Héraðsdómur Norðurlands eystra Dómur 8. janúar 2026 Mál nr. S - 544/2025 : Ákæruvaldið ( Halldór Tumi Ólason saksóknarfulltrúi ) g egn X og ( Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður ) Y ( Friðrik Smárason lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem var dómtekið 11. desember sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 7. október 2025, á hendur X , kt. og Y , kt. , bæði til heimilis að , , fyrir brot á ávana - og fíkniefnalögum, peningaþvætti og barnaverndarlagabrot: I. Fíkniefnalagabrot Gegn báðum ákærðu, X og Y , með því að hafa miðvikudaginn 16. júní 2021, í söluskyni staðið að ræktun og verið með í sameiginlegum vörslum sínum 6 kannabisplöntur í íbúð Y að á Akureyri og sömuleiðis fyrir að hafa verið með í sama tilgangi í vörslum sínum á sama stað 8,39 gr. af hassolíu, 1.895 gr. af kannabislaufum, 330 gr. af kannabisstönglum og 1.002,51 gr. af maríhúana. Telst þetta varða við 2. gr., og 4. gr. a, sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana - og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum. II. Fíkniefnalagabrot Gegn ákærða, X , með því að hafa miðvikudaginn 16. júní 2021, í söluskyni verið með í vörslum sínum 222,08 gr. af maríhúana í verslun í hans umráðum að á Akureyri. Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana - og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum. III. Peningaþvætti 2 Gegn ákærða, X , með því að hafa á tímabilinu 23. júní 2020 til 23. júní 2021, aflað sér ávinnings með sölu á ávana - og fíkniefnum eða öðru m refsiverðum brotum, að fjárhæð 1.969.425 krónur, en samkvæmt greiningu á innlögnum á reikning ákærða var fjárinnstreymi inn á bankareikninga ákærða eftirfarandi á ofangreindu tímabili: [Tafla] Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum. IV. Barnaverndarlagabrot Gegn ákærðu, Y , með því að hafa miðvikudaginn 16. júní 2021, stofnað lífi og heilsu A , kt. í hættu þegar hún sagði barninu að stökk va fram af svölum íbúðar þeirra á annarri hæð að á Akureyri. Barnið stökk síðan niður af svölunum, lenti í fangi ákærðu og haltraði svo á brott með ákærðu en á meðan börðu lögreglumenn að dyrum í blokkinni. Telst þetta varða við 98. gr. barnaverndarlag a nr. 80/2002. Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þess er krafist að báðum ákærðu verði gert að sæta upptöku á plöntum og efnum sem lögreglan lagði hald á samkvæmt efnaskrá nr. 46264 og að ákærða X verði g ert að sæta upptöku á efnum sem lögreglan lagði hald á samkvæmt efnaskrá nr. 46263. Þá er þess krafist að báðum ákærðu verði gert að sæta upptöku á eftirtöldum munum sem haldlagðir voru í málinu: stykki af hvítum Mazar straumbreyti, 2 Dutch Passion hitalam par, Mars 3 Hydro hitalampi, loftblásari með þéttull utan um, grænt og svart gróðurhúsatjald, Eheim air 400 loftdæla, Trixie AP - 180 loftdæla, Dospel loftblásari, Cornwall TT150 loftblásari og Tetra APS400 loftdæla. Upptökukröfur eru gerðar með vísan til 6. m gr. og 7. mgr. 5. gr. laga 65/1974 um ávana - og fíkniefni, með síðari breytingum og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana - og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum. Af hálfu ákærða X er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að hún verði að öllu leyti skilorðsbundin. Þá er krafist þóknunar til handa skipuðum verjanda . Af hálfu ákærðu Y er krafist aðallega að henni verði ekki gerð refsing, en til vara að ákvörðun um refsingu verði frestað og til þrautavara vægustu ref singar sem lög leyfa sem verði alfarið bundin skilorði. Þá er krafist þóknunar til handa skipuðum verjanda. Ákærð u hafa komið fyrir dóm og játað sök samkvæmt ákæru. Með játningu þeirra , sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, og gögnum málsins, er nægilega sannað að þau hafi gerst sek um þá háttsemi sem í ákæru er lýst og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, sbr. heimildarákvæði 164. gr. laga nr. 88/2008. Sakaferill ákærða X , að því er hér skiptir máli, er sá þann 6. janúar 2021 hlaut ákærði dóm fyrir brot gegn valdstjórninni, lögreglulögum og fyrir vörslur fíkniefna. Refsing var ákveðin fangelsi í tv o mánuði , skilorðsbundið í tvö ár. Þá hlaut ákærði 160.000 króna sekt með dómi þann 12. júlí 2022 fyrir umferðarlagabrot. Ákærði var jafnframt sviptur ökurétti í þrjú ár. Var um skilorðsrof að ræða en refsing var ekki dæmd upp. Þann 18. desember 2024 hlaut ákærði dóm fyrir vörslur fíkniefna í söluskyni og umferðarlagabrot. Refsing var ákveðin 218.000 króna sekt. Að lokum , með lögreglustjórasekt þann 1. september 2025, gekkst ákærði undir greiðslu 200.000 króna sektar fyrir umferðarlagabrot. Brot þau sem ákærði hefu r nú verið sakfelldur fyrir í ákæruliðum I, II og III voru framin fyrir uppkvaðningu dóms 12. júlí 2022, dóm s 18. desember 2024 og lögreglustjórasekt ar þann 1. september 2025. Þá var brot í ákærulið III jafnframt framið að hluta til fyrir uppkvaðningu dóm s 6. júní 2021. Verður honum því ákveðinn hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með brotum þeim sem ákærði er nú sakfelldur fyrir rauf hann einnig skilorð dóms 6. janúar 2021 . Samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ver ður refsing ákærða samkvæmt þeim dómi dæmd upp og refsing dæmd í einu lagi, sbr. 77. gr sömu laga. Við ákvörðun refsingar verður litið til þess að ákærði hafði þó nokkurt magn fíkniefna í vörslum sínum í söluskyni. Á hinn bóginn verður einnig litið til þes s að langt er um liðið, en ákærða verður ekki kennt um þann drátt sem hefur orðið á málinu. Með vísan til framangreindra atriða er refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í átta mánuði . Þar sem langt er liðið frá brotunum, þykir rétt, eins og nú stendur s érstaklega á, að fresta fullnustu refsingar skilorðsbundið í eitt ár . 4 Ákærða Y hefur hreinan sakaferil. Við ákvörðun refsingar verður litið þess og þeirra sjónarmiða sem hér að ofan greinir um drátt málsins . Refsing ákærð u er ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið í eitt ár. Að kröfu ákæruvalds, og með vísan til 5. gr. og 6. gr. laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974 skulu ákærðu sæta upptöku á þeim efnum og munum er í dómsorði greinir. Að kröfu ákæruva lds og með vísan til dómsniðurstöðu verð a ákærð u dæmd til greiðslu sakarkostnaðar, þ. m . t. þóknun skipað ra verj e nda sinna , á rannsóknarstigi og fyrir dómi, eins og ákveðst í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum . Berglind Harðardóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn. Dómso r ð: Ákærði, X , sæti fangelsi í átta mánuði. Fresta ber fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnu einu ár i frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákær ð a , Y , sæti fangelsi í fjóra mánuði. Fresta ber fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnu einu ári frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærð a almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Gerð eru upptæk 1.224,59 grömm af marijúana , 1.895 grömm af kannabislaufum, 330 grömm af kannabisstönglum, 8,39 grömm af hassolíu , hvítu r Mazar straumbreyti r , tveir Dutch Passion hitalampar, Mars Hydro hitalampi, loftblásari með þéttull utan um, grænt og svart gróðurhúsatjald, Eh eim air 400 loftdæla, Trixie AP - 180 loftdæla, Dospel loftblásari, Cornwall TT150 loftblásari og Tetra APS400 loftdæla . Ákærði X greiði 777.480 krónur í sakarkostnað, þ. e . þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns . Ákærða Y greiði 48 8.548 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Friðriks Smárasonar lögmanns, 335.730 krónur.