel . B er í því sambandi að hafa í huga að tæp fjögur ár eru liðin frá atvikum og brotaþoli var einungis 13 ára þegar þau áttu sér stað. Brotaþoli lýsti þv í hins vegar fyrir dómi hvernig ákærði hefði sett fótinn fyrir han n , fellt hann og lagt hann niður í grasið , sem er í raun í fullu samræmi við framburð ákærða. Þá bar brotaþoli einnig um það fyrir dómi að tak ákærða á hálsi hans hefði herst smám saman áður en hann sleppti honum úr hálstakinu. 38. Framburður brotaþola fær stoð í framburð um vitnanna C og D fyrir dómi en þeir greindu báðir frá því að ákærði hefði tekið brotaþola hálstaki þannig að háls hans hefði verið í olnbogabót ákærða . E nn fremur að ákærði hafi verið að reyna að ná í þá líka og alltaf fært sig nær og nær þeim m eð brotaþola í hálstakinu . Þykir það einnig vera í samræmi við framburð ákærða hjá lögreglu um að hann hafi tekið með hendi sinni yfir axlir og um háls brotaþola og verið að færa sig í átt að strákunum til að ná þeim einnig . U m hið síðar nefnda bar ákærði einnig fyrir dómi, en þá þannig að hann hefði aðeins haldið í brotaþola en ekki verið með hann í hálstaki , en dómurinn telur þetta ósamræmi rýra sönnunargildi framburðar ákærða hvað þetta varðar , eins og að framan er rakið . Fram burður brotaþola og vitnanna C og D e r að mati dómsins trúverðugur og samhljóða um allt sem hefur þýðingu í málinu. Þá þykir ekkert komið fram sem bendir til þess að þeir hafi samræmt 16 framburði sína við meðferð málsins hjá lögreglu eða fyrir dómi , eða anna ð sem geti rýrt sönnunargildi framburðar þeirra . 39. Að áliti dómsins hefur framangreind frásögn brotaþola um háttsemi ákærða einnig nokkra stoð í vottorði læknis, m.a. um eymsli yfir vöðvum á hálsi og niður á herðar, en einnig í þeim þremur ljósmyndum sem fyl gdu frumskýrslu lögreglu og voru teknar sama kvöld og atvikið gerðist , svo og í vætti lögreglumanns sem hitti brotaþola á heimili hans skömmu eftir atvikið. 40. Í skýrslu sinni fyrir dómi lýsti s ambýlis kona ákærða ekki hálstaki heldur e r framburður hennar , svo langt sem hann nær, nokkurn veginn í samræmi við framburð ákærða fyrir dómi , a.m.k. um það hvernig ákærði tók í brotaþola . Í því sambandi ber að líta til þess að hún sá ekki alla atburðarásina frá upphafi til enda og enn fremur verður að hafa í huga tengsl hennar við ákærða þegar trúverðugleiki framburðar hennar er metinn. Þykja þau tengsl, ásamt því að hún varð ekki vitni að allri atburðarásinni , rýra sönnunargildi fram - burðar hennar og verður hann því ekki lagður til grundvallar við úrlausn málsins . 41. Að öllu framangreindu virtu verður trúverðug frásögn brotaþola um valdbeitingu ákærða lögð til grundvallar við úrlausn málsins. Þ ykir þannig vera nægilega sannað þannig að haf ið sé yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi veist með ofbeldi að brotaþola með þeim hætti og þeim afleiðingum sem lýst er í ákæru. Þótt brotaþoli hafi sjálfur ekki borið um það fyrir dómi að ákærði hafi dregið hann áfram, heldur aðeins á rannsóknarstigi, þykir einnig vera komin fram lögfull sönnun um þennan þátt verknaðarlýsingarinna r með vísan til framburðar ákærða sjálfs um þetta efni , en hann kvaðst hafa verið að reyna að ná hinum strákunum á meðan hann hélt í brotaþola og gekk með hann á eftir þeim. Verður þessi og þetta fær einnig stoð í samhljóða framburð um vitnanna C og D fyrir dómi . 42. Í þeirri háttsemi sem telst sönnuð samkvæmt framansögðu fólst valdbeiting sem varðar refsingu samkvæmt 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og að mati dómsins hefur verið sýnt fram á að ákærði hafi haft ásetning til verksins. Með háttseminni sýndi ákærði brotaþola auk þess yfirgang og ruddalegt athæfi sem og ógnandi og vanvirðandi fram - komu sem refsiverð er samkvæmt 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga. Gat s ú hegðun brota þola að gera dyraat á heimili ákærða á engan hátt réttlætt þá valdbeitingu sem hann beitti brotaþola . Fer þ ví fjarri að skilyrði 12. gr. almennra hegningarlaga um neyðarvörn hafi verið uppfyllt, svo sem byggt er á af hálfu ákærða, hvort held ur sem brotaþoli og félagar hans hugðu st gera annað dyraat eða ekki, en ekkert liggur fyrir í málinu um að svo 17 hafi verið annað en framburður vitnisins C . Að mati dómsins er fráleitur sá málatilbúnaður ákærða að honum hafi stafað nokkur ógn af brotaþola og vinum hans , sem allir voru 13 ára þegar atvikið átti sér sta ð. Þá hafa þeir allir borið um það fyrir dómi að þeir hafi ítrekað beðið ákærða afsökunar á dyraatinu og beðið hann um að sleppa brotaþola. Fellst dómurinn því ekki á þann málatilbúnað að háttsem i ákærða hafi verið nauðsynleg til að verjast eða afstýra ólögmætri árás sem sé byrjuð eða vofi yfir. 43. Að öllu framangreindu virtu verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem ákært er fyrir og er rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákvörðun refsingar 44. Ákærði er fæddur í . Samkvæmt sakavottorði, dags. 23. apríl 2025, sem enn er óbreytt, hefur ákærði ekki áður gerst sekur um re fsiverða háttsemi. Við ákvörðun refsing ar ber m.a. að horfa til þess að atlaga hans beindist að 13 ára barni að viðstöddum tveimur öðrum 13 ára drengjum . Að þessu virtu og í ljósi alvarleik a háttseminnar verður litið til 1. tl. 1. mgr. og 4. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Á hinn bóginn þykir mega horfa til hreins sakaferils ákærða og að meðferð málsins hef ur dregist, bæði á rannsóknarstigi og fyrir dómi, og verður ákærða ekki kennt um þann drátt . Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, sem bundin verður skilorði með þeim hætti sem greinir í dómsorði. Einkaréttarkrafa 45. Við aðalmeðferð málsi ns lækkaði brotaþoli miskabótakröfu sína þannig að hann krefst þess að ákærða verði gert að greiða honum 800.000 krónur í miskabætur ásamt vöxtum eins og greinir í ákæru. Þá er þess krafist að réttargæslumanni verið dæmd hæfileg þóknun í samræmi við tímask ýrslu. 46. Brotaþoli á rétt til miskabóta úr hendi ákærða á grundvelli a - liðar 1. mgr. 26. gr. skaða - bótalaga nr. 50/1993. Við mat á miskabótum er horft til þess að ekki hlutust alvarlegar líkamlegar afleiðingar af atlögu ákærða. Enn fremur að þótt ekki liggi fyrir gögn um and - legar afleiðingar árásarinnar eru brot sem þessi almennt til þess fallin að valda brotaþola, sem var barn að aldri, miska. Að þessu virtu, og atvikum máls að öðru leyti, þykja miskabætur til handa brotaþola hæfilega ákvarðaðar 3 00.000 kr ónur. Um vexti og dráttar - vexti fer svo sem í dómsorði segir, en bótakrafan var sannanlega birt ákærða við þing - festingu málsins , 28. maí 2025. 18 Sakarkostnaður 47. Í samræmi við málsúrslit og með vísan til 235. gr., sbr. 233. gr., laga nr. 88/2008 verður ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þannig greiði ákærði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar lögmanns , og þóknun skipaðs réttargæslu - manns brotaþola, Lilju Margrétar Olsen lögmanns, eins og nánar greinir í dómsorði. Vi ð ákvörðun málsvarnarlauna og þóknunar réttargæslumanns hefur verið tekið tillit til virðis - aukaskatts. Ekki leiddi annan sakar kostnað af rekstri málsins. 48. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari. 49. Guðrún Sesselja Arnardó ttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærði, Ricardo Mario Villalobos, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. g r. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði greiði brotaþola, A , 3 00.000 krónur í miskabætur, auk vaxta skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 17. júní 2022 til 28. júní 202 5 , en með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar lög - manns, 1.377.600 krónur, og þóknun skipaðs réttargæslumanns brotaþola, Lilju Mar - grétar Olsen lögmanns, 1.060.200 krónur. Guðrú n Sesselja Arnardóttir