Héraðsdómur Suðurlands Dómur 3. mars 2026 Mál nr. S - 21/2026 : Ákæruvaldið (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) g egn Graciano Vicente Mendonca Abreu og Paulo André S. Santana Afonso ( sjálfir ) Dómur Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 12. febrúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans í Vestmannaeyjum þann 14. janúar sl., á hendur Graciano Vicente Mendonca Abreu, og Paulo André S. Santana Afonso, I. á hendur ákærða Graciano Vicente Mendonca Abreu, fyrir þjófnað, með því að hafa ítrekað á tímabilinu frá ágúst 2023 og allt fram til 30. nóvember 2023, stolið ótilgreindu magni af endurvinnanlegum drykkjarumbúðum úr söfnunargámi ÍBV - Íþróttafélags, , se m var staðsettur við Hamarsveg í Vestmannaeyjum. Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. II. á hendur ákærða Graciano Vicente Mendonca Abreu, fyrir peningaþvætti, með því að hafa ítrekað, að minnsta kosti fjórtán sinnum á tímabilinu frá 8. ágúst 2023 til 16. nóvember 2023 aflað sér ávinnings allt að fjárhæð 1.014.420 krónur með því að skila inn endurvinnanlegum drykkjarumbúðum til Endurvinnslunar hf., , sem ákærði stal úr söfnunargámi ÍBV - Íþróttafélags, sbr . ákæruliður I. og fengið skilagjald lagt inn á eigin bankareikning nr. sem sundurliðast sem hér greinir: Tilvik Dags. Reikningsnúmer Reikningseigandi Upphæð 1 8.8.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 64.420 2 8.8.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 69.760 2 3 9.8.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 22.120 4 14.8.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 84.320 5 21.8.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 50.380 6 29.8.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 86.700 7 7.9.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 40.360 8 14.9.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 26.340 9 21.9.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 28.260 10 3.1 0.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 1 64.180 11 18.10.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 124.760 12 24.10.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 61.320 13 2.11.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 72.820 14 16.11.2023 Graciano Vicente Mendonca Abreu 118.680 Telst brot ákærða varða við 1. m gr. 264. g r. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. III. á hendur ákærða Paulo André S. Santana Afonso , fyrir þjófnað, með því að hafa á tímabilinu frá ág úst 2023 og út september 2023, stolið ótilgreindu magni af endurvinnanlegum drykkjarumbúðum úr söfnunargámi ÍBV - Íþróttafélags, , sem var staðsettur við Hamarsveg í Vestmannaeyjum. Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr . 19/1940. IV. á hendur ákærða Paulo André S. Santana Afonso, fyrir peningaþvætti, með því að hafa að minnsta kosti tvisvar sinnum á tímabilinu frá 21. september 2023 og til 18. október 2023, aflað sér ávinnings allt að fjárhæð 45.320 krónur með því að s kila inn endurvinnanlegum drykkjarumbúðum til Endurvinnslunnar hf., kt. , sem ákærði stal úr söfnunargámi ÍBV - Íþróttafélags, kt. , sbr. ákæruliður III. o g fengið skilagjald lagt inn á eigin bankareikning nr. sem sundurliðast sem hér greinir: Til vik Dags. Reikningsnúmer Reikningseigandi Upphæð 1 21.9.2023 Paulo André S. Santana Afonso 9.420 2 18.10.2023 Paulo André S. Santana Afonso 35.900 3 Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 2 6 4. gr. almennra heg ningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Einkaréttarkrafa: Þess er krafist að ákærðu verði gert að greiða ÍBV - Íþróttafélagi skaðabætur in solidum að fjárhæð kr. 1.500.000. Krafis t er vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 af kröfufjárhæð frá 1. desember 2023 til þess tíma að mánuður er liðinn frá því að ákærðu er kynnt skaðabótakrafa. Þá er krafist dráttarvaxta skv. III. kafla framangreindra laga sbr. m.a. 1. mgr. 6. gr. laganna f rá því að mánuður er liðinn frá því ákærðu er kynnt skaðabótakrafa til greiðsludags. Jafnframt er þess krafist að greiddur verði allur kostnaður vegna innheimtu kröfunnar sem nemur nú kr. 255.000 þ.m.t. vsk. Ákærðu mættu fyrir dóminn 12. febrúar sl. og lýstu því yfir að þeir óskuðu ekki eftir skipun verjanda. Ákærðu viðurkenndu báðir skýlaust að hafa gerst sekir um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærðu og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning þeirra væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að sækjanda og ákærðu sjálfum hafði verið gefinn kostur á að t já sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærðu hafa gerst sekir um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í ákæru og þar þykir færð rétt til refsiákvæða. Þá hafa ákærðu með háttsemi sinni unnið sér til r efsingar. Með tölvupósti, dags. 24. febrúar 2026, tilkynnti Jóhann Pétursson lögmaður, að ákærðu hefðu gert fullnaðarskil á einkaréttarkröfu ÍBV Íþróttafélags og því væri krafan afturkölluð. Samkvæmt framlögðum sakavottorðum ákærðu, bæði dagsett 13. janúa r 2026, hefur sakaferill þeirra ekki áhrif við ákvörðun refsingar í þessu máli. Við ákvörðun refsingar verður litið til þess að ákærðu hafa báðir greitt einkaréttarkröfuhafa þá fjármuni sem krafist var, sbr. 5. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að virtum atvikum máls og alls sem að framan er rakið þykir refsing ákærða Graciano Vicente Mendonca Abreu hæfilega ákveðin 9 0 daga fangelsi en fresta skal fullnustu refsingarinnar og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu 4 d ómsins að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Refsing ákærða Paulo André S. Santana Afonso þykir hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi en fresta skal fullnustu refsingarinnar og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Engan sakarkostnað leiddi af máli þessu. Sigurður G. Gíslason dómstjóri kveður upp dóm þennan. D Ó M S O R Ð : Ákærði, Graciano Vicente Mendonca Abreu , sæti fangelsi í 9 0 daga. Fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum. Ákærði, Paulo André S. Santana Afonso, sæti fangelsi í 3 0 daga. Fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum. Sigurður G. Gíslason