Héraðsdómur Norðurlands eystra Dómur 10. desember 2025 Mál nr. S - 441/2025 : Ákæruvaldið ( Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari ) g egn Genci Zylyftari Dómur Mál þetta, sem var dómtekið 20. nóvember sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 18. ágúst 202 5 , á hendur Genci Zylyftari, , með þáverandi dvalarstað að , Akureyri, en lögheimili í Albaníu, fyrir brot á lögum um áv ana - og fíkniefni og peningaþvætti: I. Fíkniefnalagabrot. Með því að hafa þriðjudaginn 10. mars 2025, verið með í söluskyni í vörslum sínum á þáverandi dvalarstað sínum að , á Akureyri, samtals 79,42 grömm af amfetamíni, 7,63 grömm af kókaíni, 276, 07 grömm af maríhúana og 48 millilítra af kannabisblönduðum vökva. Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana og fíkniefni og önnur eftirl itsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum. II. Peningaþvætti. Með því að hafa í um nokkuð skeið áður en hann var handtekinn 10. mars 2025, aflað sér ávinnings með sölu á ávana og fíkniefnum eða öðrum refsiverðum brotum, að fjárhæð 828.000 krónur. Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og jafnframt til að sæta upptöku á efnum þeim, sem lögre glan lagði hald á og tilgreind eru í efnaskrá nr. 55.859, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Jafnframt er gerð krafa um að ákærði sæti upptöku til ríkissjóðs á ávinningi af framangreindri brotastarfsemi s inni að fjárhæð kr. 828.000, samkvæmt 1. mgr., sbr. 2. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. 2 Ákærði sótti ekki þing, þrátt fyrir að fyrirkal l hafi verið birt. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008. Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 161. gr. sömu laga með áorðnum breytingum að leggja dóm á málið að ákærða fjarverandi, enda var ðar brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a - lið og framlögð gögn verða talin nægjanleg til sakfellingar. Verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæða. Ákærði hefur ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað, svo vitað sé. Refsing ákærða er ákveðin fangelsi í fimm mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið, eins og nánar greinir í dómsorði. Að kröfu ákæruvalds, og með vísan til 5. gr. og 6. gr. laga um áva na - og fíkniefni nr. 65/1974 skal ákærði sæta upptöku á þeim efnum er í dómsorði greinir. Þá skal ákærði jafnframt sæta upptöku á 828.000 krónum, með vísan til 1 . mgr., sbr. 2. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að kröfu ákæruvalds og með ví san til dómsniðurstöðu verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar, þ.e. þóknun tilnefnds verjanda síns á rannsóknarstigi , eins og hún ákveðst í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum . Berglind Harðardóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn. Dóms o r ð: Ákærði, Genci Zylyftari, sæti fangelsi í fimm mánuði. Fresta ber fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Gerð eru upptæk 276,07 grömm af marijúana , 79,42 grömm af amfetamíni , 7,63 grömm af kókaíni, 48 millilítrar af kannabisblönduðum vökva og 828.000 krónur . Ákærði greiði 267.840 krónur í sakarkostnað, þ. e . þóknun tilnefnds verjanda síns, Friðriks Smárasonar lögmanns .