Héraðsdómur Vestfjarða Dómur 3. febrúar 2026 Mál nr. E - 77/2025 : Fisherman ehf. ( Andri Björgvin Arnþórsson lögmaður ) g egn Eyþór i Jóvins syni og Verslunin ni Bræð runum Eyjólfsson ehf. ( Alda Lín Auðunsdóttir lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem var dómtekið 14. janúar sl., var höfðað 25. ágúst 2025 af Fisherman ehf., kt. , Suðureyri, á hendur Eyþóri Jóvinssyni, kt. , Flateyri og Versluninni Bræð runum Eyjólfsson ehf., kt. , Flateyri. Í stefnu gerir stefnandi þá dómkröfu að stefndu verði sameiginlega dæmdir til að greiða stefnanda 3.453.829 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu; af 71.032 krónum frá 28. apríl 2021 til 30. maí 2021, af 134.217 krónum frá 31. maí 2021 til 29. september 2021, af 189.055 krónum frá 30. september 2021 til 11. október 2021, af 261.807 krónum frá 12. október 2021 til 22. október 2021, af 334.963 krónum frá 23. október 2021 til 23. nóvember 2021, af 461.152 kró num frá 24. nóvember 2021 til 9. desember 2021, af 585.923 krónum frá 10. desember 2021 til 30. janúar 2022, af 598.197 krónum frá 31. janúar 2022 til 27. febrúar 2022, af 709.505 krónum frá 28. febrúar 2022 til 31. mars 2022, af 738.029 krónum frá 1. aprí l 2022 til 19. maí 2022, af 856.348 krónum frá 20. maí 2022 til 31. júlí 2022, af 944.297 krónum frá 1. ágúst 2022 til 17. ágúst 2022, af 1.064.611 krónum frá 18. ágúst 2022 til 16. október 2022, af 1.183.011 krónum frá 17. október 2022 til 27. október 202 2, af 1.303.169 krónum frá 28. október 2022 til 18. nóvember 2022, af 1.426.695 krónum frá 19. nóvember 2022 til 24. nóvember 2022, af 1.549.579 krónum frá 25. nóvember 2022 til 27. nóvember 2022, af 1.672.445 krónum frá 28. nóvember 2022 til 29. nóvember 2022, af 1.700.128 krónum frá 30. nóvember 2022 til 16. desember 2022, af 1.824.885 krónum frá 17. desember 2022 til 21. desember 2022, af 1.950.351 krónu frá 22. desember 2022 til 3. mars 2023, af 2.073.245 krónum frá 4. mars 2023 til 14. júlí 2023, af 2. 197.365 krónum frá 15. júlí 2023 til 27. júlí 2023, af 2.320.387 krónum frá 28. júlí 2023 til 27. 2 september 2023, af 2.440.960 krónum frá 28. september 2023 til 30. október 2023, af 2.552.216 krónum frá 31. október 2023 til 17. nóvember 2023, af 2.678.393 krónum frá 18. nóvember 2023 til 25. nóvember 2023, af 2.803.421 krónu frá 26. nóvember 2023 til 29. nóvember 2023, af 2.842.957 krónum frá 30. nóvember 2023 til 8. desember 2023, af 2.969.846 krónum frá 9. desember 2023 til 15. desember 2023, af 3.096.874 krónum frá 16. desember 2023 til 21. desember 2023, af 3.221.881 krónu frá 22. desember 2023 til 30. janúar 2024, af 3.328.460 krónum frá 31. janúar 2024 til 13. febrúar 2024, af 3.453.829 krónum frá 13. febrúar 2024 til 28. febrúar 2024 og greiðslu drátt arvaxta af 3.453.829 krónum samkvæmt 1. mgr. 6. gr laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 29. febrúar 2024 til greiðsludags. Inn á kröfuna hafi verið greidd innborgun að fjárhæð 230.000 krónur sem dragist frá kröfunni miðað við stöðu hennar á innbo rgunardegi. Stefnandi krefst jafnframt málskostnaðar sér að skaðlausu úr hendi stefndu. Stefndu krefjast sýknu af öllum kröfum stefnanda. Verði stefnda Eyþóri gert að greiða stefnanda einhvern hluta kröfu hans er höfð uppi gagnkrafa til skuldajafnaðar að f járhæð 156.450 krónur auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2011 um vexti og verðtryggingu frá 10. apríl 2024 til greiðsludags. Stefndu krefjast jafnframt málskostnaðar úr hendi stefnanda að mati dómsins eða samkvæmt framlögðum málskostnaðar reikningi að teknu tilliti til virðisaukaskatts. Málavextir. Stefndi Eyþór starfaði fyrir stefnanda og fékkst m.a. við kaup á auglýsingum fyrir stefnanda á Facebook. Þá er stefndi Eyþór jafnframt framkvæmdastjóri stefnda Verslunarinnar Bræð ranna Eyjólfsso n ehf. Meðal gagna málsins eru tölvupóstsamskipti aðila sem hófust 21. febrúar 2024 með fyrirspurn Steinþór s Bjarn a Kristjánsson ar , fyrirsvarsma nns stefnanda, til stefnda Eyþórs um auglýsingapantanir á Facebook. Ber tölvubréfið með sér að því hafi fylgt listi um kortafærslur. Í svari stefnda Eyþórs sama dag kemur fram að ein færsla passi við sendi stefndi Eyþór annað tölvubréf þar sem fram kemur að hann hafi kannað málið betur. Þegar stefndi Eyþór hafi byrjað að vinna hjá stefnanda hafi þáverandi fyrirsvarsmaður stefnanda beðið hann um að sjá um kaup á auglýsingum en kort 3 bókabúðarinnar, þ.e. stefnda Verslunarinnar Bræðranna Eyjólfsson ehf., hafi verið rukkað fyrir kaupin. Úr hafi orðið að stefndi Eyþór hafi stofnað nýjan aðgang á Facebook sem haft hafi það eina markmið að sjá um að kaupa auglýsingar fyrir stefnanda. Þegar stefndi Eyþór hafi farið betur yfir auglýsingakaup bókabúðarinnar hafi hann séð að kort stefnanda hafi verið skráð sem þriðja varakort fyrir aðganginn á hans nafni. Hafi kort stefnanda því verið rukkað ef ekki hafi verið inneign á tveimur öðrum kortum stefnda Eyþórs eða Paypal - reikningi verslunarinnar. Þannig sé það ljóst að þessar rukkanir eigi sér skýrin gar í kaupum bókabúðarinnar (þ.e. stefnda Verslunarinnar Bræðranna Eyjólfsson ehf.) á auglýsingum þrátt fyrir að stefndi Eyþór hafi talið það útilokað. Fljótt á litið hafi stefnda Eyþóri sýnst upphæðin vera hátt í 20.000 bresk pund, eða 3,5 milljónir króna . Stefnda Eyþóri þyki þetta gríðarlega leiðinlegt en hann geti lofað því að þetta hafi ekki verið með vilja eða vitneskju gert. Gögn málsins bera með sér að aðilar hafi átt í nokkrum viðræðum um uppgjör en án árangurs. S tefnandi höfðaði mál á hendur stefnd u 10. mars 2025 en með úrskurði dómstólsins 4. júlí 2025 var því vísað frá dómi. Stefnandi höfðaði í kjölfarið mál þetta sem fyrr segir 25. ágúst 2025. Helstu málsástæður og lagarök stefnanda. Stefnandi byggir á því að stefndi Eyþór hafi í eigin nafni og í fyrirsvari fyrir stefnda Verslunina Bræð ranna Eyjólfsson ehf. notað greiðslukort stefnanda í heimildarleysi til að greiða fyrir birtingar á auglýsingum í þágu annarra. Stefnandi hafi orðið fyr ir tjóni sem stefndu beri að bæta sameiginlega (in solidum). Fjárhæð tjónsins nemi 3.453.829 krónum, sem sé samtala þeirra greiðslna sem stefndi Eyþór hafi ráðstafað í heimildarleysi af greiðslukorti stefnanda. Í stefnu er að finna sundurliðun kröfunnar ef tir kortafærslum sem stefnandi kveður hafa verið framkvæmdar í heimildarleysi í þágu stefndu. Stefnandi byggir á því að sú háttsemi stefnda Eyþórs hafi falið í sér saknæma háttsemi og orsakatengsl séu á milli tjóns stefnanda og háttseminnar. Stefnandi kv eður kröfuna viðurkennda í orði, með vísan til samskipta aðila sem lögð hafa verið fram fyrir dóminum, og í verki þegar stefndi Eyþór hafi millifært 230.000 krónur af reikningi stefnda Verslunarinnar Bræð ranna Eyjólfsson ehf. þann 28. febrúar 2024. Sú fjár hæð komi til frádráttar við uppgjör kröfu stefnanda. Gerð er krafa um greiðslu skaðabótavaxta, sbr. 8. gr. laga nr. 38/2001, frá því að hin bótaskyldu atvik áttu 4 sér stað og dráttarvaxta frá viðurkenningu kröfunnar, þ.e. 28. febrúar 2024 til greiðsludags, sbr. 6. gr. laga nr. 38/2001. Í stefnu er að finna umfjöllun um aðild málsins til varnar en stefnandi byggir á því að stefndu eigi að bera sameiginlega ábyrgð á skuldinni. Þótt stefndi Eyþór hafi framkvæmt úttektirnar hafi þær að hans sögn að mestu verið í þágu stefnda Verslunarinnar Bræðranna Eyjólfsson ehf. Auk þess hafi síðarnefndi aðilinn greitt 230.000 krónur inn á kröfuna og viðurkennt með því aðild sína að málinu. Aðild stefndu er byggð á 1. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 enda eigi dómkrafan rætur að rekja til sömu atvika. Um varnarþing vísar stefnandi til 1. mgr. 32. og 33. gr. laga nr. 91/1991. Helstu málsástæður og lagarök stefndu. Stefndu byggja á því að stefndi Eyþór hafi ekki sýnt af sér saknæma háttsemi og þar af leiðandi beri að sýkna stefndu af kröfum stefnanda. Stefndu mótmæla því að stefndi Eyþór hafi notað greiðslukort stefnanda í heimildarleysi enda hafi enginn ásetningur verið til þess af hálfu stefnda. Ástæða þess að greiðslukort stefnanda hafi verið notað fyrir mistök sé sú að það hafi verið skráð sem þriðja varakort fyrir Facebook - aðgang sem stefndi Eyþór hafi notað til að kaupa auglýsingar fyrir stefnda Verslunina Bræðurna Eyjólfsson ehf. og aðra. Sá aðgangur hafi verið búinn til eftir að greiðslukort stefnda Verslunarinnar Bræðranna Eyjólfsson ehf. hafi fyrir mistök verið notað til að greiða fyrir auglýsingar stefnanda. Stefndi Eyþór hafi talið sig hafa gert það sem nauðsynlegt væri til að koma í veg fyrir að greiðslukort stefnda Verslunarinnar Bræðranna Eyjólfsson ehf. yrði notað til kaupa á auglýsingum fyrir stefnanda og öfugt. Stefndi Eyþór hafi talið sig hafa eytt greiðslukorti stefnanda af Facebook - aðgangi hans eftir að hann bjó til þennan nýja aðgang. Það hafi því verið mistök sem ollu því að greiðslukort stefnanda hafi verið skr áð sem þriðja varakort en ekki saknæm háttsemi af hálfu stefnda Eyþórs. Stefndu kveða að á yfirliti um kaup stefnda Eyþórs á auglýsingum sjáist að greiðslukort stefnanda hafi aðeins verið notað í þeim tilvikum þegar ekki hafi verið næg innstæða á greiðslu korti stefnda Verslunarinnar Bræðranna Eyjólfsson ehf. eða Paypal - aðgangi stefnda Eyþórs. Ljóst sé því að enginn ásetningur hafi verið af hálfu stefnda Eyþórs að nota greiðslukort stefnanda í ólögmætum tilgangi og sé því ekki um saknæma háttsemi að ræða lí kt og stefnandi byggi á. Stefndu byggja á því að um mistök hafi verið að ræða sem stefnda Eyþóri verði ekki um kennt. 5 Stefndu vísa til þess að Aðalsteinn Egill, eigandi og framkvæmdastjóri stefnanda, hafi viðurkennt að hann telji engan ásetning hafa verið til staðar hjá stefnda Eyþóri og að um mistök hafi verið að ræða. Auk þess hafi hann öðru hverju leitað eftir aðstoð frá stefnda Eyþóri við ýmis verkefni stefnanda án þess að stefndi Eyþór hafi sérstaklega fengið greitt fyrir það . Gefi það ekki til kynna að stefnandi telji að stefndi Eyþór hafi ráðstafað greiðslum af greiðslukorti stefnanda í heimildarleysi. Stefndu mótmæla því að krafa stefnanda hafi verið viðurkennd í orði og verki þegar stefndi Eyþór millifærði 230.000 krónur 28. febrúar 2024 af reikni ngi stefnda Verslunarinnar Bræðranna Eyjólfsson ehf. til stefnanda. Með því hafi stefndu ekki viðurkennt kröfuna í heild sinni líkt og stefnandi byggi á. Þann 31. janúar og 13. febrúar 2024 hafi greiðslukort stefnanda verið notað fyrir mistök til að greiða fyrir auglýsingar stefnda Verslunarinnar Bræðranna Eyjólfsson ehf. og hafi stefndi Eyþór talið eðlilegt að endurgreiða stefnanda þann kostnað. Aftur á móti hafi stefndi Eyþór staðfastlega haldið því fram að honum finnist ekki eðlilegt að stefndu eigi að b era allan kostnaðinn vegna þeirra mistaka sem áttu sér stað. Ef talið verði að stefndi Eyþór hafi sýnt af sér saknæma háttsemi og beri þar af leiðandi ábyrgð á tjóni gagnvart stefnanda byggja stefndu á því að eigin sök stefnanda eigi að leiða til niðurfel lingar eða takmörkunar á bótaskyldu stefndu. Í greinargerð stefndu er gerð grein fyrir ákvæðum laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög og laga nr. 145/1994 um bókhald og byggja á því að ef stefnandi hefði sinnt eftirliti með bókhaldi og meðferð fjármuna félag sins sem skyldi hefði komist upp fyrir mistökin mun fyrr. Tjónið hefði þar af leiðandi orðið mun minna. Öll útgjöld stefnanda þurfi að færa í bókhald fyrirtækisins en svo virðist sem það hafi ekki verið gert. Í hvert skipti sem stefndi Eyþór hafi pantað au glýsingar fyrir stefnanda hafi hann sent reikning frá Facebook á fjármálastjóra stefnanda. Hafi því reikningar legið til grundvallar öllum auglýsingum sem stefndi Eyþór hafi keypt fyrir stefnanda. Hins vegar hafi stefndi Eyþór ekki sent reikning til stefna nda þegar kort stefnanda hafi verið notað fyrir mistök til að greiða fyrir auglýsingar annarra. Af þessu sé ljóst að stefnandi hefði átt að taka eftir því að engir reikningar frá Facebook hafi legið til grundvallar ákveðnum útgjöldum af bankareikningi stef nanda. Í ljósi þessu skora stefndu á stefnanda að leggja fram yfirlit um það hvernig greiðslur fyrir auglýsingar hafi verið færðar í bókhald stefnanda og afrit af reikningum vegna þessara útgjalda. 6 verið með þessum málum innan fyrirtækisins. Í ljósi þessa ber i stefnandi mikla ábyrgð á því tjóni sem orðið hafi vegna þeirra mistaka sem leiddu til þess að greiðslukort stefnanda hafi verið notað til að greiða fyrir auglýsingar annarr a en stefnanda. Við mat á eigin sök stefnanda hafi þýðingu að líta til saknæmisstig stefnda Eyþórs. Hann hafi engan ásetning haft til að draga sér fé úr rekstri stefnanda og geti ekki hafa sýnt af sér stórfellt gáleysi. Ef hann verði talinn hafa sýnt af sé r saknæma háttsemi geti hún aðeins falist í einföldu gáleysi. Verði því stefnandi að bera ábyrgð á öllu tjóninu eða hluta þess sjálfur í ljósi eigin sakar. Þá byggja stefndu á því að ef talið verði að stefndi Eyþór hafi sýnt af sér saknæma háttsemi og ber i þar af leiðandi ábyrgð á tjóni gagnvart stefnanda eigi að fella niður ábyrgð hans á grundvelli 3. mgr. 23. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Með vísan til fyrrgreindra sjónarmiða um ætlaða saknæma háttsemi stefnda Eyþórs sé ljóst að hún geti aðeins falist í einföldu gáleysi. Sé því ósanngjarnt með tilliti til saknæmisstigs hans og atvika að öðru leyti að láta hann bera ábyrgð á tjóni stefnanda. Stefndu mótmæla kröfu stefnanda um vexti, dráttarvexti og málskostnað. Varðandi upphafstíma dráttarvaxta færi stef nandi engin rök fyrir því eða vísi í lagaákvæði sem heimila að krefjast dráttarvaxta frá viðurkenningu kröfu. Auk þess sé krafa stefnanda skaðabótakrafa og geti krafa um dráttarvexti aðeins byggst á 9. gr. laga nr. 38/2001. Geti því upphafstími dráttarvaxt a í fyrsta lagi verið mánuði eftir þingfestingu málsins. Ef stefndu verði taldir bera ábyrgð á tjóni stefnanda að öllu eða einhverju leyti krefjast þeir þess að dráttarvextir verði aðeins dæmdir frá dómsuppsögu og að málskostnaður falli niður. Telja stefnd u að beita beri undantekningu þeirri sem mælt er fyrir um í 9. gr. laga nr. 38/2001 enda sé ósanngjarnt að reikna dráttarvexti á kröfuna samkvæmt meginreglunni í ljósi þess að stefndi Eyþór hafi sýnt af sér litla sem enga saknæma háttsemi. Þá gerir stefnd i Eyþór kröfu um að gagnkröfu hans um ógreidd verklaun verði skuldajafnað við kröfu stefnanda ef fallist verði á hana, sbr. 1. mgr. 28. gr. laga nr. 91/1991. Stefndi Eyþór hafi enn ekki fengið greidd verklaun vegna uppsafnaðar vinnu hans fyrir stefnanda í október og nóvember 2023 og janúar, febrúar og mars 2024. Hafi vinnan á þessu tímabili numið 10,5 klukkustundum. Stefndi Eyþór hafi gefið út reikning vegna vinnu sinnar að fjárhæð 156.450 krónur þann 1. apríl 2024 með gjalddaga 10. apríl þess árs . Stefnandi hafi enn ekki greitt reikninginn. Byggt er á því að skilyrði 7 skuldajafnaðar séu uppfyllt og séu kröfurnar gagnkvæmar, hæfar til að mætast og sambærilegar. Til stuðnings kröfu sinni um sýknu vísa stefndu til almennu sakarreglunnar, reglunnar um eigin sök tjónþola, 44. gr. laga nr. 138/1994 og laga nr. 145/1994, einkum 6., 7. og 8. gr. Til stuðnings mótmælum sínum við dráttarvaxtarkröfu stefnanda vísa stefndu til 9. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Þá vísa stefndu til 1. mgr. 28. g r. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og almennra skilyrða skuldajafnaðar til stuðnings kröfu sinni um skuldajöfnuð. Kröfu um málskostnað byggja stefndu á XXI. kafla laga nr. 91/1991. Forsendur og n iðurstaða. Í málinu er ekki deilt um það að greiðsluko rt stefnanda var notað til auglýsingakaupa fyrir aðra en félagið á tímabilinu 28. apríl 2021 til 13. febrúar 2024 . Þá er heldur ekki deilt um upphæðir vegna kaupanna en fyrir dóminum liggur yfirlit um kortafærslur sem hefur ekki verið mótmælt af hálfu stef ndu. Stefndu hafa gengist við því, m.a. í sameiginlegri greinargerð þeirra fyrir dómi, að stefndi Eyþór hafi notað greiðslukort stefnanda til kaupanna fyrir mistök . Ekki er til efni til að draga í efa þá skýringu, sem stefndi Eyþór hefur fært fram, að kor t stefnanda hafi einungis verið skuld fært þegar ekki hafi verið heimild á kortum stefnda og Paypal - reikningi hans . Hins vegar verður að líta til þess að á tímabilinu frá október 2022 til desember þess árs keypti stefndi Eyþór auglýsingar með korti stefnand a fyrir 886.740 krónur í átta færslum. Á um tveggja mánaða tímabili ári síðar, frá 31. október 2023 til 22. desember þess árs keypti stefndi Eyþór auglýsingar með korti stefnanda fyrir alls 780.921 krónur í sjö færslum. Er að mati dómsins ótrúverðugt að þetta hafi getað gerst án þess að stefndi Eyþór yrði þess áskynja a ð kort hans eða Paypal - reikning ur hefðu ekki verið skuldfærð . Mátti honum vera ljóst að rík ástæða væri til þess að kanna hvernig greitt hefði verið fyrir auglýsingarnar og að tjón kynni að leiða af þeirri háttsemi að halda áfram auglýsingakaupum án þess að framkvæma slíka könnun . Þá er til þess að líta að stefndi Eyþór lét ekki af háttseminni fyrr en upp um hana komst . S íðasta greiðsla með korti stefnanda vegna auglýsingakaupa fyrir stefnda Verslunina Bræðurna Eyjólfsson ehf. átti sér stað 13. febrúar 202 4, rúmri viku áður en tölvupóstsamskipti aðila sem áður er gerð grein fyrir hófust . Verður því að leggja til grundvallar að tjón stefnanda verði rakið til háttsemi stefnda Eyþórs sem feli að lágmarki í sér stórkostlegt gáleysi af hans 8 hálfu . Var bæði um saknæma og ólögmæta háttsemi að ræða og var tjón stefnanda sennileg afleiðing af henni . Dómurinn getur ekki fallist á það að fella eigi niður eða lækka skaðabætur til stefnanda á grundvelli sjónarmiða um meðábyrgð . Í þessu sambandi verður að hafa í huga að stefndi Eyþór starfaði fyrir stefnanda og hafði m.a. það hlutverk að kaupa auglýsingar á Facebook. Að mati dómsins verður stefnanda með engu móti kenn t um það að stefndi Eyþór hafi hagað málum með þeim hætti að greiðslukort stefnanda yrði skuld fært vegna auglýsingakaupa fyrir aðra aðila. Hvað möguleika stefnanda til að taka eftir færslum vegna kaupanna varðar bendir dómurinn á að í bókhaldi stefnanda my nduðust einnig færslur vegna kaupa á auglýsingum sem voru sannarlega í þágu stefnanda. Stóð það stefnda Eyþóri mun nær að grennslast fyrir um það hvers vegna honum væri fært að kaupa auglýsingar í eigin þágu eða stefnda Verslunarinn ar Bræðranna Eyjólfsson ehf. án þess að greiðslukort eða aðrir greiðslumiðlar á hans vegum yrðu skuldfærðir . Við sakarmat í tengslum við sjónarmið um meðábyrgð verður því lagt til grundvallar að meginorsök tjóns stefnanda sé saknæm háttsemi stefnda Eyþórs sem áður er lýst en það aðgæsluleysi sem stefnandi kann að hafa sýnt verður að telja lítils háttar í samanburði . Verður háttsemin heldur ekki talin eðlilegur þáttur í starfi stefnda Eyþórs fyrir stefnanda og kemur því ekki til álita að skerða eða fella niður bótaábyrgð á grundve lli 1. mgr. , sbr. 3. mgr., 23. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Loks verður ekki séð að stefndu hafi mótmælt því að auglýsingakaup stefnda Eyþórs hafi að stærstum hluta verið í þágu stefnda Verslunarinnar Bræðranna Eyjólfsson ehf. og hafa stefndu tekið til varna í málinu á þeim grundvelli að báðir eigi að því aðild . Verða stefndu því dæmdir sameiginlega til greiðslu skaðabóta vegna tjóns stefnanda ásamt vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 líkt og stefnandi gerir kröfu um. Eins og hér stendur á þykir rétt að miða upphafstíma dráttarvaxta við það tímamark er mánuður var liðinn frá því að stefndu var birt stefna við fyrri málshöfðun stefnanda á hendur þeim , sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001. Til frádráttar kemur innborgun stefnda Verslunarinnar Bræðranna Eyj ólfsson ehf. líkt og nánar greinir í dómsorði. Þá hefur stefnandi ekki mótmælt því að stefndi Eyþór hafi unnið í hans þágu á tímabilinu október 2023 til mars 2024 og er fjárhæð kröfu hans heldur ekki andmælt. Hins vegar er ósannað að stefndi Eyþór hafi ger t kröfu um greiðslu vegna vinnunnar fyrr en með framlagningu greinargerðar stefndu fyrir dóminum 1. 9 október 2025 . Er því ekki unnt að taka tillit til kröfunnar til skuldajafnaðar fyrr en mánuði frá því tímamarki, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001. Eftir þessum úrslitum og með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 ber stefndu að greiða stefnanda málskostnað óskipt . Þykir hann með hliðsjón af atvikum máls og umfangi þess hæfilega ákveðinn eins og í dómsorði greinir . Mál þetta flutti fyrir stefnanda Andri Björgvin Arnþórsson lögmaður og Alda Lín Auðunsdóttir lögmaður fyrir stefnd u . Oddur Þorri Viðarsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Stefndu, Eyþór Jóvinsson og Verslunin Bræðurnir Eyjólfsson ehf., greiði stefnanda, Fisherman ehf., 3.45 3.829 krónur með vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 71.032 krónum frá 28. apríl 2021 til 30. maí 2021, af 134.217 krónum frá 31. maí 2021 til 29. september 2021, af 189.055 krónum frá 30. september 2021 til 11. október 2021, af 261.807 krónum frá 12. októ ber 2021 til 22. október 2021, af 334.963 krónum frá 23. október 2021 til 23. nóvember 2021, af 461.152 krónum frá 24. nóvember 2021 til 9. desember 2021, af 585.923 krónum frá 10. desember 2021 til 30. janúar 2022, af 598.197 krónum frá 31. janúar 2022 ti l 27. febrúar 2022, af 709.505 krónum frá 28. febrúar 2022 til 31. mars 2022, af 738.029 krónum frá 1. apríl 2022 til 19. maí 2022, af 856.348 krónum frá 20. maí 2022 til 31. júlí 2022, af 944.297 krónum frá 1. ágúst 2022 til 17. ágúst 2022, af 1.064.611 k rónum frá 18. ágúst 2022 til 16. október 2022, af 1.183.011 krónum frá 17. október 2022 til 27. október 2022, af 1.303.169 krónum frá 28. október 2022 til 18. nóvember 2022, af 1.426.695 krónum frá 19. nóvember 2022 til 24. nóvember 2022, af 1.549.579 krón um frá 25. nóvember 2022 til 27. nóvember 2022, af 1.672.445 krónum frá 28. nóvember 2022 til 29. nóvember 2022, af 1.700.128 krónum frá 30. nóvember 2022 til 16. desember 2022, af 1.824.885 krónum frá 17. desember 2022 til 21. desember 2022, af 1.950.351 krónu frá 22. desember 2022 til 3. mars 2023, af 2.073.245 krónum frá 4. mars 2023 til 14. júlí 2023, af 2.197.365 krónum frá 15. júlí 2023 til 27. júlí 2023, af 2.320.387 krónum frá 28. júlí 2023 til 27. september 2023, af 2.440.960 krónum frá 28. septemb er 2023 til 30. október 2023, af 2.552.216 krónum frá 31. október 2023 til 17. nóvember 2023, af 2.678.393 krónum frá 18. nóvember 2023 til 25. nóvember 2023, af 2.803.421 krónu frá 10 26. nóvember 2023 til 29. nóvember 2023, af 2.842.957 krónum frá 30. nóvem ber 2023 til 8. desember 2023, af 2.969.846 krónum frá 9. desember 2023 til 15. desember 2023, af 3.096.874 krónum frá 16. desember 2023 til 21. desember 2023, af 3.221.881 krónu frá 22. desember 2023 til 30. janúar 2024, af 3.328.460 krónum frá 31. janúar 2024 til 13. febrúar 2024, af 3.453.829 krónum frá 13. febrúar 2024 til 10. apríl 2025 , en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. , sbr. 9. gr., sömu laga af sömu fjárhæð frá þeim degi til greiðsludags, allt að teknu tilliti til innborgunar að fjárhæð 2 30.000 krónur þann 28. febrúar 2024 og að frádregnum 156.450 krónum miðað við 1. nóvember 2025. Stefndu greiði stefnanda óskipt 1. 40 0.000 krónur í málskostnað. Oddur Þorri Viðarsson