Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur 20. apríl 2026. Mál nr. S - 723/2026 : Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Ewelina Liberacka ( Ómar R. Valdimarsson lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem dómtekið var 9. apríl sl. , var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 29 . janúar 2026 , á hendur Ewelina Liberacka, kennitala , , Reykjavík, fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa, að kvöldi 23. mars 2024 í aftursæti lögreglubifreiðar sem var ekið um Hverfisgötu í Reykjavík, ráðist með ofbeldi á og hrækt í andlit lögreglumanns nr. A , sem var við skyldustörf, með þeim afleiðingum að hráki fór m.a. í munn og hægra auga hans. Telst þetta varða við 1 . mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sö nnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærð u hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærð a hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærð u og öðrum gögnum málsins að ákærð a er sek um þá háttsemi sem h enni er gefin að sök og eru brot h ennar rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærð u krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra r málsvarnar þóknunar sér til handa úr ríkissjóði. Ákærð a er fædd í . Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 30. janúar 2026 , á ákærða nokkurn sakaferil að baki , sem þó ekki hefur þýðingu við úrlausn máls þessa. 2 Undir meðferð málsins játaði ákærð a brot sín skýlaust. Horfir það henni til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/19 40. Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls þykir refsing ákærð u hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærð a almennt skilorð 57. gr. l aga nr. 19/1940 . Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála ber að dæma ákærðu til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem er málsvarnarþóknun skipaðs verjanda ákærðu , Ómars R. Valdimarssonar lögmanns , sem þykir með hliðsjón af eðli og umfangi máls hæfileg ákveðin 212.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 49.617 krónur í annan sakarkostnað . Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari . Sigurbjörg Birta Berndsen , a ðstoðarmaður dómara , kveður upp dóm þennan. Dóms orð: Ákærða, Ewelina Liberacka , sæti fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærð a almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940 . Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, 212.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 49.617 krónur í annan sakarkostnað. Sigurbjörg Birta Berndsen