Héraðsdómur Vesturlands Dómur 17. mars 2026 Mál nr. S - 364/2025 : Lögreglustjórinn á Vesturlandi ( Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari ) g egn Óskar i Þór Þórðar syni ( Gísli Kr. Björnsson lögmaður ) Dómur 1. Þetta mál var höfðað með tveimur ákærum en málin voru sameinuð við fyrirtöku málsins 17. febrúar sl. Fyrsta ákæran er útgefin af lögreglustjóranum á Vesturlandi 16. desember 2025 á hendur ákærða Óskari Þór Þórðarsyni, kt. ... , ... , ... , en í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða : fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 5. ágúst 2025, ekið bifreiðinni USF93 sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana - og fíkniefna (í bl óðsýni mældist tetrahýdrókannabínól 3,4 ng/ml) um Snæfellsnesveg við Borg, Stykkishólmi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 31 3 - 2025 - 015627 Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019. 2. Önnur ákæran í málinu var gefin út af lögreglustjóranum á Vesturlandi 12. febrúar 2026, á hendur ákærða : fyrir umferðarlagabrot með því að hafa laugardaginn 23. ágúst 2025, ekið bifreiðinni DUS06 sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana - og fíkniefna (í blóðsýni mældist kókaín 250 ng/ml, M DMA 310 ng/ml, tetrahýdrókannabínól 4,9 ng/ml og ketamín 74 ng/ml) um Vesturlandsveg við Höfðabakkabrú í Reykjavík og fyrir að hafa haft í vörslum sínum 19,07 grömm af maríhúana, sem lögreglan fann við leit í bifreið ákærða, umrætt sinn. 2 Telst háttsemi þ essi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974. M: 007 - 2025 - 047902 Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, t il greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019. Jafnframt er krafist að 19,07 grömm af maríhúana verði gert upptæk með dómi samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974. 3. Við þingfestingu málsins sótti ákærði þing og játaði sök samkvæmt báðum ákæru m og samþykkti upptökukröfu í ákæru dagsett 12. febrúar 2026 . Í ljósi framangreinds voru skilyrði til að fara með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið tekið til dóms án fr ekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda , verjanda ákærða og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga . 4. Ákæruvaldið gerir sömu dómkröfur og greinir í ákæru. Verjandi á kærð a krefst þess að ákærða verði gerð vægasta refsing sem lög leyfa og hún verði skilorðsbundin að fullu. Þá krefst hann lágmarks þóknunar sér til handa . 5. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur u m þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. 6. Ákærði er fæddur ... . Samkvæmt framlögðu sakavottorði dagsett 12. febrúar 2026 hefur ákærða ítrekað verið gerð refsing fyrir sambærileg brot og hann hefur nú ve rið sakfelldur fyrir. Þannig var ákærði með dómi 26. febrúar 2015 dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti í 12 mánuði fyrir að aka undir áhrifum ávana - og fíkniefna . Þann 24. febrúar 2016 var ákærði dæmdur til sektargreiðslu fyrir að aka undir áhrif um ávana - og fíkniefna sviptur ökurétti. Þá var ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjaness 24. nóvember 2016 fyrir að aka undir áhrifum ávana - og fíkniefna sviptur ökurétti. Um leið var ákærði sviptur ökurétti ævilangt. Með dómi Héraðs dóms Reykjaness 23. mars 2017 var ákærð i dæmdur í 15 daga fangelsi og til sektargreiðslu fyrir að aka undir áhrifum ávana - og fíkniefna sviptur ökurétti og fyrir vörslur fíkniefna . Var sá dómur hegningarauki við fyrrgreindan dóm frá 24. nóvember 2016. Þá g ekkst ákærði undir sektarrefsingu , með tveimur lögreglustjórasátt um, annars vegar 20. október 2021 og hins vegar 10. janúar 2022 , fyrir vörslur fíkniefna. Með dómi Héraðsdóms Vesturlands sem kveðinn var upp 2. október 2023 var ákærði dæmdur í 105 daga fangelsi fyrir að aka undir áhrifum ávana - og fíkniefna sviptur ökurétti. Loks var ákærða með dómi Héraðsdóms Vesturlands 8. mars 2024 gert að sæta fangelsi í 5 mánuði fyrir að aka í fimmta sinn undir áhrifum ávana - og fíkniefna og fjórða sinn sviptur ökur étti innan ítrekunartíma í skilningi 3. mgr. 7 1. gr. almennra hegningar laga nr. 19/1940. 7. Fastmótuð dómvenja er fyrir því að ákveðin umferðarlagabrot af sömu tegund hafi ítrekunaráhrif með stoð í 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þa nnig að viðurlög þyngist frá einni viðurlagaákvörðun til annarrar til að tryggja varnaðaráhrif þeirra. Er í því sambandi tekið mið af skilyrðum 71. gr. almennra hegningarlaga fyrir 3 ítrekunaráhrifum brota. Um þessi sjónarmið vísast meðal annars til dóma Lan dsréttar í málum nr. 832/2019, 3/2020 og 233/2024, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar 8. maí 2008 í máli nr. 644/2007. 8. V ið ákvörðun refsingar v erður því með vísan til framangreinds og sakaferils ákærða litið svo á að ákærði sé nú í sjötta sinn eftir að h ann varð fullra 18 ára, sbr. 1. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga, og innan ítrekunartíma, fundinn sekur um að aka undir áhrifum ávana - og fíkniefna og fimmta sinn fyrir akstur sviptur ökurétti. Þá er ákærða nú í fjórða sinn gerð refsing fyrir vörslur fí kniefna. Til refsilækkunar verður litið til skýlausrar játningar ákærða og þess sem kom fram fyrir dómi að ákærði hafi tekið á sínum málum , farið í vímuefnameðferð og sé edrú í dag , sbr. 8. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. 9. Með hliðsjón af framan greindu, sakarefni málsins, sakaferils ákærða , dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði. 10. Með vísan til sakaferils ákærða og dómvenju um ítrekuð umferðarlagabrot þyk ja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. 11. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða. 12. Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk til ríkissjóðs 19,07 grömm af maríhúana, sem lögreglan lagði hald á við rannsókn m álsins. 13. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns Gísla Kr. Björnssonar lögmanns , sem með vísan til reglna D ómstólasýslunnar nr. 1/2026 , þykir hæfilega ákveðin 141.360 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og 477.077 krónur í annan sakarkostnað sem er til kominn vegna blóðsýnatöku úr ákærða og rannsóknar á þeim blóðsýnum. 14. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari. 15. Snorri Örn Clausen aðstoðarmaður dómar kveður upp þennan dóm. Dómso r ð: Ákærði, Óskar Þór Þórðarson, sæti fangelsi í 10 mánuði. Áréttu ð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða. Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 19,07 grömm af marí húana. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Gísla Kr. Björnssonar lögmanns, 141.360 krónur og 477.077 krónur í annan sakarkostnað. Snorri Örn Clausen