Héraðsdómur Austurlands Dómur 22. janúar 2026 Mál nr. S - 122/2025 : Ákæruvaldið ( Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari ) g egn Ionut - Daniel Vlad og Nicolae Stoica ( Jón Jónsson lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem tekið var til dóms í gær, var höfðað með ákæru útgefinni 15. ágúst á síðasta ári af lögreglustjóranum á Austurlandi, á hendur Ionut - Daniel Vlad , kt. 180596 - 5429, með óþekkt lögheimili í Bretlandi, og Nicolae Stoica, kt. 250387 - 5129, Skyggnisbraut 20 í Reykjavík, fyrir þjófnaði samkvæmt 1. mgr. 244. gr. almennra hegninga r laga nr. 19/1940, í tveimur ákæruliðum. Á dómþingi 3. desember síðastliðinn var fallið frá síðari ákæruliðnum af þessum tveimur. Að endingu varða sakargiftir á hendur ákærðu þannig þjófnaði fyrir að hafa ein hvern tímann á tímabilinu frá 5. s eptember til 6. s eptember 2023 í félagi brotist inn á verkstæði í eigu fyrirtækisins og stolið þaðan ka palpressu af gerðinni Milwaukee í svartri tösku að verðmæti 430.000 kr ónur , klemmum í kapalpressu að verðmæti 50.000 kr ónur , höggborvél ásamt fylgihlutum í grænblárri tösku af gerðinni Makita að verðmæti 200.000 kr ónur , 12V hleðslu borvél af gerðinni Milw au kee að verðmæti 50.000 kr ónur , DeWalt - slípirokk að verðmæti 50.000 kr ónur , afeinangrunarvél af gerðinni Milw au kee að óþekktu verðmæti, ásamt koparvírum að verðmæti 507.944 kr ónur , koparrörum, kopar skinnum, pressutengjum, raf m agnsk öplum, afkl i ppum, koparstöng og öðrum smáhlutum og verkfærum að óþekktu heildarverðmæti, og fyrir að hafa á sama tíma og á sama stað brotist inn í bifreið sem stóð utandyra við verkstæðið og stolið þaðan fjórum felgum undir bifreið af gerðinni Volvo 740 og f jórum sex gata jeppafelgum að óþekktu heildar verðmæti. Af hálfu ákæruvalds er þess krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. 2 Í málinu krefst , f yrir hönd , þess að ákærðu greiði sameiginlega skaðabætur að fjár hæð 559.032 kr ónur auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 af fyrrgreindri fjárhæð frá 6. s eptember 2023 þar til mánuður er liðin n frá birtingu kröfunnar, en síðan með dráttarv ö xt um samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. , sömu laga frá þeim degi til greiðsludags , auk þess sem þeim verði að mati dómsins gert að greiða kostnað við að halda kröfunni uppi. Um málsatvik er skírskotað til þess sem að framan greinir, sbr. ákæruskjal. Við þingfestingu málsins 3. desember síðastlið inn játaði ákærði Nicolae Stoica skýlaust að hafa gerst sekur um fyrrgreinda háttsemi, sem tilgreind er í I. ákærulið, og sam þykkti bótakröfu sem rakin er til þess á kærulið ar . Greinargerð með bótakröfunni var birt ákærð a Nicolae Stoica í þinghaldinu. Aftu r á móti neitaði sá ákærði sakargiftum samkvæmt II. lið ákærunnar að tilteknum skýringum gefnum og í kjölfarið var af hálfu ákæruvalds fallið frá II. lið ákærunnar. Fyrir þingfestingu hafði ekki tekist að birta ákærða Ionut - Daniel Vlad fyrirkall, ákæru og greinargerð með bótakröfu, en í þinghaldinu var upplýst með vísan til gagna að óvíst væri um dvalarstað þess ákærða í Bretlandi. Að svo komnu máli, að gættu fyrrgreindu brottfalli á ákærulið II, að gögnum málsins að öðru leyti og því sem upplýst var í þinghaldinu, var gefið út nýtt fyrirkall samkvæmt næstsíðasta málslið 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008 til birtingar af hálfu lögreglu ásamt ákæru og greinargerð með bótakröfu vegna þess ákærða . Var meðferð málsins í kjölfarið frestað til gærdagsins. Fyrirkall og sá hluti ákæru sem ekki hafði verið fallið frá samkvæmt framansögðu, þar á meðal einkaréttarkrafa, voru svo birt ákærða Ionut - Daniel Vlad í Lög birtingablaði 9. desember 2025 og er staðfesting þess á meðal má lsgagna. Í fyrirkalli kom meðal annars fram að sækti sá ákærði ekki þing mætti hann búast við að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið það brot sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður á málið að honum fja rstöddum. Greinargerð með bótakröfu var á hinn bóginn ekki birt samhliða. Var málið því tekið til dóms í gær á grundvelli 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála hvað viðkom ákærða Ionut - Daniel Vlad, en á grunni 164. gr. sömu laga hvað viðkom ákærða Nicolae Stoica eftir að gefinn hafði verið kostur á að koma að sjónarmiðum um lagaatriði, ákvörðun viðurlaga og bótakröfu. 3 Af hálfu ákærða Nicolae Stoica er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og var að auki meðal annars af hans hálfu fjallað u m ákvörðun dráttarvaxta af einkaréttarkröfu og krafist þóknunar handa skipuðum verjanda vegna starfa verjandans í þágu þess ákærða. Dómurinn telur sannað, með vísan til þess sem að framan greinir og gagna málsins, að ákærð u hafi framið þá háttsemi sem þei m er að endingu gefin að sök og er háttsemi þeirra réttilega heimfær ð til refsiákvæð is í ákæru. Ákærð u eru því sakfelld i r fyrir háttsemina og h a f a unnið sér til refsingar samkvæmt 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Samkvæmt sakavottorðum, og fyrirliggjandi upplýsingum um sakaferil ákærðu erlendis frá, hefur hvorugur þeirra áður gerst sekur um háttsemi sem þýðingu hefur við ákvörðun refsingar nú, sbr. 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og 3. mgr. 71. gr. sömu laga. Þá er og til þe ss að líta að ákærði Nic olae Stoica mætti fyrir dóm við þingfestingu málsins, eftir að hafa ekið til Egilsstaða frá höfuðborgarsvæðinu, til þess að greina frá sínum þætti málsins í dómsal. Fram er komið að hann gaf skýringar á þeim sakargiftum sem fallið v ar frá fyrir dómi og upplýsti málið, hvort tveggja að því marki og með ský lausri játningu á þeirri háttsemi sem að framan greinir, auk þess að samþykkja einka réttarkröfu. Þykja þessi atriði horfa honum sér í lagi til málsbóta, sbr. 8. tl. 1. mgr. 70. gr. laganna. Þá leið og nokkur tími frá því að ákærðu viðhöfðu háttsemina til útgáfu ákæru og dómsálagningar sem ákærðu verður að málsgögnum virtum ekki kennt um. Á hinn bóginn unnu ákærðu þá háttsemi sem þeir eru sakfelldir fyrir í sameiningu og horfir það t il refsiþyngingar, sbr. 2. mgr. sama lagaákvæðis. Eins og hér hagar til þykir refsing ákærða Ionut - Daniel Vlad samkvæmt 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga, en refsing ákærða Nicolae Stoica samkvæmt sama lagaákvæði h æfilega ákveðin fangelsi í 45 daga. F ullnustu refsing a beggja þykir mega fresta í tvö ár haldi ákærð u almennt skilorð 57. gr. þeirra laga. Af hálfu stjórnarformanns og framkvæmdastjóra fyrir hönd kröfuhafa er krafist sameiginlega 559.032 króna í skaðabætu r úr hendi ákærðu. Þeirri kröfu til stuðnings hefur verið lögð fram greinargerð fyrirsvarsmannsins, þar sem í samræmi við áskilnað laga er grein gerð fyrir kröfunni, og lögð fram gögn um hið fjárhagslega tjón félagsins, sem samkvæmt því sem að framan grein ir verður rakið til háttsemi ákærðu. Um vexti af kröfu félagsins fer samkvæmt því sem greinir í dómsorði, þar af verða vextir samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu dæmdir frá 9. janúar 2026 með vísan til síðari má lsliðar 9. gr. laganna í ljósi þess hvernig hér hagaði til og 4 áður er rakið. Þá bera gögn málsins eða annað það sem fram er komið við meðferð þess ekki með sér kostnað af því að halda kröfunni uppi. Ekki leiddi annan sakarkostnað af málinu en þóknun skipað s verjanda ákærða Nicolae Stoica, Jóns Jónssonar lögmanns. Í samræmi við 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og meðferð málsins fyrir dómi verður ákærði dæmdur til að greiða helming þóknunar verjandans, sem í heild þykir, að virtri tímaskýrslu og umfangi málsins, hæfilega ákveðin 221.340 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Hákon Þorsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærði, Ionut - Daniel Vlad , sæti fangelsi í 60 daga , en fresta skal fullnustu refsing ar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þess að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði, Nicolae Stoica , sæti fangelsi í 45 daga , en fresta skal fullnustu refsing ar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þess að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærðu Ionut - Daniel Vlad og Nicolae Stoica greiði sameiginlega 559.032 krónur með vöxtum s amkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 6. s eptember 2023 , en með dráttarv öxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. , sömu laga frá 9. janúar 2026 til greiðsludags . Ákærði, Nicolae Stoica, greiði helming þóknunar skipaðs verjanda síns, Jóns Jónssonar lögmanns, sem í heild er 221.340 krónur. Hákon Þorsteinsson