Héraðsdómur Vesturlands Dómur 6. mars 2026 Mál nr. S - 310/2025 : Lögreglustjórinn á Vesturlandi ( Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari ) g egn Valdimar Halldórss yni Dómur 1. Mál þetta höfðaði lögreglustjórinn á Vesturlandi með ákæru 18. október 2025 á hendur ákærða, Valdimar Halldórssyni, kt. ... , ... , ... . Málið var dómtekið 17. febrúar 202 6 . 2. Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða: fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, að morgni sunnudagsins 17. ágúst 2025, ekið bifreiðinni ... sviptur ökurétti um Vesturlandsveg á móts við Kúludalsá í Hvalfjarðarsveit, á 114 km hraða á klukkustund, að teknu tilliti til vikmarka, þar sem leyfður hám arkshraði var 90 km/klst. Telst háttsemi þessi varða við 37. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 313 - 2025 - 016920 Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. 3. Ákærði mæ tti ekki við þingfestingu máls þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru og fyrirkalls og boðaði ekki forföll , en ákærði staðfesti birtingu í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda 19. desember 2025 . Verður málið því dæmt sem útivistarmál á grundv elli heimildarákvæðis a. liðar 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, enda var þess getið í fyrirkalli til ákærða að þannig gæti farið um meðferð málsins léti hann undir höfuð leggjast að mæta fyrir dóm, sbr. 1. mgr. 155. gr. sömu laga. Með vísan til 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans enda fer sú niðurstaða ekki í bága við gögn málsins. Brot ákærða telst því sannað og réttilega heimfært til laga í ákæruskjali . 4. Ákærði er fæddur ... . Samkvæmt f ramlögðu sakavottorði dagsett 30. september 2025 hefur ákærða fjórum sinnum frá árinu 2023 verið gerð refsing fyrir umferðarlagabrot. Nú síðast með dómi Héraðsdóms Vesturlands 12. september 2025 þegar ákærða var gert að sæta 30 daga fangelsi fyrir að aka í þriðja sinn sviptur ökurétti innan ítrekunartíma, í skilningi 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Það brot sem ákærði er nú 2 sakfelldur fyrir var framið fyrir uppkvaðningu framangreinds dóms og ber því að dæma ákærða hegningarauka fyrir það brot, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. 5. Með hliðsjón af framangreindu, sakefni þessa máls og ákvæðum 78. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 15 daga. Með vísan til sakaferils ákærða og dómvenju um ítrekuð umferð arlagabrot þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. 6. Snorri Örn Clausen aðstoðarmaður dómara kveður upp þennan dóm. Dómso r ð: Ákærði, Valdimar Halldórsson, sæti fangelsi í 15 daga. Snorri Örn Clausen