Héraðsdómur Vestfjarða Dómur 3. apríl 2025 Mál nr. S - 30/2025: Lögreglustjórinn á Vestfjörðum ( Kristján Óskar Ásvaldsson saksóknarfulltrúi ) g egn Daníel Arnar i Einar ssyni og X (Guðmundur Narfi Magnússon lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem dómtekið var 31. mars sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Vestfjörðum 14. mars sl. á hendur Daníel Arnari Einarssyni, kt. og X , kt. , fyrir eftirfarandi fíkniefnalagabrot, framin í Súðavíkurhreppi: I. Á hendur ákærða Daníel Arnari, fyrir brot gegn lögum um ávana - og fíkniefni, með því að hafa snemma morguns mánudaginn 3. apríl 2023, í sölu - og dreifingarskyni, haft í vörslum sínum eftirtalin fíkniefni sem fundust við leit lögreglu á þáverandi heimili Maríhúana 172,9 g Efnaskrárnr. 51200 Amfetamín 1,69 g Efnaskrárnr. 51201 Kannabislauf 132,87 g Efnaskrárnr. 51201 Kannabisstönglar 46,69 g Efnaskrárnr. 51201 Alprazolam Krka 58 stk. Efnaskrárnr. 51201 Concerta 1 stk. Efnaskrárnr. 51201 MDMA 53 stk. Efnaskrárnr. 51201 Mogadon 3 stk. Efnaskrárnr. 51201 Stilnoct 10 stk. Efnaskrárnr. 51201 Í ákæru er þetta talið varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana - og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001. 2 Þess er krafist að framangreind efni verði gerð upptæk auk 729,18 g af óskilgreindu efni, 13 stykkja af óskilgreindum töflum og 23 stykkja af læknislyfjum, sbr. efnaskrárnr. 51201, sem hald var lagt á, allt með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 (mál nr. 312 - 2023 - 1216). II. Á hendur ákærða Daníel Arnari og ákærða X fyrir brot gegn lögum um ávana - og fíkniefni með því að hafa snemma morguns mánudaginn 26. mars 2024 haft í vörslum sínum fíkniefni í sölu - og dreifingarskyni sem ákærði Daníel Arnar hafði flutt ti l þorpinu á Súðavík en í bifreiðinni og á heimili Daníels Arnars hafi fundist fíkniefni og iðinni síðar sama dag og falið þar inni samkvæmt beiðni ákærða Daníels Arnars í SMS - skilaboðum. Öll þessi efni hafi Daníel Arnar flutt í nefndri bifreið samkvæmt ákærunni og þar eru sögð hafa fundist 9,82 g af amfetamíni, 9,87 g ketamíns, 10 ml af kannabis blönduðum vökva, 50 stykki MDMA og 24 stykki læknislyfja. Í húsnæði björgunarsveitarinnar hafi fundist 288,1 g af marihúana sem ákærði X hafi flutt þangað. af maríhúana í vörslum hans. Þess er krafist að framangreind fíkniefni verði gerð upptæk auk 24 stykkja af læknislyfjum, sbr. efnaskrárnr. 53542, sem hald var lagt á, með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 (mál nr. 314 - 2024 - 945). III. Á hendur ákærða Daníel Arnari fyrir brot gegn lögum um ávana - og fíkniefni með því að hafa miðvikudagsmorguninn 5. júní 2024 haft í vörslum sínum 3 ml af Í á kæru er þetta talið varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Þess er krafist að vökvinn, sem hald var lagt á, verði gerður upptækur með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. g r. reglugerðar nr. 233/2001 (mál nr. 314 - 2024 - 1843). 3 Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Ákærðu mættu báðir við þingfestingu málsins, játuðu brot sín án undandráttar og samþykktu upptökukröfur. Var því farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærðu krefjast vægustu refsingar sem lög leyfa og verjandi ákærðu krefst hæfilegrar þóknunar sér til handa. Með skýlausri játningu ákærðu, sem fær stoð í gögnum málsins, þykir sannað að þeir hafi gerst sekir um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega he imfærð til refsiákvæða. við ákvörðun refsingar í málinu. Þá er horft til skýlausrar játningar ákærða og framkomu hans undir rannsókn málsins en lagt verður til grundvallar að hann hafi af sjálfsdáðum veitt bæði aðstoð og upplýsingar til að upplýsa um brot sín. Hins vegar verður ekki horft fram hjá því að ákærði tók með háttsemi sinni þátt í flutningi umtalsverðs magns ávana - og fíkniefna í sölu - og dreifingarskyni. Með hliðsjón af framangreindu, atvikum málsins og 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða Daníels Arnars hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Eftir atvikum þykir mega fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimu r árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. ákvörðun refsingar í málinu. Horft er til skýlausrar játningar ákærða, framkomu hans undir rannsókn málsins og þes s að þátt hans í málinu verður að telja minni háttar. Með hliðsjón af framangreindu, atvikum málsins og 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða X hæfilega ákveðin 45 daga fangelsi en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Ákærðu sæti upptöku ávana - og fíkniefna sem haldlögð voru af lögreglu við rannsókn málsins líkt og nánar greinir í dómsorði. Ákærðu greiði allan sakarkostnað má lsins , 1.166.805 krónur, með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008. Þar af greiði ákærði Daníel Arnar þóknun skipaðs verjanda síns fyrir dómi og á rannsóknarstigi , Guðmundar Narfa Magnússonar lögmanns 4 sem þykir hæfilega ákveðin 840.375 krónur, en við ákvörðun hennar hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts, ákærði X greiði þóknun skipaðs verjanda síns, sama lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin 326.430 krónur, en við ákvörðun hennar hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Ekki leiddi annan sakarkostnað af meðferð málsins fyrir dómi. Kristján Óskar Ásvaldsson saksóknarfulltrúi flutti málið fyrir hönd ákæruvaldsins. Oddur Þorri Viðarsson dómstjóri kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærði Daníel Arnar Einarsson sæti fangelsi í fjóra mánuði en f resta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði X sæti fangelsi í 45 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og ska l hún falla niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Ákærðu sæti upptöku á alls 463,22 g af maríhúana, alls 11,79 g af amfetamíni, 132,87 g af kannabislaufum, 46,69 g af kann abisstönglum, 58 stykkjum af Alprazolam krka, einu stykki af Concerta, alls 103 stykkjum af MDMA, 3 stykkjum af Mogadon, 10 stykkjum af Stilnoct, 729,18 g af óskilgreindu efni, 13 stykkju m af óskilgreindum töflum, alls 47 stykkjum af læknislyfjum, 9,87 g a f ketamíni og alls 13 ml af kannabisblönduðum vökva . Ákærði Daníel Ar nar greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Narfa Magnússonar lögmanns, 840.375 krónur. Ákærði X greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Narfa Magnússonar lögmanns, 326.430 krónur. Oddur Þorri Viðarsson