Héraðsdómur Reykjaness Dómur 26. mars 2026 Mál nr. S - 2767/2025 : Ákæruvaldið ( Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari ) g egn Viktorija Urbonaite og Irmantas Verbickas ( Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður ) Dómur : I Mál þetta, sem dómtekið var 18. mars 2026 , er höfðað með tveimur ákærum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur ákærðu, Irmantas Verbickas, , og Viktorija Urbonaite, . Með ákæru dags. 16. september 2025 var höfðað mál á hendur ákærðu Viktorija og með ákæru dags. 16. desember 2025 var höfðað mál á hendur ákærða Irmantas. Málin voru sameinuð við fyrirtöku þeirra 12. desember 2025. Báðum ákærðu er gefið að sök fíkniefn alagabrot, með því að hafa, föstudaginn 22. september 2023, í íbúð á þriðju hæð til vinstri í , í félagi við tilgreindan aðila, haft í vörslum sínum í sölu - og dreifingarskyni, 123 kannabisplöntur, 370 g römm af kannabisstönglum og 12.590 g römm af kann abislaufum og hafa, um nokkurt skeið fram til þess dags, ræktað greindar kannabisplöntur, sem lögreglumenn fundu við leit í íbúðinni. B rot ákærðu eru talin varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr. laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 14 . gr., reglugerðar um ávana - og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum. Þess er krafist að ákærð u verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. 2 Í báðum ákærum er krafist upptöku á 123 kannabisplöntum, 370 g römmum af kannabisstönglum og 12.590 g römmum af kannabislaufum , sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974. Jafnframt er krafist upptöku á einni loftsíu, fimm LED ljósagrindum, einum gulum ljóslampa, fjórum LED ljósalömpum, fjórum t ímarofum og þremur straumbreytum , samkvæmt 7. mgr. 5. gr. sömu laga, en munirnir voru notaðir við framleiðslu fíkniefna. Í ákærunni á hendur Irmantas er einnig krafist upptöku á Samsung farsíma, sem lagt var hald á, samkvæmt 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 , en farsíminn var notaður við framningu brotanna. Undir rekstri málsins gerði ákæruvaldið breytingu á ákærunni þannig að í stað þess að ákærðu sé gefið að sök að hafa ræktað þær kannabisplöntur sem tilgreindar séu í ákæru er þeim gefið að sök að hafa ræk tað kannabisplönturnar fyrir ótilgreindan aðila. Verjandi beggja ákærðu gerir þá kröfu að þau verði dæmd til þeirrar vægustu refsingar sem lög frekast heimila og hún verði skilorðsbundin að öllu leyti. Upptökukröfu er ekki mótmælt. Þá er þess krafist a ð verjandanum verði dæmd málsvarnarlaun samkvæmt mati dómsins. II Fyrir dómi ját uðu bæði ákærð u afdráttarlaust sök samkvæmt ákæru eftir þá breytingu á henni sem lýst er hér að framan og samþykktu upptökukröfu. Dómari telur ekki ástæðu til að draga í efa a ð játning beggja ákærðu sé sannleikanum samkvæm enda er hún í samræmi við rannsóknargögn málsins. Var því farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Málið var því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og ve rjanda ákærð u hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Með skýlausri játningu beggja ákærð u fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er sannað að þau hafi gerst sek um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í ákæru eftir fyrrgreinda breytingu á henni og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða. H afa bæði ákærð u unnið sér til refsingar samkvæmt því. 3 III Ákærð u h afa ekki áður orðið uppvís að refsiverði háttsemi svo kunnugt sé. Með hliðsjón af því og dómaframkvæmd í málum sem þessum þykir refsing ákærð u, hvors um sig, hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði . Með vísan til þess m.a. hve langt er síðan að þau frömdu brot sitt þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og falli h ún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja . Samkvæmt ofangreindri niðurstöðu er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins eins og hún er sett fram í ákæru nu m . Upptækt er því til ríkissjóðs 123 kannabisplöntur, 370 grömm af kannabisstön glum, 12.590 grömm af kannabislaufum, ein loftsía, fimm LED ljósagrindur, einn gulur ljóslampi, fjórir LED ljósalampar, fjórir tímarofar, þrír straumbreytar og einn Samsung farsími, sbr. 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974. Ákærð u greiði óskipt málsvar narlaun skipaðs verjanda síns, Karls Georgs Sigurbjörnssonar lögmanns, sem þykja hæfilega ákveðin með hliðsjón af umfangi málsins 706.800 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ákærð u greiði óskipt annan sakarkostnað 360.456 krónur. Af hálfu ákæruvalds ins sótti málið Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari. Ingi Tryggvason héraðsdómari kveður upp dóm þennan. D ó m s o r ð: Ákærði, Irmantas Verbickas, s æti fangelsi í fimm mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum t veimur árum frá birtingu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærð a , Viktorija Urbonaite, s æti fangelsi í fimm mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Upptækt er til ríkissjóðs 123 kannabisplöntur, 370 grömm af kannabiss tönglum, 12.590 grömm af kannabislaufum, ein loftsía, fimm LED ljósagrindur, einn gulur 4 ljóslampi, fjórir LED ljósalampar, fjórir tímarofar, þrír straumbreytar og einn Samsung farsími, Ák ærð u greiði óskipt málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Karls Georgs Sigurbjörnssonar lögmanns, 706.800 krónur og annan sakarkostnað 360.456 krónur. Ingi Tryggvason