Héraðsdómur Suðurlands Dómur 7. apríl 2026 Mál nr. S - 112/2026 : Lögreglustjórinn á Suðurlandi ( Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi ) g egn Elfar i Þór Helga syni Dómur Mál þetta, sem dómtekið var 26. mars sl. , var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurlandi 7. mars 2026, á hendur Elfari Þór Helgasyni, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 11. febrúar 2026, ekið bifreiðinni svip tur ökurétti um Suðurlandsveg austan við Götur í Mýrdalshreppi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 318 - 2026 - xxxxx Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaat riði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði krefst vægust u refsingar sem lög leyfa . Ákærð i er fædd ur í . Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 3. mars 2026 , hefur ákærði sjö sinnum áður sætt refsingu vegna aksturs sviptur ökurétti. Þann 2 29. september 2020 gekkst ákærði undir greiðslu fésekta með tveimur l ögreglustjórasáttum vegna aksturs sviptur ökurétti. Þann 28. júlí 2023 gekkst ákærði aftur undir greiðslu fésekt a með tveimur lögreglustjórasátt um vegna aksturs sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 13. febrúar 2024 var ákærða gert að sæta fange lsi í 45 daga vegna aksturs sviptur ökurétti. Þá var ákærða gert að sæta fangelsi í 6 mánuði með dómi Héraðsdómi Suðurlands 3. desember 2024 vegna aksturs sviptur ökurétti. Nú síðast var ákærða gert að sæta fangelsi í 6 mánuði með dómi Héraðsdóms Suðurland s 25. september 2025 vegna aksturs sviptur ökurétti. Að öðru leyti hefur sakarferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn máls þessa. Í samræmi við framangreint verður við ákvörðun refsingar í máli þessu lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í sjötta sinn, eft ir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur sviptur ökurétti. Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mg r. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 4 mánaða fangelsi. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Íris Edda Heimisdóttir saksóknarfulltrúi . Sigurður G. Gíslason dómstjóri kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærð i , Elfar Þór Helgason , sæti fangelsi í 4 mánuði. Sigurður G. Gíslason