Héraðsdómur Norðurlands eystra Dómur 17. nóvember 2025 Mál nr. S - 561/2025 : Ákæruvaldið ( Halldór Tumi Ólason saksóknarfulltrúi ) g egn Halldór i Baldvin Stefánss yni Dómur Mál þetta, sem var dómtekið í dag , var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 17. október 202 5 , á hendur Halldóri Baldvin Stefánssyni, kt. , , , fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 5. september 2025, eki ð bifreiðinni sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana - og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 510 ng/ml) um Vestursíðu, Akureyri, en lögregla hafði afskipti af ökumanni, þar sem hann hafði stöðvað akstur við Bre kkusíðu 5. Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökurétta r skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019. Ákærði sótti ekki þing, þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008. Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 161. gr. sömu laga með áorðnum breytingum að leggja dóm á málið að ákærða fjarverandi, enda varðar brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a - lið og framlögð gögn verða talin nægjanleg til sakfellingar. Verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæða. Sakaferill ákærða, að því er hér skiptir máli, er sá að þ ann 1. júní 2018 gekkst ákærði undir sátt fyrir akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna með því að greiða 140.000 krónur í sek t og sviptingu ökuréttar í tólf mánuði . Þann 19. ágúst 2022 gekkst ákærði undir sátt fyrir ölvunarakstur og vopnalagabrot með því að greiða 240.000 krónur í sekt og sviptingu ökuréttar í 3 ár frá 19. ágúst 2022. Þann 16. mars 2023 gekkst ákærði undir sátt fyrir að aka sviptur ökurétti með því að greiða 120.000 krónur í sekt. Að lokum hlaut ákærði dóm þann 22. nóvember 2023 fyrir að aka sviptur undir áhrifum ávana - og fíkniefnum. Refsing var ákveðin fangelsi í 60 daga og ákærði sviptur ökurétti ævilangt. 2 Ákæ rði er nú sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum ávana - og fíkniefna og telst brot hans nú ítrekað í þriðja sinn. Þá er ákærði jafnframt sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti og telst brot hans ítrekað í annað sinn . Með vísan til þess er refsing ákærða á kveðin fangelsi í 90 daga. Með vísan til 3. mgr. 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 er ævilöng svipting ökuréttar áréttuð. Að kröfu ákæruvalds og með vísan til dómsniðurstöðu verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar, 115.863 krónur. Berglind Harða rdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn. Dómso r ð: Ákærði, Halldór Baldvin Stefánsson, sæti fangelsi í 90 daga. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt. Ákærði greiði 115.863 krónur í sakarkostnað .