Héraðsdómur Austurlands Dómur 10. október 2025 Mál nr. S - 117/2025: Ákæruvaldið (Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari) gegn Ól a Sigdór i Konráðss yni ( Styrmir Gunnarsson lögmaður ) (Úlfar Freyr Jóhanns son , lögmaður brotaþola) Dómur Mál þetta, sem tekið var til dóms 2 . þessa mánaðar, var höfðað með ákæru lögreglu - stjórans á Austurlandi , útgefinni 19. ágúst síðastliðinn, á hendur Óla Sigdóri Konráðs - syni, kt. , fyrir líkamsárás með því að hafa, laugardaginn 9. september 2023, utandyra við í Reykjav í k, veist að A , kt. , slegið hann ítrekuð högg í andlit og höfuð með þeim afleiðingum að hann hlaut kinnbeinsbrot á vinstra kinnbeini, af m örkuð bólgusvæði á hægra kinnbeini, ofanvert á hægri hluta ennis, ofan á höfði hægra megin við miðlínu, á vinstra kinnbeini, ofanvert á vinstri hluta ennis, ofan við vinstra eyra, aftan við vinstra eyra og á vinstri kjálka, sár og bogalaga skurð niður í un dirhúð á höfði hægra megin við miðlínu og bogalaga skurð niður í undirhúð á vinstra kinnbeini þannig brotið gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakar - kostnaðar. Þar er einnig gerð grein fyrir kröfu A um að ákærði greiði honum skaða - og miskabætur, samanlagt að fjárhæð 2.538.323 krónur auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, af þeirri fjárhæð frá 9. s eptember 2023, til þess dags þegar mánuður er liðinn frá því að bótakrafan var birt ákærða, en dráttarvaxta frá þeim degi samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga til greiðsludags, auk málskostnaðar að viðbættum virðisaukaskatti. Um málsatvik er skírskotað til ákæru. Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa viðhaft þá háttsemi sem honum er gefin að sök og var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála nr. 88/2008 og það tekið til dóms án frekari sönnunarfær slu eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. 2 Sannað er með skýlausri játningu ákærða, sem er í sam ræmi við framlögð gögn, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem saksókn á hendur honum t ekur til samkvæmt framansögðu og er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði hefur því unnið sér til refsingar. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og krefst lækkunar á bótakröfu brota - þola og þóknunar til handa verjanda vegna starfa hans á rannsóknarstigi og eftir máls - höfðun. Ákærði, sem er ára gamall, hefur samkvæmt því sem greinir á fyrirliggjandi saka - vottorði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi . Þ á horfir það honum einnig til málsbóta að hann hefur gengist vi ð broti sínu fyrir dómi, en það gerði hann einnig við rannsókn málsins. Á hinn bóginn bera gögn málsins með sér alvarleika atlögu hans að brotaþola sem beindist að höfði með fyrrgreindum líkamlegum afleiðingum fyrir brota - þola, auk andlegra afleiðinga sem ráða má af málsgögnum og grein var gerð fyrir á dóm - þingi. Samkvæmt framansögðu, sbr. þar á meðal í ljósi 2., 3., 5. og 8. tölulið a r 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærða samkvæmt 1. mgr. 218. gr. sömu laga hæfilega ákveð in fangelsi í tvo mánuði. Að öllu virtu, þar með talið með hliðsjón af þ ví að nokkuð er um liðið frá atvikum og því að ákærði hefur greiðlega gengist við sakargiftum samkvæmt , þykir mega fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tve imur árum frá upp kvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Af hálfu brotaþola er samkvæmt því sem að framan greinir krafist bóta úr hendi ákærða auk vaxta vegna háttsemi ákærða í hans garð, auk málskostn aðar. Í greinargerð um kröfuna er hún meðal málsástæðna sundurliðuð á þann veg að krafist er 2.000.000 króna í miskabætur samkvæmt a - lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, 46.501 krónu vegna læknakostnaðar brotaþola og 11.900 króna vegna tjóns á fa tnaði, auk 500.000 króna lögmannskostnaðar. Samtala þeirra fjárhæða er 2.558.401 krón a , andspænis 2.538.323 krónum í dómkröfuhluta greinargerðarinnar sem tekinn er upp í ákæru. Í því ljósi er lagður dómur á kröfu brotaþola að gætt um 1. málslið 3. mgr. 174. gr. laga nr. 88/2008 og 1. mgr. 111. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 3. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008. Ákærði hefur viðurkennt bótaskyldu og ber ekki brigður á fjárhagslegt tjón brotaþola, en telur efni til að lækkunar á fjárhæð kröfu um miskabætur. Með vísan til þessa og gagna til stuðnings kröfu brotaþola að því leyti, sem bera með sér tjón brotaþola vegna háttsemi ákærða, er fallist á kröfu um skaðabætur vegna fyrrgreinds fjárhagslegs 3 tjóns brotaþola að fjárhæð 58.401 króna. Þá þykir á kærði með háttsemi sin ni einnig hafa bakað sér bótaábyrgð gagnvart brotaþola á grun dvelli a - lið ar 1. mgr. 26. gr. skaðabóta - laga og hefur viðurkennt skyldu sína til greiðslu bóta af því tagi. Framlögð gögn styðja að brotaþoli hafi orðið fyrir áverkum og upplifað vanlíðan vegna brotsins. Eins og hagar til málinu er fjárhæð miskabóta ákveðin 600.000 krónur. Um vexti fer samkvæmt því sem greinir í dómsorði , en bótakrafa brotaþola var kynnt ákærða 5. apríl 2024. Um máls - kostnað brotaþola á rannsóknarstigi og fyrir dómi fer í einu la gi samkvæmt 3. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008 og verður ákærða gert að greiða brotaþola málskostnað , sem með hliðsjón af tímaskýrslu, efni og umfangi þykir hæfilega ákveðinn 3 50 . 0 00 krónur a ð meðtöldum virðisaukaskatt i . Sakarkostnaður málsins samans tendur af kostnaði v ið öflun læknisvottorða við rann - sókn málsins og þóknunar v erjanda ákærða , en m eð vísan til 1. mgr. 2 35 . gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 verður ákærði dæmdur til að greiða þennan kost n að. Hann nemur 81.152 krónum vegna rannsóknaraðger ða og þykir þóknun verjanda ákærða, Styrmis Gunnarssonar lögmanns, vegna starfa hans í þágu ákærða á rannsóknarstigi og fyrir dómi, með hliðsjón af tímaskýrslu, efni og umfangi málsins, og leiðbeinandi reglum dómstólasýslunnar , hæfilega ákveðin 410.130 kró nur að meðtöldum virðis aukaskatti. Hákon Þorsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan . Dómso r ð: Ákærði, Óli Sigdór Konráðsson , sæti fangelsi í tvo mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum frá uppkvaðnin gu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði greiði A 658.401 krónu auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 9. september 2023 til 5. maí 2024, en með dráttarvöxtum frá þeim d egi til greiðsludags, og 3 50.0 00 krónur í málskostnað. Ákærði greiði 491.282 krónur í sakarkostnað, þar með talda þóknun verjanda síns fyrir dómi og á rannsóknarstigi, Styrmis Gunnarssonar lögmanns, 410.130 krónur .