Héraðsdómur Vestfjarða Dómur 22 . desember 2025 Mál nr. S - 99/2025 : Lögreglustjórinn á Vestfjörðum ( Kristján Óskar Ásvaldsson saksóknarfulltrúi ) g egn Grzegorz Kozlowski ( Páll Kristjánsson lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem dómtekið var 2. desember sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Vestfjörðum 25. nóvember sl. á hendur Grzegorz Kozlowski , kt. , líkamsárás, með því að hafa, þriðjudaginn 11. febrúar [2025], slegið A , kt. , þremur hnefahöggum í andlit í matsal vinnubúða Borgarverks á Skálanesi við Gufufjörð í Reykhólahreppi með þeim afleiðingum að A hlaut bólgu og mar á efri og neðri vör, bólgu á nefi , brot upp úr framtönn í neðri gómi efst í tönninni, blæðingu úr nefi, þá hlaut hann eymsli í kjálkum, kjálkaliðnum hægra megin, í nefinu, á vörum, Telst háttsemin varða við 217. gr. almennra hegning arlaga nr. 19/1940, sbr. síðari breytingar. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Í málinu gerir brotaþoli kröfu um að ákærða verði gert að greiða sér miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur með vöxtum skv . 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 11. febrúar 2025 þar til 30 dagar eru liðnir frá birtingu kröfunnar en síðan með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá er þess krafist að kærða verði gert að greiða brotaþola málskostnað samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi auk virðisaukaskatts verði lögmaður brotaþola ekki skipaður réttargæslumaður hans. F arið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda , verjanda ákærða og lögmanni bótakrefjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði , ákvörðun refsingar og atriði er varða einkaréttarkröfu . 2 Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt og er með játningu hans, sem fær stoð í gögnum málsins, sannað að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök. Er brotið jafnframt rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsing verði skilorðsbundin að fullu . Þá viðurkennir ákærði bótaskyldu en krefst þess að fjárhæð ein karéttarkröfu verði lækkuð stórlega. Loks krefst ákærði málskostnaðar að mati dómsins og að skipuðum verjanda hans verði ákvörðuð hæfileg þóknun. Ákærði er fæddur árið og samkvæmt framlögðu sakavottorði 1. desember sl. hefur hann ekki áður unnið sér til refsingar. Við ákvörðun refsingar er jafnframt litið til skýlausrar játningar ákærða og viðurkenningar hans á bótaskyldu gagnvart brotaþola auk þess sem hann lýsti eftirsjá vegna árásarinnar fyrir dómi. Hins vegar verður ekki litið fram hjá því að ákærði réðist á brotaþola og veitti honum þung hnefa högg sem beindust m.a. að höfði og andliti . Enda þótt gögn málsins bendi til þess að samskipti ákærða og brot aþola hafi verið stirð í aðdraganda árásarinnar getur það ekki réttlætt háttsemi ákærða með vísan til þess að brotaþoli hafi á einhvern hátt átt upptök að átökum . Þykir því ófært að líta til 3. mgr. 218. gr. c almennra hegningarlaga nr. 19/1940 við ákvörðu n refsingar . Með vísan til framangreinds, sakarefnis málsins, dómvenju og 1., 2., 7. og 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi . Rétt þykir að mæla fyrir um að fullnustu refsingarinnar verði f restað og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði hefur í málinu verið sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga sem lýtur að lík amsárás. Með brotinu hefur ákærði skapað sér bótaábyrgð gagnvart brotaþola. Ákærði mótmælir ekki bótaskyldu en krefst lækkunar bótakröfu sem fyrr greinir . Með háttseminni, sem var bæði saknæm og ólögmæt, hefur ákærði valdið brotaþola líkamstjóni og eru ski lyrði um orsakasamhengi og sennilega afleiðingu uppfyllt. Að þessu virtu og með hliðsjón af a - lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og dómvenju þykja miskabætur hæfilega ákveðnar 200.000 krónur með vöxtum og dráttarvöxtum eins og nánar greinir í dó msorði. Bótakrafan var birt fyrir ákærða við birtingu ákæru 28. nóvember sl. Með hliðsjón af því miðast upphafstími dráttarvaxta við 28. desember nk . Brotaþoli á jafnframt tilkall til málskostnaðar úr hendi ákærða vegna bótakröfunnar, sbr. 3. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008 , en sá kostnaður þykir hæfilega ákveðinn 1 90 .000 krónur með hliðsjón af efni og umfangi málsins. 3 Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar , 296.521 krónur , en til hans telst þóknun skipaðs verjanda hans, Páls Kristjánssonar lögmanns sem telst hæfilega ákveðin , m.a. með hliðsjón af reglum dómstólasýslunnar nr. 1/2025, 234.360 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Þá falla hér undir útgjöld ákæruvaldsins samkvæmt yfirliti, 62.161 krón ur, en þau féllu til vegna útgáfu vottorða. Af hálfu ákæruvaldsins fór með málið Kristján Óskar Ásvaldsson saksóknarfulltrúi. Oddur Þorri Viðarsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærði, Grzegorz Kozlowski, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði greiði A , kt. , 200.000 krónur í miskabætur með vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. la ga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 11. febrúar 2025 til 28. desember 2025 , en með dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags, og 1 9 0.000 krónur í málskostnað. Ákærði greiði 296. 521 krónur í sakarkostnað en hann samanstendur af þóknun skipaðs v erjanda ákærða, Páls Kristjánssonar lögmanns, 234.360 krónur, og öðrum sakarkostnaði, 62.161 krónur. Oddur Þorri Viðarsson