Héraðsdómur Austurlands Dómur 8. október 2025 Mál nr. S - 108/2025: Ákæruvaldið (Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari) gegn Agli Má Magnússyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) Dómur Mál þetta, sem tekið var til dóms 11. síðasta mánaðar, var höfðað með ákæru lögreglu - stjórans á Austurlandi útgefinni 11. ágúst síðastliðinn á hendur Agli Má Magnússyni, kt. , , og Y , kt. , , fyrir þjófnaði með því að hafa aðfaranótt miðv ikudagsins 16. ágúst 2023, í félagi brotist inn í , með því að spenna upp útidyrahurð og stolið þaðan tíu 500 ml bjórdósum af gerðinni Gull Lite og Tuborg Classic, 20 flöskum af 187 200 ml hvítvíni, 20 flöskum af 200 ml freyðivíni og 25 lítra Carlsberg - bjórkút ásamt tengistykki á stút hans. Enn fremur með því að hafa stuttu síðar sama kvöld í félagi brotist inn á , með því að spenna upp útidyrahurð, og stolið þaðan samtals fimm flöskum af sterku áfengi af tegundunum Volcan Tequila, Café Tequila, Bacar di Razz, Bacardi Blanco og Gordons gin, 25 stykkjum af 350 ml og 500 ml bjórdósum af gerðinni Gull, Tuborg og Úlfrún og sex dósum af 355 ml Red Bull orkudrykkjum, en lögregla fann hluta af áfenginu á þáverandi heimili Y að og á heimili Egils að , vi ð húsleitir sem fóru fram miðvikudaginn 16. ágúst 2023. Með þessari háttsemi er í ákæru talið brotið gegn 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þess krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Um málsa tvik er skírskotað til ákæru. Á dómþingi 11. síðasta mánaðar gekkst ákærði Egill Már skýlaust við því að hafa framið þá háttsemi sem honum er gefin að sök. Ákærði Y sótti á hinn bóginn ekki þing þann dag þrátt fyrir að hafa verið boðaður þangað, en fyrir h ans hönd sótti þing lögmaður sem hann hafði, samkvæmt birtu fyrirkalli, óskað eftir að skipaður yrði verjandi hans við meðferð málsins. Í ljósi játningar ákærða Egils Más og þess að ekki var unnt að leggja dóm á þátt beggja var þáttur Y klofinn frá málinu, sbr. 2. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008, og svo sameinaður í annað mál, með heimild í 1. mgr. sama lagaákvæðis, sem höfðað 2 hafði verið á hendur þeim ákærða. Að svo búnu var farið með þátt ákærða Egils Más eftir 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að aðilum var gefinn kostur á að tjá sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Sannað er með fyrrgreindri afstöðu ákærða Egils Más, sem í ljósi gagna málsins er ekki ástæða til að draga í efa að sé sannleikanum samkvæm, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem saksókn á hendur honum tekur til samkvæmt framansögðu. Er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæðis í ákæru og hefur hann því unnið sér til refsingar. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegar þóknunar til handa verjanda. Samkvæmt sakavottorði frá 11. ágúst síðastlið num hefur ákærða Agli Má tvívegis verið gerð refsing. Þar af er þess að geta að með dómi 13. júní 2019 var hann dæmdur í 60 da ga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára frá uppkvaðningu þess dóms, og sviptur ökurétti í 16 mánuði fyrir ýmis brot gegn refsilöggjöf, þar á meðal fyrir þjófnað. Ákærði Egill Már hefur skýlaust játað sakargiftir og horfir það honum til málsbóta. Eftir framangreindu, þar á meðal að sakaferli ákærða Egils Más virtum, sbr. 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, að teknu tilliti til 2. mgr. 70. gr. og 255. gr. sömu laga og þess að nokkuð er liðið frá brotunum, þykir refsing ákærða Egils Más samkvæmt 1. mgr. 244. gr. laganna hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar verður frestað í tvö ár haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. þeirra laga. Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 er ákærði Egill Már dæmdur ti l að greiða sakarkostnað málsins, sem er þóknun verjanda hans fyrir dómi og á rannsóknar - stigi, Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, sem þykir í heild hæfilega ákveðin 167.400 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Annan sakarkostnað leiddi ekki af meðferð m álsins. Hákon Þorsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómsorð: Ákærði, Egill Már Magnússon, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refs - ingar og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almenn t skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði greiði 167.400 krónur í sakarkostnað, sem er þóknun verjanda hans, Sveins Andra Sveinssonar lögmanns.