Héraðsdómur Reykjaness Dómur 24. mars 2026 Mál nr. S - 804/2026 : Ákæruvaldið ( Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari ) g egn Carmen Petronelle Rutazibwa ( Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður ) Dómur Mál þetta var þingfest og dómtekið 24. mars 2026. Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á Suðurnesjum 16. mars 2026 á hendur ákærðu, Carmen Petronelle Rutazibwa, fædd 1999 , ríkisborgari , fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa, sunnudaginn 28. desember 2025, staðið að innflutningi á samtals 4.025,57 g af kókaíni, með styrkleika 83%, og 9.730 g af hassi ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærða til Íslands sem farþegi með flugi frá Br ussel, Belgíu, til Keflavíkurflugvallar, falið í farangri ákærðu. Er háttsemin talin varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þess krafist a ð ákærð a verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Jafnframt er krafist upptöku á haldlögðum 4.025,57 grömmum af kókaíni og 9.730 grömmum af hassi með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 um ávana - og fíkniefni og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana - og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Við þingfesting u máls játaði ákærð a sök samkvæmt ákæru og gekkst greiðlega við því að hafa greint sinn og með tilgreindum hætti flutt til landsins tilgreint magn kókaíns með 83 % styrkleika og tilgreint magn af hassi . Ákærð a samþykkti upptökukröfu ákæruvaldsins. Var því f arið með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig stuttlega um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Af hálfu ákærð u er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og a ð til frádráttar dæmdri refsingu komi gæsluvarðhald ákærð u frá 29 . desember 2025 að fullri dagatölu. Verjandi krefst þóknunar samkvæmt tímaskýrslu. Með játningu ákærð u fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum máls, er sannað að h ún hafi gerst sek um þá háttsemi sem h enni er gefið að sök í ákæru og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða. Ákærð a hefur ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi svo kunnugt sé. Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki ráðið að ákærð a hafi verið 2 eigandi nefn dra fíkniefna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu . Verður litið til þessara atriða við ákvörðun refsingar sem og til greiðrar játningar á kærð u fyrir dómi. Á hinn bóginn verður ekki framhjá því horft að ákærð a flutti til landsins verulegt magn af sterku kókaíni og miklu magni af hassi , sem ætlað var til söludreifingar hér á landi. Með hliðsjón af öllu framansögðu , aldri ákærð u og dómaframkvæmd Hæstaréttar í málum nr. 487/2016 og nr. 209/2017, þar sem sök var játuð, sbr. og til hliðsjónar landsréttardómar nr. 874/2023, nr. 23/2024, nr. 226/2024 , nr. 227/2024 og nr. 228/2024, þar sem sök var játuð, þykir refsing ákærð a hæ filega á kveðin fangelsi í 3 ár og 10 mánuði . Til frádráttar þeirri refsingu komi óslitið gæsluvarðhald ákærð u frá 29 . desember 202 6 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga. Samkvæmt greindri niðurstöðu er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins eins og hún er sett fram í ákæru. Þá ber að dæma ákærð u til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst 237.171 króna útlagður kostnaður ákæruvaldsins. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjanda og viðmiðunarreglna Dóm stólasýslunnar nr. 1/202 6 þykir þóknun Halldóru Aðalsteinsdóttur hæfilega ákveðin 1.385.136 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og aksturskostnaði lögmannsins 112.896 krónur. Jón Stefán Björnsson aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan. Dómsorð: Ákærð a , Carmen Petronelle Rutazibwa , sæti fangelsi í 3 ár og 10 mánuði . Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald ákærðu frá 29. desember 2025, að fullri dagatölu. Ákærð a sæti upptöku á haldlögðum 4.025,57 grömmum af kókaíni og 9.730 grömmum af hassi. Ákærða greiði 1.622.307 krónur í sakarkostnað, þar með talda 1. 385.136 króna þóknun Halldóru Aðalsteinsdóttur verjanda síns að meðtöldum virðisaukaskatti og aksturkostnaði 112.896 krónum. Jón Stefán Björnsson