Héraðsdómur Norðurlands eystra Dómur 17. desember 2025 Mál nr. S - 524/2025 : Ákæruvaldið ( Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari ) g egn Mikael Má Unnarss yni Dómur Mál þetta, sem var dómtekið 26. nóvember sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 2. október 2025, á hendur Mikael Má Unnarssyni, kt. , , Akureyri, 025, ekið bifreiðinni sviptur ökurétti suður Héðinsbraut í Norðurþingi, uns hann lagði í stæði við N1 á Húsavík. Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til Ákærði sótti ekki þing, þrátt fyrir að fyrirkall hafi verið birt. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008. Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 161. gr. sömu laga með áorðnum breytingum að leggja dóm á málið að ákærða fjarverandi, enda varðar brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a - lið og framlögð gögn verða talin nægjanleg til sakfellingar. Verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi se m honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæða. Sakaferill ákærða, að því er hér skiptir máli, er sá að ákærði hlaut dóm þann 15. júní 2022 fyrir þjófnað, vörslur fíkniefna og akstur án ökuréttar. Refsing var ákveðin fangelsi í þrj á mánuði, þar af tveir mánuðir skilorðsbundnir í tvö ár. Með sátt við lögreglustjóra 5. október 2022 gekkst hann undir greiðslu sektar og tímabundna sviptingu ökuréttar fyrir að aka sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana - og fíkniefna. Með dómi 26. janúar 2024 var hann dæmdur í 105 daga fangelsi, þar af tvo mánuði skilorðsbundna í tvö ár, og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir að aka undir áhrifum ávana - og fíkniefna og sviptur ökurétti. Með þeim dómi var tveggja mánaða skilorð dómsins frá 15. júní 2022 dæmt upp vegna skilorðsrof s og ákærða gerð refsing í einu lagi. Ákærði hlaut síðan dóm 30. janúar 2025 fyrir að aka undir áhrifum og sviptur ökurétti. Refsing var ákveðin fimm mánaða fangelsi og svipting ökuréttar ævilangt , en skilorðsbundni hluti dómsins frá 26. janúar 2024 var ekki dæmdur upp með dómnum 30. janúar 2025. Að lokum hlaut 2 ákærði dóm 25. júní 2025 fyrir að aka sviptur ökurétti. Var skilorðsdómurinn frá 26. janúar 2024 dæmdur upp og ákærða gerð refsing í einu la gi. Refsing var ákveðin fangelsi í fjóra mánuði, þar af tveir mánuðir skilorðsbundnir í tvö ár. Með broti því sem ákærði er nú sakfelldur fyrir rauf hann skilorð dóms 25. júní 2025. Samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 verður skilorðshluti fyrrgreinds dóms dæmdur upp og refsing dæmd í einu lagi, sbr. 77. gr sömu laga. Refsing ákærða er ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Berglind Harðardóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn. Dómsorð: Ákærði, Mikael Már Unnarsson, sæti fangelsi í fimm mánuði.