Héraðsdómur Norðurlands eystra Dómur 6. nóvember 2025 Mál nr. S - 430/2025 : Ákæruvaldið ( Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari ) g egn X Dómur Mál þetta, sem var dómtekið 15. október sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 18. ágúst 202 5 , á hendur X , kt. , , , fyrir líkamsárás, með því að hafa mánudaginn 1. janúar 2024, ýtt eiginkonu sinni út á svalir íbúðar sem þau búa saman í að og hrint henni þar þannig að hún féll í snjóinn á svölunum og síðan lokað hana þar úti í um eina mínútu, en ákærða var berfætt og í þunnum náttslopp þegar þetta gerðist og það var kalt úti. Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19 /1940, með síðari breytingum. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Við þingfestingu málsins breytti sækjandi ákæru á þann veg að ákærði hafi ýtt eiginkonu sinni, A , kt. , út á svalir íbúðar, sem þau búa saman í að , þannig að hún féll á rassinn í snjóinn á svölunum og síðan lokað hana þar úti í um hálfa mínútu. Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök samkvæmt svo breyttri ákæru. Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, og gögnum málsins, er nægilega sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem í svo breyttri ákæru er lýst og þar er réttilega heimfærð til refsiá kvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, sbr. heimildarákvæði 164. gr. laga nr. 88/2008. Þann 21. október 2024 gekkst ákærði undir greiðslu 40.000 króna lögreglustjórasektar fyrir að aka án gildra ökuréttinda. Brot það sem ákærði er n ú sakfelldur fyrir var framið fyrir fyrrgreinda lögreglustjórasekt. Verður honum því ákveðinn hegningarauki er samsvari þeirri þyngingu refsingarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um bæði brotin í fyrra málinu, sbr. 78. gr. almennra hegninga rlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar verður litið til 3. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en einnig til erfiðra fjölskylduaðstæðna ákærða. Refsing ákærða er ákveðin fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbun dið, eins og nánar greinir í dómsorði. 2 Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Berglind Harðardóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn. Dómso r ð: Ákærði, X , sæti fangelsi í 30 daga. Fresta ber fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.