Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur 1. apríl 2026 Mál nr. S - 125/2026 : Lögreglustjórinn á höfuðborgars væðinu ( Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari ) g egn Franko Zyla ( Baldvin Már Kristjánsson lögmaður ) og Serxho Zyla ( Gunnar Gíslason lögmaður ) Dómur I Ákæra 1. Mál þetta, sem dómtekið var 16. mars 2026, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglu - stjóranum á höfuðborgarsvæðinu 13. janúar 2026, á hendur Franko Zyla, kt. , , og Serxho Zyla, kt. , , 1. Gegn ákærðu báðum fyrir fíkniefnalagabrot í félagi með því að hafa, fimmtudaginn 21. október 2021, utandyra við hús nr. að Barónsstíg í Reykjavík, haft í vörslum sínum, ætluðu m til söludreifingar í ágóðaskyni, samtals 47,3 g af maríjúana sem ákærðu framvísuðu við lögreglu umrætt sinn og hald var lagt á. Mál nr. 007 - 2021 - Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. , laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 14. gr. , reglugerðar um ávana - og fíkniefniefni og önnur eftir - litsskyld efni nr. 233/ [ 20 01] , með síðari breytingum. Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. [ 2 Jafnframt er krafist upptöku á samtals 47,3 g af maríjúana , sem hald var lagt á, sam - kvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 . Einnig er krafist upptöku á fjórum [svo] farsímum ( munaskrár nr. og ), sem hald var lagt á, með vísan til 7. mgr. 5. gr. söm u laga, en ætlað er að farsíminn [svo] hafi verið notaður við söludreifingu ólöglegra ávana - og fíkniefna. II Málsmeðferð, afstaða ákærðu og dómkröfur 2. Málið var þingfest 27. janúar 2026 og var ákærði Serxho mættur ásamt skipuðum verjanda sínum . Á kærði Franko sótti ekki þing, en mættur var skipaður verjandi hans . Af hálfu beggja ákærðu var óskað eftir fresti til að fara yfir ákæru og gögn málsins. Þá var í þinghaldinu gerð krafa af hálfu ákærða Serxho um að úrskurðað yrði um hæfi sækjanda málsins með vís an til g - liðar 1. mgr. 6. gr., sbr. 3. og/eða 5. mgr. 26. gr. laga nr. 88/2008. Málið var næst tekið fyrir 12. febrúar 2026 og sótti ákærði Franko þing og játaði sök samkvæmt ákæru og samþykkti upptökukröfur. Ákærði Serxho tók ekki afstöðu til ákærunnar en í þinghaldinu fór fram munnlegur málflutningur um kröfu hans um að úrskurðað yrði um hæfi ákæranda með vísan til framangreindra ákvæða laga um meðferð sakamála. Í ljósi þess að nýr sækjandi hafði tekið við meðferð málsins fyrir dómi féll ákærði frá kröfu um að úrskurðað yrði um hæfi sækjanda málsins. Gerði ákærði þær kröfur að úrskurðað yrði að ákærandi hefði verið vanhæfur til að gefa út ákæru í málinu og að ákærunni yrði vísað frá dómi, en ákæruvaldið gerði kröfu um að frávísunarkröfunni yrði hafnað og m álið tekið til efnismeðferð ar . Næst var málið tekið fyrir 27. febrúar 2026 og þá kveðinn upp úrskurður þar sem frávísunarkröfu ákærða Serxho var hafnað. Málið var tekið fyrir 4. mars 2026 en þá hafði verið boðaður rangur túlkur og ákærði Serxho tók því ek ki afstöðu til ákærunnar í því þinghaldi. Bókað var í þingbók í þessu þinghaldi að ákæruvaldið félli frá ákærulið 2 þar sem komið hafi í ljós að ákærði var með gild ökuréttindi 13. júlí 2025. Málið var loks tekið fyrir 16. mars 2026 og þá játaði ákærði Ser xho sök samkvæmt ákærulið 1 og samþykkti upptökukröfur. 3. Í ljósi þess að báðir ákærðu h afa játað sök í þeim ákærulið sem eftir st endur voru skilyrði til að fara með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjendum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákæruvaldið gerir sömu dómkröfur og greinir í ákæru, eftir framangreindar breytingar á henni. Af hálfu ákærða Franko er krafist 3 vægustu refsingar se m lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar til handa skipuðum verjanda hans í samræmi við tímaskýrslu. Af hálfu ákærða Serxho er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa, auk hæfilegrar málsvarnarþóknunar til handa verjanda hans í samræmi við tímaskýrslu. III Ákvörðun refsingar 4. Ákærðu Franko og Serxho játa sök samkvæmt ákæru eins og henni var breytt í þinghaldi 4. mars 2026. Með játningum ákærðu, sem samrýmast rannsóknargögnum málsins, er sannað að þeir hafi gerst sekir um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða. 5. Ákærði Franko er fæddur í . Samkvæmt sakavottorði hans, dags. 6. janúar 202 6 , hlaut hann með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 11. nóvember 2021 fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn lögum um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974 og 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá gekkst hann undir sekt hjá lögreglu stjóranum á höfuðborgarsvæðinu 10. apríl 2025 vegna brots gegn lögum um ávana - og fíkniefni. Ákærði á ekki annan sakaferil að b aki. Brot það sem ákærði er nú sakfelldur fyrir er framið fyrir uppkvaðningu dómsins frá 11. nóvember 2021 og ber því að ákveða refsingu hans sem hegningarauka við þann dóm, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. 6. Ákærða Franko til málsbóta verður litið til s kýlausrar játningar hans fyrir dómi. Þá verður einnig litið til ungs aldurs hans, sem og að langt er um liðið frá brotinu , en ákærða verður ekki kennt um þær tafir sem urðu á málinu á rannsóknar - og ákærustigi. Á hinn bóginn verður ekki horft fram hjá því að brot ákærða varðar fíkniefni sem ætluð voru til sölu og dreifingar í ágóðaskyni. Að framangreindu virtu og með vísan til 1., 4., 5. og 8. tl. 1. mgr. 70. gr., sbr. 78. gr., almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða Franko hæfilega ákveðin fangelsi í 3 0 daga, en rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið eins og nánar greinir í dómsorði. 7. Ákærði Serxho er fæddur í . Samkvæmt sakavottorði hans, dags. 6. janúar 2026, hefur hann fimm sinnum gengist undir lögreglustjórasáttir vegna umfer ðarlagabrot a , þar af eru þrjár sáttir frá sama degi, 7. september 2023. Hefur sakaferill hans þannig ekki áhrif á ákvörðun refsingar nú. 8. Ákærða Serxho til málsbóta verður litið til skýlausrar játningar hans fyrir dómi. Þá verður einnig litið til ungs aldur s hans, sem og að langt er um liðið frá brotinu, en ákærða verður 4 ekki kennt um þær tafir sem urðu á málinu á rannsóknar - og ákærustigi. Þá var upplýst fyrir dóminum að ákærði hefur breytt lífi sínu til betri vegar, sé orðinn fjölskyldumaður og iðrist mjög gjörða sinna. Á hinn bóginn verður ekki horft fram hjá því að brot ákærða varðar fíkniefni sem ætluð voru til sölu og dreifingar í ágóðaskyni. Að framangreindu virtu og með vísan til 1., 4., 5. og 8. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga þykir refsin g ákærða Serxho hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, en rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið eins og nánar greinir í dómsorði. 9. Samkvæmt greindri niðurstöðu og með vísan til lagaákvæða í ákæru er fallist á upp - tökukröfu ákæruvaldsins , þó þannig að um er að ræða tvo farsíma en ekki fjóra eins og greinir í ákæru , sbr. það sem nánar greinir í dómsorði. IV Sakarkostnaður 10. Vegna úrslita málsins og með vísan til 1. mgr. 235. gr., sbr. 233. gr., laga nr. 88/2008 verður ákærðu gert að greiða málsvarnarþóknun skipaðra verjenda sinna. Þannig greiði ákærði Franko málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Baldvins Más Kristjánssonar lögmanns, sem með hliðsjón af tímaskýrslu og viðmiðunarreglum dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir hæfilega ákveðin 468. 255 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Ákærði Serxho greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Gunnars Gíslasonar lögmanns, sem með hliðsjón af tímaskýrslu og viðmiðunarreglum dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir hæfilega ákveðin 618.450 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Ekki hlaust annar kostnaður af rekstri málsins. 11. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari. 12. Guðrún Sesselja Arnardóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærði, Franko Zyla, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingar - innar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. 5 Ákærði, Serxho Zyla, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingar - innar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærðu sæti upptöku á 47,3 g af maríjúana og tveimur farsímum (muna s krár nr . og , sbr. munanr. og ). Ákærði Franko greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Baldvins Más Kristjánssonar lögmanns, 468.255 krónur. Ákærði Serxho greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Gunnars Gísla - sonar lögmanns, 618.450 krónur. Guðrún Sesselja Arnardóttir