Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur 20. apríl 2026. Mál nr. S - 715/2026 : Héraðssaksóknari ( Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari ) gegn Íris i Þórarinsdótt ur ( Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 29. janúar 2026 á hendur Írisi Þórarinsdóttur, kennitala , , Reykjavík, fyrir eftirtalin brot gegn valdstjórninni með því að hafa: I Mánudaginn 29. apríl 2024, á Snorrabraut aftan við lögreglustöðina á Hverfisgötu í Reykjavík, hrækt á vesti og í andlit lögreglumanns nr. A , þar sem hann var við skyldustörf, með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn fékk hráka í munn sinn. II. Sunnudaginn 4. maí 2025, við brottfararsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar í Reykjanesbæ, hrækt í andlit lögreglumanns nr. B , þar sem hann var við skyldustörf, með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn fékk hráka í hægra augað og við munnvik. Teljast brot í báðum ákærul iðum varða við 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án fr ekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærð u hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. 2 Ákærð a hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærð u og öðrum gögnum málsins að ákærð a er sek um þá háttsemi s em h enni er gefin að sök og eru brot h ennar rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærð u krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra r málsvarnar þóknunar sér til handa. Ákærð a er fædd í . Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 28. ja núar 2026, var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 2020 dæmd í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára fyrir brot gegn umferðarlögum nr. 77/2019, brot gegn vopnalögum nr. 16/1998, brot gegn lögum um ávana og fíkniefni nr. 65/1974 og brot gegn 244. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga. Undir meðferð málsins játaði ákærð a brot sín skýlaust. Horfir það henni til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærð u hæfilega ákveðin 60 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 5 7. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærð a greiði málsvarnar þóknun skipaðs verjanda síns, Arnars Kormáks Friðrikssonar lögmanns , 212.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti . Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Af hálfu ákæru valdsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari . Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan. Dóms orð: Ákærð a , Íris Þórarinsdóttir , sæti fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærð a almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955 . Ákærð a greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Arnars Kormáks Friðr ikssonar lögmanns , 212.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti . Rut Hrafns Elvarsdóttir