Héraðsdómur Reykjaness Dómur 27. mars 2026 Mál nr. S - 1856/2025 : Ákæruvaldið ( Klara Dögg Thorarensen aðstoðarsaksóknari ) g egn Elías i Georgss yni ( Björgvin Jónsson lögmaður ) (Ingi Freyr Ágústsson réttargæslumaður) D Ó M U R Mál þetta, sem dómtekið var að lokinni aðalmeðferð 9. febrúar 2026, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara 19. júní 2025, á hendur Elíasi Georgssyni, kt. , , Reykjanesbæ: sunnudagsins 26. febrúar 2023, með því að hafa veist með ofbeldi að A , kt. , þá 12 ára, skammt frá heimili ákærða, en hann elti drenginn uppi, felldi hann í jörðina og hél t honum þar föstum, dró hann svo á fætur og tók hann gegn vilja sínum inn á heimili ákærða að og læsti útihurðinni þar til nágranni ákærða kom og færði drenginn út af heimilinu, allt með þeim afleiðingum að A hlaut mar á innri upphandlegg, á framhandle gg og lófasvæði hægri handar, skrámur og hruflaða húð á sköflungi beggja vegna, mar aftan á kálfa beggja vegna og framan á hné og blámar og hruflaða húð á hægra hné. Með háttseminni sýndi ákærði drengnum yfirgang og ruddalegt athæfi auk ógnandi og vanvirða Er framangreind háttsemi talin varða við 1. mgr. 225. gr. og 1. mgr. 217. gr. al - mennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. 2 Þá er í ákæru tekin upp einkaréttarkrafa af hálfu , kt. , fyrir hönd ólögráða sonar síns, brotaþolans A . Er endanleg krafa brotaþola á þann veg að krafist er greiðslu miska - og skaðabóta úr hendi ákærða að fjárhæð 858.500 krónur, með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 26. febrúar 2023 til þess dags er mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá er gerð krafa um málskostnað að skaðlausu. Ákærði neitar sök og krefst sýknu. Til vara geri r hann þá kröfu að ákvörðun refsingar verði frestað skilorðsbundið eða refsing verði látin niður falla. Til þrautavara er krafist vægustu refsingar og að hún verði að öllu leyti skilorðsbundin. Þá er þess krafist að einkaréttarkröfu verði vísað frá dómi en til vara að bætur verði stórlega lækkaðar. Að lokum er gerð krafa um hæfileg málsvarnarlaun. 1 Helstu málavextir 1.1 Í aðkomuskýrslu lögreglu greinir að um klukkan 22:06 sunnudaginn 26. febrúar æri í gangi fyrir ut an ] í reglu og vísað henni að húsi ákærða, sem þau sögðu vera þar inni. Þá kom þar að vitnið B sem kvaðst hafa brotið rúðu í útidyrahurð ákærða í þeim tilgang i að sækja brotaþola, sem hafi verið þar inni. Í dyragætt hússins stóð X menn væru jafnframt ekki velkomnir í hús þeirra. Fyrir aftan X stóð ákærði, Elías Georgsson, og k emur fram að hann hafi verið verulega ítrekað að ræða við lögreglu á vettvangi. Þá segir að sökum þess að ákærði hafi sýnt mótþróa í samskiptum við lögreglu hafi hann verið færður í handjárn. Í skýrslunni segir að lögregla hafi á vettvangi rætt við brotaþola, A , og vitnin C og D . Sögðust þeir hafa sem hafi þá kallað til þeirra og sagt þeim að fara eitthvað annað, sem þeir hafi gert. Stuttu síðar hafi þeir gengið um í þeim tilgangi að fara að húsi D , en hann búi að . Hafi þeir þá skyndilega orðið varir við ákærða sem hafi komið hlaupandi að þeim og sparkað í brotaþola og jafnframt reynt að rífa í vitnið C , með þeim afleiðingum að brotaþoli féll 3 í jörðina. Sögðu þeir ákærða hafa lagst ofan á brotaþola og hreytt í hann fúkyrðum og þeir ákærða þá hafa rifið brotaþola með sér inn í hús sitt að og læst hurðinni. Hafði lögregla eftir brotaþola að hann hafi orðið svo hræddur að ha nn hafi ekki náð að gráta. Sagði hann að þegar inn í húsið var komið hafi ákærði hrist hann og haldið þétt utan um hann og spurt hann hvar hann ætti heima, sem brotaþoli hafi greint honum - Í skýrslunni greinir að brotaþoli hafi sýnt lögreglu áverka sem hann sagði hafa af þessu hlotist og að sjá hafi mátt mar á vinstri og hægri fæti brotaþola, en að hans sögn h afi ákærði sparkað í hann sem hafi við það hrasað og lent á báðum hnjám sínum. 1.2 Tekin var skýrsla af brotaþola, A , hjá lögreglu 28. febrúar 2023 sem var þá mættur til lögreglu í þeim tilgangi að leggja fram kæru á hendur ákærða. Greindi brotaþoli þar s vo frá að hann hafi, ásamt fleirum, verið að gera dyraat í götunni. Kveðst - grenni taka myndband af drengjunum á síma sinn. Hafi konan sagt þeim að lögreglan væri á hræddir og beðið konuna fyrirgefningar. Þeir hafi gengið frá húsinu að stað þar sem félagar hans hafi séð mann (ákærða) koma hlaupandi í átt til þeirra. Sagði hann ákærða brotaþoli ákærða síðan hafa staðið upp og haldið brotaþola með annarri hendi. Sagði hann ákærða hafa hótað sér og sagt að brotaþoli myndi aldrei framar þora út úr húsi þar se m 10.000 manns myndu koma og finna hann. Sagði hann ákærða tekið ljósmynd af brotaþola og sagt honum að brosa fyrir myndatöku. Taldi brotaþoli þetta hafa tekið um fjórar til fimm mínútur. Aðspurður sagði brotaþoli ákærða hafa meitt brotaþola. Nánar tiltek ið hafi ákærði hrist hann til þegar hann hafi legið á jörðinni. Kvaðst hann í fyrstu ekki geta sagt til um hvort hann hafi legið á bakinu eða á maganum með andlit sitt í götunni þegar ákærði hafi hrist hann til, en kvaðst síðar reka minni til þess að hafa legið á bakinu á þeim tíma þegar 4 ákærði hafi tekið af honum mynd. Sagði hann ákærða síðan hafa rifið sig upp af jörðinni og sagt við sig að hann ætti að biðja hann afsökunar, sem brotaþoli kvaðst þegar hafa gert. Nánar lýsti brotaþoli þessu svo að ákærði h afi haldið í vinstri upphandlegg brotaþola og rifið hann þannig upp. Sagði hann ákærða hafa farið með sig inn í hús sitt og læst útidyrahurðinni þegar inn var komið. Sagði brotaþoli að ákærði hafi beðið konu sína um að hringja á lögreglu og taka upp myndba nd af brotaþola. Kvaðst brotaþoli hafa verið mjög hræddur á þessum tíma og í fyrstu talið að ákærði hafi ætlað að nauðga sér, þó að ákærði hafi ekki haft það á orði. Brotaþola hafi liðið eins og hann hafi verið lengi inni í húsi ákærða, en hann áætlaði að hann hafi verið þar í um þrjár til fimm mínútur. Ákærði hafi hrætt brotaþola með því að segja ítrekað að margir ótilgreindir menn myndu koma vitnið B , faðir D , hefði komið að húsinu og reynt að opna dyrnar. Hann hafi bankað svo fast að dyragluggi hafi brotnað. Brotaþoli gat ekki sagt til um hvort ákærði hafi þá opnað fyrir B eða hvort B hafi teygt sig inn um brotinn gluggann og opnað sjálfur. 1.3 Tekin var skýrsla af ákærða, Elíasi Georgssyni, hjá lögreglu 27. febrúar 2023. Til dæmis hafi verið unnin skemmdarverk á bílum, húsi og grindverki með ýmsum hætti. Þá hafi verið kasta grindverk brotin. Sagði hann lögreglu ekkert hafa aðhafst í þessu. trommukonsert. Kvaðst hann hafa beðið konu sína um að hringja á lögreglu, en hann viti þó ekki hvort hún hafi orðið við því. Kvaðst ákærði hafa farið út og tekið sér stöðu l drengirnir hafi mætt aftur og þeir staðið á lóðarmörkum , fjórir saman. Sagðist hann hafa náð að ganga til þeirra, sem hafi brugðið mjög við það og þeir tekið á rás. Hafi einn þeirra, sem ákærði lýsir sem þykkum Kvaðst ákærði hafa sagt við hann hvort hann vilji ekki koma með sér og ræða við konu Kvaðst ákærði hafa tekið í höndina á bro taþola til að hjálpa honum upp af götunni, en hlið við hlið að húsi ákærða þar sem eiginkona hans hafi tekið á móti þeim. Hafi brotaþoli 5 gengið inn í hús þeirra og þa - þola hafa gengið sjálfviljugur með sér inn í húsið. Ákærði kvaðst hafa lokað útidyr unum, hringt á neyðarlínu og beðið um samband við lögregluna í Keflavík. Kvaðst hann vart hafa lokið því samtali þegar gler í útidyrahurð hússins hafi brotnað og vitnið B ruðst inn í húsið, hrint ákærða og gargað á hann með ógnandi hætti. Hafi B síðan farið út með til að skalla hann . Í framhaldinu hafi lögregla mætt á svæðið og handtekið ákærða. Ákærði kvað drengina hafa veist tvívegis að húsi hans þetta kvöld, en um 15 20 mínútur hafi liðið frá fyrri atlögu fram að hinni síðari. 1.4 Lögregla tók tvívegis skýrslu af vitninu X , eig inkonu ákærða, og naut hún í bæði skiptin réttarstöðu sakbornings. Í fyrri skýrslu sinni, 27. febrúar 2023, kvaðst hún ekki hafa orðið vitni að neinu því sem átt hafi sér staða utan við hús þeirra umrætt kvöld. Það eina sem hún hafi orðið vitni að var þega r maður hafi brotið rúðu í útidyrahurð hússins. Sagði hún fjóra drengi hafa komið og barið allt hús þeirra hjóna að utan og hún hafi í kjölfarið farið út úr húsinu til að ræða við þá, en farið aftur inn þegar þeir voru farnir. Nánar tiltekið kvaðst hún h afa verið heima ásamt manni sínum, ákærða Elíasi, umrætt kvöld. Þau hafi setið saman í stofu og horft á sjónvarp þegar þau hafi hrokkið upp við að barið var fast á útidyr hússins. Sagðist hún hafa heyrt í krökkum á hlaupum, en þetta væri ekki í fyrsta sinn sem veist hefði verið að húsi þeirra. Kvaðst hún hafa farið út, séð þar drengina og tekið þá upp á myndband, og hafi drengirnir síðan yfirgefið ætli að tala við hana sér stað á milli ákærða og drengsins. Sagði hún að stuttu síðar hefði nágranni þeirra, X kv aðst aðspurð ekki geta sagt til um það hvort brotaþoli hafi komið sjálfviljugur inn. Sagðist hún ekki hafa orðið vör við að ákærði hafi lagt hendur á Í skýrslutöku 31 . maí 2024 bar hún með sama hætti og áður. Sagði hún að gert hefði verið dyraat á heimili þeirra umrætt kvöld. Þau séu ekki með dyrabjöllu og því hafi verið barið á útidyrahurð þeirra. Sagðist hún halda að þrír drengir hefðu staðið að þessu, en hún kvaðst ekki hafa þekkt til þeirra. Sagði hún ákærða hafa kallað á hana og sagt 6 henni að til þeirra væri kominn drengur sem ætlaði að biðja hana fyrirgefningar. Kvaðst hún hafa komið í anddyrið og um leið kveikt á myndbandsupptöku. Sagði hún drenginn hafa sagt við sig að dyraatið væri hluti af TikTok - leik. Aðspurð sagði hún ekkert hafa amað að drengnum allt þar til vitnið B hafi brotið sér inngöngu í húsið. Þá hafi drengurinn farið að hágráta. Sagði hún brotaþola ekki hafa beðið um að fá að fara út úr húsinu, en hú n sagði afskipti sín af drengnum hafa varað í sjö sekúndur. Aðspurð kvaðst hún ekki geta sagt til um það hvort útidyrahurðin hafi verið læst. 1.5 Vitnið E gaf skýrslu hjá lögreglu 25. mars 2024, að við stöddum föður sínum. Sagðist hann muna illa eftir atvikum, enda langt um liðið, auk þess sem upplýst var að E hefði sjálfur nýlega fengið þungt höfuðhögg og því væri minni hans ekki eins og best væri á kosið. Greindi hann frá því að hafa, ásamt vinum sínum , gert dyraat umrætt kvöld. Sagðist hann hafa falið sig á meðan vinir hans, A og D , hefðu bankað á húsið. Sagði hann konu ákærða hafa verið fyrir utan húsið og tekið myndband af vinunum. Sagði hann þá hafa reynt að biðja konuna afsökunar á fram ferði sínu. Í framhaldinu hafi þeir séð ákærða koma á eftir þeim. Sagðist hann hafa séð brotaþola kalla á hjálp þar sem hann lá í götunni , en ákærði hafi á meðan staðið yfir honum. Sagði hann þá félaga hafa hlaupið heim til D og sagt foreldrum hans frá því sem gerst hafði. Sagði hann pabba D , B , þá hafa farið að heimili ákærða og bankað fast upp á með þeim afleiðingum að gler í hurðinni brotnaði. E kvaðst hvorki hafa orðið var við ofbeldi né hótanir umrætt kvöld. Þá sagðist hann ekki hafa séð áverka á brotaþola sem ha fi jafnframt ekki greint sér frá því að hafa fengið áverka. 1.6 Lögregla tók skýrslu af vitninu F 26. mars 2024, að við staddri móður sinni. Kvaðst hann hafa séð nokkra krakka gera dyraat þetta kvöld. Sagði hann að maðurinn sem bjó í húsinu sem þeir höfðu gert dyraat í hefði komið hlaupandi á eftir krökkunum. Sagði F manninn hafa náð einum drengjanna og að hann hefði sparkað í hæl hans með þeim afleiðingum að brotaþoli féll í jörðina. Sagði hann ákærða þá hafa lagst ofan á brotaþola til þess að koma í veg fyrir að hann hlypi á brott. Sagði hann brotaþola hafa grátið og ítrekað kallað á hjálp. Sagði hann að ákærði hefði rifið brotaþola upp af jörðinni Sagðist hann hafa heyrt brotaþola halda áfram að kalla á hjálp. Kvaðst F hafa heyrt öskur frá ákærða þegar þeir voru þar inni, en hann taldi að brotaþoli hefði verið þar í um 20 7 25 mínútur. Sagði hann hina drengina hafa hlaupið heim til D og sótt föður hans, B, sem hafi fa rið til ákærða og barið fast á útidyr hússins með þeim afleiðingum að rúða brotnaði. Sagði hann ákærða þá hafa komið út úr húsinu og rifist við B. 1.7 Vitnið D gaf, að viðstöddum föður sínum, skýrslu hjá lög reglu 9. apríl 2024. Greindi hann frá því að ha fa, ásamt vinum sínum, gert dyraat í götunni. Sagði hann þá hann þá hafa hlaupið í burtu þegar dyrnar voru opnaðar. Sagði hann drengina þá hafa farið á bak við húsið þar sem eiginkona ákærða, X , hafi komið til þeirra og tekið af þeim myndbönd. Hafi hún sagst ætla að birta myndböndin, en hann viti ekki hvar þau hafi átt að birtast. Þeir hafi síðan gengið fram hjá húsi ákærða, á leið sinni til baka, þegar hann hafi skyndile sest ofan á hann þannig að brotaþoli hafi ekki náð að komast undan. Sagði hann brotaþola hafa legið þannig á maganum og ítrekað kallað á hjálp. Sagði D ákærða jafnframt hafa reynt að grípa í vitnið C , en það ekki tekist. Kvaðst D hafa verið hræddur og hlaupið heim til sín og látið foreldra sína vita hvað gerst hefði. Hefði faðir hans, B, þá farið heim til ákærða og bankað fast á húsdyrnar með þeim afleiðingum að rúða brotnaði. Við það hafi brotaþoli loks komist út. 1.8 Vitnið G gaf skýrslu hjá lögreglu 15. apríl 2024, að viðstaddri móður sinni. Kvaðst G hafa verið við Bitann þegar hann hafi orðið var við drengi sem væru að gera dyraat á heimili ákærða. Kvaðst hann í framhaldinu haf a séð ákærða hlaupa á eftir drengjunum. Sagði hann að ákærði hefði náð einum drengjanna, brotaþolanum A . Sagði hann ákærða hafa haldið brotaþola, sem hafi legið á maganum, með því að setja hné sitt á bak hans þar sem hann hafi legið í jörðinni. G sagði bro taþola hafa grátið og kallað á hjálp á meðan á þessu hafi staðið. Að spurður taldi hann brotaþola hafa legið í um hálfa til eina mínútu á jörðinni. Ákærði hafi þá rifið brotaþola upp, með því að halda í föt hans, og leitt hann þannig inn á heimili sitt og lokað á eftir þeim. Sagði hann föður eins drengsins síðan hafa komið á staðinn og bankað fast á útidyrahurð ákærða, en við það hafi gluggi í hurðinni brotnað. Sagði hann brotaþola hafa dvalið í um þrjár mínútur á heimili ákærða. 8 1.9 Anna H mætti til skýrs lutöku hjá lögreglu 26. apríl 2024, að viðstaddri móður sinni. Kvaðst hún hafa verið á leið sinni frá Bitanum umrætt kvöld þegar hún hafi orðið vör við nokkra stráka á hlaupum undan fullorðnum manni, ákærða Elíasi. Kvaðst hún síðan hafa séð einn drengjanna liggjandi í jörðinni og hafi ákærði legið með hné sitt ofan á drengnum. Vitnið kvaðst hvorki geta sagt til um hvernig brota þoli hafi endað í jörðinni né hvort hann hafi legið á maganum eða á bakinu. Sagðist hún halda að ákærði hefði verið með hné sitt á brotaþola í um tvær mínútur. Sagði hún ákærða hafa haldið í peysu drengsins, tekið hann upp af jörðinni og gengið með honum inn á heimili sitt. Sagði hún að á meðan á þessu hafi staðið hafi drengurinn grátið og beðið ákærða um að hætta. H sagði hina drengi na hafa hlaupið heim til eins þeirra og sótt föður hans, sem hafi komið á staðinn og bankað mjög fast á útidyrahurð ákærða með þeim afleiðingum að rúða í hurðinni brotnaði. Sagðist hún telja að brotaþoli hafi verið í um 15 mínútur inni hjá ákærða. 1.10 Vi tnið Kristján I gaf skýrslu hjá lögreglu 15. maí 2024. Sagðist hann hafa verið heima hjá sér umrætt kvöld þegar nokkrir drengir hafi gert hjá honum dyraat. Sagði hann að hundur hans hafi orðið mjög æstur við þetta og því hafi hann ákveðið að hleypa hundinu m út í garð á bak við hús sitt. Sagði I að hann hefði séð ákærða setjast upp í bíl og heyrt að kona hans hefði verið að reyna að stöðva hann. Sagðist hann þá strax hafa grunað að drengirnir hefðu einnig gert dyraat á heimili ákærða. Vitnið kvaðst hafa ákve ðið að fara í göngutúr með hund sinn í þeim tilgangi að fylgjast með ferðum ákærða. Kvaðst hann hafa séð ákærða aka um götuna líkt og hann væri að leita að einhverjum. Kvaðst hann hafa verið kominn nokkuð frá heimili sínu þegar hann hafi heyrt mikil Sá hann þar föður eins drengsins og brotaþola. Kvaðst vitnið ekki hafa orðið var við neitt ofbeldi eða hótanir umrætt kvöld. 1.11 Vitnið C gaf skýrslu hjá lögreglu 15. maí 2024 , að viðstaddri móður sinni. Kvaðst hann hafa verið með vinum sínum umrætt kvöld, en þeir hafi verið að gera dyraat. Sagði hann ákærða hafa falið sig á bak við rafmagnsstaur og taldi hann líklegast að ætlun ast brotaþola eða D , þar sem þeir hafi verið forsprakkar dyraatsins. Að sögn C hafi ákærði síðan hlaupið á eftir drengjunum, en 9 hann hafi sjálfur tekið á rás heim til D en hann hefði þó ekki séð það sjálfur. 1.12 Í málinu liggur frammi læknisvottorð læknis nr. , sérfræðings í heilsu - gæslulækningum, dagsett 20. mars 2023. Segir þar að brotaþoli hefði leitað á bráða - móttöku HSS 26. febrúar sama ár í fylgd móður sinnar. Tók læknir niður eftirfarandi frásögn drengsins: Maðurinn felur sig og tekur síðan í hann, hrindir honum niður, heldur í báða framhandleggi og heldur honum niðri, dregur hann inn í íbúðina sína og læsir hurð inni. Faðir vinar hans tekur eftir þessu, brýtur rúðuna og nær þ.a.l. að opna Segir í vottorðinu að brotaþoli hafi verið í miklu andlegu uppnámi við komu á deild. Hann sé með skrámur á sköflungum , marbletti á innri uppha ndlegg hægri handar og mar á framhandlegg hægri handar. Þá segir í vottorðinu: Sjúklingur er skýr, vel vakandi og ekki veikindalegur að sjá, er að sjá í áfalli. Höfuð: Ekki sár, bólga, mar, aflögun né eymsli. Augu: Slímhúðir eru eðlilegar. Eðlileg ar augnhreyfingar og ljóssvörun beint og óbeint í báðum augum. HNE: Ekki aflögun né eymsli á nefi, engin nefblæðing. Engin þreifieymsli eru til staðar yfir andlitsbeinum. Getur opnað munn og bitið saman eðlilega án verkja. Engir áverkar á tönnum né tungu. Háls: Ekki virðast þreifieymsli yfir hryggjartindum. Engin sár, bólga, mar, aflögun né eymsli á hálsi. Bak: Ekki þreifieymsli yfir hryggjartindum. Engin sár, bólga, mar, aflögun né eymsli á baki. Brjóstkassi: Lungnahlustun er jöfn og hrein. Eðlileg hjarta hlustun. Ekki sár, bólga, mar, aflögun né eymsli á brjóstkassa Kviður: Kviður er ekki þaninn og mjúkur og eymslalaus. Ekki sár, mar eða bólga. Skoðun er að sjá: 10 Full og eðlileg hreyfigeta í útlimum, engin aflögun. Mar á innri upphandlegg hægri handar. Mar á framhandlegg hægri handar Mar á palmar svææði [ svo ] við MC 1 basis. Skrámur á sköflungi beggja vegna, ásamt hruflaðri húð en húð ekki opnuð/ Ekki laceration sár. Ekki blæðing. Aftan á kálfa var mar að sjá beggja vegna, innan við 1cm stærð, deyfð. vinstr a megin og framan á hné infercanteriort. vinstra megin, einnig að sjá á hægra hné Þá er í vottorðinu mælt fyrir um meðferð við metnum áverkum. Segir þar að ekki séu merki um alvarlega áver ka og honum sé því óhætt að fara heim. Brotaþola var þó ráðlagt að hafa samband við heimilislækni ef óþægindi reyndust vera viðvarandi eða verkir færu versnandi. Þá segir í vottorðinu: - Er með kvíða eftir áfallið, hefur tekið phenergan áður, fær að taka slíkt í kvöld fyrir svefninn, kvíður [ svo ] því að fara að sofa. Eiga það heima. - Fá almennar ráðleggingar um nærveru sálar eftir trauma, móðir vinnur hjá Að lokum greinir í vottorðinu að brotaþoli hafi á ný leitað til bráðamóttöku 27. febr 1.13 Í málinu liggja frammi ljósmyndir af ætluðum áverkum á brotaþola umrætt sinn. Þá hefur verið lögð fram myndbandsupptaka úr símtæki eiginkonu á kærða, X , en myndbandið er tekið innandyra á heimili þeirra þar sem brotaþoli var staddur. Má þar meðal annars sjá þegar bankað er á útidyrahurð þeirra með þeim afleiðingum að gler í hurðinni brotnar. Á meðan það á sér stað sést ákærði vera að tala við lög reglu í síma. Í kjölfar þess sést ákærði opna hurðina og inn kemur maður, vitnið B, sem segir við ákærða að hann eigi ekki að ráðast á krakka. Sést B færa brotaþola út af heimilinu. Þá má á myndbandinu greina frekari orðaskipti milli ákærða og B, auk þess sem vitnið D og brotaþoli heyrast þar meðal annars eiga í orðaskiptum við ákærða. 11 Við aðalmeðferð málsins var leikin upptaka af skýrslutöku af vitninu C hjá lögreglu 15. maí 2024. 2 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi 2.1 Ákærði greindi svo frá að hann hafi verið heima ásamt konu sinni umrætt kvöld, við það að brotna. Sagði hann konu sinni hafa brugðið mikið við þetta og í raun hafi hún þar fyrir utan. Kvaðst hann hafa farið út og ekið á bíl sínum út , niður . Hann hafi sitt. Um tí fram húsi ákærða, sem hafi þá farið út úr bifreið sinni þar sem henni var lagt á bílastæði og tekið mynd af drengjunum þar sem þeir eru á gangi norður götuna. Sagði hann drengina hafa staðnæmst við innkeyrslu n hafi heyrt D Sagði hann æsinginn hafa verið svo mikinn í drengjahópnum að þeir hafi ekki tekið eftir því þegar ákærði hafi nálgast þá. Sagði hann að uppi hafi orðið fótur og fit þegar þeir urðu ákærða varir. Sagði hann þá hafa hlaupið af stað. D hafi snúið sér við og ýtt með báðum höndum sínum harkalega í bak brotaþola með þeim afleiðingum að hann fellur í jörðina. Hinir drengirnir þrír hafi haldið áfram hlaupum sínum til norðurs , en brotaþoli setið eftir á gangstéttinni, þar sem hann lá á bakinu. Sagðist ákærði þá hafa tekið þrjár ljósmyndir af brotaþola þar sem hann lá þar á jörðinni. Sagði hann brotaþola ítrekað hafa Ákærði kveðst þá hafa sagt: Ákærði kveðst þá hafa sagt við brotaþola að konu hans liði illa og væri í áfalli. Hafi ákærði sagt við brotaþola að hann ætti að koma með sér og biðja konu hans afsökunar á framferði sínu, en ákærði myndi jafnframt kalla til lögreglu og fela henni úrlausn málsins. Sagði ákærði brotaþola hafa samþykkt að fara með sér. Kvaðst ákærði hafa rétt brotaþola vinstri hönd sína og tekið í vinstri hön d brotaþola og dregið hann á fætur. Sagði hann að brotaþoli hafi þá, af fúsum og frjálsum vilja, gengið á undan sér inn í hús ákærða, en þeir ekki mælt orð á leiðinni. Þegar í dyragættina var komið hafi ákærði kallað á konu sína 12 hann konu sína hafa komið til þeirra en ákærði hafi hringt í 112 og óskað eftir aðstoð lögreglu. Á meðan á þessu hafi staðið hafi nágranni ákærða, B, komið að húsinu og brotið rúðu í útidyrahurð hú ssins, en ákærði hafi þá staðið hinum megin við dyrnar. Kvaðst tekið brotaþola með sér út. Sagði hann B hafa sýnt af sér ógnandi framkomu. Aðspurður kvaðst ákærði ekki hafa læst útidyrahurðinni þegar þeir hafi komið þangað inn, enda sé ekki hægt að læsa hurðinni. Dyrnar séu með ASSA - læsingu sem geri það að verkum að dyrnar læsist aldrei að innan, þ.e. það nægi að snúa snerlinum. Aðspurður kvaðst ákærði ekki hafa beðið brotaþo la um nafn og heimilisfang þegar inn var komið. Ekki hafi vakað Ákærði kvaðst neita fyrir að hafa unnið brotaþola nokkurt mein. Þá neitaði hann fyrir að hafa sett hné sitt í bak brotaþola þegar hann hafi legið á g angstéttinni, líkt og rakið hafi verið. Borinn var undir ákærða framburður hans hjá lögreglu þar sem hann lýsir því meðal annars að brotaþoli hafi dottið sjálfur í jörðina. Sagðist hann meðvitað hafa greint ranglega frá atvikum að þessu leyti í skýrslu sin ni hjá lögreglu. Sagðist honum hafa brugðið við fyrrgreinda meinta háttsemi D og spurt sig þeirrar spurningar hver gæti brotaþoli myndi skýra satt og rétt frá atvikum og sjálfur bera um þetta. Þá sagðist hann hins vegar ekki verið tekin upp í endurriti skýrslutöku hjá lögreglu. Þá voru bornar undir ákærða fjórar ljósmyndir sem ákæ rði kveðst hafa tekið af drengjunum umrætt kvöld á göngu við hús ákærða auk ljósmyndar af brotaþola. Þá var leikið myndskeið sem eiginkona ákærða, X , tók upp á síma sinn innandyra í húsi ákærða. Sagði ákærði ljósmyndirnar sýna fram á að hann hafi ekki legi ð ofan á brotaþola, líkt og haldið hafi verið fram, heldur staðið yfir honum þegar hann tók myndirnar. Megi vel sjá það á skuggavarpi. Þá sagði ákærði myndbandið staðfesta frásögn hans af atvikum. Ákærði benti sérstaklega á að tölur þær sem prentaðar séu í vinstra horni þeirra ljósmynda sem lagðar voru fram í málinu af hans hálfu hefðu verið færðar inn af ákærða sjálfum, eftir á, en tölurnar sýndu tíma og dagsetningu ljósmyndanna. Sagðist ákærði hafa fengið tölvuverkfræðing til að annast þá innfærslu. Ákær ði sagði að fyrir honum hefði í fyrsta lagi vakað að gera brotaþola grein fyrir 13 og hann [D] samskiptum þeirra hafi staðið, og hann hafi ekki beðið um hjálp. Brotaþoli hafi hins Að lokum sagði ák ærði viðlíka ástand hafa viðgengist í fjölda ára og hafi lögregla meðal annars ekki sinnt beiðnum þeirra hjóna um afskipti eða vernd gegn þessum of - sóknum. Hafi þetta endað með því að þau hafi neyðst til að flytja út úr húsinu og í annað bæjarfélag og hafi þau ekki búið þar í þrjú ár. Standi hús þeirra nú autt og yfirgefið. 2.2 Brotaþoli, A , gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins, að viðstöddum fulltrúa barnaverndarnefndar. Greindi hann frá því að hafa verið með vinum sínum umrætt kvöld. Sagði hann þá meðal annars hafa gert dyraat í tveimur húsum. Sagði hann konu ákærða, X , hafa komið út úr húsi sínu og tekið af þeim myndband. Sagði brotaþoli sig og félaga sinn, E , báða hafa beðið hana fyrirgefningar á athæfi sínu, en hann hafi á þessum tíma ekki þekkt til X . X D . Sagði hann þá hafa farið á ný út um 20 mínútum síðar í þeim tilgangi að kanna hvort lögregla væri onum þar. Aðspurður sagði brotaþoli það vera rangt sem fram hafi komið hjá ákærða að D hafi ýtt brotaþola í jörðina. Kvaðst brotaþoli ekki muna nákvæmlega hvort ákærði hafi hoppað á sig, hrint eða fellt. Sagðist brotaþoli fyrst hafa fallið fram fyrir sig á hné og síðan á maga og hafi ákærði farið ofan á sig þar sem hann hafi legið á bakinu í jörðinni og haldið honum þannig. Hafi ákærði hrist brotaþola til og skammað, en brotaþoli muni ekki nákvæmlega brotaþola á bakið og tekið af honum ljósmyndir og beðið hann um að brosa í myndavélina. Sagði hann ákærða hafa legið á sér þegar hann hafi tekið myndir af ullt af hættulegum upphandlegg brotaþola og leitt hann þannig inn í hús sitt og lokað og læst útidyrum á eftir þeim. Kvaðst brotaþoli aðspurður ekki hafa viljað fara með ákærða, en hann hafi 14 hafi til tals að brotaþoli ætti að koma með ákærða til þess að biðja konu hans afsökunar. Þar hafi ákærði krafist þess að fá uppgefið heimilisfang brotaþola og sagt við hann að hann myndi aldrei þora að fara út úr húsi á nýjan leik. Kvaðst brotaþoli hafa lagt trúnað á hótanir ákærða og verið mjög hræddur. Kvaðst brot aþoli hafa beðið X um hjálp, sem hafi ekki brugðist við því með öðrum hætti en að taka upp myndband af brotaþola. Í framhaldinu hafi hann orðið var við að bankað var á útidyrahurð á heimili ákærða. Taldi í ljós hafi komið að þar var á ferðinni faðir D , vinar brotaþola, B. Ákærði hafi ekki opnað og hafi það endað með því að B hafi húsinu. Brotaþoli kvaðst ekki geta sagt til um það hversu lengi hann var inni á heimili ákærða, enda var hann hvorki með síma né klukku. Honum hafi hins vegar liðið eins og hann hafi verið þar í um tíu mínútur. Langur tími sé nú hins vegar liðinn frá atvikum, sem áttu sér stað þegar hann var nýlega orðinn 12 ára gamall. Aðspurður kvaðst brotaþoli ekki hafa vitað hver ætti heima í húsi ákærða þegar þeir hafi gert þar dyraat. Brotaþoli staðhæfði að hvorki hann né vinir hans hefðu áður gert dyraat heima hjá ákærða. Þá kvaðst brotaþoli aðspurður ekki ha fa barið fast á útidyr á húsi ákærða þegar hann hafi gert þar dyraat. Þá sé af og frá að ætlun þeirra hafi verið að brjóta rúður í húsinu eða að ætlun þeirra hafi verið að gera aftur dyraat heima hjá ákærða. Brotaþoli kvaðst hafa verið hræddur og sér lið ið illa á meðan á þessu hafi staðið, enda hafi hann ekki haft nokkra hugmynd um hvað ákærði hefði í hyggju að gera við sig. Þá kvaðst hann hafa verið hræddur um að ákærði myndi, eða menn á hans vegum, leita sig uppi, enda hefði hann gefið honum upp heimili sfang sitt. Sagði hann þetta hafa haft áhrif á sig. Hann hafi til að mynda í kjölfarið verið hræddur á heimili sínu, einkum um nætur. Kvaðst hann hafa átt erfitt með svefn af ótta við ákærða og menn á hans vegum, auk þess sem hann hafi verið hræddur við að vera á gangi í nágrenni við heimili sitt. Hafi ótti hans staðið í um eitt ár frá því að atvik áttu sér stað. Bornar voru undir brotaþola ljósmyndir sem ákærði tók umrætt kvöld, auk þess sem leikin var myndbandsupptaka úr símtæki vitnisins X þar sem brota þoli er staddur innandyra í húsi ákærða. Þá var leikin hljóðupptaka af símtali ákærða við fjar - skiptamiðstöð ríkislögreglustjóra. Brotaþoli sagði að öðru leyti hafi verið rétt eftir sér haft í skýrslutöku hjá lögreglu. 15 2.3 Vitnið X , eiginkona ákærða, ósk aði eftir að gefa framburðar skýrslu við i hún ákærða hafa beðið sig um að hringja á lögreglu. Hún kvaðst þess í stað hafa afráðið að fara út og ræða við drengina. Kvaðst hún hafa innt burtu. Sagðist hún hafa tekið upp myndband af drengjunum sem hún hafi afhent lögreglu til meðferðar. Kvaðst hún ekki hafa vitað um ferðir ákærða þetta kvöld fyrr en hann kallar til hennar og seg , er svona honu m út í að gera dyraat, sem hafi verið hluti af TikTok - leik. Sagði hún brotaþola hafa verið inni á heimili hennar í sjö sekúndur, allt þar til nágranni þeirra, vitnið B, hafi brotið þola út. Kvað st hún aðspurð ekki vita hvort útidyrahurð hússins hafi verið læst eða ólæst. Aðspurð kvaðst hún telja að brotaþoli hafi alls verið í um 20 sekúndur inni hjá þeim. Sagðist hún aldrei hafa séð ákærða leggja hendur á brotaþola. Sagði hún ákærða hafa hringt á lögreglu. Vitnið sagði þau hafa þurft að þola mikið ónæði um langa hríð, bæði áður og eftir þetta, sem á endanum leiddi til þess að þau hafi flutt úr húsinu, sem nú standi autt. Kvaðst hálft ár, jafnvel þótt hún hafi ekkert gert. Spilaður var valinn kafli úr fyrrgreindri myndbandsupptöku og hann borinn undir vitnið. 2.4 Vitnið D gaf skýrslu fyrir dóminum, að viðstöddum fulltrúa barnaverndar Reykjanesbæjar. Sagði hann þá drengina hafa gert dyraat umrætt kvöld, þar á meðal á heimili ákærða. Sagði hann vitnið X hafa komið út og tekið af þeim myndband. Sagði hann brotaþola, A , og C hafa hlaupið í burtu en vitnið og E hafi verið þar áfram. Sagði hann X hafa tjáð þeim að lögreglan væri á lei ðinni og sagt drengjunum að fara, sem þeir gerðu. Að sögn vitnisins hafi hann og vitnið E beðið X afsökunar, en ekki sýnt henni dónaskap, líkt og haft hafi verið eftir henni. 16 Sagði hann þá hafa farið á heimili vitnisins og greint foreldrum sínum frá atvik um. Að því búnu hafi þeir á ný farið út og gengið fram hjá húsi ákærða þegar þeir hafi skyndilega orðið varir við að einhver væri að hlaupa í átt til þeirra. Sagðist hann hafa litið aftur þar sem þeir voru staddir við hús ákærða og þá séð hvar ákærði kom þ ar hlaupandi til þeirra. Brotaþoli sagði ákærða hafa náð að grípa í brotaþola, sem hafi verið brotaþoli féll fram fyrir sig og ákærði ofan á hann. Sagðist hann hafa séð ákærða hafa haldið brotaþola þar sem þeir lágu á jörðinni. Sagðist D þá hafa hlaupið heim til sín og kallað til lögreglu. Hafi faðir hans, vitnið B, þá farið heim til ákærða eins og áður er lýst. Vitnið kvaðst hafa heyrt brotaþola kalla á hjálp. Aðspurður sagði vitnið brotaþola hafa framkvæmt dyraat hjá ákærða með því að banka á glugga á útidyrahurð á heimili ákærða, en á meðan hafi vitnið og hinir drengirnir brotaþola til að framkvæma atið. Sagði hann drengina, hvorki fyrr né síðar, hafa gert dyraat á heimili ákærða. Þetta kvöld hefðu þeir jafnframt gert dyraat í einu öðru húsi. Neitaði vitnið að dyraatið hefði verið hluti af svokölluðum TikTok - leik. Vitnið sagði alrangt a ð hann hefði sjálfur hrint brotaþola í jörðina, líkt og haft hefði verið eftir ákærða. Bornar voru undir vitnið ljósmyndir sem ákærði tók umrætt kvöld. Kvaðst hann þekkja sig og vini sína á myndunum. Þá kvaðst hann staðfesta að hafa greint satt og rétt fr á atvikum í skýrslutöku hjá lögreglu. 2.5 Vitnið B sagði drengina hafa komið til vitnisins umrætt kvöld og tjáð honum að trúnað á frásögnina fyrr en einn þeirra hafi hringt í 112. Kvaðst hann þá hafa beðið drengina um að sýna sér hvar brotaþola væri haldið. Þegar hann hafi komið að húsi sinnum í hurðina með þeim afleiðingum að rúða br otnaði. Ákærði hafi þá opnað dyrnar og vitnið gripið brotaþola og farið með hann út. Hafi hann og ákærði átt í ein hverjum orðaskiptum í framhaldinu. Leikinn var kafli úr áðurgreindri myndbandsupptöku og hún borin undir vitnið. Kvaðst vitnið ekkert sérsta kt hafa um myndbandið að segja. 17 2.6 Vitnið F greindi frá því að hafa verið á gangi í götunni með G og H , vinum sínum, á leið frá Bitanum, umrætt kvöld þegar hann hefði séð nokkra drengi á hlaupum frá húsi í götunni og hafi hann grunað að þeir hafi verið a manninn þó hafa náð að sparka í fætur eins þeirra þannig að hann féll fram fyrir sig og í jörðina, en þeir hafi þá verið sta mannsins. Hafi þeir síðan fært sig yfir á grasið við blokkirnar hinum megin við götuna. Hann hafi því séð atvik vel. Sagði hann manninn hafa fallið með drengnum. Hafi maðurinn því næst rifið brotaþo la upp og farið með hann inn í hús sitt. Kvaðst hann vera þess handviss að maðurinn hafi læst á eftir sér. Sagði vitnið aðra hafa hlaupið í burtu frá manninum. Nánar tiltekið sagði hann manninn hafa gripið í öxl drengsins og rifið hann þannig upp af jörðin ni. Kvaðst vitnið hafa heyrt þá ræða saman, en geti þó ekki sagt til um hvað þeim hafi farið á milli. Vitnið kvaðst aðspurður ekki hafa séð manninn taka ljósmyndir. Taldi vitnið víst að drengurinn hafi ekki viljað fara með manninum og hafi viljað komast í burtu frá honum. Kvaðst hann hafa heyrt drenginn óska eftir hjálp. Maðurinn hafi hins vegar haldið í hönd drengsins og leitt hann þannig inn til sín. Kvaðst vitnið aðspurður ekkert þekkja til þessa manns og geti ekki sagt til um hvort hann hafi verið ákær ði. Aðspurður taldi vitnið að drengurinn hafi verið í um eina til tvær mínútur inni í húsinu. Það hafi því ekki verið rétt sem fram kom hjá honum í skýrslutöku hjá lögreglu hvað þetta varðar. Vitnið kvaðst staðfesta að hafa að öðru leyti greint satt og rétt frá atvikum í skýrslutöku hjá lögreglu. Sagði hann frásögn sína alfarið reista á því sem hann sjálfur hafi orðið vitni að. Bornar voru undir vitnið ljósmyndir sem ákærði tók umrætt sinn. Kvaðst vitnið ekki hafa séð manninn taka ljósmyndir. Hann hafi 2.7 Vitnið G , gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins, að við staddri móður sinni. Kvaðst hann hafa verið með vinum sínum á heimleið frá Bitanum umrætt kvöld. Sagðist hann hafa séð drengi sem hann taldi vera að gera dyraat. Hann hafi séð drengina á hlaupum og farið síðan með drenginn inn í hús til sín. Aðs purður sagði hann kallinn hafa staðið yfir 18 drengnum og haldið honum þannig niðri. Minnti hann þó að maðurinn hafi farið á hné orðaskiptum. Hann telji sig þó hafa heyrt öskur , en geti þó ekki sagt til um hvor þeirra hafi öskrað. Hann hafi þó heyrt drenginn biðja um hjálp og taldi hann víst að drengurinn hafi ekki viljað fara með manninum. Vitnið kvaðst ekki muna vel eftir atvikum nú og muni einnig ekki vel eftir frásögn sinni hjá lögreglu við skýrslutöku í apríl 2024. Kveðst hann þó viss um að hafa munað atvik betur þá en nú. Bornar voru undir vitnið ljósmyndir sem ákærði tók umrætt sinn, einkum hvað varðar staðsetningu vitnisins. Sagðist hann hafa staðið á bílaplaninu, þ.e. á svipuðum stað og ætla megi að ljósmyndin hafi verið tekin. 2.8 Vitnið H greindi svo frá að umrætt kvöld hafi hún verið á gangi á leið frá hafi elt þá. Hún geti þó ekki sa gt til um hvort maðurinn hafi sjálfur verið á hlaupum. Hún hafi þó ekki séð hvaðan maðurinn hafi komið. Sagði hún manninn hafa náð einum drengnum, sem hafi fallið í jörðina, en hún geti ekki sagt til um hvort drengurinn hafi sjálfur dottið eða hvort maðuri nn hafi fellt hann. Sagði hún mann inn hafa staðið yfir drengnum, sem hana minni að hafa verið á hnjánum, og sýndist henni sem maðurinn héldi í drenginn. Þá taldi hún sig hafa heyrt drenginn biðja manninn um að sleppa sér, önnur orðaskipti heyrði hún ekki. Sagði hún manninn þá hafa farið með drenginn inn í hús sitt, en geti ekki sagt til um hvort maðurinn hafi haldið í drenginn. Hún telji þó víst að maðurinn hafi haldið í drenginn. Taldi hún drenginn hafa verið í nokkrar mínútur inni hjá manninum, en geti e kki sagt til um það nú. Sagðist vitnið muna illa eftir atvikum, enda langt um liðið. Hún sagði framburð sinn hjá lögreglu í apríl 2024 vera réttan. Bornar voru undir vitnið ljósmyndir sem ákærði tók umrætt sinn, þar á meðal hvað varðar staðsetningu vitni sins og vina hennar umrætt sinn. 2.9 Vitnið I greindi frá því að umrætt kvöld hafi hann verið heima hjá sér að horfa á sjónvarp þegar bankað hafi verið á útidyrnar. Hafi vitnið farið til dyra, en þar hafi enginn staðið. Dró hann því þá ályktun að krakkar hefðu verið að gera hjá honum dyraat, líkt og undanfarandi þrjú kvöld. Sagðist hann hafa farið með hundinn út þegar hann hafi orðið 19 . Að feng inni reynslu hafi hann ákveðið að fara í göngutúr með hund sinn, í þeim tilgangi meðal annars að fylgjast með atvikum. Kvaðst hann hafa gengið í um 10 15 mínútur með hundinn þegar hann hafi séð ákærða aka um hafi því tekið á rás í átt að húsinu og hafi þ svarað kalli konu sinnar. Aðspurður um dyraat sem gert hafi verið hjá honum umrætt á brott. Að spurður hvort bankað hefði verið mjög fast á dyrnar sagði hann svo ekki hafa Vitnið kvaðst staðfesta fyrri framburð sinn hjá lögreglu. 2.10 Vitnið E gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins, að við stöddum fulltrúa ba rnaverndaryfirvalda. Greindi hann frá því að hafa verið að gera dyra at, meðal annars hafi brotaþoli bankað hjá ákærða Elíasi. Í framhaldinu hafi kona ákærða komið út og rætt við drengina, sem hafi þá farið í burtu, en þegar þeir hafi á ný gengið fram hjá húsi sér inn til sín. Sagði hann drengina þá hafa farið heim til D og hringt þar á lögreglu. Aðspurður kvaðst hann ekki hafa séð ákærða koma hlaupandi. Kvaðst vitnið sjál fur hafa hlaupið af stað um leið og hann hafi orðið þess var að vinir hans höfðu tekið á rás. Kvaðst Kvaðst hann ekki hafa séð hvernig brotaþoli hafi fallið en hann haf i hins vegar séð Aðspurður kvaðst hann minna að þeir hafi beðið konu ákærða afsökunar á því að hafa gert dyraat á heimili þeirra. Bornar voru undir vitnið ljósmyndir sem ákæ rði tók umrætt kvöld. Sagðist hann ekki geta sagt til um hverjir væru á myndunum. Vitnið staðfesti að hafa greint satt og rétt frá í skýrslu sinni hjá lögreglu. 20 2.11 Lögreglumaður [1] , áður H - , sagðist hafa rætt við nokkra unga krakka sem voru á vettvangi, auk þess að ræða við vitnið I . Lögreglumaðurinn kvaðst staðfesta aðkomuskýrslu sem hann ritaði vegna málsins. 2.12 J , sálfræðingur á HSS, sagðist hafa haft brotaþola til meðferðar vegna depu rðar og slakrar sjálfsmyndar í um eitt ár, frá því í febrúar 2024 fram til janúar 2025. Hafi brotaþoli mætt í alls 12 viðtöl. Sagði hún brotaþola ekki hafa rætt beinlínis um það atvik sem hér er til meðferðar. Sagði hún brotaþola hafa greint frá óöryggi, s em sálfræðingurinn hafi talið sig geta rakið til atviksins, þótt brotaþoli hafi sjálfur ekki rætt það sérstaklega. Hún telji þó víst að rekja mætti líðan hans til atviksins, enda hafi henni ekki verið kunnugt um aðrar breytur í lífi hans að þessu leyti. Sa gði hún brotaþola hafa kennt sjálfum sér um afleiðingar atviksins, einkum þær afleiðingar sem það hafi haft á - fræðingnum. Hún gæti þó ekki sagt til um hvort það hafi v erið sálfræðimeðferðinni að þakka. Aðspurð kvaðst hún þó telja að atvikið hafi markað djúp spor í andlega líðan brotaþola. Taldi hún víst að skerta sjálfsmynd brotaþola megi rekja til atviksins. 2.13 Lögreglumaður nr. [2] sagðist hafa annast handtöku og f lutning á ákærða, auk þess sem hann hafi ritað frumskýrslu í málinu, sem hann staðfesti rétta. Sagði hann ákærða hafa neitað að ræða við lögreglu á vettvangi. Minnti hann að ákærði hefði orðrétt ýnt slíkan mótþróa að nauð - synlegt hafi verið að handtaka hann og færa á lögreglustöð, en það hafi verið gert í sam - ráði við vakthafandi aðalvarðstjóra. 2.14 Vitnið C gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins, að viðstöddum fulltrúa barnaverndaryfirvalda. Að sö gn hafi hann og vinir hans gert dyraat hjá ákærða umrætt kvöld. Sagði hann að um fimm mínútum síðar hafi kona ákærða komið að þeim og spurt þá hvers vegna þeir væru að gera hjá henni dyraat. Sagði hann drengina þá hafa farið í burtu. Nokkru síðar, þegar þe hafi þá fallið fram fyrir sig og lent fyrst á hnjám og síðan á maga. Sagðist C hafa verið við hlið brotaþola á þ eim tíma og hafi séð atvik vel, en hann 21 brotaþola margsinnis hafa öskrað á hjálp . Kvaðst C hafa hlaupið heim til vitnisins D og hringt þar á lögreglu, sem hafi mætt á vettvang um fimmtán mínútum síðar. C kvaðst staðfesta framburð sinn hjá lögreglu. Í skýrslunni væri þó ranglega eftir honum haft að hann hefði ekki séð ákærða fella brotaþola, enda standi hann fast á því að hafa séð atvik með þeim hætti sem hann hefur lýst fyrir dóminum. 2.15 K sálfræðingur greindi frá því að brotaþoli hefði mætt til hans í fjögur viðtöl í kjölfar þess verið mjög var um sig. Hafi hann meðal annars sofið með hníf undir kodda sínum næstu nætur á eftir af ótta við ákærða og hafi átt erfitt með að vera einn, einkum næstu daga á eftir. Þá sagði hann brotaþola hafa greint fr á því að hafa breyst í hegðun. Hann hefði áður verið mjög líflegur en héldi sig nú til hlés. Sagði vitnið augljóst að líðan brotaþola hefði tekið að batna með tímanum og allt fram í júní 2023 þegar sálfræðingurinn hefði síðast rætt við brotaþola. Kvaðst ha nn ekki hafa forsendur til að leggja mat á það hvort atvikið hefði markað djúp spor í sálarlíf brotaþola. Sagði hann þó Staðfesti sálfræðingurinn vottorð sitt frá 29. júní 2023. 2.16 Lögreglumaður nr. [3] kvaðst hafa annast handtöku ákærða og rætt stuttlega við nokkur vitni á vettvangi. Kvaðst lögreglumaðurinn staðfesta aðkomuskýrslu sem hann ritaði vegna málsins. 2.17 Lögreglumaður nr. [4] staðfesti fyrir dómi að hafa annast rannsókn málsins. 2.18 Lögreglumaður nr. [5] , áður H - , kvaðst hafa farið á vettvang ásamt lög - reglumanni nr. 3 . Kvaðst lögreglumaðurinn staðfesta aðkomuskýrslu sína í málinu. 2.19 Læknir nr. , yfirlæknir á HSS, staðfesti að hafa ritað vottorð vegna brotaþ ola, dagsett 20. mars 2023. Sagði hann vottorðið unnið upp úr sjúkraskrá, en læknirinn kvaðst sjálfur ekki hafa skoðað brotaþola. Sagði hann að við komu hafi ljósmyndir verið teknar af áverkum á líkama brotaþola sem hefðu átt að fylgja vottorðinu í viðheng i. Sagði hann 22 að brotaþoli hafi greinst með mar á handleggjum og lófa, hrufl á sköflungi og mar beggja vegna aftan á kálfum. Þá hafi hann verið með bláma á hnjám og húð hans hrufluð, en hann hafi ekki verið með opin sár. Sagði hann aðspurður telja þá líkam legu áverka sem greindust á brotaþola geta bent til þess að hann hafi fallið fram fyrir sig. Þá gæti mar á hægri hönd bent til þess að gripið hafi verið í hana. 3 Niðurstaða Ákærða er í máli þessu gefið að sök að hafa veist með ofbeldi að brotaþola, sem þá var 12 ára, með því að elta drenginn uppi, fella hann í jörðina og halda honum þar föstum, draga hann síðan á fætur og taka hann, gegn vilja drengsins, inn á heimili sitt og læsa útidyrahurðinni allt þar til nágranni ákærða kom og færði drenginn út af h eimili ákærða, allt með þeim afleiðingum sem lýst er í ákæru. Með því hafi ákærði sýnt drengnum yfir - gang og ruddalegt athæfi, auk ógnandi og vanvirðandi framkomu. Nokkuð ber á milli í frásögn ákærða annars vegar og brotaþola hins vegar. Ákærði hefur neit að sakargiftum eins og þeim er lýst í ákæruskjali. Hefur hann lýst um langt árabil, meðal annars af hálfu barna og unglinga í sveitarfélaginu. Hafi heimili þeirra meða l annars verið grýtt eggjum og unnar á því skemmdir. Að sögn ákærða hafi verið gert dyraat hjá honum umrætt kvöld og hafi hann brugðist við því með þeim hætti að fylgjast með ferðum drengjanna og hafi tilgangur hans verið sá að ná af þeim ljós - myndum til s ákærði hafa elt drengina uppi, og komið þeim að óvörum. Við það hafi orðið uppi fótur og fit og hafi vitnið D ýtt við brotaþola með báðum höndum þannig að hann féll í jörðina, en fé lagar hans hafi tekið á rás og skilið brotaþola eftir. Í skýrslutöku sinni hjá lögreglu greindi ákærði hins vegar svo frá að brotaþoli hafi sjálfur fallið í jörðina, en fyrir dómi bar hann að vitnið D hefði ýtt honum í jörðina. Hefur ákærði skýrt þetta mis ræmi svo að honum hafi brugðið við fyrrgreinda meinta háttsemi D og spurt sig þeirrar spurningar talið að brotaþoli myndi skýra satt og rétt frá atvikum og að brota þoli myndi sjálfur bera um þetta. Hefur ákærði borið um að hafa tekið þrjár ljósmyndir af brotaþola þar sem hann lá á jörðinni, sem hann hefur lagt fram sem gagn í máli þessu. Hafi brotaþoli sagt við rði hafi sagst vita betur. Kvaðst ákærði hafa aðstoðað brotaþola á fætur og beðið hann um að koma með sér til konu sinnar 23 og biðja hana afsökunar á athæfinu, en henni liði illa. Auk þess hafi hann sagst ætla að kalla á lögreglu. Sagði hann brotaþola hafa f arið með ákærða, af fúsum og frjálsum vilja. Ákærði hefur þverneitað fyrir að hafa beitt brotaþola ofbeldi sem og að hafa tekið hann gegn vilja sínum inn á heimili sitt og haldið honum þar. Framburði brotaþola fyrir dómi er lýst hér að framan. Lýsti hann því að ákærði hefði skyndilega komið hlaupandi að brotaþola, þar sem hann var á gangi með vinum sínum í nágrenni við heimili ákærða umrætt kvöld, og ýtt við sér eða hrint með þeim afleiðingum að brotaþoli féll fram fyrir sig í jörðina. Sagði brotaþoli ákær hafa hrópað á hjálp. Sagði hann ákærða hafa tekið af sér ljósmyndir sem hann hafi sagst ði tekið í handlegg brotaþola, reist hann upp og tekið hann þannig með sér á heimili sitt, lokað útidyrum hússins og læst. Sagði brotaþoli ákærða hafa haldið sér þar inni, gegn vilja sínum, í nokkurn tíma, þótt hann hafi ekki getað staðhæft hversu lengi, a llt þar til vitnið B hafi brotið sér leið inn í húsið og þannig frelsað brotaþola. Fær framburður brotaþola afdráttarlausa stoð í framburði margra þeirra vitna sem skýrslu gáfu við aðalmeðferð málsins. Er þar annars vegar um að ræða vætti þriggja félaga b rotaþola sem voru á gangi með honum umrætt kvöld, þ.e. þeirra D , E og C , en þeir hafa allir, hver á sinn hátt, borið að ákærði hafi fyrir varalaust komið aftan að þeim og ýmist ýtt, hrint eða hoppað á brotaþola, þannig að hann féll í jörðina. Þá greindu vi tnin D og C frá því að hafa heyrt brotaþola kalla á hjálp. Þá kváðust vitnin F , G og H öll hafa verið á leið frá söluturninum Bitanum umrætt kvöld þegar þau hafi séð hvar ákærði veittist að einum drengjanna og felldi hann með einum eða öðrum hætti. Öll bár u þau um að drengurinn hefði kallað á hjálp eða beðið ákærða um að sleppa sér og hafi ekki viljað fara með ákærða á heimili hans. Líkt og að framan greinir lagði ákærði fram nokkrar ljósmyndir sem hann tók af brotaþola og félögum hans umrætt kvöld, sem ha nn segir renna stoðum undir frásögn sína af atvikum. Af þeim myndum verður að mati dómsins ekkert ráðið um það hvort ákærði hafi staðið yfir brotaþola eða legið, enda ræður það ekki úrslitum við mat á háttsemi ákærða. Það eitt verður þó ráðið að brotaþoli var augljóslega verulega skelkaður. Þegar allt framangreint er virt heildstætt, og að teknu tilliti til framburðar vitnisins X , eiginkonu ákærða, sem og þeirra sýnilegu sönnunargagna sem liggja fyrir í málinu, 24 þar á meðal ljósmynda og myndbandsupptöku, v erður talið hafið yfir skynsam legan vafa að ákærði hafi veist með ofbeldi að brotaþola með því að elta hann uppi, fella hann í jörðina, halda honum þar föstum og taka hann svo með sér á heimili sitt, gegn vilja drengsins, með þeim afleiðingum sem í ákæru er lýst, en áverkar þeir sem læknir greindi á líkama brotaþola samræmast frásögn hans. Varðar háttsemi ákærða við 1. mgr. 225. gr. og 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með háttsemi sinni sýndi ákærði brotaþola jafnframt yfirgang og rudda legt athæfi auk ógnandi og vanvirð andi framkomu svo varði við 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. 4 Um ákvörðun refsingar , einkaréttarkröfur o.fl. Ákærði er fæddur árið 1962 og hefur samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 13. júní 2025 , ekki áður verið fundinn sekur um refsiverðan verknað. Að virtri háttsemi þeirri sem ákærði hefur nú verið fundinn sekur um og afleiðingum háttsemi hans þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum þremur árum frá birtingu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hefur þá einkum verið horft til þess dráttar sem orðið hefur á rannsókn málsins, sem ákærða verður ekki um k ennt. Með háttsemi sinni hefur ákærði bakað sér skaðabótaskyldu gagnvart brotaþola, sbr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Við mat á fjárhæð miskabóta verður horft til þeirra afleiðinga sem háttsemi ákærða hafði á sálarlíf brotaþola, sem var einungis 12 ára, líkt og brotaþoli hefur sjálfur lýst og ráða má af fyrirliggjandi sálfræðivottorðum. Þykja miskabætur hæfilega ákveðnar 600.000 krónur. Þá verður ákærða jafnframt gert að greiða brotaþola kostnað vegna sálfræðiþjónustu, sem studdur er framlögðum greið slu - kvittunum að fjárhæð 58.500 krónur. Var einkaréttarkrafan birt ákærða 23. júní 2025. Skulu hinar dæmdu bætur bera vexti samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 26. febrúar 2023 til 23. júlí 2025 en dráttarvexti samkvæmt 1 . mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim tíma til greiðsludags. Að framangreindu virtu og í samræmi við 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Björgvins Jónssonar lögmanns, 2.473.800 krónur, og aksturskostnað verjandans, 14.400 krónur. Ákærða verður jafnframt gert að greiða þóknun réttargæslumanns brotaþola, Inga Freys Ágústssonar lögmanns, 1.413.600 krónur. Við ákvörðun málskostnaðar verjanda og þóknunar réttargæslumanns hefur verið t ekið tillit til greiðslu virðisaukaskatts. 25 Ákærði greiði enn fremur annan sakarkostnað máls, sem samkvæmt sakar - kostnaðaryfirliti nemur 35.504 krónum. Klara Dögg Thorarensen aðstoðarsaksóknari fór með málið af hálfu ákæruvalds. Þórhallur Haukur Þorvalds son héraðsdómari kveður upp dóm þennan að gættu ákvæði 1. mgr. 184. gr. laga nr. 88/2008 . Dómso r ð: Ákærði, Elías Georgsson, sæti fangelsi í þrjá mánuði. Fullnustu refsingarinnar skal frestað og hún niður falla að liðnum þremur árum frá dómsbirtingu, hald i ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði greiði A 6 58 . 5 00 krónur með vöxtum sam kvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 26. febrúar 2023 til 23. júlí 2025 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Björgvins Jónssonar lögmanns, 2.473.800 krónur, auk útlagðs kostnaðar verjandans, 14.400 krónur, og þóknun réttargæslumanns brotaþola, 1.413.600 krónur. Ákærði greiði 35.504 krónur í annan sakarkostnað. Þórhallur Haukur Þorvaldsson