Héraðsdómur Suðurlands Dómur 26. febrúar 2026 Mál nr. S - 18/2026 : Lögreglustjórinn á Suðurlandi ( Rósamunda Jóna Baldursdóttir saksóknarfulltrúi ) g egn Guðríður Sigurðardóttir Dómur Mál þetta, sem dómtekið var 12. febrúar 2026, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á S uðurlandi 12. janúar 202 6 , á hendur Guðríði Sigurðardóttur , fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 30. d esember 2025, ekið bifreiðinni , svipt ökurétti um Langholt við Austurhóla á Selfossi þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M: 318 - 2025 - xxxxxx Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58 . gr. , sbr. 1. mgr. 9 5 . gr. umferðarlaga nr. 77/2019 . Þess er kraf ist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Ákærða sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a - lið 161. gr. laga nr. 8 8/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins. Með vísan til framanritaðs og rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærða er fæd d 10. nóvember 1965. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 9. janúar 2026, gekkst ákærða undir greiðslu sektar með tveimur lögreglustjórasáttum 19. janúar 2023 fyrir akstur svipt ökurétti. Þá var hún með dómi Héraðsdóms Norðurlands Eystra dæmd í fjögur ra mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, meðal annars fyrir akstur svipt ökurétti, en dómurinn var hegningarauki við 2 framangreindar lögreglustjórasáttir. Loks var hún með dómi Héraðsdóms Suðurlands 7. desember 2023 dæmd í 60 daga fangelsi, til greiðslu sektar og svipt ökurétti ævilangt, meðal annars fyrir akstur svipt ökurétti. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærðu ekki áhrif við ákvörðun refsingar nú. Við ákvörðun refsingar er við það miðað að ákærða hafi nú í þriðja sinn, eftir að hún varð fullra 18 á ra og innan ítrekunartíma, sbr. 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sek um akstur svipt ökurétti. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni máls þessa, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin 3 0 daga fangelsi. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Rósamunda Jóna Baldursdóttir saksóknarfulltrúi. Birgitta Kristjánsdóttir , aðstoðarmaður dómara , kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærða, Guðríður Sigurðardóttir, sæti fangelsi í 30 daga.