Héraðsdómur Vestfjarða Dómur 25 . júlí 2025 Mál nr. S - 54/2025 : Lögreglustjórinn á Vestfjörðum ( Kristján Óskar Ásvaldsson saksóknarfulltrúi ) g egn Daniel Kluk Dómur Mál þetta, sem dómtekið var 14. júlí sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Vestfjörðum 26. maí sl. á hendur Daniel Kluk, kt. , líkamsárás í Bolungarvíkurkaupstað, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 3. desember 2023, utandyra við , Bolungarvík, ráðist að A , kt. , og slegið hann nokkur hnefahögg í andlitið, með þeim afleiðingum að hann hlaut 2 cm skurð á vinstri augabrún, mar ofan Telst háttsemin varða við 1. mgr. 217. gr. almen nra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu efti r að sækjanda og verjanda var gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun refsingar. Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt og er með játningu hans, sem fær stoð í gögnum málsins, sannað að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök. Er brotið jafnframt rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Ákærði er fæddur árið . Samkvæmt framlögðu sakavottorði 27. maí 2025 hefur hann ekki áður unnið sér til refsingar. Við ákvörðun refsingar er litið til skýlausrar játningar ákærða auk þess sem hann lýsti eftirsjá vegna árásarinnar fyrir dómi . Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni málsins og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi en fresta skal fullnustu hennar og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. 2 Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar málsins, 45.000 k rónur, en hann féll til vegna útgáfu áverkavottorðs. Af hálfu ákæruvaldsins fór með málið Kristján Óskar Ásvaldsson, saksóknarfulltrúi. Oddur Þorri Viðarsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærði, Daniel Kluk, sæti fangelsi í 30 daga en fre sta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði greiði sakarkostnað að fjárhæð 45 .000 krónur. Oddur Þorri Viðarsson