Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur 20. apríl 2026. Mál nr. S - 726/2026 : Héraðssaksóknari ( Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari ) gegn Przemyslaw Jacek Kosiorowski ( Sigurður Gústavsson Hafstað lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem dómtekið var 9. apríl sl. , var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 29. janúar 2026 , á hendur Przemyslaw Jacek Kosiorowski, kennitala , , Reykjavík, fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa að kvöldi laugardagsins 20. júlí 2024, í lögreglubifreið nr. , hrækt á beran hægri framhandlegg lögreglumanns A og hótað honum lífláti en lögreglumaðurinn var þar við skyldustörf. Telst þett a varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóm s án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærð a hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærð i hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærð a og öðrum gögnum málsins að ákærð i er sek ur um þá h áttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærð a krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra r málsvarnar þóknunar sér til handa. Ákærð i er fædd ur í . Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 29. janúar 2026 , hefur ákærði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. 2 Undir meðferð málsins játaði ákærð i brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls þykir refsing ákærð a hæfilega ákveðin 45 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarla ga nr. 19/1940 . Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem er málsvarnarþóknun skipaðs verjanda ákærða, Sigurðar Gústavssonar Hafstað lögmanns , sem þykir með hliðsjón af eðl i og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu lögmanns, hæfilega ákveðin 247.380 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti . Engan frekari sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari. Sigurbjörg Birta Berndsen , aðstoðarmaður dómara , kveður upp dóm þennan. Dóms orð: Ákærð i , Przemyslaw Jacek Kosiorowski , sæti fangelsi í 45 daga, en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður a ð liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940 . Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sigurðar Gústavssonar Hafstað lögmanns, 247.380 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Sigurbjörg Birta Berndsen