Héraðsdómur Norðurlands vestra Dómur 14. mars 2025 Mál nr. S - 113/2024 : Ákæruvaldið ( Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri ) g egn Sigurð i Þór Jónss yni ( Stefán Karl Kristjánsson lögmaður ) Dómur I Mál þetta, sem þingfest var 23. janúar sl. og dómtekið 4. febrúar sl. er höfðað af lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra með ákæru 30. desember 2024 , á hendur Sigurði Þór Jónssyni , fæddum , til heimilis að , ,, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 21. ágúst 2024, sviptur ökurétti, stjórnað bifreiðinni , sem þá var dregin af bifreiðinni um Þverárfjallsveg í Sveitarfélaginu Skagafirði, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn . Telst háttsemi þ essi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77, 2019. M:315 - 2024 - 004664 Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. II Ákærði sótti ekki þing þegar málið var þingfest 23. janúar sl. , en Stefán Karl Kristjánsson lögmaður, skipaður verjandi ákærða, hafði samband við dóminn og boðaði forföll. Málinu var frestað til 4. febrúar og var þing þá sótt í gegnum fjarfundabúnað af ákærða og verjanda . Ákærði játaði skýlaust háttsemi þá sem honum er í ákæru gefin að sök og þar er réttilega færð til refsiákvæða. Að framkominni játningu ákærða v ar farið með málið eftir ákvæðum 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Með skýlausri játningu ákærða sem er í samræmi við gögn málsins telst sannað a ð hann hafi gerst sekur um háttsemi þá sem í ákæru greinir. Um málsatvik vísast til ákæru. Ákærði var undir stýri bifreiðarinnar ] þegar hún var 2 dregin af annarri bifreið. Liggur í hlutarins eðli að ákærði þurfti að stýra bifreiðinni þannig að hún héldist á veginum og hemla þegar við átti. Telst hann því hafa verið ökumaður bifreiðarinnar í umrætt sinn. Samkvæmt vottorði sakaskrár hefur ákærði frá 2007 átta sinnum sætt refsingu einkum fyrir akstur undir áhrifum og akstur sviptur ökurétti. Síðast var ákærði dæmdur í lok árs 2021 í þriggja mánaða fangelsi en refsingin bundin skilorði til tveggja ára fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. og 233. gr. almennr a hegningarlaga og fyrir brot gegn vopnalögum. Þar á undan var hann, 19. desember 2019, dæmdur í þriggja mánað fangelsi fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti og umfram leyfilegan hámarkshraða. Í þessum dómi er lagt til grundvallar að ákærði hafi í fjórða s inni ítrekað brot vegna aksturs sviptur ökurétti. Áralöng dómvenja stendur til þess að við ákvörðun refsingar fyrir brot af því tagi sem ákærði er nú sakfelldur f yrir sé litið til brotaferils manns við ákvörðun refsingar á hliðstæðum sjónarmiðum og ítrekun aráhrif þar sem þeirra er getið í lögum. Brot það sem ákærði er nú sakfelldur fyrir var framið 21. ágúst 2024 en þá voru ekki liðin fimm ár frá uppkvaðningu dómsins frá 19. desember 2019. Verður því við það að miða að á kærði sé nú sa k felldur fyrir akstur s viptur ökurétti í fimmta sinn þannig að ítrekunaráhrifa gæti milli brota hans. Að teknu tilliti til þess sem að framan er rakið þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fjögurra mánaða fangelsi. Sakarkostnaður féll ekki á málið við rannsókn þess hjá lögregl u. Ákærði naut aðstoðar verjanda og ber að dæma hann til að greiða þóknun verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, sem þykir , m.a. að teknu tilliti til reglna dómstólasýslunnar nr. 1/202 5 , hæfileg a ákveðin 148.800 krónur að meðtöldum virðisauk askatti. Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjór i á Norðurlandi vestra. Halldór Halldórsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómsorð: Ákærði, Sigurður Þór Jónsson , sæti fangelsi í fjóra mánuði. Ákærði greiði 148.800 króna þóknun verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns . Halldór Halldórsson